Morgunblaðið - 21.08.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. AGUST 1974
11
Deilt um leiðir
Régis Debray og Salvador
Allende: □ FÉLAGI
FORSETI. □ Haraldur
Jóhannsson ritaði inngang
og gerði þýðingu. □ Mál
og menning. Reykjavík
1973.
ÞESSI bók, sem kemur út í papp-
írskiljubókaflokki Máls og menn-
ingar er I rauninni tvær bækur,
annars vegar yfirlit um stjórn-
málasögu Suður-Ameríku eftir
Harald Jóhannsson, hagfræðing,
hins vegar viðtal franska blaða-
mannsins og rithöfundarins Régis
Debray við Salvador Allende í árs-
byrjun 1971. Eftir á er þessi bók
eins konar eftirmæli um tilraun
Allendes til sósfalisma í Chile, af
henni má draga marga lærdóma
um kosti og galla þeirrar djarf-
mannlegu tilraunar. Örlög Allend-
es þekkja víst allir, en rifja má
upp að í september í fyrra var gerð
herforingjabylting gegn honum og
draumar hans gerðir að engu.
Vegna þess að Allende komst til
valda með friðsamlegum og lýð-
ræðislegum hætti eignaðist hann
samúð margra og áhrifamenn á
Vesturlöndum hafa verið ósparir á
.að fordæma hina skuggalegu her-
foringjastjórn, sem nú situr að
völdum í skjóli vopna. Aðrir hafa
bent á að framkvæmd sósíalisma í
Chile hafi verið fyrirfram dauða-
dæmd og að Allende hafi verið
draumóramaður, sem ekki gerði
sér grein fyrir hinum raunveru-
legu vandamálum.
Régis Debray, skoðanabróðir
Allendes, nema ef til vill enn rót-
tækari en hann í marxisma sfnum,
er óvæginn spyrjandi, jafnvel
ögrandi í aðfinnslum sínum gagn-
vart ýmsum kenningum Allendes.
Viðtalsbókin Félagi forseti verður
þess vegna síður en svo einhliða
lofsöngur og góðlátlegt kunningja-
rabb, heldur bók, sem freistar þess
að varpa ljósi á vanda, sem
sameiginlegur er öllum löndum
Suður-Ameríku.
A einum stað spyr Debray
Allende hvort þróunin f Chile sé í
raun og veru bylting. Allende
svarar: Það held ég. Við erum á
byltingarstigi. Segðu mér hvernig
skilgreinir þú byltingu? Frá þjóð-
félagslegu sjónarmiði. Debray:
Um eitt atriði vil ég gjarnan taka
strax af öll tvímæli. Að minum
dómi skiptir ofbeldi ekki megin-
máli. Allende: Gott og vel. Hún er
tilfærsla valda frá stétt minni-
hlutans til stéttar meirihlutans.
Allende heldur áfram: Hér hefur
fólk sett stétt minnihlutans af. Um
það þarf ekki að fletta blöðum. Ef
minnihlutinn færi með stjórn,
væri ekki verið að þjóðnýta kopar-
iðnaðinn né bankana né að gera
umbætur í jarðnæðismálum. Um
umbætur stjórnar sinnar segir
Allende að þær séu af því tagi að
opna byltingunni leið, sósfalisma
verði ekki komið á með valdboði.
Debray þykir greinilega of hægt
ganga að framkvæma byltinguna
og spyr þess vegna Allende hvort
öreigarnir ætli að taka fram fyrir
hendur borgaranna eða borgararn-
ir smám saman að móta öreigana f
sinni mynd og leiða þá til bekks f
veröld sinni. Svar Allendes verður
öreigarnir; hann gerir sér vonir
um yfirgnæfandi stuðning verka
manna, bænda, skrifstofufólks,
Bókmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
tæknimenntaðs fólks og mennta-
manna.
Allende virðist ekki óttast að
Bandarikjamenn skerist í leikinn.
