Morgunblaðið - 21.09.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974
7
EFTIR
DIETER
WERNIG
Keisarinn
og Krupp
Með beinni fjárfestingu !
vestur-þýzka risafyrirtækinu
Krupp hafa yfirvöld I íran
stigið fyrsta sporið í þá átt að
eignast hlut í erlendum félög-
um til að bæta upp einhliða
iðnframleiðslu heima fyrir.
Það er einnig í fyrsta skipti í
162 ára sögu Krupps, að
samsteypan hleypir inn
erlendum hluthöfum.
Nánar tiltekið hefur íran
fallizt á að kaupa 25,04% af
hlutabréfum í Krupp Hutten-
werke, sem til þessa hefur
svo til eingöngu verið í eigu
„móðurskips" Krupphrings-
ins, Friedrich Krupp G. m. b.
H. Essen. Kaupsamningurinn
var sniðinn eftir skattalöggjöf
Vestur-Þýzkalands, en þar
eru meðal annars ákvæði um
að greiða beri allt að 56% af
hlutafjárarði í skatta, sé
hlutafjáreignin undir 25%.
Með því að kaupa yfir 25%
hlutabréfa þarf íran aðeins
að greiða 35% í skatt af
arðinum. Þar við bætist, að
samkvæmt vestur-þýzkum
lögum felur 25% hlutdeild í
sér neitunarvald, þannig að
eigendur fjórðungs hluta-
bréfa geta fellt sérhverja
ákvörðun meirihlutans.
Samningur írans og
Krupps felur þannig í sér
sameiginlega stjórn á
Huttenwerke. Einnig fær full-
trúi írans sæti í fram-
kvæmdastjórn Krupphrings-
ins, sem rekur meðal annars
verkfræðistofur, skipasmíðar,
þungaiðnað og tækniiðnað í
sambandi við geimrann-
sóknir.
Auk þessa hafa Krupp og
írönsk yfirvöld ákveðið að
stofna sameiginlegt fjár-
festingarfélag með aðal-
stöðvum í Zúrich í Sviss.
Mun Krupp-hringurinn láta
þetta félag annast allar fjár-
festingar sínar utan Vestur-
Þýzkalands, auk þess sem
félagið mun sjá um sam-
eiginlegar framkvæmdir og
fjárfestingar Krupps og írans
erlendis. Fær þetta nýja félag
í Zúrich frjálsan aðgang að
tækniþekkingu Krupphrings-
ins endurgjaldslaust.
Sem stendur er það helzta
verkefni Krupps í íran að
koma þar á fót vestur-þýzku
verkfræðingafélagi, sem á að
vinna á vegum Krupps að því
að koma upp sykurvinnslu
og sementsverksmiðjum í
suðurhluta landsins. Þá hefur
íran einnig fest kaup á tveim-
ur stáliðjuverum frá Vestur-
Þýzkalandi, en aðild að þeim
kaupsamningi eiga, auk
Krupps, þýzku félögin Korf,
Klöckner, Mannesmann og
Salzgitter, og er það síðast-
nefnda aðallega eign þýzka
ríkisins.
Upphæðin, sem íran
greiddi fyrir hlutabréfin í
Krupp Húttenwerke stálver-
inu, er vel geymt leyndar-
forum
world features
Starfsmaður i einu stáliðjuvera Krupps
mál, en orðrómur segir, að
hún sé einhversstaðar milli
200 og 300 milljóna marka
(um 9 til 13 milljarðar ísl.
króna). Að sögu Bertholds
Beitz, stjórnarformanns
Krupp stofnunarinnar, sem
rekur félagið, er stofnun fjár-
festingar félagsins í Zúrich
athyglisverðasti liðurinn í
samningnum við íran, því
„olíuauður írans og tækni-
þekking Vestur-Þýzkalands
er svo sterk blanda, að erfitt
verður að keppa við hana í
framtíðinni."
Það var í ma! 1973 sem
Berthold Beitz fyrst fór til
keisarahallarinnar í Teheran
til að ræða samning þann, er
undirritaður var 14 mán-
uðum síðar, í júlí 1974.
Margir viðræðufundir fylgdu
á eftir, og þegar kauptilboð
íranskeisara var birt var
samningunum mjög vel
tekið. Þegar Helmut Schmidt
kanslara Vestur-Þýzkalands
voru birtar niðurstöðurnar
lýsti hann ánægju sinni og
kvaðst vona, að margir svip-
aðir samningar tækjust í
framtíðinni. Dieter von
Wúrzen, sem er háttsettur
starfsmaður efnahagsmála-
ráðuneytisins, tók í sama
streng og sagði, að ákvörðun
írans um fjárfestinguna væri
mun heillavænlegri en
margskonar fjármálabrask
sumra annarra olíuríkja, sem
aðeins leiddi til aukinna erfið-
leika í alþjóðagjaldeyris-
málum.
