Morgunblaðið - 10.10.1974, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.10.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1974 11 Hestamir á básnum I sýningardeildinni. Talið f.v. Hreinn, Stjarna og folald hennar og Islenzku sýningardeiidina prýddi áletrunin Island pferde eða tslenzki hesturinn. A Dagur. myndinni eru talið f.v. Susanne Huth, Reynir Aðalsteinsson og Bruno Podlech. athafnasamasti aðilinn erlendis, sem kynnir og selur fslenzka hesta. A hann marga íslenzka hesta. Jörð hans býður upp á mjög góða útreiðarmöguleika, reiðbrautir og tamningargerði. Þarna hefur hann einnig stórt og glæsilegt hesthús. Jörð hans er í útjaðri borgarinnar Aschaffen- burg og liggur að skógi vöxnum hæðum og hæðardrögum. I tilefni sýningarinnar og af komu Halldórs bauð umboðs- maður Sambandsins í Hamburg, Böðvar Valgeirsson, til kvöld- verðar og voru þar samankomnir um 30 gestir, Islendingar og Þjóð- verjar, m.a. margir helztu for- ustumenn í kynningu og sölu ís- lenzka hestsins. Að sögn Sveinbjörns Dagfinns- sonar var sýning þessi mjög fjöl- breytileg og fræðandi, og varði ráðherra þremur dögum til að kynna sér sýninguna. Um fslenzku deildina sagði Sveinbjörn: „Þetta voru fallegir hestar og ekki skemmdi það fyrir hversu skemmtilega knaparnir voru klæddir. Það var áberandi, að þegar fslenzku hestarnir voru sýndir, fengu þeir langmesta klappið. Þetta var mjög góð auglýsing fyrir íslenzka hestinn. Sýning fslenzku hestanna vakti athygli víðar en innan sýningar- innar. tslenzku hestarnir voru sýndir í fréttatfma sjónvarpsins og s-þýzka útvarpið tók lnagt viðtal við Gunnar Bjarnason og íT .0) RAFEINDA- REIKNIVÉLAR á [tá(si [ lifiiiimiiiniiiuim Tveggja teljara-prósentureikningur, stórar greinilegar tölur, konstant, auka stafir Ó — 9, Rúnnar af upp og niður. Miimiiiimmim \ Mjög fyrirferðarlítil, margfaldar, deilir, leggursaman, og dregurfrá, konstant. LEITIÐ NÁIMARI UPPLÝSINGA. KJARANhf skrifstofuvélar & -verkstæði Tryggvagötu 8, simi 24140 Volker Ledermann, þar sem gang- eiginleikar fslenzka hestsins voru sérstaklega ræddir. Um útlit sýningardeildarinnar og gerð kynningargagna sá Aug- lýsingastofa Gfsla B. Björnssonar og sá hann um uppsetninguna í Frankfurt. Af hálfu Sambands fs- lenzkra samvinnufélaga sá Magnús Yngvason sölustjóri um allan undirbúning. Sá er fyrst vakti máls á þátttöku tslands i DLG sýningunni var Gunnar Bjarnason ráðunautur Búnaðarfélagsins um útflutning hrossa. Og sá hann ásamt Volker Ledermann um stjórn sýningar- deldarinnar á sýningunni. Gunnar sagði, að hingað til hefði hann verið hræddur við að sýna íslenzka hestinn með erlendum hestum og þá einkum vegna smæðar hans. Við stöndum ekki heldur jafnfætis í sýningu á reið- mennsku. En á sýningu sem DLG sýningunni eru gripirnir sýndir sem kynbótagripir, en ekki út frá reiðmennsku. Það verður að segjast, að við tslendingar nýttum okkur þetta og fengum leyfi sýningarstjóra til að breyta út af reglunni. Þarna hafa hestarnir alltaf verið teymdir og sýndir þannig, en við létum rfða þeim og sýna hvað f þeim bjó. Þetta vakti óánægju meðal hinna Sýnendanna. Og sem dæmi má nefna, að við óskuðum eftir því, að fá að kynna okkar sýningaratriði sjálfir og var það leyft, en á föstudeginum kröfðust Austurríkismenn, að þessu yrði hætt og varð sýningarstjórn við þeirri ósk. Að iokum sagði Gunnar, að grein af meiði íslenzks landbún- aðar hefði aldrei verið kynnt á sýningu, sem jafn margir sóttu, en talið er, að hálf milljón manns hafi komið á sýninguna. Þátttaka í þessari sýningu er mesta kynning, sem fslenzki hesturinn hefur nokkru sinni fengið. — t.g. íslandsheimsókn sænsku snillinganna HELLAS Johan Fischerström fkvöld gegn: Reykjavíkurmeisturunum FRAM Laugardalshöll kl. 20.30. Komið og sjáið spennandi keppni. H.K.R. Lffey rissjóðu r Verkalýðsfélaganna í Vesturlandskjördæmi. Stjórn lífeyrissjóðo verkalýðsfélaganna í Vesturlandskjördæmi hefur ákveðið að afgreiða umsóknir um lán úr sjóðnum, aðeins tvisvar á ári vor og haust. Umsóknir vegna vorúthlutunar þurfa að berast á skrifstofu sjóðsins fyrir 1. maí og vegna haustúthlutunar fyrir 1. nóvember ár hvert. Aðeins er lánað gegn veði í húseignum, allt að 50% af brunabótamatsverði (þ.e. lán sem lífeyrissjóðurinn veitir að viðbættum áhvílandi forgangsveðskuldum má ekki vera hærri upphæð en sem nemur helmingi brunabótamatsverðs), eða sé það ekki fyrir hendi þá að matsverði sem ákveðið er af tveimur mönnum sem fjármálaráðherra hefur tilnefnt. Athygli skal vakin á að ekki verður auglýst oftar eftir umsóknum um lán úr sjóðnum. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu sjóðsins Suður- götu 36, Akranesi og trúnaðarmönnum hans, jafnframt eru þar veittar upplýsingar um gögn þau, er umsækjendur þeir sem lánsúthlutun fá þurfa að leggja fram til þess að lán fáist greitt. AFGREIÐSLA SJÓÐSINS ER OPIN MÁNUDAGA OG FÖSTUDAGA KL. 2—6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.