Morgunblaðið - 15.09.1974, Side 20

Morgunblaðið - 15.09.1974, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. sími 10 100. Aðalstræti 6, simi 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands. j lausasölu 35.00 kr eintakið. að atriði stefnuyfir- lýsingar ríkisstjórnar- innar, sem fjallar um sparnað í rekstri ríkisins og ríkisstofnana, sem og, að ríkisútgjöldum skuli sett ákveðin takmörk miðað við þjóðartekjur, á tvímælalausu fylgi að fagna með þjóðinni. Að vísu er öllum ljóst, að svo langt var liðið á yfirstand- andi ár, er ríkisstjórnin var mynduð, og skammur árlegur framkvæmdatími það langt fram genginn, að þessarar stefnumörkunar gætti naumast fyrr en í fjárlagagerð og fram- kvæmdum næsta árs. Engu að síður er hér á ferðinni fyrirheit um hóflega og hagkvæma meðferð almannafjár, sem almenn- ingur fagnar og mun fylgj- ast vel með. Núverandi efnahags- ástand og fjárhagsstaða ríkissjóðs og ríkisstofnana gerir þessa stefnu óhjákvæmilega, meðan rétt er úr kútnum eftir óráðsíu vinstri stjórnar- innar. Takist að tryggja rekstrargrundvöll atvinnu- veganna, svo eðlileg eftir- spurn eftir vinnuafli hald- ist, og annars yfirvofandi atvinnuleysi verði bægt frá dyrum almennings, er og óþarft og raunar rangt að spenna bogann hátt í ríkis- framkvæmdum, í óeðlilegu kapphlaupi við fram- leiðsluatvinnuvegina um vinnuafl. Verði hinsvegar samdráttur í atvinnulífi þjóðarinnar, svo bryddi á atvinnuleysi, er jafnrétt að auka á hraða ríkisfram- kvæmda, og mæta þann veg þeim sjálfsagða rétti þegnanna að hafa jafnan atvinnu til að tryggja af- komu sína og sinna. Undirstrika verður þá nauðsyn, að rekstur ríkis- stofnana sé í sífelldri endurskoðun, til að veita þeim eðlilegt aðhald í rekstri, til að laða þær að aukinni hagkvæmni og samræmingu við breyt- ingar í þjóðfélaginu. Þá má sú staðreynd aldrei fyrn- ast, að ríkisstofnanir eru þjónustustofnanir við al- menning og sveitarfélög, en ekki ríki í ríkinu, með húsbóndavaldið eitt í önd- vegi. Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga, sem og ný tekjustofnalög, vegna sam- félagslegra þarfa og fram- kvæmda, er óhjákvæmilegt athugunaratriði, varðandi þann þátt í stjórnun þjóð- félagsins, sem lýtur að meðferð almannafjár og sparnaði í opinberum rekstri. í því efni verður að hyggja að valddreifingar- sjónarmiðum, sem hljóta m.a. að miða að því, að efla sjálfsforræði sveitarfélaga og samtaka þeirra. Leið- rétting í þessa átt var óhugsandi meðan við völd var ríkisstjórn, sem hafði aukið miðstjórnarvald að meginstefnu, en nú ætti að vera jarðvegur fyrir aukið réttlæti í þessum efnum, ef sveitarfélögin halda vöku sinni og þekkja sinn vitjunartíma. Tekjuöflun til samfélags- legra þarfa getur og verið stjórnunartæki, sem hefur margvísleg áhrif á fram- vindu mála í þjóðfélaginu. Sé tekjuskattsleiðin ofnýtt kann hún að draga úr áhuga og hvöt manna til tekjuöflunar, þ.e. til at- vinnu og umsvifa, og þar með úr verðmætasköpun í þjóðarbúinu. Eyðsluskatt- ar, sem hafa heilbrigð mörk, hafa þann tvíþætta kost, að enginn svíkur eyðslu sína undan skatti og að hvetja til sparnaðar og sparifjármyndunar, sem eykur möguleika lána- stofnana til fyrirgreiðslu við atvinnuvegina. Sam- hliða þessu þarf og