Morgunblaðið - 21.09.1974, Qupperneq 24
n
ÞEIR RUKR
UIÐSKIPTIfl SEm
HUGLVSR I
iíloriju.nMíií'iuu
nucLvsincnR
íg. ^»22480
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974
Menntamálaráðherra sammála Per Olof:
Handritin eiga
hvergi heima
nema hér
VEGNA skrifa Mbl. um ís-
lenzk handrit í Svíþjóð,
sem birzt hafa síðustu
daga, sneri Mbl. sér í gær
til Vilhjálms Hjálmars-
sonar menntamálaráð-
herra og innti eftir því
Matthfas Bjarnason, sjávarút-
vegsráöherra, gerir frétta-
mönnum grein fyrir efni bráða-
birgðalaganna, sem sett voru í
gær.
Ráðstafanir til að bæta
rekstur sjávarútvegs
Víðtœk bráðabirgðalög voru settígœr
0 I gær voru sett bráðabirgða-
lög til þess að tryggja viðunandi
rekstrarafkomu sjávarútvegsins
og greiða fyrir ákvörðun nýs fisk-
verðs. Efni bráðabirgðalaganna
er f stórum dráttum sem hér seg-
ir:
0 Verðlagsráð sjávarútvegsins
skal svo fljótt sem kostur er
ákveða nýtt fiskverð, sem gilda á
Norðlendingar
fá Range Rover
BtJIÐ er að ganga frá pöntun á
hjartabfl Norðlendinga, sem ný-
lega er byrjað að safna fyrir.
Varð að ráði að panta enskan
Range Rover bfl, lengdan. Hann
verður með sams konar yfirbygg-
ingu og bfll Reykvíkinga.
Range Rover sjúkrabifreiðar
þykja með þeim beztu, sem fram-
leiddar eru fyrir norrænar slóðir,
þar sem vænta má ófærðar og
slæmra vega. Ef söfnunin gengur
vel, eru möguleikar á þvf, að bif-
reiðin verði komin til landsins í
feb.—marz n.k. Kaupverð bif-
reiðarinnar er áætlað um 4
milljónir, og er í því verði reiknað
með niðurfellingu tolla og inn-
flutningsgjalda.
frá 1. september. Við fiskverðs-
ákvörðun skal þess gætt, að
hækkunin verði ekki meiri en
11% að meðaltali.
0 Gjald til stofnfjársjóðs fiski-
skipa, sem landa innanlands,
verður 15%. Aður var það 10% en
20% fyrir humar og sfld. Skip,
sem landa erlendis greiða hins
vegar 21% af söluverðmæti skv.
bráðabirgðalögunum.
0 Stofnaður er olfusjóður fiski-
skipa og tekjur sjóðsins verða
ákveðið hlutfall af sérstöku út-
flutningsgjaldi. Tekjur olfusjóðs
eru áætlaðar 1250 millj. kr. en
talið er, að 1500 millj. kr. þurfi til
þess að standa straum af niður-
greiðslu olfunnar.
0 Gtflutningsgjald af sjávaraf-
urðum er hækkað f samræmi við
gengissig fyrr á árinu og nýaf-
staðna gengisfellingu. Hækkunin
fer til greiðslu á vátryggingar-
iðgjöldum fiskiskipa.
0 Tekjur verðjöfnunarsjóðs
fiskiðnaðarins verða nú allt að V*
hlutum af verðhækkunum út-
flutningsafurða f stað 50% áður.
Verðbætur hækka einnig úr 'A f V*
hluta verðlækkunarinnar.
Þá er f bráðabirgðalögunum
ákvæði um ráðstöfun á gengis-
hagnaði. Um 100 millj. kr. af
gengishagnaði verður varið til að
greiða bætur vegna hækkaðs
flutningskostnaðar við útflutn-
ingsafurðir. Verðtryggingarbæt-
ur verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðar-
ins verða greiddar af gengis-
hagnaðarsjóði; áætlað er, að 400
millj. kr. verði varið í því skyni.
Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra tók sérstaklega
fram á fundi með fréttamönnum í
gær, að hann væri andvígur því,
að þessar bætur væru greiddar af
Forvstumenn Varins lands
stefna Raenari Arnalds
12 AF 14 forystumönnum Varins
lands hafa stefnt Ragnari
Arnalds alþingismanni og for-
manni Alþýðubandalagsins fyrir
ummæli, sem hann viðhafði f út-
varpsþættinum Þingsjá 23. marz
s.l. Stefnan hefur verið gefin út,
en málið verður þingfest fyrir
bæjarþingi Reykjavfkur f októ-
ber.
Nú hefur 11 aðilum verið stefnt
fyrir ummæli um forystumenn
Varins lands. Hafa öll málin verið
þingfest nema málið gegn Ragn-
ari, en vörn hefur enn aðeins
komið fram í einu máli, þ.e. gegn
Helga Sæmundssyni.
Alþingismanni er aðeins hægt
að stefna fyrir ummæli, sem hann
viðhefur utan þings, en ekki er
hægt að stefna honum fyrir um-
mæli sögð á Alþingi.
Einar far-
inn tilUSA
EINAR Agústsson utanrfkis-
ráðherra hélt sfðdegis í gær til
Bandaríkjanna, en þar mun
hann sitja Allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna og eiga
viðræður við Bandarfkjamenn
um varnarmál.
í samtali, sem Mbl. átti við
ráðherra skömmu áður en
hann hélt af landi brott, kom
fram, að Hans G. Andersen,
sendiherra, og Hörður Helga-
son, skrifstofustjóri utanríkis-
ráðuneytisins, verða í för með
ráðherranum á þing SÞ. Munu
þeir sitja þingið fram að
mánaðamótum, en Einar
Agústsson á að flytja ræðu á
þinginu 30. september.
