Morgunblaðið - 15.09.1974, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 15.09.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974 7 RAÐHERRANEFNDIN, sem fengið hefur það verkefni að ræða við forystumenn aðila vinnumarkaðarins hefur und- anfarna daga setið á löngum fundum með þessum forystu- mönnum og skýrt ástand efna- hagsvandans og lýst þeim hugs- anlegu aðgerðum, sem rfkis- stjórnin telur vænlegastar til þess að tryggja það að láglauna- kjör skerðist ekki. Ekkert hefur enn spurzt út um eðli þessara ráðstafana, en rætt hefur verið um ráðstafanir til launajöfnunar og hverjar tryggingabætur ættu að verða. Þá mun aðilum viðræðnanna einnig verða fengin f hendur gögn er varða staðreyndir efna- hagsvandans, sem er glfurlegur að sögn þeirra, sem þegar hafa fengið í hendur þessar upplýs- ingar. Öneitanlega brá mörgum f brún, þegar Alþýðusamband Is- lands strax á þriðja degi eftir að ný rfkisstjórn tók við, sam- þykkti að fara þess á leit við aðildarfélög sfn, að þau segðu upp samningunum frá 26. marz, þar eð gengisbreytingin hefði verið það mikil að upp- sagnarákvæði samningsins er varðar verulega gengisbreyt- ingu var f fullu gildi. Þá hafði orðið frá áramótum svokallað gengissig sem nam að meðaltali tæplega 20%, en gengisbreyt- ingin var 17%. Þetta gengissig var Ijóst orðið f mafmánuði og þvf voru orð Björns Þórhalls- sonar, formanns Lands- sambands fslenzkra verzlunar- manna, f tfma töluð er hann lýsti þvf yfir f viðtali við dag- blaðið Vfsi, að allt eins hefði mátt segja samningunum upp þá vegna þessarar ástæðu. Hvers vegna urðu þá við- brögð ASl svo sem raun varð á? Margar getgátur hafa verið uppi. Ein er sú, að með bréfinu hafi miðstjórn ASI viljað styrkja samningsaðstöðu sfna gagnvart vinnuveitendum og rfkisvaldi f viðræðunum um úr- bætur og er Ifklegt að hún sé að hluta sönn. önnur er, að valda- barátta innan verkalýðshreyf- ingarinnar sé svo mikil, að forystumenn ASÍ bókstaflega hafi orðið að hvetja til upp- sagnar samninga, áður en ein- stakir forystumenn verkalýðs- félaga hefðu tekið af þeim glæpinn. Hafði raunar heyrzt f einum þessara forystumanna rétt áður, Hermanni Guð- mundssyni, formanní Verka- mannafélagsins Hlffar f Hafnarfirði. Ennfremur er sennilegt að samband Björns Jónssonar og Jóns Asgeirssonar á Akureyri hafi ýtt á eftir Birni að stfga þetta skref — hann hafi óttast að Jón yrði fyrri til. Enn er ein skýring þessa máls, sem eflaust hefur að geyma einhvern sannleiks- neista og hún er sú, að forystu- menn verkalýðshreyfingarinn- ar trúi þvf að núverandi rfkis- stjórn sé óvinsamleg verka- lýðnum. Nægir að minna á hin furðulegu ummæli formanns Alþýðuflokksins f Alþýðublað- inu um leið og rfkisstjórnin tók við, þar sem hann fullyrti án skynsamlegra raka, að rfkis- stjórnin yrði óvinveitt vinn- andi fólki og verkalýðnum. Rökin, sem Gylfi Þ. Gfslason færði fyrir þessari spá sinni voru þau, að fyrri rfkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins hefðu verið óvinveittar verkalýðnum. Þessi rök finnast mér vart samboðin hagfræðingnum Gylfa Þ. Gfsla- syni, sem veit jafnvel og allir aðrir, að 18 ár eru liðin frá þvf er þessir sömu flokkar áttu aðild að rfkisstjórn saman — jafnframt þvf sem enginn þeirra manna, sem réðu stjórn- arstefnu þá, eru f núverandi rfkisstjórn. Þessi rök eru þvf fáránleg, þótt dómur Gylfa um fyrri stjórnir flokkanna væri réttur, sem ávallt má deila um. En hvers vegna fella menn sleggjudóma? Hvers vegna fellur jafnvel einn af þraut- reyndustu stjórnmálamönnum f þá gröf að telja rfkisstjórn, sem hann hvorki veit né getur vitað, hvað muni gera, óalandi og óferjandi. Er það ekki af þvf að f raun er hér aðeins um sjónarspil að ræða. Alþýðu- flokkurinn verður að vera á móti rfkisstjórninni. Hann verður að vera fyrstur til þess að dæma rfkisstjórnina vegna væntanlegra átaka á vinnu- markaðinum, sem verkalýðs- forystan ætlar að efna til — jafnvel þremur dögum eftir valdatöku stjórnarinnar. Hér er aftur baráttan um frum- kvæðið, rétt eins og innan verkalýðshreyfingarinnar. Sá sem fyrstur blæs í lúðra getur sagt, ef eitthvað fer úrskeiðis. „Já, þetta sagði ég. Ekki veldur sá er varar.