Morgunblaðið - 15.09.1974, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974
Skólaprestur á Islandi
Rætt við Jón Dalbú
Hróbjartsson cand. theol.
1 DAG verður Jón Dalbú Hró-
bjartsson cand. theol. vfgður f
Dómkirkjunni til prests-
embættis. Það sérstæða við
væntanlegt starf Jóns Dalbú er,
að hann vfgist ekki tii ákveðins
safnaðar, heldur sem skóla-
prestur, prestur, sem starfar
aðallega meðal skólafólks. Jón
Dalbú tók guðfræðipróf frá Há-
skóla tslands haustið ’73 og fór
svo til náms við Safnaðar-
háskólann f Ósló og nam þar
kennimannlega guðfræði eða
praktfska guðfræði, og kynnti
sér starfsemi kristilegu skóla-
og stúdentahreyfingarinnar f
Noregi. Sfðan var hann við
starf á taugahæli f tvo mánuði í
sumar og á námskeiði þar fyrir
guðfræðinga f sálgæzlu.
Félögin, sem standa að ráðn-
ingu Jóns Dalbú, eru Kristilegt
stúdentafélag og Kristileg
skólasamtök. Þessi náms-
mannafélög hafa vaxið upp
undir handarjaðri K. F. U. M.
og K. og eru sitt hvoru megin
við þrítugsaldurinn, K. S. F.
stofnað 1936 og K. S. S. tíu
árum síðar.
Við hófum máls á að spyrja
um kynni Jóns Dalbú af
þessum félögum:
„Ég hef þekkt þessi félög frá
barnæsku liggur mér við að
segja. Ég var virkur í stjórn
Kristilegra skólasamtaka í 4 ár
meðan ég var í Verzlunarskól-
anum. Síðan var ég í stjórn K.
S. F. í 3 ár, svo ég þekki starfið í
þessum félögum mjög vel og
hef átt mínar dýrmætu&tu og
skemmtilegustu stundir þar.“
í hverju er starf þitt fólgið?
„Ég kem til með að hafa ýmis
verkefni í báðum þessum félög-
um. í K. S. S. verður eitt aðal-
starf mitt fólgið í að hjálpa til
við það starf, sem hefur verið
að myndast úti í hinum ýmsu
skólum og er í formi biblíules-
hópa. Það þarf að útbúa
hjálpargögn fyrir þessa hópa og
þjálfa stjórnendur. Ýmislegt
fleira bíður mín í þessu starfi
t.d. að vera með á mótum
félagsins og síðast en ekki sízt,
virka sem sálusorgari fyrir
þetta unga fólk, bæði félagsfólk
og aðra, sem á mér þurfa að
halda. Einnig vona ég, að ég fái
tækifæri til að heimsækja skóla
úti á landi.
1 Stúdentafélaginu hef ég
líka ýmsu að sinna. Ég verð
framkvæmdastjóri félagsins
með öllu, sem þvf fylgir. Eitt
aðalverkefnið f vetur verður að
undirbúa norrænt, kristilegt
stúdentamót, sem hér verður
næsta sumar. K. S. F. hefur
einnig hug á að á geta aukið
starfsemi sína innan Háskólans
og kem ég að sjálfsögðu þar inn
í myndina.
Ég verð með viðtalstíma í Há-
skólanum einu sinni í viku til
að byrja með og hér á
Amtmannsstíg 2b þrisvar f
viku, en þessir tímar verða aug-
lýstir nánar. Guðsþjónustur
verð ég líka með einu sinni í
mánuði að minnsta kosti.“
Hvernig starfa þessir biblíu-
leshópar?
„Biblíuleshópar hafa rutt sér
mikið til rúms í nágrannalönd-
unum og reyndar um allan
heim þar sem kristnir menn á
annað borð eru. Þeir safnast
saman í hópum til þess að lesa
Biblíuna, ræða saman um það
sem þar stendur, biðjast saman
og uppbyggjast þannig í sinni
kristnu trú.“
Eru sóttar fyrirmyndir til út-
landa?
„Já, þetta starf, bæði hjá
Stúdentafélaginu og K.S.S., á
rót sína að rekja til Norður-
landanna. Brautryðjendurnir
kynntust þessu starfi í Noregi,
en þar á það sér langa sögu, 50
„Eitt aðalstarf mitt er fólgið f þvf að hjálpa við biblfuleshópa, sem eru f hinum ýmsu skólum.
Það þarf að útbúa hjálpargögn fyrir hópana og þjálfa stjórnendur.“
ára, og stendur mjög föstum
fótum og reyndar á hinum
Norðurlöndunum líka. I Noregi
eru t.d. ein 300 kristileg skóla-
félög og um 15 stúdenta- og
sérskólafélög. Samstarf milli
Norðurlandanna hefur aukist
mjög og það hefur þá verið
mest f sambandi við þessi
norrænu stúdenta- og skólamót,
sem hafa verið svo til árlegur
viðburður s.l. 50 ár. K.S.F. á
Islandi hefur frá upphafi haft
gott samband við þessa
norrænu hreyfingu, mis-
munandi mikið á hverjum tíma,
og sl. 4 ár höfum við átt fastan
nefndarmann f norrænni
nefnd, sem undirbýr sameigin-
legt starf á vegum þessara
félaga. Þessi kristilega
stúdentahreyfing á Norður-
Iöndum er síðan í stærra sam-
hengi, I hreyfingu, sem heitir á
ensku International Fellowship
for Evangelical Students. Er
það hreyfing, sem nær yfir
50—60 lönd og hefur eflzt mjög
á undanförnum árum. í sumar
gerðist K.S.F. meðlimur í þess-
ari alheimshreyfingu."
