Morgunblaðið - 21.09.1974, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974
Nýtt skip
Eimskipa-
félagsins —
Bakkafoss
NVTT skip bættist f kaupskipa-
flota landsmanna í gær. Þá var
Bakkafoss hinn nýi afhentur
Eimskipafélagi Islands f Vless-
ingen f Hollandi.
Bakkafoss er smíðaður í Vest-
ur-Þýzkalandi 1970, og er 2724
brúttólestir. Viggó Maack
skipaverkfræðingur og Magnús
Þorsteinsson, sem verður skip-
stjóri á Bakkafossi, veittu
honum viðtöku fyrir hönd Eim-
skips. Skipið lestar á næstu
dögum vörur í Álaborg, Kaup-
mannahöfn og Gautaborg, en
það er væntanlegt til landsins
um mánaðamótin.
Bakkafoss er 19. skip Eim-
skipafélags Islands.
Nýr sveitar-
stjóriíGerðum
HARALDUR Gíslason, sveitar-
stjóri á Vopnafirði, hefur verið
ráðinn sveitarstjóri í Gerðum
Garði frá og með 1. október.
Haraldur hefur verið sveitar-
stjóri á Vopnafirði í tæplega 8
ár.
INNLENT
Flugvél
hlekkist á
— enginn
slasaðist
KLUKKAN 12.55 f fyrradag
hlekktist Iftilli flugvél á f flug-
taki á túni við bæinn Ytri-Móa f
Hrunamannahreppi. Þrfr voru
f vélinni, flugmaðurfnn og
tveir feðgar, og sluppu þeir að
mestu ómeiddir. Flugmaðurinn
skarst á enni. Vélin er mikið
skemmd, en hún er af gerðinni
Piper Cherokee Pa-150, eins-
hreyfils og tekur 4 farþega.
Hún er f eigu Flugfélags Sel-
foss.
Nánari atvik eru þau, að vél-
in var að taka sig á loft af sléttu
og löngu túni. Hún náði aldrei
fluginu og endastakkst fram af
túnfætinum. Loftferðaeftirlitið
fór á staðinn, en samkvæmt
upplýsingum Skúla Jóns
Sigurðssonar, liggur ekki ljóst
fyrir hvað fór úrskeiðis.
Þá varð mjög harður árekstur
tveggja bíla í Hreppunum í
fyrradag, og slasaðist þrennt í
þeim árekstri.
Sól og blíða
í Stafnsrétt
Mælifelli, 19. september —
í DAG er réttað f Stafnsrétt í
sól og blíðu. Versta veður hefur
verið undanfarna daga og
hrepptu gangnamenn illviðri á
fjöllum, einkum á þriðjudag.
Fé i Stafnsrétt er lengst að
komið frá undirhlíðum vestan-
verðs Hofsjökuls. Þar gengu
svonefndir undanreiðarmenn á
sunnudag. Gistu þeir 3 næstur í
kofa við Ströngukvísl, nokkru
austan við Kjalveg. Þar urðum
við 19 á sunnudagskvöld, en
María í Finnstungu í Blöndudal
sá um mat þess.
Á mánudag var slydda að
morgni, rættist úr hádaginn, en
hvitahrið er á leið. Voru þá
gengnar Svörtutungur og Guð-
laugstungur, en þeir, sem
lengst fóru, heldur sunnan við
Hveravelli, austan Blöndu. Var
fé vænt á þessu víðerni og
styggt. A þriðjudag var hið
mesta óveður, en þó Álfgeirs-
tungur smalaðar og allt gras-
lendi út að Haugakvísl. Þaðan
var safnið rekið út fyrir Galtará
og setzt að í góðum gangnakofa.