til að koma meiri stöðugleiki í verðgildi peninga en verið hefur, ef vel á til að takast. Uppistaðan og ívafið í hugleiðingum manna um sparnað í opinberum rekstri og réttláta skatt- heimtu, sem og fráhvarf frá miðstýringu til vald- dreifingar, sem af eðlileg- um ástæðum er efst á baugi í lok valdaferils vinstri stjórnarinnar, er e.t.v. spurningin um rétt einstaklings gagnvart því, sem í orðræðu hins al- menna borgara er kallað ,,kerfið“. Það hefur á stundum gleymzt, er stór- um málum er ráðið og til lykta leidd, að þjóðfélagið og stofnanir þess eru til í þjónustu og þágu einstakl- inganna, fólksins sjálfs, en ekki öfugt. Þungamiðja og niður- staða þessara hugleiðinga verður því, að við hlið sam- félagslegra þarfa, hags- muna þjóðarheildarinnar bæði út á við og inn á við, þarf að vernda og tryggja rétt einstaklingsins, mannsins sjálfs í þjóðfélag- inu. Rétt hans til eigin skoðana, tjáningar og at- hafna. Það er og grunn- tónninn í stefnu Sjálfstæð- isflokksins og orsök þess, að hann er sterkasta stjórnmálaaflið í íslenzku þjóðfélagi. Þessi réttur verður þó aldrei nægilega verndaður eða tryggður nema þjóðin geri sér glögga grein fyrir því, að stjórnmál eru fyrst og fremst meðferð og stýr- ing á málefnum borgar- anna sjálfra, mótun á því þjóðfélagi, sem við þurfum að lifa í. Og að lýðræðis- þjóðfélag færir okkur ekki aðeins rétt til áhrifa á þessa mótun, heldur og skyldur við sjálfa okkur, samborgara okkar og af- komendur. Einstaklingurinn, skatt- heimtan og ríkisbáknið | Reykjavíkurbréf ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Laugardagur 14. september ♦♦♦♦♦< Ríkisstjórnin ræðir við launþega Allir góðgjarnir menn hljóta aö fagna því, að ríkisstjórnin hefur snúið sér til Alþýðusambands ts- lands og óskað eftir því, að fram færu viðræður milli fulltrúa launþega og ríkis- vaidsins, áður en hið síð- arnefnda gerir ráðstafanir til þess að bæta laun hinna lægst- launuðu í þjóðfélaginu, en á það hefur Geir Hallgrímsson, for- sætisráðherra, lagt megináherzlu, eins og kunnugt er af fréttum. Þegar hann tók við embætti for- sætisráðherra sagði hann f sam- tali hér f Mbl., að eitt brýnasta verkefni, sem fyrir lægi, væri að rétta við efnahag landsins, en þó þannig, að björgunaraðgerðir lentu með hvað minnstum þunga á hinum lægstlaunuðu. Eins og allir vita mistókst vinstri stjórn- inni að bæta hag hinna lægstlaun- uðu, enda þótt stefnt hefði verið að því í síðustu kjarasamningum að minnka bilið milli hinna lægst- og hæstlaunuðu. Síðustu kjara- samningar leiddu til mestu verð- bólguþróunar, sem um getur í nokkru menningarlandi, eins og kunnugt er. Og samkvæmt síð- ustu tölum OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, var verðbólga á íslandi frá júnf 1973 til júní 1974 43,8% eða meiri en nokkurs staðar annars í Evrópu, næst kom Grikkland með 30,2%, en á þessu tímabili var verðbólg- an í löndum eins og Hollandi, Svíþjóð, Noregi og VesturÞýzka- landi frá 7—9% — og þykir mik- ið. Ólafur Jóhannesson fyrr- verandi forsætisráðherra hefur kallað síðustu kjarasamninga „dæmalausa", en það versta við þá er sú staðreynd, að þar fengu hinir lægstlaunuðu síður en svo launahækkanir á borð við þá, sem hæst launaðir eru, og er vonandi, að