Morgunblaðið - 10.10.1974, Síða 16

Morgunblaðið - 10.10.1974, Síða 16
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÖBER 1974 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthtas Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10 100. Aðalstræti 6. simi 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 35.00 kr. eintakið. Ritstjórnarf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgreiðsla Auglýsingar Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að fram skuli fara sérstök könnun á fjárhagsstöðu sjávarút- vegsins. Matthías Bjarna- son sjávarútvegsráðherra hefur beitt sér fyrir máli þessu og að hans tilhlutan munu bankarnir nú fram- kvæma heildarúttekt á af- komu og stöðu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja í landinu. Fyrirhugað er að leggja niðurstöður þessar- ar könnunar til grundvall- ar við frekari aðgerðir til stuðnings sjávarútvegin- um, en flestar greinar hans búa nú við mikla fjárhags- erfiðleika. Því ber að fagna, að ríkis- stjórnin skuli taka upp skipuleg og markviss vinnubrögð við endur- reisnarstarf sitt. Öllum má vera ljóst, að ógerningur er að leggja á ráðin um svo víðtækar endurreisnarráð- stafanir, sem nú eru óum- flýanlegar, nema áður hafi verið aflað haldgóðra upp- lýsinga um raunverulega stöðu fyrirtækjanna. í kjöl- far gengislækkunarinnar voru gefin út bráðabirgða- lög til þess að bæta hag sjávarútvegsins og ráð- stafa gengishagnaði. Sú könnun á fjárhags- stöðu útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækja, sem nú á að framkvæma, er gerð í beinu framhaldi af þeim aðgerðum, sem ákveðnar voru með bráðabirgða- lögunum. Þær aðgerðir eru nú þegar farnar að hafa áhrif í sjávarútveginum. Þannig hafa verið greiddar 80 millj. króna í styrki til að bæta rekstrarstöðu minni skuttogaranna. Greiddar hafa verið 22 millj. króna í styrki til stærri skuttogaranna og 20 milljónir króna til báta, er stundað hafa veiðar í Norðursjó, en þeir fá ekki niðurgreidda olíu og af þeim sökum hefur rekstur þeirra gengið mjög erfið- lega. Alls hefur því verið varið 122 milljónum króna nú þegar til þess að bæta hag útgerðarinnar. Sam- hliða útgáfu bráðabirgða- laganna var einnig ákveðið að hækka rekstrarlán um 50%. Engum dylst, aó vanda- málin hafa þegar verið tek- in föstum tökum. Eigi að síður voru bráðabirgðalög- in aðeins einn þáttur í að leysa vanda sjávarútvegs- ins. Þess er hins vegar að vænta, að í kjölfar þeirrar heildar könnunar, sem nú hefur verið ákveðin, komi frekari aðgerðir. En hér er um að ræða svo margþætt vandamál og ólíka hags- muni, að lausnin verður ekki fundin í eitt skipti fyrir öll. Útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtæki eiga nú að skila reikningum yfir efnahag og rekstur síðasta árs og fyrstu átta mánuði þessa árs. Þá ber þeim að leggja fram lista yfir viðskipta- menn, upplýsingar um gjaldfallnar skuldir og af- borganir af föstum lánum og greinargerðum um fjár- festingar á þessu ári. Hér er því um að ræða all víð- tæka upplýsingasöfnun, sem ugglaust mun koma að góðu haldi, þegar lagt verð- ur á ráðin um frekari að- gerðir. Sjávarútvegsráð- herra hefur lagt áherslu á, að úrvinnslu gagna verði hraðað svo sem kostur er. Mikilvægt er að svo verði. Aðgerðir af þessu tagi krefjast vfðtæks samstarfs fjölmargra aðila. Þannig hefur sjávarútvegsráðu- neytið beint þeim tilmæl- um til fjárfestingarlána- sjóða, að þeir fresti inn- heimtuaðgerðum gagnvart fyrirtækjum í sjávarútvegi meðan þessi könnun fer fram. Á þessu ári hafa van- skil fyrirtækja í sjávarút- vegi við fjárfestingarsjóði aukist til mikilla muna og lausaskuldir hrannast upp. Mörg fyrirtækjanna munu því vera komin