Samningur írans við
Krupp getur haft alþjóðaþýð-
ingu, því hann getur leitt til
þess, að önnur olíulönd fylgi
fordæminu og fjárfesti mikið
af olíuhagnaði sínum í traust-
um fyrirtækjum ! iðnvæddu
rikjunum. Fram til þessa hafa
þessi olíurlki forðast fjárfest-
ingar til langs tlma og frekar
kosið að festa fé sitt í lóðum
og jörðum. Kuwait telst til
undantekninga, þv! vitað er,
að landið hefur keypt hluta-
bréf í bandarískum risafyrir-
tækjum og í nokkrum
brezkum félögum. En yfirleitt
er hér um að ræða kaup á
minna en 10% hluta í hverju
fyrirtæki, og hafa kaupin
farið fram með leynd í gegn-
um stærstu hlutabréfamark-
aði viðkomandi ríkja.
íranskeisari hefur skýrt
fréttamönnum frá því, að
eftir samningana við Krupp
rerKni hann nú með því, að
innan tíu ára muni íranar búa
við sömu lífskjör og nú ríkja I
Vestur-Þýzkalandi, og meðal-
tekjur frana verði þá þær
sömu og Vestur-Þjóðverja í
dag.
En þrátt fyrir gott upphaf
að iðnvæðingu verður það
erf+tt fyrir efnahagssérfræð-
inga írans að ná þessu tilætl-
aða marki á aðeins einum
áratug. Þótt þeir ráði yfir
nægu fjármagni til að kaupa
iðjuver og tækniþekkingu, v
hafa þeir ekki á að skipa
þeim fjölda iðnverkamanna
og faglærðra manna, sem til
þarf.
Pennavinir um allan heim Kynningarþjónusta um allan heim. Myndskreyttur alþjóðapennavina- bæklingur. Ökeypis. Skrifið í dag: Five Continents Ltd. Waitakere, New Zealand. Prjónakonur takið eftir Kaupum lopapeysur allar gerðir og liti. Móttaka 9 — 1 2. Unex, Aðalstræti 9.
Hefill Til sölu 18" Hombakafréttari og þykktarhefill. Sími 83640 og 40413. Keflavík Bandariskan mann vantar ibúð strax. Helst með húsgögnum. Tvennt i heimili. Uppl. i sima 1 767 eftir kl. 5 síðdegis.
Kona óskast til að gæta 2ja ára barns eftir hádegi i heimahúsi i Kinnunum i Hafnarfirði. Einriig er til sölu á sama stað barnavagn og barnastóll. Uppl. i sima 52919. Blikksmiðir óskast Blikksmiðja Gylfa, Ingólfsstræti 21 B.
Til sölu Mercedes Benz 230, sjálfskiptur, ekinn 100.000 km. árg. '68. Uppl. i sima 20177 eftir kl. 18 daglega. Riffill óskast Vil kaupa góðan riffil, cal. 222, 223 eða 243. Upplýsingar i sima 81762.
Til sölu Mercedes Benz 220 D. Árgerð 1971. Upplýsingar næstu daga sími 37400. Eigendaskipti Hef tekið við Hárgreiðslustofunni Garði, Hólmgarði 34, af Katrinu Hermannsdóttur. Elin Ástráðsdóttir, áður Hárgreiðslustofunni Tinnu.
Atvinnurekendur athugið Húsgagnasmiður er á lausu. Kaup og upplýsingar sendist afgr. Mbl. fyrir 23. sept. merkt: 9568. Bókbandstæki fyrir handunnið bókband, óskast til kaups, saumastóll og fleira. Uppl. i sima 36205 eftir kl. 5,30 næstu kvöld.
Atvinna óskast Ung stúlka óskar eftir götunar- starfi. Hefur 1 árs reynslu. Vinsamlegast hringið i sima 22309. Túnþökusala Túnþökur til sölu. Heimkeyrt. Upplýsingar í sima 71464 og 41896.
V.W. 1302 L.S. Til sölu V.W. 1 302 L.S. árg. '72. Uppl. i sima 43443. Stúlka vön grafiskri Ijósmyndun, framköllun og kóperingu, óskar eftir vel laun- uðu starfi strax. Uppl. í sima 30927.
Óska eftir að taka á leigu litið verzlunar eða skrifstofuhús- næði (jarðhæð) sem næst JMið- bænum. Fyrirframgr. nokkra mán. Tilb. merkt: „Verzlunarhúsnæði 9569" sendist Mbl. f. mánudags- kvöld. Kýr — Dráttarvél Til sölu eru 7 ungar kýr að Syðri- Rauðalæk i Holtum. Simi um Meiritungu. Einnig David-Brown 1200 dráttarvél árg. 1968. Sími 99-5815.
JRorgtmltlnírili nucivsincnR íg, ^22480 Píanókennsla Guðrún Guðmundsdóttir, Hamra- hlið 1 7, simi 38181.
Söngfólk
Getum bætt við fáeinum'góðum karla og kven-
röddum í kór Neskirkju. Hafið samband við
söngstjórann Reynir Jónasson í kirkjunni á
sunnudag, mánudag og þriðjudag kl. 6 — 7
e.h.
Félag
jápníönaöarmanna
Félagsfundur
verður haldinn mánudaginn 23. september
1 974 kl. 8.30 e.h. í Lindarbæ, niðri.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Uppsögn samninga
3. Önnur mál
Fjölmennið stundvíslega
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.