Morgunblaðið - 21.09.1974, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.09.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974 5 Fjölbreytt starf KFUM & KFUK Um þessar mundir er að hefjast1 hið margþætta starf K.F.U.M. og K.F.U.K. í Reykjavík og á höfuð- borgarsvæðinu svonefnda. Drengja- og unglingadeildir K.F.U.M. byrja flesta fundi sína um þessa helgi og komandi viku og telpna- og unglingadeildir K.F.U.M. einnig. Þessi félög hafa haldið uppi þrotlausu starfi í Reykjavík um 75 ára skeið og stöðugt fært út kvíarnar. Starf- semin fer fram á 10 stöðum í borginni og nágrenni hennar. Helstu starfsstöðvarnar eru, að Amtmannsstíg 2B, Kirkjuteigi 33, Langagerði 1 og í félagsheimilinu við Holtaveg. Auk þess í Breið- holti I, fundahúsi við Maríu- bakka, félagsheimilinu á Seltjarnarnesi og í barnaskóla Garðahrepps. Undanfarin ár hafa félögin einnig starfað á tveim stöðum í Kópavogi og geta væntanlega tekið í notkun nýtt félagsheimili þar, að Lyngheiði 21. Bætir það mjög aðstöðu til starfs, þar sem áður hefur þurft að búa við leiguhúsnæði og á ýms- um stöðum. Það ætti ekki að vera þörf á að fjölyrða um starf félaganna. Svo lengi hafa þau starfað fyrir ung- menni höfuðborgarinnar og jafn- an lagt áherslu á boðskap krist- innar trúar og siðgæðis og klætt hann þeim búningi, sem hæfir hverjum aldursflokki. Nú stendur yfir námskeið fyrir sveitastjóra og starfsfólk félaganna og eru þátttakendur um 200 manns, sem starfa víðsvegar í barna- og unglingadeildum þeirra. Orðsendingar um hvar og hven- ær hver einstök deild hefur starf sitt eru þegar farnar að berast ú‘ um borgina og spurningamai hafa um skeið heyrst á götunun meðal yngri borgaranna: Hvenæi byrjar K.F.U.M.? Ekki eru allir fundir og sam komur auglýstar í blöðum, ei aðalskrifstofa félaganna vii Amtmannsstíg gefur upplýsinga um stað og tíma eftir aldursflokk um og hverfum. Sumarbúðir félaganna í Vatm skógi og Vindáshlíð voru mjö; fjölsóttar að vanda og má ætla a þorri þátttakenda f búðunum bíé nú eftir að taka þátt í haust- o vetrarstarfi félaganna. Skógarmenn hafa löngum þótt bjartsýnir og reynast það enn. Nú hafa þeir hafist handa um byggingu íþrótta- og samkomu- skála í Vatnaskógi, sem á að verða rúmir 400 fermetrar að gólffleti. Platan er þegar steypt og með vorinu verður byrjað að reisa hús- ið, sem verður að sjálfsögðu milljónafyrirtæki. „Gamlir Skógarmenn" ættu nú að sýna hug sinn og þakklæti fyrir góðar stundir og minningar frá æsku- árunum og senda þeim kveðju sína með álitlegri fjárhæð í skála- sjóð. Sú króna rýrnar ekki, sem rennur í þann sjóð, en marg- faldast að verðmæti á komandi árum til heilla fyrir æskuna í landinu, sem nýtur starfsins og bættrar aðstöðu í sumarbúðunum. (Fréttatilkynning) MS MS MS Slfl SW MS MY Adalst AUGL TEIKr MDAM ræti 6 sími MS ÝSINGA- VIISTOFA ÓTA 25810 3 dagar í Madrid — 8 dagar í Torremolinos ÓTRÚLEGA ÓDÝR SPÁNARFERÐ Knattspyrnufélagið FRAM efnir til hópferðar til Spánar 30. september til 10. október. Dvalist verður í Madrid í 3 daga og m.a. fylgst með Evrópubikarleik Fram og Real Madrid. Síðan verður dvalizt I Torremolinos i sól og sumaryl. Verð kr. 28.900.— innifalið: gisting, hálft fæði i Madrid og gisting i luxusibúðum i Torremolinos. Farmiðapantanir hjá Ferðaskrif- stofunni SUNNU simar 12070 og 16400. FRYSTIKISTUR VESTFROST ER DÖNSK GÆÐAVARA VESTFROST frystikisturnar eru bún- ar hinum viðurkenndu Danfoss frysti- kerfum. Hverri VESTFROST frystikistu fylgja 1—2 geymslukörfur. Aukakörfur fá- anlegar á mjög hagstæðu verði. VESTFROST frystikisturnar eru allar búnar sérstöku hraðfrystihólfi og einnig má læsa kistunum. VESTFROST verksmiðjurnar í Es- bjerg eru stærstu útflytjendur í Dan- mörku á frystitækjum til heimilisnota. lítrar 195 265 385 460 560 breidd cm 72 92 126 156 186 dýpt cm (án handfangs) 65 65 65 65 65 hæS cm 85 85 85 85 85 Frystiafköst pr. sólarhring kg 18 23 27 39 42 195 Itr. kr. 50.253.— 265 Itr. kr. 54.786 — 385 Itr. kr. 61.749 — 460 Itr. kr. 68.986,— 560 Itr. kr. 76.854 — Laugavegi 178 Sími 38000 Til sölu er húseign mín, við Aðalgötu 28, Súðavík. Húsið er steinhús 80 fm, 3 herbergi, eldhús og þvottahús, svo og bílskúr. Upplýsingar gefur Ragnar Þorbergsson, Aðalgötu 28, Súðavík, sími 94-6943 og Jón Þorbergsson, sími 36582 og 82452, Reykjavík. Kristján Ó. Skagfjörð h.f. Tæknideild Söluferð um landið Verðum á: Húsavík 21. sept. Grenivik 22. sept. Akureyri 23. sept. Dalvík og Ólafsfirði 24. sept. Siglufirði 25. sept. Hofsós og Sauðárkrók 26. sept. Skagaströnd og Blönduósi 27. sept Hvammstanga og Hólmavík 28. sept. Fjölbreytt úrval af tækjum og búnaði fyrir skip og báta. Sýnum einnig sjálfvirkar bindivélar fyrir frystihús Kristján Ó. Skagfjörð h.f. Tæknideild Sími 24120, Hólmsgötu 4, R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.