Átta lýtingar, sem voru í kofa i
Áfangaflá aðfararnótt þriðju-
dags, gátu ekki skipt sér og riðu
við svo búið út i Buga. Upp-
flokkur Eyvindastaðaheiðar gat
ekki heldur gengið á þriðjudag,
en veður þar jafnvel enn verra
en á Vesturheiðinni. Á þriðju-
dagskvöld birti upp með 8 stiga
frosti og var kalt og bjart
gangnaveður í gær. Stóðrétt-
inni í Stafni var að ljúka, þegar
við komum að Fossum. Fé var
margt, þótt nokkur svæði smöl-
uðust ekki og biða þau eftirleit-
ar.
— Síra Ágúst.
Féll 8—10 metra
en meiddist lítið
LAUST eftir klukkan 10 í
fyrrakvöld varð vinnuslys við
húsið númer 45 við Hringbraut.
Maður féll niður af vinnupalli,
8—10 metra fall. Hann skarst
nokkuð á höfði en hlaut ekki
önnur tcljandi meiðsl, og fékk
hann að fara heim að lokinni
aðgerð á slysadeildinni. Þykir
mesta mildi, að ekki skyldi fara
verr.
Maðurinn stóð á vinnupall-
inum gegnt 3. hæð hússins og
var hann að taka stóra rúðu úr
karmi. Ekki virðist pallurinn
hafa verið traustbyggður, því
hann þoldi ekki þunga manns-
ins og rúðunnar og brotnaði.
Maðurinn lenti á grasflöt og
meiddist lítið við sjálft fallið.
Hins vegar skarst hann þegar
rúðan brotnaði í mél við hliðina
á honum.
Hæpin heimild
eignar Islendingi
Picasso-verk
ISLENZKUR maður úti f Höfn,
sem komizt hefur f klandur hér
hcima, hefur fullyrt f viðtali
við danska ritið „Rapport", að
hann hafi falsað fjölda mál-
verka og selt þau á söfn, þar á
meðal heilmikla Picasso-mynd,
sem nú er f rfkislistasafninu
danska. Vísir hafði þessa „upp-
ljóstrun“ eftir „Rapport“ f gær.
Hinsvegar gera forráðamenn
safnsins gys að öllu saman og
segjast vita með vissu, að Is-
lendingurinn fari með fleipur
og Picasso-myndin sé ófölsuð.
Hið danska „Rapport“ mun
raunar ekki þykja merkileg
heimild eins og mcðfylgjandi
mynd af forsfðu ritsins sýnist
Ifka bera með sér.
Kristján Guðmundsson atnendir Magnúsi Sigurðssyni gjöfina frá 10 ára stúdentum MR. A myndinni eru
einnig bekkjaráðsmennirnir Kristfn Waage, Margrét Georgsdóttir og Júlfus S. Ólafsson. Svo og Ingi
Kristinsson skólastjóri, séra Ingólfur Ástmarsson og Ólafur J. Ólafsson. Ljósm. Sv. Þorm.
Minntust 10 ára stúdentsafmælis með
stórgjöf til Hjálparsjóðs æskufólks
Stúdentar frá Menntaskólanum
f Reykjavfk vorið 1964 afhentu f
gær Hjálparsjóði æskufólks stór-
gjöf f tilefni 10 ára stúdentsaf-
mælis árgangsins. Kristján Guð-
mundsson formaður bekkjarráðs-
ins afhenti formanni sjóðsins,
Magnúsi Sigurðssyni fyrrv. skóla-
stjóra, gjafabréf og ávfsun að
upphæð kr. 320.000.00 og sagði
við það tækifæri, að er bekkja-
systkini hefðu komið saman á
útmánuðum til að ákveða hvernig
afmælisins skyldi minnzt, hefðu
komið fram ýmsar hugmyndir um
HINN 12. september s.l. var þing-
fest fyrir bæjarþingi Reykjavfk-
ur mál, sem höfðað er gegn tveim-
ur mönnum fyrir sölu á fasteign,
sem þeir höfðu enga eignarhcim-
ild á. Annar mannanna rekur lög-
fræðiskrifstofu f Reykjavík. Er
þess krafizt f stefnunni, að um-
ræddir menn greiði manni þeim,
sem málið höfðar, krónur 594
þúsund með 14% ársvöxtum frá
1. ágúst 1974 til greiðsludags, og
málskostnað að auki. Þetta húsa-
sölumál hefur verið töluvert í
fréttum f jölmiðla að undanförnu.
