Morgunblaðið - 21.09.1974, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.09.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974 13 ísland leggur til efnið í botn Norður-Atlantshafsins Alltundan rót- um Kverkfjalla Löngum höfum við ís- lendingar hrósað okkur af því að hafa lagt okkar skerf til heimsmenn- ingarinnar í gömlum bók- um. Nú er að koma í ljós, að framlag lands okkar, þessarar hrúgu upp úr Atlantshafinu, sem við búum á, er kannski ekki síður mikið. Undir Kverkfjöllum streymir líklega upp möttulefni úr iðrum jarðar, sem dreif ist og leggur til efni í myndun hafsbotnsins milli Evrópu og Dr. Guðmundur Sigvaldason. Ameríku, allt suður að Azoreyjum. ísland legg- ur þá til hafsbotninn í öllu Norður-Atlantshafi, miklu stærra svæði en því, sem við sækjumst eftir á hafréttarráðstefn- um. Vísindamennirnir íslenzku, sem þessi sann- indi finna og sanna, og beraáborð á alþjóðlegum ráðstefnum, vinna okkur þá líklega ekki síður gagn en forverar þeirra fyrr á öldum, er rituðu bækur. Þeir voru þó ekki upp- götvaðir í sínu heima- landi. Undirritaður fréttamaður las í fréttum í stórblöðunum Herald Tribune og New York Times í sumar stórfrétt frá alþjóðlegri ráðstefnu í Reykjavík, þar sem vitnað var m.a. í efna- fræðileg sönnunargögn dr. Guðmundar Sigvalda- sonar um þetta. Þvf leit- uðum við nýlega á fund Guðmundar f Norr- ænu eldfjallastöðinni í Reykjavík, til að biðja hann um að útskýra fyrir löndum sínum hvað gengi á undir Kverkfjöll- um og hvers vegna hann og félagar hans hefðu bent á þau sem útgangs- 'dyr fyrir allt efnið, er myndar botn Atlants- hafsins. — Við höfum í dag yfir 500 bergefnagreiningar, sem benda til þess, að Kverkfjöllin séu út- gangspunktur fyrir þessi efni. En þetta er æði flókið mál og á sér forsögu, svaraði Guðmund- ur, og hélt svo áfram útskýring- um sínum, er við sýndum áhuga á slíkri forsögu. — Þegar byrjað var að taka sýni af hafsbotni, kom í ljós, að hann er að mestu úr basalti, eða blágrýti, sem er Ifka aðalefnið í íslandi. Basaltið myndast i möttli jarðar við það, að hluti möttulefnisins bráðnar og berst síðan sem kvika upp í gegnum jarðskorpuna. Eldgos, þar sem basalt kemur upp á yfirborð, eiga sér stað á öllum úthafs- sprungum eða hryggjum, og hafsbotnarnir reka til beggja átta frá hryggjunum samtímis því að nýtt efni kemur upp og fyllir í sprungurnar. Eldvirkni er mjög mismikil á úthafs- hryggjunum. Mest er eld- virknin og efnaframleiðslan þar sem eyjar hafa myndazt eins og ísland eða Hawaii. Á þessum stöðum verður því aðfærsla möttulefnis, sem basaltið er myndað úr, mun ör- ari, en þar sem eldvirkni og efnisframleiðsla er minni. Efnasamsetning þess basalts, sem kemur upp á neðansjávar- hryggjum, ber með sér, að mött- ullinn, sem basaltið er myndað úr, hafi áður bráðnað að nokkr- um hluta og tapað efnum, sem eiga og hljóta að vera í upphaf- legu eða frumlegu möttulefni. Sé aftur á móti. litið á eyjarnar, hefur bergið I þeim aðra efna- samsetningu en hafsbotninn. Þær eru ríkar af þeim efnum, sem fyrst bráðna úr möttlinum. Þetta er rétt eins og þegar soðið er kjöt, fyrst bráðna þau efni, sem fara í flotið, skaut Guð- mundur inn í til skýringar fyrir okkur, sem ekki erum vön því að tala um bráðið berg. Þarna er því um fyrstu bráðnun að ræða. — Þetta hefur vakið menn til umhugsunar um það, að hugsanlega geti möttul- aðstreymið undir úthafseyjum komið af mjög miklu dýpi og að þar eigi sér stað fyrsta upp- bræðsla þessara efna. Þaó, sem við Sigurður Steinþórsson, jarðfræðingur, höfðum raun- verulega fram að færa á ráð- stefnunni í sumar, var, að með mjög mörgum efnagreiningum á basaltsýnum, sem tekin voru allt frá Melrakkasléttu suður til Surtseyjar, fram á Reykjanestá og af Snæfellsnesi, gátum við rakið efnafræðilega breytingu á basaltinu frá úthafshryggjun- um og inn í landið, að mið- punkti í Kverkfjöllum. — Á grundvelli þessara efna- greininga teljumjið, að undir Kverkfjöllum og svæðinu í kringum þau, eigi sér stað lóð- rétt