25. september heldur Eiuar
Ágústsson til Washington, og
daginn eftir, fimmtudaginn 26.
september, mun hann eiga við-
ræður um varnarmál við
bandariska ráðamenn. Verður
fundurinn haldinn í húsakynn-
um bandaríska utanrikisráðu-
neytisins. Af hálfu Banda-
ríkjamanna munu þeir Joseph
Sisco aðstoðarutanríkisráð-
herra og Frederik Irwing,
sendiherra á Islandi, sitja
fundinn, auk fleiri embættis-
manna. Auk Einars Ágústsson-
ar munu þeir Hans G. Ander-
sen og Pétur Thorsteinsson,
ráðuneytisstjóri, sitja fundinn
af Islands hálfu.
gengishagnaðarsjóði. Eðlilegt
væri, að Seðlabankinn, sem hefði
vörslu verðjöfnunarsjóðsins með
höndum, greiddi þessar bætur.
Þá verður greiddur halli, sem
verða kann á niðurgreiðslu á olíu
til fiskiskipa. Auk þessara ráð-
stafana á gengishagnaði, sem
samþykktar voru á Alþingi um
leið og gengið var fellt, mæla
bráðabirgðalögin frekar fyrir um
ráðstöfun þessa fjár, en áætlað er,
að 1650 millj. kr. komi í gengis-
hagnaðarsjóð.
Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, sagði á fundi með
fréttamönnum í gær, að ráð-
stafanir þessar einar út af fyrir
sig nægðu ekki til þess að mæta
erfiðleikum sjávarútvegsins.
Fram til þessa hefði ekki unnist
tími til þess að undirbúa frekari
aðgerðir. Ráðherrann sagði enn-
fremur, að viðræður hefðu farið
fram við bankastjóra Seðlabank-
ans, Útvegsbankans og Lands-
bankans um rekstrarlán útgerðar-
innar, en ákveðið hefði verið. að
þau hækkuðu um 50%.
Bráðabirgðalögin fara hér á eft-
ir í heild:
Framhald á bls. 11.
hvort íslenzk stjórnvöld
myndu beita sér fyrir því
við sænsk stjórnvöld, að
handritin yrðu flutt heim
til Islands. Vilhjálmur var
staddur heima á Brekku í
Mjóafirði, og hélt þar upp á
sextugsafmæli sitt, sem var
í gær. Ráðherrann sagði:
„Enda þótt ég hafi vitað, að
Svíar hafi löngum verið duglegir
við söfnun handrita, þóttu mér
upplýsingarnar, sem komu fram í
frétt Morgunblaðsins, afskaplega
athyglisverðar, og ég er hjartan-
lega sammála Per Olof Sundman
um að handritin eigi hvergi
heima nema á íslandi. Ég- hef
verið önnum kafinn við bjargráð-
in síðustu daga og menningin
setið á hakanum, og þetta mál
hefur ekki komið til umræðu í
ríkisstjórninni. Það kemur vissu-
lega til greina að hreyfa þessu
máli, þó að ég geti ekkert ákveðið
sagt um það á þessari stundu. En
ég vil taka skýrt fram, að þetta
mál mun taka sinn tíma, og það
verður að vinnast í fullu samráði
við frændur okkar Svía, þá sem
varðveita þessi handrit."
Aftur salt-
að á Höfn
Höfn 20. sept.
I GÆR barst á land fyrsta sfld-
in i þessari viku, samtals 584
tunnur. Bátarnir hafa ekki get-
að athafnað sig fyrr á miðun-
um vegna ógæfta. Eftirtaldir
bátar komu með síld. Steinunn
SH 21 tunnu, Matthildur 103,
Vísir 71, Saxhamar 31, Hanna
75, Sigurvon 61, Steinunn SF
51 tunnu, Jóhannes Gunnar 50,
Skinney 31 og Hringur 85.
Síldin er söltuð hér á staðnum.
Sauðfjárslátrun hófst hjá
Kaupfélagi Austui»Skaftfell-
inga í gær. Alls verður slátrað
28.200 fjár hjá kaupfélaginu,
23.200 á Höfn og 5000 á Fagur-
hólsmýri.
— Gunnar.
Þjóðhátíðarmyntin uppseld:
Ríkið fær í sinn hlut
42 af 57 milljónum
MINNISPENINGAR Þjóðhátlðar-
nefndar 1974 eru nú algjörlega
uppseldir. Sfðustu peningarnir
seldust I þessari viku. Söluverð-
niæti þeirra var 56,9 milljónir og
hreinn hagnaður um 28 milljónir.
Framleiðslukostnaður var 12,3
milijónir, annar kostnaður 2,4
milljónir, tollar og söluskattur
14,2 milljónir. Þannig hefur rfkið
fengið f sinn hlut af útgáfunni
rúmlega 42 milljónir króna, að
meðtöldum tollum og söluskatti.
Stefán Þórarinsson, aðalfé-
hirðir Seðlabankans, tjáði Mbl. I
gær, að gefin hefðu verið út 2000
sett af silfur- og bronspeningum,
og kostuðu þau 18 þúsund krónur.
Þá voru gefnir út 11 þúsund
bronspeningar, á 1900 krónur
stykkið, og seldust þeir síðustu
upp nú í vikunni, eins og að
framan var getið. Kristin Þorkels-
dóttir hannaði peningana en þeir
voru slegnir f Finnlandi.
Þá gaf Seðlabankinn út þjóð-
hátíðarmynt í sumar, og eru allar
gerðir hennar uppseldar, nema
sérsleginn silfurmynt. Er mjög
farið að ganga á birgðir af þeirri
mynt.