Málavextir eru þeir, samkvæmt
stefnunni, að í marzbyrjun svar-
aði stefnandi auglýsingu f dag-
blaði þar sem ódýrt húsnæði var
auglýst til sölu. Sendi hann inn
nafn sitt, og svaraði maður nokk-
ur bréfinu og sagðist vera
fasteignasali. Færði hann mann-
inn til umrædds lögfræðings, en
þar var þá fyrir maður, sem sagð-
ur var eigandi eignarinnar, sem
er neðri hæð hússins Bókhlötyi-
stígur 6b. Lögfræðingurinn gerði
kaupsamning og annaðist efnis-
þátt hans, sem dagsettur var 6.
marz. Var stefnandi látinn greiða
lögfræðingnum 44 þúsund krónur
í sölulaun, en venjan er sú, að
seljandi greiði sölulaun.
Kaupverð hússins var 2,2
milljónir króna. Við undirskrift
greiddi stefnandi málsins lög-
fræðingnum 100 þúsund krónur
og 250 þúsund krónur 18. júli,
hvort tveggja í reiðufé. Við undir-
skrift fékk stefnandi umráðarétt
yfir húsinu og leigði það borgar-
sjóði Reykjavíkur. Við samninga-
gerð lá veðbókarvottorð ekki
frammi eins og venja er, og það
næsta í málinu er, að fram á
sjónarsviðið kemur maður nokk-
ur, framkvæmdastjóri Leikvangs
hf., og segir, að fyrirtæki sitt eigi
umrædda eign. Reyndist það rétt
vera samkvæmt veðbókarvottorði.
Krafðist framkvæmdastjórinn
þess, að stefnandi yrði sviptur
umráðarétti yfir eigninni og lét
setja fyrir hana lás og slá. Þetta
var í ágúst.
Leitaði stefnandi þá til lögfræð-
gjafir, en eftir að hugmyndina
um að gefa fé f Hjálparsjóðinn
bar á góma var hún einróma sam-
þykkt.
Kristján sagði, að þau bekkjar-
systkinin vonuðust til, að þetta fé
gæti orðið til þess að greiða fyrir
skólagöngu unglinga, sem útund-
an hefðu orðið f lffinu vegna
heimilisástæðna. Hann þakkaði
síðan sjóðsstjórninni fyrir sér-
staklega óeigingjarnt og fórnfúst
starf I þágu góðs málefnis.
Magnús Sigurðsson þakkaði
þessa höfðinglegu gjöf. Hann
ings. Sendi hann stefndu sím-
skeyti og bréf þar sem kaupunum
er rift, og fer fram á tafarlausa
Framhald á bls. 11.
FORYSTUMENN spænska knatt-
spyrnuliðsins Real Madrid
brugðu sér f fiskiðjuver Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur þegar þeir
dvöldu hér í vikunni. Sýndu þeir
mikinn áhuga á öllu, sem þar fór
fram, og að skoðunarferð lokinni
spurðu þeir hvort ekki væri hægt
að fá saltfisk f nesti. Var það
auðsótt mál, og fengu þeir þrjá
pakka hver af sérstaklega völdum
saltfiski.
„Þeir sleiktu útum þegar þeir
voru að velja fiskinn," sagði
Matthías Guðmundsson verkstjóri
hjá BUR í samtali við blaðið I
gær. „Þeir völdu þykk og matar-
mikil stykki, og sögðu, að saltfisk-
Othello dregið
til Seyðisf jarðar
Seyðisfirði 20. sept.
