Morgunblaðið - 21.08.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1974
; • •
» *
—V \ !
forum
world features
Eftir
Paul
Toulmin - Rothe
Dr. Francis Ng’ombe með krist-
aikúiu I hönd gefur sjúklingi
ráð.
Töfralæknirinn,
sem hyggst stofna
alþjóðlega lækningamiðstöð
Dr. Francis Ng’ombe, 34 ára
Zambiubúi, sem er nú búsettur
í Nairobi, er áreiðanlega ný-
tízkulegasti töfralæknir í
Afríku og líklega sá, sem mest-
um árangri hefur náð. En þessi
snyrtilegi læknir líkist alls ekki
„Hollywood“-gerð töfralækna,
og hann sést aldrei með grímu
og hárkollu, dansandi kringum
„sjúkling” með töfrahluti, raul-
andi einkennilega söngva og
grettandi sig á ógnvekjandi
hátt. „Þetta er tóm hjátrú,” seg-
ir Ng’ombe, „hjátrúin hefur
umfram allt annað komið illu
orði á hefðbundnar afriskar
grasalækningar og andatrú á
Vesturlöndum og hefur dregið
athyglina frá hinu raunveru-
lega og mikilvæga framlagi Af-
ríku-vísinda. Þvi að baki hjá-
trúarinnar búa aldir reynslu og
sannra vísinda — á sinn hátt
jafnrétthá og vísindi annarra
þjóða.”
Dr. Francis veit, um hvað
hann- er að tala. Auk þess að
hafa alizt upp við þjóðlegan af-
riskan lófalestur og grasalækn-
ingar, hefur hann einnig
læknapróf frá háskólanum i
Tananarive á Madagascar. Dr.
Francis, sem er sonur frægrar
grasakonu, fæddist til iðninnar
og sýndi auk þess mjög snemma
einkennilega og mikla dulræna
hæfileika. Þegar sem 13 ára
gamall drengur, gat hann, næst-
um ómeðvitað, ráðið drauma
skólabræðra sinna, og aðeins
fáum árum síðar hafði hann
lært allt, sem móðir gat kennt
honum um lækningamátt af-
riskra jurta og aðrar þjóðlegar
erfðir.
Síðar gat Ng’ombe með hjálp
evrópsks mágs síns stundað
nám við Tananariveháskólann
og hlaut þar venjulega mennt-
un I læknisfræði. En hann
hafði ekki gleymt fyrri kunn-
áttu né hæfileikum þeim, sem
birtust hjá honum á unga aldri.
— Að loknu námi hélt hann til
Suður-Afríku, þar sem hann
lærði lóf alestur og dáleiðslu hjá
frægri spákonu og tók að þjálfa
með sér hina miklu skyggni-
gáfu sína.
Dr. Ng’ombe kom fyrst fyrir
almenningssjónir árið 1971,
þegar hann fór til Nairobi til að
vera þar á Al-Afrikumarkaðn-
um. Með hjálp zambísks um-
boðsmanns tókst honum að
setja upp litla búð nálægt tjaldi
Zambíu á markaðssvæðinu, og á
sama augnabliki og hann setti
upp skilti sitt, hópuðust við-
skiptavinirnir að honum. Þeir
tjáðu lækninum vandræði sin,
og ráðleggingar hans í læknis-
fræðilegum efnum, ástar- og
hjónabandsmálum, atvinnu-
málum og viðskiptum reyndust
svo árangursríkar, að frægð
hans óx hröðum skrefum, og
þegar markaðnum lauk, gat
hann opnað lækningastofu i
Nairobi.
MERKILEGIR SPÁDÖMAR
En dr. Francis öðlaðist ekki
aðeins frægð sem grasalæknir.
Hann tók að spá fyrir um
heimsatburði, venjulega tengda
Afríku, og nokkrar spár hans
voru merkilega nákvæmar.
Hann sagði fyrir um fall vara-
forseta Zambiu, Simon Kapwe-
pwe, tveim vikum fyrir afsögn
hans og var einnig jafnákvæm-
ur í spádómi sínum um lengd
„smástríðsins”, sem brauzt út
milli Uganda og Tanzaníu.
Fleiri slik dæmi mætti nefna.
Síðar, snemma árs 1974 —
áður en valdaránið I Portúgal
undir forystu Spinola hershöfð-
ingja var framið — sagði hann í
viðtali í BBC, að Mozambique
yrði sjálfstætt ríki innan
tveggja ára, en allar líkur eru
nú á, að slíkt rætist, hversu
ólíklega sem það hljómaði þá.
Áhangendur hans tala mjög um
aðra spá: hann hefur sagt, að
Muhammed Ali muni tapa
heimsmeistaratitlinum í hnefa-
leikum fyrir George Foreman,
þegar þeir mætast í Zaire siðar
á þessu ári.
Frá árinu 1971 hafa dr.
Francis borizt hundruð bréfa
vikulega frá fólki um allan
heim, sem hefur lesið um hæfi-
leika hans i blöðum eða tímarit-
um. I sambandi við svör við
þessum bréfum hefur Ng’ombe
farið fjölda ferða til flestra
hluta Afríku, hálfrar Evrópu
og jafnvel til Bandaríkjanna og
Suður-Ameríku. Hvar sem
hann hefur farið, hefur hann
hlotið mikla frægð, og sérgrein
hans, sem er meðhöndlun á
óbyrjum, hefur vakið mikla at-
hygli i hverju landi.
