Morgunblaðið - 15.09.1974, Side 3

Morgunblaðið - 15.09.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974 3 Siðasta vika í WASHINGTON eftir GEIR HAARDE Menn voru farnir að geta horft á kvöldfréttirnar 1 sjón- varpinu án þess að yfir þá dyndi hneyksli á hverju kvöldi og fréttirnar voru aftur orðnar ósköp venjulegar, þegar Ford náðaði Nixon og Watergate fyllti aftur alla fréttatfma og blöð. t staðinn fyrir að enda Watergatemálið hefur náðunin framlengt Iff þess og gert það að nýju að kosningamáli f nóvemberkosningunum. Efnahagsmálin hurfu f skuggann f vikunni, en áhyggj- ur manna þeirra vegna héldu samt áfram að vaxa. For- kosningar voru haldnar f mörg- um fylkjum f vikunni og einnig f fyrsta sinn f höfuðborginni. Enn er rætt um 200 mflna fisk veiðilögsögu og sfvaxandi orð- rómur er á kreiki um, að Bandarfkin muni brátt taka upp eðlileg diplómatfsk sam- bönd við Kúbu. Nixon náðaður fyrir hvað? Reiðialda gekk yfir Washing- ton sl. sunnudag, þegar Ford forseti tók þá óvæntu ákvörðun að náða Nixon fyrrum forseta þvert ofan f fyrri yfirlýsingar. Nixon var náðaður fyrir hvað- eina, sem hann kann að hafa brotið af sér gagnvart Banda- rfkjunum á meðan hann var forseti. Þeir, sem gagnrýndu ákvörðun Fords, gerðu það flestir á þeirri forsendu, að náðunin kæmi of snemma, ver- ið væri að loka Watergatebók- inni, áður en mönnum gæfist kostur að lesa hana. Fæstir gagnrýnenda segjast vilja, að Nixon endi f fangelsi, heldur aðeins að málsrannsókn gegn honum fari fram, þannig að uppvfst verði til fulls, hver raunveruleg þátttaka hans f Watergatemálinu var. Þá þykir einnig furðu sæta, að forsetinn fyrrverandi skuli náðaður, áður en hann hefur verið formlega sóttur til saka eftir réttarfars- legum leiðum. Allt að einu þyk- ir Ford hafa sýnt mikið hug- rekki að taka þessa ákvörðun nú. Felur náðunin f sér, að Nixon hafi raunverulega verið sekur eða var aðeins um að ræða miskunnsemi gagnvart honum til þess að firra hann alvarlegu sálrænu heilsufarstjóni? Hver verða áhrif þessarar ákvörðun- ar á málaferlin gegn hinum aðilum Watergatemálsins, sem nú þrýsta fast á um að verða náðaðir, fyrst höfuðpaurinn var náðaður? Og hver áhrif hefur málið á sakaruppgjöf þeirra, sem neituðu að gegna her- þjónustu f Vietnam eða struku úr hernum? Öllu þessu velta menn nú fyrir sér eftir hina umdeildu og óvæntu náðun Nixons sl. sunnudag. Toppfundur um efnahagsmál Verðbólgan f Bandarfkjun- um veldur sfvaxandi áhyggjum ráðamanna og almennings. Sl. ár var verðbólgan 12 af hundraði, sem þykir mikið hér f landi og er óvenjulegt á friðartfmum. Efnahagsvandinn hlaut ekki verðskuldaða at- hygli á meðan Watergatemálið stóð sem hæst, en Ford forseti hefur heitið að einbeita kröft- um sfnum að þessum vanda. Boðaður hefur verið toppfund- ur allra helztu manna, sem um þessi mál fjalla, f lok septem- ber til að reyna að ná samstöðu um aðgerðir til lausnar vandan- um. Öllum er samt ljóst, að samstaða getur ekki náðst um annað en að vera ósammála um orsakir verðbólgurtnar og að- gerðir gegn henni. Undir- búningsfundir fyrir toppfund- inn hafa verið haldnir f Hvfta húsinu tvær sl. vikur, þar sem hagfræðingar úr flestum grein- um þjóðlffsins hafa borið saman bækur sfnar. Sumir þeirra vilja draga úr útgjöldum rfkisins, þótt það kunni að kosta aukið atvinnuleysi (sem nú þegar er 5,4 af hundraði). Aðrir vilja allt til vinna til að atvinnuleysi aukist ekki meir. Mönnum ber saman um, að ef ekkert verður að gert, sé efna- hagsleg lægð framundan. Hvað sem til bragðs verður tekið, sýnist, að efnahagsvandinn eigi enn eftir að vaxa, áður en hann tekur að minnka. Framtíð Nixon var enn efst á baugi í Washing- ton... en Washington Post hafði líka áhyggjur af 72 milljónum húsdýra. Nýtt vandamál: hundar og kettir Þrátt fyrir öll stóru vanda- málin gaf stórblaðið Washing- ton Post sér pláss til þess að eyða leiðara f nýtt vandamál, sem blaðið segir vera f upp- siglingu, heimilisdýravanda- málið, „The pet problem". I grein, sem mundi sóma sér vel í Dagbók Morgunblaðsins, skar blaðið upp herör gegn öllum þeim, sem fara illa með þær 72 milljónir katta og hunda, sem fyrir eru f landinu. Fyrir þá, sem gaman hafa af tölum f þessu sambandi, má geta þess, að á hverri klukkustund f jölgar köttum og hundum f Banda- rfkjunum um 2000—3500. Fæðuöflun handa þessum f jölda annast iðnfyrirtæki, sem velta meira en 10 milljörðum dala á ári. Washington Post veltir þvf einnig fyrir sér, hvort þessir peningar fari ekki raun- verulega f súginn á tfmum fæðu- og hráefnaskorts í heiminum. Washington handa Washington tbúar f Washington D.C., höfuðborg Bandarfkjanna, eru nýbúnir að fá rétt til að stjórna sér sjálfir eftir meir en 100 ára baráttu. Fyrstu borgarstjórnar- kosningarnar verða í nóvember og borgarbúar völdu sér fram- bjóðendur f vikunni. Ibúar borgarinnar eru að þrem f jórðu hlutum démókratar, þannig að sigurvegarinn f forkosningum þeirra má heita öruggur um sigur. Sá heitir Walter Washington og hefur verið borgarstjóri sl. 7 ár, tilnefndur af forsetanum, en ekki kos- inn f almennum kosningum. Washington sigraði naumlega f forkosningunum sl. þriðjudag. Pólitfskir áhugamenn velta þvf nú fyrir sér, að hve miklu leyti nafn hans hefur tryggt honum sigur. M I t ■fc.-'ái- Allir fara í ferð með ^ ÚTSÝN KJORUM FERÐASKRIFSTOFAN AUSTURSTRÆTI 1 S/MI 266 I 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.