“ Þannig er sjónar- spilið og þegar komið er út f hið kalda strfð kjarabaráttunnar munu verkalýðsforingjarnir segja. Ekki berum við ábyrgð- ina. En svartsýni er ekki það, sem menn ættu að mála á vegginn nú loks er starfhæf rfkisstjórn hefur tekið við eftir margra missera þrásetu rfkisstjórnar, sem hafði ekki bolmagn til þess að taka á málum af viti. Stjórn- in varð óstarfhæf í desember 1972, er Bjarni Guðnason sagði skilið við rfkisstjórnina og allt árið 1973 og nærri 9 mánuði 1974 sat rfkisstjórnin við sinn keip og efnahagsvandinn óx. Hann er nú orðinn svo alvar- legur, að harðra aðgerða er þörf. Það viðurkenndu meira að segja forystumenn Alþýðu- bandalagsins fyrir nokkrum mánuðum, en nú segir yfir þvera forsfðu Þjóðviljans að hagur þjóðarbúsins sé góður og rfkisstjórn Geirs Hallgrfms- sonar taki við góðu búi. Tómir sjóðir og atvinnuvegir á heljar- þröm gera slfkar upphrópanir broslegar. Frá viðræðufundi um kjaramáljn BAKBELTI DOSI BAKBELTIN eru komin aftur i öllum stærðum. REMIDIA h/f, Miðstræti 1 2,, Sími 2751 1. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27, simi 25891. Tapazt hefur rauð kventaska í Hliðunum. Finnandi vinsamlega hringið i sima 30860. Fundarlaun. Þvottavél Westinghouse þvottavél vel með farin til sölu. Tækifærisverð. Uppl. i sima 15506 frá kl. 7—8 á kvöldin. Aukavinna óskast Stúlka óskar eftir aukavinnu. Er vön vélritun, en margt fleira kemur til greina. Tilboð sendist Mbl. merkt 9540. Vinnuveitendur Stúlka óskar eftir vel launuðu skrif- stofustarfi. Getur unnið sjálfstætt. Tilb. óskast send Mbl. meckt: „7476". Dansleikur til stuðnings Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra í Mosfellssveit verður haldinn i Þórskaffi sunnu- daginn 15. sept. Skemmtiatriði: Geirlaug og Jón. Atvinna óskast 19 ára stúlka óskar eftir vinnu hálfan daginn f.h. Hef bil til um- ráða. Simi 18285. Óskum eftir 2ja herbergja ibúð. Tvö i heimili. Vinnum bæði úti. Fyrirfram- greiðsla, ef óskað er. Upplýsingar i síma 32308. Til leigu ný 2ja herbegja ibúð i Breiðholti. Leigist frá 1. okt. '74 — 1. sept. '75. Glæsilegt útsýni. Fyrirfram- greiðsla. Tilb. sendist afgr. Mbl. merkt „íbúð 7465". Ráðskona óskast. Einhleypur maður (kennari) á austurlandi óskar eftir ráðskonu. Býr í þorpi. Börn engin fyrirstaða. Þær, sem vildu sinna þessu, sendi tilboð til Mbl. f. 22. þ.m. merkt: „Ráðskona — 6505”. Til leigu er 3ja herbergja ibúð i Hafnarfirði i vesturbænum. Laus strax. Upp- lýsingar í sima 50097 i matartim- um. íbúð úti á landi Til sölu er 80 fm ibúð i nýstand- settu tvíbýlishúsi í sjávarþorpi á Norðurlandi. Hagstætt verð ef samið er strax. Uppl. i sima 96- 61363. Til leigu frá 1. október Ný 4ra herb. ibúð i Breiðholti. Tilboð, með uppl. um mánaðar- greiðslu og mögulega fyrirframgr. óskast send Mbl. fyrir 21. þ.m. merkt 7416. Til leigu 4ra herb. ibúð með sér inngangi, við Reynimel. Tilb. er greini fjölsk. stærð og greiðslumöguleika sendist Morgunblaðinu fyrir fimmtudag merkt: VESTURBÆR 8514. Hjarta-garn enn á gamla verðinu, Hjarta-cr., Combi-cr. Mayflower-bómullarg., Mayflower-cr., Fleur-Mohair, Nuser-babyg. Hof, Þingholtsstræti 1. Óska eftir að taka 2ja til 3ja herb. ibúð á leigu. Helst i Miðborginni. Má þarfnast lagfæringa. Björg Rafnsdóttir, simi 30927 Scandala harmonika til sölu. Litið notuð með innbyggð- um pick-upum. Upplýsingar í síma 40021. íbúð óskast Óska eftir 2ja herb. ibúð, helst í Smáíbúðahverfi. Uppl. í síma 30254. Til sölu Chevrolet Nova 1 973. Simi 32033. Verkfræðingur óskar eftir 3ja — 4ra herb. íbúð til leigu strax, til 6 mánaða. Upplýs- ingar i sima 1 0928. Til sölu Benz árgerð 1970. Upplýsingar i síma 83389. íbúð til leigu Nýleg ca. 100 ferm. íbúð á Sel- tjarnarnesi til leigu. 4 herbergi, stór stofa, geymsla og bílskúr. Reglusemi og góð umgengni áskil- in. Tilboð sendist Mbl. fyrir 21. þ.m. m. 7418. íbúð til leigu í Miðbænum. Hentug fyrir einhleyping. Tvær góðar stofur. Litið svefnherbergi og litið eldhús og bað. Tilboð sendist skrifstofu blaðsins, merkt Reglusemi 7419 fyrir 21. þ.m. Merzedes Benz 250 CE. Til sölu Merzedes Benz 250 CE 2ja dyra, sjálfskiptur o.fl. Sérstaklega glæsilegur einka- bíll. Uppl. í síma 31236 í dag frá kl. 2 — 6 og næstu daga. 3ja herbergja glæsileg íbúð í Hafnarfirði til sölu íbúðin er endaíbúð á efri hæð í 4ra ibúða húsi í kyrrlátu hverfi. Bílskúrsréttur, frágengin lóð og sam- eign. Laus strax. íbúðin verður til sýnis í dag Uppl. í síma 52808.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.