Nú hefur dr. Ng’ombe öðlazt
nýtt takmark: að-stofna heims-
miðstöð til rannsókna á hefð-
bundnum aðferðum grasa-
lækna. Aætlanir fyrir heims-
miðstöðina eru þegar tilbúnar,
og brátt verður hafizt handa við
byggingarframkvæmdir. Þegar
þeim er lokið, hyggst hann
bjóða þangað (til Nairobi)
grasalæknum og andalæknum
alls staðar að úr heiminum, og
einnig venjulegum læknum. Og
hann trúir því, að sambland
ólíkra aðferða eins og í hans
eigin starfi muni bera ávöxt í
uppgötvunum, sem venjulegir
visindamenn hafi hingað til
ekki látið sig dreyma um.
Til leigu tvö samliggjandi herbergi nálægt miðbænum. Leigjast með hús- gögnum. Laus nú þegar. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir föstudag merkt: 4401 Kartöfluupptökuvél til sölu. Upplýsingar í sima 99- 31 92, Eyrarbakka.
Hesthús til sölu Einnig hentugt til annarra nota. Upplýsingar í sima 52275. Mercury Comet 1 972 sjálfskiptur, ekinn 34 þús. milur. mjög fallegur bill. Til sýnis að Brautarholti 20, simi 13285.
Einbýlishús i Garðahreppi með bílskúr til leigu. Tilboð merkt: „Garðahreppur 1376" sendist afgr. Mbl. fyrir mánaðarmót. Ytri Njarðvík Til sölu nýjar 3ja og 4ra herb. ibúðir i fjöIbýlishúsi. Sérinngang- ur. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns. Vatnsnesvegi 20, Keflavik. Simar 1 263 og 1 890.
Til sölu í dag Ford Escort árgerð 1973. Mjög góður bíll. Upplýsingar i sima 24379 eftir kl. 4 i dag. Keflavik Til sölu gamalt einbýlishús. 3 herb. og eldiiús. Stór lóð. Hag- stæð.greiðslukjör. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns. Vatnsnesvegi 20, Keflavik. Simar 1263 oq 1890.
Til leigu 4ra herb. ibúð á góðum stað. Tilboð með upplýsingum sendist afgr. Mbl. merkt: „ibúð — 4402". Keflavík Til sölu 136 fm fokhelt raðhús ásamt bílskúr. Allar útihurðir fylgja. _ Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns. Vatnsnesvegi 20, Keflavík. Símar 1 263 og 2890.
Keflavik — Njarðvík 4ra herb. ibúð óskast til leigu i eitt ár. Upplýsingar í sima 2723. Stúlka eða kona vön afgreiðslustörfum óskast einn- ig kona til hreingerninga. Upplýsingar á skrifstofu Sæla- Café, Brautarholti 22, frá kl 10—-4 e.h. simi 19480 eða 19521.
íbúð óskast Ung hjón óska eftir 3ja herb. ibúð frá 1. okt., helzt í gamla bænum. Skilvísri mánaðargreiðslu heitið. Upplýsingar í síma 27531. Karlmaður óskar eftir að kynnast konu á aldr- inum 20—45 ára. Tilboð merkt: ,,4404" sendist afgr. blaðsins.
Iðnaðarhúsnæði lítið iðnaðarhúsnæði fyrir hrein- legan matvælaiðnað óskast til leigu. Uppl. i sima 85835 eftir kl. 6 á kvöldin. Vantar 3ja herbergja ibúð sem næst Laugardalnum. Góð leiga i boði. Upplýsingar i sima 8 24 06.
4ra — 5 herb. íbúð óskast til leigu i Keflavik eða ná- grenni. Upplýsingar í síma 1684, Akranesi. Sem ný AEG turnamat-þvottavél til sölu vegna brottflutnings. Upplýsingar í sima 19315.
Keflvíkingar — Suðurnesjamenn Lokað vegna sumarleyfa 26. ágúst til 16. sept. Skóvinnustofa Sigurbergs. Bilskúr til sölu og flutnings. Skarklæddur með járni á þaki ca 20 fermetrar. Uppl. i sima 24574.
Stúlka óskast til framleiðslustarfa. Upplýsingar i sima 33490. Nýja skógerðin, Ármúla 28. Barnagæzla! Kona óskast til að gæta barns á fyrsta ári frá kl. 8—4. Þarf að búa nálægt Landspítal- anum. Uppl. í sima 2603 1.
Herbergi óskast Ungan námsmann vantar herb. með snyrtiaðstöðu i vetur, helzt i' Hlíðunum. Reglusemi. Uppl. í sima 92-1460 fyrir kl. 5 siðdegis eða 92-7037 eftir kl. 7 siðdegis. íbúð i gamla borgarhlutanum óskast til leigu. Kaup koma til greina siðar. Fyrirframgreiðsla. Tilboð merkt "5345" sendist Mbl.
Óska eftir fólksbíl sjálfskiptum, 1—2ja ára, há útborgun. Tilboð sendist blaðinu merkt: „1 1 13". Mazda 616 1972 til sölu. Upplýsingar í sima 92- 1 901 eftir kl. 6 á kvöldin.
Reglusöm kona óskast til að sjá um heimili fyrir ekkjumann með börn á skólaaldri. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. merkt: „reglusöm 1081". íbúð Óska eftir 3ja herb. ibúð i Keflavik eða Innri-Njarðvík gegn sann- gjarnri l.eigu. Upplýsingar i sima 72708 eða 16842.
Keflavik Til sölu 5—6 herb. raðhús á tveimur hæðum, 2ja ára gamalt. Til greina kæmi skipti á ibúð í Hafnarfirði eða Reykjavik. Uppl. í sima 2979 eftir kl. 5. JWoTjjimfclntiifc mPRCFHLDPR ' mÖCULEIKH VÐRR
j Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu