Morgunblaðið - 21.09.1974, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.09.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974 11 - RÁÐSTAFANIR Framhald af bls. 24 Sjávarútvegsráðherra hefur tjáð mér, að brýna nauðsyn beri til að gera nú þegar ýmsar ráðstafanir í sjávarútvegi til þess að gengisbreyting sú, er ákveð- in var 29. ágúst s.l., dugi til að tryggja viðunandi rekstrarafkomu sjávarút- vegsins og til þess að greiða fyrir ákvörðun nýs fiskverðs frá 1. septem- ber s.l að telja. Fyrir þvl eru hér með sett bráða- birgðalög samkvæmt 28. gr. stjórnar- skrárinnar á þessa leið: 1. gr. Verðlagsráð sjávarútvegsins skal eins fljótt og við verður komið ákveða nýtt lágmarksverð á öllum tegundum sjávarafla, samkvæmt lögum nr. 81 23. júlí 1974 um Verðlagsráð sjávar- útvegsins. Hið nýja verð skal taka gildi frá og með 1 september 1974 og gilda ekki skemur en til 31. desember 1974. Við ákvörðun hins nýja verðs skal þess gætt, að hækkun almenns fiskverðs verði að meðaltali ekki meiri en 1 1% frá þvl verði, sem I gildi hefur verið, sbr. tilkynningu Verðlagsráðs sjávarútvegsins nr. 10/1974. 2. gr. 1. og 2. málsliður 2. gr. laga nr. 79/1968 orðist svo: Þegar fiskiskip selur afla I innlendri höfn eða afhendir afla sinn til vinnslu án þess að sala fari fram, skal fiskkaupandi eða fiskmóttak- andi greiða gjald til Stofnfjársjóðs fiski- skipa, er nemi 1 5% fiskverðs eins og það er ákveðið af Verðlagsráði sjávar- útvegsins. 3. gr. 1. málsliður 4. gr. laga nr. 79/1968 orðist svo: Þegar fiskiskip selur afla I erlendri höfn, skal það greiða 21% af heildarsöluverðmæti (brúttósöluverðmæti) aflans til Stofn- fjársjóðs fiskiskipa. 4. gr. Oliusjóður fiskiskipa skal starfræktur 1 þeim tilgangi að greiða niður verð á brennsluollu til íslenskra fiskiskipa, samkvæmt reglum, sem sjávarútvegs- ráðuneytið setur. Tekjur sjóðsins skuli vera af sérstöku útflutningsgjaldi, sem hér segir: a) 4.0% af f.o.b. — verði útfluttra sjávarafurða, annarra en saltfisks, skreiðar og þeirra afurða, sem koma frá hvalveiðum, selveiðum og hrogn- kelsaveiðum. b) 5.5% útflutningsgjald af f.o.b. — verði útflutnings saltfisks og skreiðar. Útflutningsgjaldið reiknast á sama hátt og annað útflutningsgjald af sömu vöru, og setur sjávarútvegsráðuneytið reglur um nánari framkvæmd á ákvæð- um greinar þessarar. 5. gr. 1. til 3. tl. 2. gr. laga nr. 1 9/ 1 973 um útflutningsgjald af sjávarafurðum, orðist svo: 1. kr. 2.400.00 á hvert útflutt tonn greiðist af frystum karfa- og ufsaflök- um og þurrkuðum saltufsa. 2 kr. 4.200.00 á hvert útflutt tonn greiðist af saltfiski — öðrum en þurrkuðum ufsa-, saltfiskflökum, söltuðum þunnildum, saltfiskbitum og söltuðum gellum. 3. kr. 4.750.00 á hvert útflutt tonn greiðist af freðfiskflökum — öðrum en karfa- og ufsaflökum — frystum hrognum, söltuðum hrognum ót.a., frystum gellum, skreið, hertum þorsk- hausum og niðursoðnum og niður- lögðum sjávarafurðum. — Nemi gjald samkvæmt töluliðum 1—3 meiru en svarar 1 Vi af f.o.b. — verðmæti út- fluttra sjávarvöru, er heimilt að fella niður þann hluta gjaldsins, sem er umfram þetta mark. 6. gr. Töluliðir 1 — 7 I 3. gr. laga nr. 19/1973 um útflutningsgjald af sjávarafurðum orðist svo: 1. Til greiðslu á vátryggingariðgjöldum fiskiskipa, semkvæmt reglum, sem sjávarútvegsráðuneytið setur 87.8% 2. Til Fiskveiðasjóðs íslands 7.5% 3. Til Fiskimálasjóðs 2.0% 4. Til smlði haf- og fsikirannsóknaskips 1.2% 5. Til byggingar I þágu rannsókna- stofnana sjávarútvegsins 0.5% 6. Til Landssambands Isl. útvegs- manna 0.5% 7. Til samtaka sjómanna skv. reglum, sem sjávarútvegsráðuneytið setur 0.5% 7. gr 1. mgr. 5. gr. laga nr. 72/1 969 um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins orðist svo: Tekjur Verðjöfnunarsjóðs skulu vera allt að þremur fjórðu hlutum af verð- hækkun, sbr. 7. gr.. sem verður á þeim afurðum fiskiðnaðarins til útflutn- ings, sem lög þessi ná til. Renna þessar tekjur til viðkomandi deilda sjóðsins 8 gr 2. málsliður 6 gr laga nr. 72/1969 um Verðjöfnunarsjóð fisk- iðnaðarins orðist svo: Verðbætur skulu þó aldrei nema meiru en þremur fjórðu hlutum verð- lækkunarinnar og ekki umfram það fé, sem viðkomandi deild ræður yfir, þeg- ar til greiðslu verðbóta kemur. 