Morgunblaðið - 10.10.1974, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTOBER 1974
Sigþór Ömarsson I baráttu við miðvörð Iranna.
Spennan eykst í
Rey k j av íkurmó ti
ÞRlR leikir fóru fram í Reykja-
vfkurmótinu f körfuknattleik f
fyrrakvöld. KR sigraði Vai með
83 stigum gegn 68, Ármann vann
Fram með 79 stigum gegn 50, og
ÍR sigraði IS með 90 stigum gegn
88 eftir framiengdan leik. Þar
með hafa öil iiðin tapað leik f
mótinu nema Ármann, en Ar-
mann á eftir erfiða leiki gegn ÍS,
og KR. Það er þvf allt útlit fyrir
hörkuskemmtilegt mót.
Leikur ÍR og IS var mjög spenn-
andi undir lokin, og lætin á vellin-
um voru mikil. Liðin skiptust á
um að hafa forustu allan leikinn
og munur á liðunum varð aldrei
meiri en 4 stig. Undir lok leiksins
voru þrír af beztu mönnum IR
komnir út af með 5 villur, Agnar,
Sigmar og Jón Jörundsson, sem
átti sinn langbezta leik með ÍR.
Það var því ekki bjart útlitið hjá
ÍR. En þeir sem inná voru börðust
af miklum krafti og tókst að
komast yfir, og það voru stúdent-
ar sem máttu þakka fyrir að ná
jöfnu í leiknum 80:80.
Hinsvegar leit út fyrir, að IS
ætlaði að sigra í framlengingunni,
þeir skoruðu fyrstu fjögur stigin
og staðan var 84:80. x
Þegar ein og hálf mín. var eftir
var staðan 86:82 fyrir þá og sigur-
inn virtist í höfn. En iR-ingar
pressuðu stíft og náðu boltanum
hvað eftir annað og fiskuðu vfta-
skot. Þeir komust yfir 88:86, en
Jón Héðinsson jafnaði þegar 12
sek. voru eftir. IR hóf sókn og
þegar flautað var af, var boltinn á
leið í körfuna frá Kolbeini
Kristinssyni. Skotið fór rétta leið
(fyrir ÍR) og sigurinn féll því IR í
skaut í þessumæsispennandi leik.
Leikir mótsins milli beztu liðanna
gefa svo vissulega til kynna, að
spennandi íslandsmót sé fram-
undan.
Jón Jörundsson var bezti maður
IR liðsins í þessum leik, hirti
mikið af fráköstum í vörn og
sókn, skoraði mikið og var iðinn
við að „fiska“ villur á miðherja IS
liðsins. Agnar átti góða kafla, svo
og Sigmar og Kolbeinn, sem leik-
ur stórt hlutverk í liðinu í fjar-
veru Kristins Jörundssonar.
Stúdentarnir voru mjög jafnir,
Bjarni og Ingi þó bestir.
Leikur Ármanns og Fram var
mjög ójafn, og Framararnir ungu
áttu mjög í vök að verjast. Ar-
mannsliðið lék mjög vel meðan
þeir voru að ná 20 stiga forustu,
en eftir það var ekki sami „glans“
yfir liðinu. 36:18 í hálfleik, og
lokatölur 79:50.
Það var allt annar svipur yfir
KR-liðinu í leiknum gegn Val en í
fyrsta leik liðsins gegn IS. Það
var vitað mál, að KR gat mun
meira en þeir sýndu þá, og í þess-
um leik náði liðið mjög góðum
köflum. Valsliðið er ótrúlega
sterkt miðað við þá blóðtöku, sem
þeir hafa orðið fyrir, en þeir hafa
misst bæði Þóri Magnússon og
Stefán Bjarkason frá í fyrra. Það
sem helzt virðist vanta, er betra
skipulag, sérstaklega í sóknar-
leiknum, en þar ræður einstakl-
ingsframtakið afar miklu. Og þvf
er ekki að neita, að vissir einstakl-
ingar liðsins ætla sér greinilega á
stundum meiri hlut en þeir svo
ráða við. En þetta er verk, sem
Guðmundur Þorsteinsson þjálfari
kippir eflaust í lag, og þá hef ég
talsverða trú á Valsliðinu í vetur.
Valur hélt alveg i við KR fyrstu
10 mínúturnar og staðan var
14:14. En eftir það fór að draga f
sundur með liðunum og í hálf-
leik munaði 16 stigum 46:30.
Lokatölur 83:68.
Staðan: st.
Ármann 3 0 3 218:173 6
IS 3 1 2 211:203 4
KR 2 1 1 147:139 2
IR 2 1 1 159:161 2
Valur 2 2 0 122:149 0
Fram 2 2 0 99:149 0
Lokamínúturnar
tsland hefur skorað, það er greinilegt. Guðmundur Þorbjörnsson (no. 10), sá sem skoraði, og Atli
Edvaldsson fagna markinu. Ljósm Mbl. R. Ax.
örlagaríkar fyrir
íslenzku piltana
mpira ÁhpranHi Á míi
Island — N-Irland 1:2
meira áberandi. Á 30. mfnútu
náðu þeir að jafna metin, þegar
þeir brutust f gegn hægra megin.
