Morgunblaðið - 21.09.1974, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.09.1974, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974 Úti ímóa Höf. Ármann Kr. Einarsson Rósa leggst niður við holuopið og kallar á mýslu, eins og hún var vön að gera. En engin hreyfing, og ekkert hljóð heyrist sem gefur til kynna, að mýsla sé heima. Að síðustu stappa ég á þúfuna. Það ber heldur engan árangur. Við Rósa erum heldur vonskviknar á svipinn. Mýsla virðist ekki hafa unað sér vel á nýja staðnum. Jæja, þá er ekki annað að gera en taka til óspilltra mála við berjatínsluna. Þegar við Rósa erum að snúa frá holunni, sjáum við hreyfingu í grasinu. Er ekki reyndar hún mýsla litla þar ljóslifandi komin! Hún nemur staðar og horfir á okkur sínum örsmáu, tinnudökku augum, og auðsjáanlega þekkir hún okkur strax. Það glaðnar yfir okkur Rósu, og við stráum matar- molunum í grasið fyrir framan mýslu. Og hún lætur ekki standa á sér, að gera sér gott af þeim. Vertu sæl, mýsla mín, hvísla ég lágt, um leið og við Rósa hröðum okkur í berjamóinn. Við keppumst báðar við að tína, og nú eru það ekki mörg ber, sem villast upp í munninn. Þegar við höldum heim, eru berjaílátin nærri full. Næsta dag skreppum við Rósa aftur í berjamóinn og ljúkum við að fylla ílátin. Loks rennur svo sunnudagurinn upp bjartur og fagur. Eftir hádegið sést til ferða pabba. Hann verður að skilja bílinn eftir fyrir neðan túnhliðið. Lítil trébrú á akbrautinni heim að bænum er brotin. Ég hleyp á móti mömmu og pabba. Systur mínar eru ekki með. Pabbi segir mér, að þær hafi farið með jafnöldrum sínum í skemmtiferð upp í Borgarfjörð. Mikið hefur þú stækkað, Magga mín, segir mamma, um leið og hún faðmar mig að sér. Og þú ert svo brún og hraustleg, segir pabbi og kyssir mig á kinnina. Ég byrja strax að segja mömmu og pabba frá ævintýrunum í sveitinni. Ég tala hratt, er næstum óðamála. En það er alveg sama, hversu ótt ég ber á, ég get aldrei sagt á stuttum tíma frá öllu því nýstárlega, sem fyrir mig hefur borið í sveitinni. Það er bezt að fara sér svolítið hægar, hugsa ég. Það er nógur tími seinna til að segja frá því, sem á dagana hefur drifið á Fossi. Ég þagna og horfi hugsandi fram fyrir mig. Það er dálítið, sem ég hef verið að hugsa um undanfarna daga. Hvaða ósköp ertu allt í einu orðin alvarleg? segir mamma brosandi og klappar á kollinn á mér. Mig langar til að fá leyfi til að bjóða vinkonu minni til mín í nokkra daga, svara ég hikandi og lít til skiptis á foreldra mína. Vera má, að þú hafir lesið um flugu, sem heitir Colorado-flugan. Hún er útbreidd víða á jörðunni og stundum koma fréttir af því í blöðun- um, að þessar flugur hafi valdið miklum skemmdum á kartöfluupp- skeru bænda. Stærðin á flugunni er 9—11 millimetrar og hún er gulbrún að lit. Sem betur fer þurfum við hér á landi ekki að óttast hana. ANNA FRÁ STÓRUBORG — saga fra sextándu öld eftir Jón Trausta svo að hún steyptist aftur á bak. Síðan sópaði hann hinum dýrlingamyndunum út af altarinu. „Ég skal kenna þér, latínudjöfull, að hætta þessari afguða- dýrkun og svara siðuðu fólki kurteislega,“ mælti hann. Munkurinn þaut upp eins og naðra og það með slíkri ákefð, að lögmaður hopaði ósjálfrátt á hæl fyrir honum. „Guðníðingur! — Illmenni!“ æpti hann, og augu hans log- uðu af heift. „Bölvun guðs er yfir þór! Þessir heilögu menn, sem þú hefir hrakið og svívirt, hejna sín. Enginn dýrlingur guðs flytur bænir þínar fram fyrir hásæti þess hæsta. Enginn í dýrlingur guðs heldur hendi sinni yfir ferðum þínum á jörðinni! — Þú ert vesalingur mitt í völdum og velgengni, flæktur í táli og augnaþjónustu viðsjálla vina og óheilla sníkjudýra, sem á þér lifa, hreykjandi þér í drambi og mikil- mennsku af hlutum, sem enginn þekkir og viðurkennir nema þú sjálfur —!“ „Hættu illyrðum þinum!“ æpti lögmaður á móti með steyttan atgeirinn, „og segðu mér, hvar Hjalti Magnússon er!“ Munkurinn stóð fyrir altari sínu, blár í framan af reiði, og tók svo fast á orðunum, að munnvatnið ýrðist út úr hon- um. „Ég veit, hvar Hjalti Magnússon er!“ æpti hann beint upp í andlitið á lögmanni. „En þú veizt það ekki, lögmanns- fífl, sem hugsar, að þú getir brotið allt á bak aftur með ógn- um og ofstopa. Þú veizt hvorki það né annað!“ I.ögmaður lagði geirnum fyrir brjóst honum. Tveir af sveinum hans gerðu það sama. Þrir hárbeittir geirsoddar stóðu á brjósti munksins í einu. „Vita skaltu,“ mælti hann, „að við feðgar þorum að sjá mannsblóð. Segðu mér undireins, hvar Hjalti er!“ Munkurinn stóð fastur fyxir, og brá honum hvergi. Hann breiddi út faðminn og hóf hendurnar sem til blessunar, um leið og hann hallaði sér fram á atgeirsoddana og hvæsti fram úr sér orðunum: „Þú hrœ'Öir ekki Franciscusarmunk! — Líttu á þessa beru, bólgnu fætur! Síðan ég vék af vegi synda minna og helgaði líf mitt guði, hefi ég gengið berfættur, hversu kalt sem ver- ið hefir og hvernig sem verið hefir undir fæti. Allar ár hefi ég vaðið og synt sumar. Stormar og steypiregn hafa á mér dunið og margsinnis hefi ég teflt við sjálfan dauðann á eyðisöndum, eyðiheiðum eða uppi á reginfjöllum. Hataður og forsmáður hefi ég hrakizt milli mannanna og hvergi átt athvarf. — Nei, þú hræðir ekki Franciscusarmunk! — Aldrei hefi ég borið annan klæðnað en ég ber nú. Hver þraut og raun, sem ég hefi liðið, hefir afplánað eina af syndum mín- um. Hvert kalsár, sem ég hefi þolað, hver brennandi sviði, sem ég hefi afborið, hefir flutt mig feti nær hinni himnesku Afmælisveislan leyst upp í ringulreið þegar bara ein rjómakaka var eftir. Þú hefðir nú getað farið tvær ferðir. Það er með ólíkindum hvað fólk leggur á sig ef það getur sparað nokkrar krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.