Hver er staða félaganna inn-
an kirkjunnar?
„Það stendur skýrt f lögum
Kona Jóns Dalbú er Inga Þóra Geirlaugsdóttir og er henni ekki
alveg ókunnugt um þessi félög þvf hún sat um hríð f stjórn
K.S.S. Þau eiga tvo drengi, Arna Geir og Ingibjart.
KROSSGOTUR
Umsjón:
Jóhannes Tómasson
Gunnar E. Finnbogason.
K.S.F. hefur einnig gefið út nokkra bæklinga og smárit og
væntanleg er um næstu mánaðamót þýdd bók um grundvallar-
atriði kristinnar trúar, „Sannleikurinn um Krist."
beggja þessara félaga, að þau
byggi á játningarritum hinnar
evangelísk-lúthersku kirkju og
leggja með því áherzlu á stöðu
sína innan kirkjunnar. Þessi
félög eru því leikmanna-
hreyfing innan hinnar íslenzku
þjóðkirkju.”
En hvers vegna standa þessi
félög þá að ráðningunni en ekki
kirkjan?
„Stjórn kirkjunnar hefur
reynt að koma þessu inn á fjár-
lög ásamt svo mörgu öðru, en
því hefur verið hafnað. Þar
fyrir utan er mjög eðlilegt, að
þessi félög standi að þessari
ráðningu þar sem þau hafa
þetta sérstaka verksvið innan
kirkjunnar."
Er þessi starfsemi nauðsyn-
leg úr því að við lifum í kristnu
landi?
„Markmið þessara félaga er
annars vegar að sameina skóla-
nemendur og stúdenta, sem
vilja taka boðskap kristin-
dómsins alvarlega, og með þvf
styrkja og glæða trúarlíf þeirra.
Hins vegar vilja þau vinna að
útbreiðslu kristinnar trúar og
benda á Jesúm Krist sem
sannan Guð og sannan mann,
frelsarann eina, sem á jafn
mikið erindi til okkar í dag eins
og áður.
Þó við lifum í kristnu landi,
eins og það heitir, þá þýðir það
ekki, að við verðum kristin
fyrir það eitt. Það verður að
boða Guðs orð og sá, sem vill
vera kristinn, verður að hlusta
á Guðs orð og hann verður að
læra að lifa eftir þessu orði.“
Er talin bein þörf á starfi
skólaprests hér á landi?
„Já, ég held, að það sé aug-
ljóst mál og mjög eðlilegt, að
við fáum sérverkefni f kirkj-
unni, við höfum sjúkrahúss-
prest, fangelsisprest og æsku-
lýðsprest, þetta eru allt saman
mjög nauðsynlegir hlutir. A
sama hátt er skólaprestur nokk-
uð, sem á fullan rétt á sér.
Starfssvið sóknarpresta er
mjög vítt og umfangsmikið og
langt frá þvf, að þeir anni öllu
því, sem blasir við. Þess vegna
er kominn tfmi til, að við skipt-
um meira með okkur verkum
eins og reyndin er nú að verða.
Það er einnig mjög eðlilegt,
að starf slíks skólaprests sé f
beinum tengslum við kristilegu
skólafélögin, því einn síns liðs
fær skólaprestur litlu áorkað.
Þannig hefur þetta verið fram-
kvæmt á Norðurlöndunum og
gengið mjög vel.“
Má búast við að gagnfræða-
og menntaskólanemendur leiti
eftir samræðum við prest?
Hefur reynslan sýnt það á
Norðurlöndunum?
„Ég tel engan vafa á þvf, að
skólanemendur yfirleitt ganga
með mörg vandamál innra með
sér, sem þeir þurfa að tala um
við einhvern.
Presturinn á að hafa þá
menntun að geta veitt slíka
þjónustu og vona ég, að fólk
notfæri sér það.
Reynslan á Norðurlöndunum
er sú, að þetta unga fólk leitar
mikið til prestanna."
Þú nefndir áðan sálgæzlu.
Hvað er það?
„Þetta er e.t.v. orð, sem er
framandi fyrir ýmsum. Stund-
um er notað orðið sálusorgun,
sem táknar það sama. Þetta er
hugtak, sem spannar í rauninni
mjög mikið. Sálgæzla getur
bæði farið fram í ræðustóli og
er þá almenns eðlis um prakt-
fsk atriði kristindómsins og
trúarlífsins, eða hún fer fram í
formi einkasamtals. Fólk
kemur þá með vandamál sín til
þess, sem það treystir og veit,
að er bundinn þagnarskyldu.
Hér er bæði um trúarleg og
félagsleg vandamál að ræða,
sem oft eru einmitt samofin."
Hvernig er starf félaganna
fjármagnað?
„Þessar hreyfingar á Norður-
löndum eru alveg sjálfstæðar
innan kirknanna og sjá alger-
lega um sinn fjárhag sjálfar.
Þannig er það einnig hér,
K.S.S. og K.S.F. koma til með
að sjá um kostnað af sínu starfi.
Framhald á bls. 30.