LOKAMlNUTUR unglingalands-
leiksins f fyrrakvöld urðu
fslenzka liðiqu örlagarfkar. Það
hafði ráðið gangi leiksins lengst
af f seinni hálfleik, skorað gott
mark og átt mörg marktækifæri
til viðbótar. En á lokamfnútunum
virtist úthaldið alveg búið, Norð-
ur-lrarnir náðu algjörum tökum á
leiknum og höfðu skorað tvö
mörk, áður en yfir lauk og unnið
2:1. Tap á heimavelli þýðir
nánast, að fsienzka unglinga-
Iandsliðið er úr leik f Evrópu-
keppni unglingaliða, nema það
standi sig þvf betur f seinni leik
liðanna, sem fram fer f Belfast
23. október n.k. Liðið sem sigrar
öðlast rétt til þátttöku f loka-
keppni Evrópukeppninnar, sem
fram fer í Sviss næsta vor.
SÆNSKI
LANDSLIÐSBUNINGURINN
Það voru margir áhorfendur á
Melavellinum í fyrrakvöld til að
fylgjast með landsleiknum,
eflaust minnugir góðrar frammi-
stöðu íslenzkra unglingalandsliða
á sfðustu árum. Ráku áhorfendur
upp stór augu, þegar liðin hlupu
inn á völlinn, því íslenzka liðið
klæddist ekki hinum venjulega
fslenzka landsliðsbúningi, bláa og
hvíta, heldur sænska landsliðs-
búningnum, gula og bláa! Fram-
kvæmd Ieiksins af hálfu KSl
virtist heldur ekki upp á það
bezta, t.d. var áhorfendum aldrei
tilkynnt skipan liðanna og það
kostaði blaðamenn töluverða
fyrirhöfn að fá þau uppgefin.
En snúum okkur að leiknum.
Fyrri hálfleikurinn verður af-
greiddur með fáum orðum, því
hann var ákaflega tilþrifalftill og
leiðinlegur. Mest miðjuþófogtæki-
færi ekki teljandi. írarnir voru
mun betri úti á vellinum, miklu
leiknari með knöttinn en okkar
piltar, sem aftur höfðu meiri
líkamsburði en írsku piltarnir.
tsland skorar
íslenzka liðið kom tvíeflt til
leiks í seinni hálfleik og eftir
rúma mfnútu lá knötturinn í írska
markinu. Sending kom inn í vfta-
teiginn frá vinstri, á Guðmund
Þorbjörnsson. Hann lék laglega á
írska miðvörðinn með bolvindu
og skoraði örugglega framhjá
markverðinum, sem kom
hlaupandi út úr markinu. Markið
verkaði sem vítamínsprauta á
íslenzka liðið og hver sóknin af
annarri dundi á frska markinu. Á
8. mfnútu seinni hálfleiks komst
Atli Edvaldsson í dauðafæri, en
lyfti boltanum heldur hátt
svo hann sveif yfir markslána.
Og tveimur mínútum síðar fékk
Ómar Sigþórsson mjög gott tæki-
færi, eftir fallega leikfléttu
íslenzka liðsins, en í þetta sinn
gátu Irarnir með naumindum
bjargað í horn. Pressan hélt
áfram og á 16. mínútu hálfleiks-
ins átti Sigurður Halldórsson
skalla að marki eftir hornspyrnu,
en írskur bakvörður hafði
heppnina með sér og bjargaði á
línu. Mínútu síðar munaði svo
ekki nema millimetrum að knött-
urinn hafnaði í netinu. Hálfdán
Örlygsson brauzt skemmtilega f
gegn vinstra megin, lék f átt að
markinu og skaut sfðan þrumu-
skoti. Boltinn fór í stöngina fjær
og sfðan þvert fyrir markið og í
hina stöngina, en þá gátu Irarnir
með naumindum bjargað í horn.
Upp úr hornspyrnunni fékk Ómar
gott tækifæri, en var of seinn að
nýta sér það.
Eftir þennan darraðadans
dofnaði mjög yfir íslenzka liðinu
og írsku piltarnir fóru að verða
Upphlaupið endaði með skoti
hægri útherjans David McCrerry,
sem hafnaði í horninu fjær.
Og enn sóttu írarnir, og sigur-
mark þeirra kom á 88. mínútu,
tveimur mínútum fyrir leikslok,
og var miðherjinn Noel
Brakerstone þar að verki, eftir að
slæm mistök höfðu átt sér stað í
islenzku vörninni. Og þar með var
sigur Iranna tryggður, 2:1.
Liðin
Þetta unglingalið er mikið
breytt frá þvf síðast, og við fyrstu
sýn virðist það ekki eins gott og
liðin sem komust í úrslitin á Italfu
og í Svfþjóð. Beztir voru þeir Jón
Þorbjörnsson Þrótti, markvörður
sem hirti flesta bolta sem inn í
teiginn komu, miðverðirnir
Sigurður Halldórsson lA og
Magnús Bergsson Val, fram-
línumennirnir Guðmundur
Þorbjörnsson Val og Hálfdán
Örlygsson KR. írska liðið er létt-
leikandi og skemmtilegt, en þó
ekki eins sterkt og mörg unglinga-
liðin, sem hingað hafa komið.
Bezti maður liðsins og jafnframt
bezti maður vallarins var Alan
Simpsson (no. 10), frábær knatt-
spyrnumaður. Þá voru mið-
verðirnir mjög góðir, sömuleiðis
markvörðurinn. Dómarinn var
skozkur, Kyle að nafni, og stóð
hann sig vel.
Islenzka liðið var þannig
skipað: Jón Þorbjörnsson Þrótti,
Guðjón Hilmarsson ÍA, Árni
Valgeirsson Þrótti, Magnús
Bergsson Val, Sigurður
Halldórsson ÍA, Magnús Teits-
son Stjörnunni Atli Edvaldsson
Val, Karl Sveinsson IBV, Sigþór
Ómarsson ÍA, . Guðmundur
Þorbjörnsson Val og Hálfdán
Örlygsson KR.
—SS.