Hann telur að vandamál þeirra
heima fyrir séu geigvænleg og að
álit þeirra út á við hafi versnað.
Þess vegna eigi þeir ekki auðvelt
með að beita áhrifum sfnum í Suð-
ur-Ameríku. Með kosningasigur
sinn að bakhjarli þykir honum að-
staða stjórnar sinnar góð. I sumum
löndum er vopnabarátta nauðsyn-
leg, i öðrum verður sigurinn unn-
inn með frjálsum kosningum. Bar-
áttu sína verða þjóðir Suður-Amer
íku að heyja hver i samræmi við
aðstæður í landi sínu.
Þannig mælti Allende.
1 nýútkominni ævisögu skálds-
ins Pablos Neruda, sem var Chiie-
búi, og náinn félagi Allendes, er
miklu lofsorði lokið á Allende og
baráttuaðferðir hans. Neruda var
um tima sendiherra Chile í París.
Dauða Neruda bar að höndum
skömmu eftir að Allende var
steypt.
Che Guevara gaf Allende eintak
af bók sinni Skæruhernaði með
áletruninni: Til Salvador Allende,
sem reynir að ná sama árangri að
annarri leið. Báðar þessar leiðir
hafa nú mistekist í Suður-Amer
íku, ef til vill að Kúbu undanskil-
inni, sem þó verður sffellt háðari
Sovétríkjunum. En það eru til
fleiri leiðir en blóðug bylting og
hægfara bylting. Framfarasinnuð-
um öflum í Suður-Ameríku er eft-
irláúð að finna þá leið. Breytinga
er svo sannarlega þörf.
Hjartans þakkir færi ég öllum, sem glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeyt-
um á 75 ára afmæli mínu 24. júlí s.l.
Sverrir Sigurðsson,
Breimnesi,
Greindavík.
jazzBaLLöCtskóLi Bóru
i
Dömur
athugiö
Nýr 3ja vikna kúr hefst mánudaginn 26.
ágúst.
Likamsrækt og megrun fyrir dömur á
öllum aldri.
Morgun-, dag- og kvöldtímar. Næst síð-
asta sumarnámskeiðið. Sturtur — Sauna
— Tæki. Upplýsingar og innritun í sima
IflfiQfll/ICBkl 83730
Q
N
N
ó
9
§
jazzBaLLettskóLi bópu
HEÍBlÍTE
Stimplar-Slrfar
og stimpilhringir
Austin, flestar gerðir
Chevrolet, 4,6,8 strokka
Dodge frá '55 — '70
Ford, 6—8 strokka
Cortina '60—'70
Taunus, allargerðir
Zephyr, 4—6 str.,
'56 —'70
Transit V-4 '65 — '70
Fiat, allar gerðir
Thames Trader, 4—6
str.
Ford D800 '65
Ford K300 '65
Benz, flestar gerðir, ben-
sín og dísilhreyflar
Rover
Singer
Hillman
Skoda
Moskvitch
Perkins, 3—4 strokka
Vauxhall Viva og Victor
Bedford 300, 330, 456
cc
Volvo, flestar gerðir
bensín og dísilhreyflar
Þ.Jónsson & Co.
Skeifan 1 7.
Simar: 84515—16.
Iþróttahús KR.
íþróttahús K.R. tekur til starfa 2. september
n.k. Þeir aðilar, sem höfðu tíma í húsinu s.l.
vetur og hafa hug á tímum næsta vetur, hafi
samband við Svein Björnsson í síma 16584,
sem allra fyrst. Hússtjórn K.R.
Tízkuverzlunin
Afgreiðslustúlka óskast hálfan daginn. Upplys-
ingar í verzluninni milli kl. 6 og 7 i dag og á
morgun.
Verzlun hinnar vandlátu.
Haustvörur
frá
Pils,
buxur,
peysur.
TÍZKUVERZLUN HVERFISGÖTU 39
Sími 13069.
Laugavegi 62 Simi 15920
Úrvals danskir tréklossar
stæröir 34 - 41