1 MORGUN kom brezki togarinn
Lock Eriboll H-323 inn til Seyðis-
fjarðar með eftirlitsskipið
Othello f togi. Var um að ræða
minniháttar bilun f vél skipsins,
og verður gert við hana hér.
— Sveinn.
Nafn mannsins,
sem drukknaði
MAÐURINN, sem drukknaði í
Skjálfandafljóti s.l. miðvikudag,
hét Páll A. Pálsson, Sniðgötu 1,
Akureyri. Hann var 60 ára að
aldri, fæddur 29. september 1913.
Páll var þekktur maður, m.a. fyrir
hrefnuveiðar, sem hann stundaði
í áratugi.
sagði, að hún kæmi sér vel, þvi að
á fáum stöðum væri þörfin meiri.
Sjððurinn úthlutaði fyrst styrk
árið 1965, og þá til þriggja barna
og unglinga. I ár eru styrkirnir
orðnir 15 og hefur sjóðurinn nú
alls veitt um 100 styrki. Magnús
er nú að leggja af stað f ferð um
Vestfirði til að kynna starfsemi
sjóðsins og afla fjár til hans, en
hann hefur á undanförnum árum
ferðazt víða um landið í þeim til-
gangi. Magnús mun heimsækja
skóla á Vestfjörðum, sýna skugga-
myndir og flytja erindi, sem hann
nefnir „Foreldrarnir féllu frá“.
Þar sem þvf verður við komið
flytur hann einnig erindi fyrir
foreldra, sem hann nefnir „Þegar
heimilið hrynur“. Þá verða einnig
boðnar upp nokkrar myndir, sem
komu f hlut sjóðsins eftir mynda-
happdrætti 1966 og 1967. Allur
ágóði af sölu myndanna og erind-
um Magnúsar rennur til Hjálpar-
sjóðs æskufólks.
Stjórn sjóðsins skipa nú auk
Magnúsar séra Ingólfur Ástmars-
son og Ingi Kristinsson skóla-
stjóri, sem tók sæti Gunnars Guð-
mundssonar skólastjóra, sem ný-
lega er látinn.
ur væri herramannsmatur."
Þess má geta, að í farabroddi
Spánverjanna var eigandi Real
Madrid, Bernabeau að nafni, sem
er einn af ríkustu mönnum Spán-
ar og að sögn náinn vinur Francos
þjóðarleiðtoga.
Kæru Víkinga
vísað frá
DÓMSTÓLL Knattspyrnusam-
bands tslands fjallaði f gær-
kvöldi um áfrýjun Víkings á
dómsniðurstöðu Sérráðsdóm-
stóls KRR f kæru félagsins á
hendur Fram, fyrir að nota
Elmar Geirsson með í leik sfn-
um við Vfking. Svo sem kunn-
ugt er, varð niðurstaða Sér-
ráðsdómstólsins sú, að leikur-
inn skyldi teljast ógildur og
verða leikinn að nýju, en einn
af dómendunum skilaði sér-
áliti og taldi, að vfsa bæri mál-
inu frá, þar sem kæra Vfkinga
væri of seint fram komin.
Afrýjaði Vfkingur málinu til
dómstóls KSÍ, en Fram til
dómstóls ISI.
Halldór V. Sigurðsson, for-
maður dómstóls KSl, sagði f
viðtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að dómstóllinn hefði
vfsað málinu frá á sömu for-
sendum og komu fram hjá
þeim dómara í Sérráðsdóms-
stólnum, sem séráliti skilaði:
Að kæra Vfkinganna hefði ver-
ið of seint fram komin.
Dómstóll ISt hefur svo ekki
enn fjallað um áfrýjun Fram f
málinu.
594 þúsunda kraf-
izt vegna ólöglegr-
ar sölu á f asteign
Forystumenn Real Madrid
fengu saltfisk í nesti