uppstreymi möttulefnis, sem komi þúsundir km neðan úr jörðinni, og það í fyrsta skipti. Þarna á sér stað fyrsta bræðsla á möttulefnunum. Þetta efni breiðist síðan út und- ir jarðskorpunni f láréttum straumi eftir virkum eldfjalla- beltum,. Það fer suður eftir öllu Atlantshafi, sennilega allt til Azoreyja. Og hefur í för með sér, að öll eldvirkni á norðan- verðu Atlantshafi á upptök sín í möttulefni, sem komið er upp undir miðju Islandi. Allur hafs- botninn milli Evrópu og Amerfku er þá myndaður úr þessu efni. Undir íslandi er virkasta framleiðslusvæðið á Norður-Atlantshafi og þó víðar væri leitað. Guðmundur tekur fram, að hugmyndin um þetta lóðrétta upptreymi möttulefna, sem svo breiðist út, sé ekki til orðin hjá fslenzku jarðvísindamönnun- um. Þær hafi byrjað að koma fram fyrir 2—3 árum. Þó ekki þannig, að hægt hafi verið að fylgja eftir með svo skýrum efnafræðilegum rökum. Áður höfðu efnafræðilegar niður- stöður aðeins sýnt, að breyting yrði á hryggjunum eftir því sem nær drægi landi. En hvenær vaknaði þá þessi hugmynd hjá þeim? — Það var í fyrrasumar, þegar ég var staddur suður í Managua, og fór að nota tímann eftir jarð- skjálftann mikla til að vinna úr gögnum, sem ég hafði haft með mér að heiman, til að skrifa grein, svaraði Guðmundur. Þá kom fram, að þarna væri eitthvað skemmtilegt á ferð. Ég skrifaði Sigurði Steinþórssyni snarlega og hann setti allt i gang til að fylgja þessum hug- myndum eftir. Síðan 1973 eða eftir að tók að hægja um eftir Vestmannaeyjagosið, höfum við og aðrir unnið að þessu af krafti, enda vildum við geta lagt fram okkar gögn á alþjóðaráðstefnunni í sumar. Ég held þvf ekki fram, að þarna höfum við sannað eitthvað. En þessi skýring kemur bezt heim og saman við aðrar niðurstöður. Og hvað nú? — Með þessari mynd, sem fengizt hefur þarna, hefur skapazt grundvöllur fyrir fjölmörg rannsóknaverkefni í bergfræði. Þetta opnar mögu- leika á að prófa ýmsar áleitnar spurningar um ný viðhorf varð- andi uppruna basaltsins og það gefur okkur verkefni langt fram í tímann. Er Guðmundur var inntur nánar eftir því, hvað stæði fyrir dyrum, sagði hann, að þeir, sem að þessu eru að vinna, þ.e., hann sjálfur, Sigurður Stein- þórsson, Páll Imsland og Níels Óskarsson hefðu þegar sent frá sér tvær greinar um þetta, aðra í bergfræðiritið Journal, of Petrology, og hina í brezka vísindaritið Nature. Og í undir- búningi væru fjórar aðrar greinar um áframhald þessara rannsókna, þar sem teknir væru fyrir mismunandi þættir og mismunandi svæði. — Auk þess er alltaf verið að fitja upp á nýjum verkefnum f þessu sambandi, sem reynt er að fylgja eftir, ýmist með því að láta stúdentana fá þau eða að við vinnum þau sjálfir. Sig- urður Steinþórsson er einmitt nú í Kanada til að kynna sér nýja tækni við bræðslutilraunir á bergi og ætlunin er að setja svo upp hér tæki til að bræða basalt og verða þau tæki smfð- uð hér. Verkefnin eru ótæm- andi. Það er semsagt komið í -ljós, að sérstaða íslands á Norður- Atlantshafi er með ólíkindum. Grunnsævið milli Grænlands og islands og hryggurinn milli ís- lands og Færeyja og allt til Skotlands, er myndað vegna mikillar framleiðslu á hraun- kviku í „heita pottinum" undir islandi. Jafnframt sendir is- land möttulstraumana suður og norður eftir MiðAtlantshafs- hryggnum, og úr þeim möttul- straumi kemur efni til stöðugr- ar nýmyndunar jarðskorpunn- ar undir Atlantshafi. Allur hafsbotninn milli Evrópu og Ameríku á norðurhluta Atlantshafs gæti því verið „runninn upp þar sem Kalda- kvísl kemur úr Vonarskarði", eins og Guðmundur Sigvalda- son sagði og vitnaði í ljóð Jóns Helgasonar. — E.Pá. ÍSIAND Uppdrátturinn sýnir hvernig uppbrætt möttulefni berst langt neðan úr jörðunni undir Islandi og brætt möttulefnið breiðist sfðan út undir jarðskorpunni I lágréttum straumi eftir virku eldfjallabeltunum, og dreifir sér á botninn undir öllu Norður- Atlantshafi, milli Evrópu og Ameríku og suður undir Azoreyjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.