Morgunblaðið - 21.09.1974, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974
— Haustsýning
Framhald af bls. 10
þótti mér myndin „Næturlíf“
(80) bera af, þar beislar hann
frumkraft sinn og nær mikilli sál-
rænni dýpt, og maður skynjar
þunga undiröldu bak við rólegt
yfirborð. Sigurður Örlygsson er
gjörólíkur Gunnari í myndum sín-
um, formið er rólegt og yfirvegað,
og mynd hans „Eitthvað annað“
(88) ber svip form- og litrænnar
Silfurtunglið
Sara skemmtir í kvöld til kl. 2.
Ungó Ungó
Stuðdansleikur
Hljómar
leikaíkvöld
Tommy my friend. Ég frétti að í Festi hafi verið
tómt hús, ekki einu sinni mús. Vertu ekki
svekktur eða upptrekktur, það vita allir að bæði
ég og þú erum báðir röff, töff en ekkert blöff,
og munið að hláturinn lífið lengir, drengir.
Sætaferðir frá B.S í. kl. 9:30.
fágunar. Einar Baldvinsson á hér
yfirlætislausar myndir, en litirnir
glóa í dúkum Ragnheiðar Ream,
og mynd hennar „Kaffibolli“ (81)
er einfalt, magnað og dulúðugt
listaverk sem sannar hve lítið
þarf til að skapa heilsteypt verk.
Sigríður Björnsdóttir á hér
þokkalegar myndir og Ása Ölafs-
dóttir lífgar umhverfið með sér-
kennilegum og fjörlegum vefnaði.
Björg Þorsteinsdóttir færist
mikið í fang með hinni stóru
mynd sinni, en er of nákvæm og
hikandi i útfærslunni, hún mætti
tileinka sér sitthvað af umbúða-
lausum vinnubrögðum Gunnars
Arnar og ekki er ég frá því að það
sé gagnkvæmt. Einar Hákonarson
hefur að þessu sinni hvílt sig á
hinum stóru formum og glímir við
einföld dekoratív form sem hann
bindur í svarta og trausta um-
gjörð, er í fyrstu virkar nokkuð
fráhrindandi.
Elías B. Halldórsson kemur
nokkuð á óvart með litrænum og
hreinum olíumyndum. Portrett
Örlygs af Eiríki Kristóferssyni er
með hans fjörlegustu verkum, og
vönduð vinnubrögð einkenna
myndir Eyborgar. Myndir Agústs
Petersen koma einna mest á óvart
sökum hreinleika, og myndirnar
„Kvöldsól" (20), „Eiginkona
mín“ (21) og „Vetrarsólhvörf"
(22) (nöfn stytt) eru samstillt-
ustu myndir sem ég hefi séð frá
hans hendi á haustsýningu. Minni
mynd Gísla Sigurðssonar þykir
mér betri en sú stærri en litirnir
mættu vera mettaðri. Sveinn
Björnsson sýnir sína bestu hlið og
svipaða stöðu er að segja um
Hrólf Sigurðsson.
Frammi í gangi vekur einfalt
aflangt steingler Leifs Breiðfjörð
mikla athygli, hér staðfestir hann,
sjálfum sér og öðrum, að ekki
þarf endilega skæra liti né djúpa
til að þessi tækni njóti sfn. Pastel-
myndir Jóhannesar Geirs og Ein-
ars Þorlákssonar eru mjög fágað-
ar, og sömu sögu er að segja um
vatnslitamyndir Valtýs sem þó
eru fvið hráar, mynd hans nr.
(140) ber af. Örlygur sýnir
skemmtileg tilþrif í vatnslita-
myndum sínum, og myndir Sig-
urðar Thoroddsen eru gæddar
vissum þokka. Grafík- og svarlist-
in er allgóð, en fullsundurleit,
Opið í dag
frákl. 7-12
D3oD®uTMKE>©TrI§5®nR']
Laugalœk 2. REYKJAVIK, simi 3 5o 2o
(þeir sem lesið hafa blaðaummælin síðustu
■daga og hlustað á plotuna ..Uppteknir'
vita að ballið er pottþétt
Eriginn er svikinn af sætaferðunum frá BSI
og frá Akranosi
AÐDÁENDUR
Sláturhúsball
'4
* W
»&
_______:____________________________________i__________________
FÉLAGSHEIMILIÐ FESTI
Grindavik
Punktur, punktur. komma, strik.