nú gangi hinir síðarnefndu ekki á lagið og skari enn einu sinni eld að sinni köku á kostnað láglaunafólksins. íslendingar hljóta að hafa þroska til þess að læra af biturri reynslu. Þeim er áreiðanlega öllum ljóst, að ekki verður haidið áfram á þeirri glöt- unarbraut, sem farin hefur verið í tíð vinstri stjórnarinnar, samgjarnt fóik vill stinga við fæti og reyna að koma efnahag lands- ins á réttan kjöl. Verðbólgan og efnahagsvandinn á Isiandi eru ekkert „bókhaldsatriði" eins og Magnús Kjartansson tönnlast á, heldur meinsemd, í þjóðfélaginu sem nauðsynlegt er að lækna, áð- ur en íslenzkt þjóðfélag verður mesti dýrtfðarsjúklingur, sem umgetur. Það eru ekki menn með mikla ábyrgðartilfinningu, sem gera lítið úr því efnahagsöng- þveiti, sem hér hefur ríkt. Von- andi ber láglaunafólk, hvort sem það á aðild að ASl eða BSRB, gæfu til að standa saman um þá sjálfsögðu kröfu, að það beri nú einu sinni úr býtum meir en aðr- ir, svo að unnt sé að nota jákvæð- an vilja ríkisvaldsins til að jafna metin að einhverju leyti. Rúmu ári eftir að vinstri stjórn- in tók við völdum kom til íslands einn helzti fréttaskýrandi sænska útvarpsins og kynntist ástandinu hér. Hann kom aftur nú í sumar og sagði við höfund þessa bréfs, að þegar hann hafi komið til Islands í fyrra skiptið hefði verð- lag verið álíka hátt hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum, en nú í sumar hefði verðlagið verið oróið tvöfalt hærra hérlendis en t.a.m. í Svíþjóð. Fréttaskýrandi þessi er vinstri maður og því áreiðanlega engin ástæða til að væna hann um að gera hlut vinstri stjórnarinnar á Islandi verri en hann var. Þessi sænski fréttamaður lærði margt af að koma til tslands í upphafi vinstri stjórnar tímabils og svo undir iok þess. Aldrei hafði hon- um dottið f hug, að unnt væri að glutra svo niður góðum árangri Viðreisnarstjórnarinnar, að úr yrði á tiltölulega skömmum tíma hálfgert hrun íslenzks efnahags- lífs. En öngþveitismennirnir í vinstri stjórninni áttu tiltölulega auðvelt með að vinna slíkt afrek. Vekur atbygli— heibndi verkalýðs- forystunnar koma í ljós Enda þótt allir góðgjarnir menn vonist til þess, að viðræður verka- lýðsforingjanna og ríkisstjórnar- innar leiði til þess, að raunhæfar kjarabætur fáist fyrir láglauna- fólkið í landinu, er ýmislegt sem vekur athygli, jafnvel tortryggni. Frá áramótum og þangað til vinstri stjórnin sagði af sér hafði íslenzka gengið fallið um tæp 20% án þess að forysta launþega- samtakanna hefði séð ástæðu til þess að mótmæla því með sérstök- um ályktunum. Engin yfirlýsing var gefin, engin ósk um uppsögn samninga eða annað lífsmark kom úr þeirri átt. I júní gerði vinstri stjórnin sér lítið fyrir og afnam með einu pennastriki 15,5 kaupgjaldsvísitölustig og hafði aldrei í sögu íslenzkra stjórnmála verið gengið jafn harkalega á rétt launþega til kaupgjaldshækk- unar. Þá vakti það m.a. mikla athygli, hversu ljúft Alþýðu- bandalagsráðherrunum var að taka þátt f þessum aðgerðum. Forysta launþega sendi ekki heldur þá frá sér neinar sam- þykktir þessu varðandi og engu líkara en hún hefði ákveðið að láta ekki á nokkurn hátt til skarar skríða gegn „rikisvaldi hinna vinnandi stétta“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.