í greiðslu- þrot. Þegar könnun á fjár- hagsstöðu fyrirtækjanna er lokið er ætlunin að bankarnir og sjávarútvegs- ráðuneytið beiti sér fyrir sérstökum aðgerðum til þess að bæta greiðslustöðu sjávarútvegsins. Meðal annars verður reynt að breyta lausaskuldum og vanskilaskuldum í föst lán til fárra ára. 1 því sam- bandi verður leitað eftir samstarfi við stjórnir fjár- festingarlánasjóða, sveitar- félaga, lífeyrissjóða og ríkisábyrgðarsjóðs um að breyta vanskilaskuldum fyrirtækjanna í föst lán. Þrátt fyrir margháttaðar endurreisnaraðgerðir er alveg ljóst, að hvergi nærri öll vandamál hafa verið leyst. Við setningu bráða- birgðarlaganna var þess gætt að breyta í engu skiptahlutfalli. Á hinn bóg- inn urðu allir aðilar í sjávarútvegi að leggja sitt af mörkum til að unnt væri að bæta stöðu stofnfjár- sjóðs fiskiskipa, auðvelda útflutningssjóði að standa undir tryggingariðgjöldum og greiða niður olíukostn- að. Á móti voru kjör sjó- manna bætt nokkuð með 11% fiskverðshækkun. Hitt er ljóst, að afkoma sjó- manna er mjög misjöfn eft- ir því hvort þeir eru á skut- togurum eða minni bátum. Hér er því um að ræða vandamál, sem valdið get- ur erfiðleikum við að manna bátaflotann. Könnun á fjárhagsstöðu sjávarútvegsins fólk — fólk — fólk — fólk l. i Nú er meiri frjáls- hyggja Litið inn í fiskbúð á Dalvík 1 fiskbúðinni hjá Anton. Helgi lengst til vinstri, Jóhannes er sá með hattinn og innan- búðar stendur Anton sjálfur. NIÐRI við höfnina á Dalvík f stórri skemmu er fiskbúð Antons Guðlaugssonar, auð- kennd með mynd af þorski. Við hittum Anton, sem rekið hefur þessa fiskbúð f ein tfu ár, seinnihluta dags þegar flestar kerlingar voru búnar að kaupa f matinn og þvf Iftið að gera. Sagði Anton að áður en hann opnaði fiskbúðina hafi hann verið á sjó. „£g var á sjónum f allt að 25 ár, fyrst á Dalvfkpr- bátum en sfðan á bátum hingað og þangað að. Aðallega var ég þó á bátum héðan.“ — Hvernig gengur að reka fiskbúð á Dalvík? „Þetta er heldur lélegt hjá mér þvf Kaupfélagið er líka með fisksölu. Það er ekki hægt að lifa á þessu eingöngu þannig að ég er líka með fiskmatið." — Hefur þér gengið illa að fá fisk? „Nei, ég hef alltaf haft sæmi- legan fisk, en það koma þó slæmir kaflar, sérstaklega yfir veturinn. Ég þarf ekki að kvarta yfir sjómönnunum. Sumir þeirra verka og saita að vfsu sjálfir, sem er hörku vinna, en þeir reikna með að hafa meira upp úr því. En þeir hafa alltaf verið mjög liprir við mig.“ — Hefurðu fengið góðan fisk i sumar? „Nei, það hefur verið lítið af ýsu til dæmis. Hún veiðist varla. Dragnótabátarnir koma aðallega með þorsk og eitthvað af kola og togarinn Baldur, sem verið var að losa var bara með ufsa og karfa.“ I þessu koma inn ibúðina tveir menn og segir Anton að þeir séu að fara út í fiskverkun þessa dagana. Þetta eru þeir Helgi Jakobsson og Jóhannes Jónsson, en Helgi hefur verið um 5 ára skeið á vegum Sam- einuðu þjóðanna i Indlandi og Tyrklandi við að kenna þar- lendum notkun veiðarfæra. Sagðist Helgi fara út í sjálf- stæðan atvinnurekstur bæði vegna þess að hann hefði orðið að hætta á sjó „auk þess, sem við viljum ekki vinna lengur undir stjórn annarra." — Er ekki erfitt að stunda atvinnurekstur i samkeppni við stóran aðila eins og Kaupfélag- ið? „Kaupfélagið hefur að vísu ekki saltað fyrr en i sumar," segir Helgi, „en það hefur verið góð samvinna milli þess og sjó- manna og sjálfstæðra fiskverk- enda. Að þvi leyti hefur orðið mikil breyting frá þvi, sem áður var. Þá máttu einstakling- ar ekki gera neitt í atvinnu- rekstri. Sama gilti reyndar lika um gömlu íhaldskurfana. En nú er miklu meiri frjálshyggja ríkjandi."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.