Svona er hann Maggi Kjartans.
En Maggi verður aðalmaðurinn í kvöld.
þvi það er JÚDAS, JÚDAS hinn hressi
sem mætir óupptekinn í gamalli fiski-
bolludós með bræddu smjöri í viðbit
(vestfirska). Ég hef trú á góðu balli I
kvöld, það segir stjörnuspáin og hún
ELSKU MAMMA platar aldrei.
Heiiræði: Lánaðu aldrei vinum þinum
eða kunningjakomum pening, þvi mjög
líktega taparðu næði AURUNUM og
VÍNSKAPNUM. SVEIMER ÞÁ.
ALLA daga. ALLSTAÐAR og hvergi.
Græddur er geymdur eyrir. Sælir eru
fattlausir, þvi þeir fattta ekki hvað þeir
eru vitlausir.
Felagslíf
Skrifstofa Félags ein-
stæðra foreldra
er opin mánudaga og fimmtudaga
kl. 3 — 7. Aðra daga kl. 1—5.
Sími 1 1 822.
K.F.U.M. á morgun
Kl. 10.30 fh. Sunnudagaskólinn
að Amtmannsstig 2b. Drengja-
deildirnar: Kirkjuteig 33,
KFUM&K húsunum við Holtaveg
og Langagerði. Kl. 1.30 eh.
Drengjadeildirnar áð Amtmanns-
stíg 2b. Kl. 8.30 eh. Almenn sam-
koma að Amtmannsstig 2b.
Sigursteinn Hersveinsson talar.
Helga Guðmundsdóttir og Gunnar
Finnbogason hafa stutt ávörp.
Æskulýðskórinn syngur. Allir vel-
komnir.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðinsgötu 6
a á morgun kl. 20.30.
Allir velkomnir.
GRUVI
SVEITADANSLEIKUR
að Félagsgarði i Kjós i kvöld, með
PELICAN
minnisstæðust verður mér kol-
krítarmynd Haralds Guðbergs-
sonar „Utihús“ (119). Frumkraft-
ur er í myndum Einars H„ Snorra
Sveins og Jóhönnu en myndeig-
indablanda Björgvins Siggeirs
virkar nokkuð tormelt. Skúlptúr-
ferningar Hallsteins þyrftu að
vera tæknilega betur útfærðir til
að njóta sín til fulls, hins vegar
vantar ekki tæknina í verk Jó-
hanns Eyfells sem dreift er um
alla sýningarsalina og hvarvetna
skapa skemmtilegt andrúm í nán-
um tengslum við frumeðli fs-
lenzkrar náttúru. Guðmundur
Benediktsson og Ragnar Kjart-
ansson eru sjálfum sér samkvæm-
ir i verkum sfnum. Svo sem við
þekkjum þá frá fyrri sýningum.
Viðbót sýningarinnar og ágætt
tillegg er sýning leikmynda og
mætti verða framhald af þvf í
hnitmiðaðra formi.
Að Iokum ber að þakka sýning-
arnefnd störf hennar og hvet ég
til þess að strax og hurðir falla
aftur aó þessari sýningu, verði
hafist handa við undirbúning
„Haustsýningar 1975“
Bragi Ásgeirsson.
jfUmjunliInínþ
margfaldor
markað uðar
Knattspyrnudeild Þróttar
Æfingatafla.
Allar æfingar deildarinnar fara
fram á sunnudögum í Vogaskóla.
Kl. 9.30 — 10.20
5. flokkur.
Kl. 10.20 — 11.10
Kvennaflokkur.
Kl. 1 1.10 — 1 2.00
4. flokkur.
Kl. 1 3.00 — 1 3.50
3. flokkur.
Kl. 13.50 — 1 5.05
Meistaraflokkur.
Kl. 5.05 — 16.20
2. flokkur.
Kl. 16.20— 17.10
Old boys.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórnin.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
Sunnudagsgönguferðir
22.9.
Kl. 9.30. Skjaldbreiður, verð
700 kr.
Kl. 13.00. Haustlitaferð til Þing-
valla, verð 500 kr.
Brottfararstaður B.S.Í.
Ferðafélag (slands.
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 11, helgunarsam-
koma, kl. 2 sunnudagaskóli, kl.
20.30 hjálpræðissamkoma.
Velkomin.