Morgunblaðið - 15.09.1974, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974
31
— Minning
Magnea
Framhald af bls. 27
orðræður, ef henni rann í skap, þó
kunni hún flestum betur að stilla
skap sitt og stjórna stórbrotnu
geði. Hún hafði megna fyrirlitn-
ingu á hvers konar sýndar-
mennsku og yfirdrepsskap og hún
var þung á bárunni, þegar hún lét
orð falla um spjátrungshátt og
stertimennsku, sem henni fannst
rísa stundum furðulega hátt í
þjóðfélaginu. En hún var enn
stærri í samúðinni með þeim, sem
liðu þjáningar eða fóru á ein-
hvern hátt halloka í lífinu. öllum,
sem áttu bágt, mönnum og mál-
leysingjum, vildi hún hjálpa og
líkna, hvenær sem hún mátti þvf
við koma. Gerðum hennar voru
engin takmörk sett, þegar svo bar
undir.
Magneu var gefin létt lund og
var henni sýnt um að koma auga á
broslegar hliðar tilverunnar. Oft
hrutu henni af vörum snjöll orð
og athugasemdir um menn og
málefni — gjarnan um hana
sjálfa — er komu viðstöddum í
gott skap. Það er nú einu sinni
svo, að þeir, sem eru léttlyndir og
hafa gamanyrði á hraðbergi, eru
oft eins og sólargeislar, sem
hrekja burt drunga og óveðurs-
ský, er hrannast upp í misvinda-
sömum hversdagsleika.
Það eru orð að sönnu, að Magn-
ea hafi farið mikils á mis að gef-
ast ekki tækifæri til menntunar á
yngri árum. Hún var greind kona
og vel lesin þrátt fyrir stopular
stundir til þeirra hluta og hún var
ótrúlega vel heima á mörgum
sviðum. En hún hlaut sömu örlög
og margir af hennar kynslóð, að
gefast fá eða engin tækifæri til
skólagöngu og menntunar. Spyrja
má, hver hefði orðið ávöxtur af
ævistarfi hennar, ef henni hefðu
gefist sömu tækifæri til fræðslu
og menntunar og ungu fólki nú á
dögum. Þaðferekki milli mála, að
þá hefði arfurinn orðið stór, sem
hún skilaði þjóð sinni að lokinni
langri ævi. En mörgum sýnist
hann ærið gildur, þrátt fyrir fá og
smá tækifæri til að sinna andleg-
um hugðarefnum.
Og nú hefur Magnea Tómas-
dóttir goldið þann skatt, sem við
verðum öll að greiða af hendi fyrr
eða síðar. Allt er óráðið um ævi
vora og enginn veit hvað næsti
dagur ber í skauti sér. En eitt er
víst — jafnvíst og dagur fylgir
nótt og sumar vetri — að allra
bíður hel. Fyrr eða síðar verða
allir, ungir og gamlir, ríkir og
snauðir, að hlýða kalli dauðans,
eða eins og Einar Benediktsson
orðar það í kunnu erfiljóði:
„Til moldar oss vígði hið
mikla vald,
hvert mannslíf, sem jörðin elur,
sem hafsjór, er rís með fald
við fald,
þau falla, en guð þau telur.“
Margur hefur leitað huggunar I
þeirri trú, að andinn leiti á æðra
stig að loknu lífi hér og margur
hefur þess vegna mætt dauða sín-
um ótta- og æðrulaus. Engum er
gefið að dæma með öruggri vissu
um, hvort svo er eða ekki. En
ótrúlega margir, sem hafa trúað
því, að líf vort stefni á æðri leiðir,
hafa öðlast við það ómetanlegan
styrk og sálarró bæði í lífi sínu og
dauða. Ég ætla að Magnea hafi
horfið yfir móðuna miklu í þeirri
óbifanlegu trú, að líf vort hér sé
aðeins stuttur kafli á langri leið,
eins og skáldið segir i áður
nefndu ljóði:
„Vort líf, sem svo stutt og
stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.“
Ættingjar og nánir vinir þakka
Magneu Tómasdóttur, nú að leið-
arlokum, margar og ljúfar sam-
verustundir og óska henni farar-
heilla yfir dauðans djúp. I fylgsn-
um hugans geymum við minningu
um glæsilega konu, sem um langa
ævi vár sönn fyrirmynd í dreng-
skap og manngöfgi.
X.
Verzlunar- og
skrifstofuhúsnæði
til leigu
140 fm verzlunar- og skrifstofuhúsnæði er til
leigu að Suðurlandsbraut 6. Upplýsingar gefur
Þorgrímur Þorgrímsson í símum 38640 og
17385.
Universitet i Bergen
HÁSKÓLALEKTOR, VIKARIAT
Vikariat, sem háskólalektor I þjóðfélagsfræði, er laust i 2 ár við þjóðfélags-
stofnun. Umsækjandi verður að hafa þjóðfélagshagfræðimenntun og verður
að geta sannað reynslu frá rannsókn og tilsögn í faginu. Umsóknareyðublöð
fást hjá ritara. Laun eftir 1. kl. 20/22 stöðuhækkun i fyrsta lektor í 1. kl. 23 á
sér stað eftir gæðadóm. Umsækjandi getur áskilið sér rétt til að hafna
stöðunni ef um stöðuhækkun verður ekki. Viðurkennd doktorsgráða veitir laun
i 1. kl. 24.
Umsókn, er tilgreini nákvæmar upplýsingar um menntun og fyrri störf, ásamt
afriti af meðmælum, vottorðum og visindarannsóknum, sendist Universitetet i
Bergen, Personalavdelingen, Postboks 25, 5014 Bg—U, FYRIR 28. SEPT-
EMBER. Ennfremur vísast til Norsk lysningsblad nr. 205 frá 6. september
1974.
1/2 lítri köld mjólk
1 ROYAL búðingspakki.
Hrœrið saman.
Tilbúið eftir 5 mínútur.
Súkkulaðj karamellu
vanillu jarðarberja
sítrónu.
Nýkomnir
spariskór
frá Clarks
Skósel,
Laugavegi 60,
sími 21270.
A þ/óðhátiöarári eru borðfánarnir, sem
Pjóöhátiöarnefnd 1974 gefur út, tilhlýðileg og
virðuleg gjöf til þeirra, sem sækja yður heim
Fáninn er úr silki og stöngin hvílir á hvítum
marmarastöpli.
Fast i mm/agnpaverslunum um land allt
Heildsöludreifingu annast O. Johnson og
Kaaher hf. og Sambandið, in'nflutningsdeild