9. gr Fé það, sem kemur á reikning rlkis- sjóðs, skv. ákvæðum 2. gr. laga nr. 78/1974 um ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka íslands um breytingu á gengi íslenskrar krónu, umfram greiðslur skv. liðum a., b. og c. I þeirri lagagrein, skal lagt I sér- stakan gengishagnaðarsjóð, sem varið skal I þágu sjávarútvegsins með eftir- greindum hætti: a) Til þess að auðvelda eigendum skuttogara að standa I skilum með greiðslur afborgana og vaxta af stofn- lánum og til þess að tryggja rekstrar- grundvöll skuttogara. b) Til þess að greiða hluta gengis- taps vegna erlendra skulda eigenda fiskiskipa. c) Til þess að greiða fram úr greiðsluvandræðum fiskvinnslufyrir- tækja sem átt hafa I söluerfiðleikum á árinu 1 974. d) Til annarra þarfa innan sjávarút- vegsins. Heimilt er bæði að veita lán og óafturkræf framlög af fjármagni sjóðs- ins til ofangreindra þarfa. Óafturkræf framlög skulu nánar ákveðin með lögum. Sjávarútvegsráðuneytið setur nánari r — Olögleg sala Framhaíd af bls. 2 endurgreiðslu og bætur. Segir í stefnunni, að því hafi ekki verið sinnt, og sé málshöfðun þvf nauð- synleg. Er krafist 594 þúsund króna af stefndu, 250 þúsunda sem endurgreiðslu á kaupverði, 44 þúsund króna sem endur- greiðslu á sölulaunum og 200 þús- unda vegna vanefnda og galla. Þess má geta, að maður sá, sem var „seljandi" eign'arinnar, hefur verið tekinn til gjaldþrotaskipta, og er krafan gerð í þrotabú hans. Fækka ferðum Washington 20. september — AP Bandaríkin og Bretlandi hafa komizt að samkomulagi um að draga um 20% úr farþegaflugi yfir Norður-Atlantshaf til þess að draga úr tapi bandarísku flug- félaganna Pan American og Trans World Airlines. Samkomulagið mun gilda í vet- ur og nær auk ofangreindra flug- félaga, til British Airways og British Caledonian, sem fækka munu ferðum á milli London og baridarískra borga. Samband verzlun- arskólakennara UM SIÐUSTU helgi var haldinn að Bifröst f Borgarfirði aðal- fundur Sambands verslunarskóla- kennara. Auk venjulegra aðal- fundastarfa hélt Gunnar Ingi- mundarson verkfræðingur erindi um tölvunotkun við kennslu og Lýður Björnsson kennari fjallaði um undirbúning að námsskrá f samfélagsfræðum á grunnskóla- stiginu. Þá var samþykkt einróma sú áskorun til ríkisstjórnarinnar að í upphafi næsta þings verði lagt fram frumvarp um viðskipta- menntun á framhaldsskólastigi. Kosin var ný stjórn Sambands verslunarskólakennara og er hún þannig skipuð: Rósa Gestsdóttir, Verslunarskóla Islands, for- maður; Þórir Páll Guðjónsson, Samvinnuskólanum, vara- formaður og Friðrik Sigfússon, Verslunarskóla tslands, með- stjórnandi. reglur um framkvæmd þessarar greinar. 10. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og skulu ákvæði 1. — 8 gr. taka til sjávaraf- urða framleiddra frá og með 1 september 1974 ÁKVÆÐI TIL BRÁÐABIRGÐA Stjórn Verðjöfnunarsjóðs fisk- iðnaðarins er heimilt að inna af hendi greiðslur upp í verðbætur, sbr. 6 gr. laga nr. 72/1969, vegna óselds loðnumjöls af framleiðslu ársins 1 974 samkvæmt reglum, sem sjóðsstjórnin setur að fengnu samþykki ráðherra.” — Skipulag Framhaid af bls. 3 helgisgæzlan geti þar komið að liði engu að síður en I hinum tilfell- unum." Bjarni kvað sér hafa likað vel vistin þarna I Kodiak, en bærinn stendur á eyju með sama nafni og er á svipaðri breiddargráðu og Osló. Þar búa eingöngu fiskimenn, og kvaðst Bjarni hafa frétt þar af íslend- ingum, sem komið hefðu til Kodiak frá Seattle til að stunda fiskveiðar Meöal annars kvaðst hann hafa frétt af Islenzkum loftskeytamanni, sem þar hefði verið á báti, er stundaði stórkrabbaveiðar, og átti hann að hafa þénað þar á tveimur mánuðum upphæð, er nam árslaunum hans hér heima á íslandi. Sömuleiðis kvaðst Bjarni hafa frétt af íslenzkri konu, sem væri gift I Kodiak, en þegar hann reyndi að hafa samband við hana, kom I Ijós, að hún var einmitt stödd I heimsókn heima á (slandi hjá ættingjum og vinum. „En mér fannst sannast hér, að vlða liggja íslendingsins leiðir," sagði Bjarni. Mildur? Já,en ekkivið fitu og matarleifar. Palmolive-uppþvottalögurinn er mjög áhrifamikill og gerir uppþvottinn Ijómandi hreinan og skínandi — jafnvel þóttþér þurrkið ekki af ílátunum. Jafnframt er efnasamsetningir í Palmolive þannig, að hann ■ er mjög mildur fyrir hendurnar. Prófið sjálf... Palniolive í uppþvottinn m • i,. ■• ? i r L9J K i ' *■> m hSss?1 » mmi&m 1 m m i; Vr ' V* jÞ >' 1’ M b ■• •- , l|§ I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.