Morgunblaðið - 15.11.1974, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.11.1974, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÖVEMBER 1974 21 JÓHANN HJÁLMARSSON Þaö er engum vandkvæðum bundið fyrir ferðamenn að komast til Júgóslavíu. Ég fór þangað í september ásamt fjöl- skyldu minni til að skoða dropa- steinshellana í Postojna, þessa furðusmíð náttúrunnar, sem fá listasöfn jafnast við. Við ókum, sem leið liggur frá Trieste að júgóslavnesku landamærunum. Verðirnir þurftu að vísu að fletta upp í bókum sínum til þess að átta sig á Islandi, en eftir það fengum við stimpla í vegabréfin án nokkurra nær- göngulla spurninga. Áður en við fórum inn í hell- ana keyptum við póstkort til að senda heim. Ég skrifaði á eitt kort og las það síðan upphátt fyrir konu mína. Það hófst á þessum orðum: Erum að fara inn í myrkrið í hellum Titós. Þegar ég nefndi nafn Títós tók ég eftir að afgreiðslukonan hrökk við. Hún hvessti á mig augun. Ég lét ekki á neinu bera og við héldum inn í myrkrið. Að undanförnu hefur tölu- vert verið skrifað í vestræn blöð um ofsóknir gegn rithöf- undum og menntamönnum í Júgóslavíu. Rithöfundar hafa verið fangelsaðir, prófessorar við ýmsa háskóla reknir, blöð ritskoðuð. Sænski rithöfundur- inn Per Wástberg, sem er i stjórn PEN, alþjóðasambands rithöfunda og útgefenda, nefn- ir þrjú dæmi i nýlegri grein í Dagens Nyheter (6.11.). Skáld- ið Vlado Gotovac hefur verið dæmdur í fangelsi í fjögur ár. Gotovac, sem á við heilsuleysi að stríða, hefur einnig verið bannað að birta verk sin á prenti næstu fjögur ár eftir að hann hefur verið látinn laus. Rithöfundurinn Mihajlo Mihajlov hefur verið hand- tekinn á ný og fær ekki að fara úr landi eins og hann hefur óskað. Kvikmyndastjórinn Stojanovic hefur verið dæmdur í fangelsi í þrjú ár. Honum er gefið að sök að hafa skopast að hrifningu Títös á litríkum ein- kennisbúningum í kvikmynd, sem ekki hefur verið sýnd opin- berlega. Per Wástberg skýrir frá því i grein sinni að þegar þing PEN hafi verið haldið í Júgóslavíu i maí hafi hann ásamt Heinrich Böll og V. S. Pritchett rætt við Tító og tjáð honum áhyggjur PEN félaga vegna fangelsana rithöfunda, einkum króatisku skáldanna Vlado Gotovac og Zlatko Tomicic, en einnig vegna hins svokallaða Praxis- hóps. Fundurinn með Tító vakti vonir þremenninganna. En þær vonir hafa brugðist. 1 febrúar 1973 lofaði Titó Heinrich Böll að rithöfundun- um yrði sleppt úr haldi. Stefna PEN hefur verið að forðast æs- ingar, en freista þess að fara samningaleiðina. Júgöslav- neska PEN deildin hefur gegnt veigamiklu hlutverki í starfi PEN GEGN TÍTÓ PEN. Hún fór þess á leit við Tító i vor að hann náðaði króa- tísku rithöfundana. Reynt var að hafa áhrif á að betur væri að þeim búið í fangelsinu. Sumir þeirra urðu að stunda refsi- vinnu og þeim var bannað að lesa og skrffa. Heinrich Böll krafðist þess af júgóslavnesku stjórninni fyrir þing PEN í Júgóslavíu í maí að hún lofaði að bæta ráð sitt. En þrátt fyrir góðar undirtektir stjórnarinnar við kröfu Bölls hefur ekkert gerst, sem bendir til stefnu breytingar. Per Wástberg segir I grein sinni að sænsku og hollensku PEN deildirnar muni á þingi PEN í Israel i desember bera fram harðorð mótmæli ásamt áskorun um að rithöfundarnir verði látnir lausir. í fyrsta sinn í mörg ár verður Júgóslavía á dagskrá þingsins. Það er eng- inn heiður, segir Per Wástberg. Eins og Per Wástberg bendir á eru ofsóknir Titós gegn rit- höfundum og menntamönnum ekki síst dapurleg tíðindi vegna þess frjálsræðis, sem að vissu leyti hefur ríkt i Júgóslavíu undanfarin ár. Bókmenntir og listir i Júgóslavíu hafa þróast í átt til frjórrar endurnýjunar. Umræður um menningarmál hafa verið óvenju opnar þegar miðað er við eðli stjórnarfars- ins. Frá Ungverjalandi berast nú lík tióindi. Þar hefur tjáningar- frelsi ekki verið algjörlega fótumtroðið undanfarin ár. En nú hefur ungverska stjórnin látið til skarar skríða gegn rit- höfundum og menntamönnum. Marxískir fræðimenn, sem kenndir hafa verið við hinn svokallaða Búdapestskóla, hafa verið hraktir frá störfum. Þeim er bannað að birta verk sín opinberlega og stjórn ung- verska kommúnistaflokksins hefur lýst þvi yfir að hugmynd- ir þeirra séu andmarxiskar. Búdapestskólinn byggir kenn- ingar sínar einkum á verkum heimspekingsins Georgs Lukacs, sem lést 1971. Helsti forystumaður Búdapestskólans er Andras HegedUs. Hann hefur lagt áherslu á að mikil- vægt sé að fylgjast með gerðum valdhafanna. Búdapestskólinn heldur þvi fram að Austur- Evrópa sé hvorki sósialisk eða kapítalísk. Skáldið Miklos Haraszti hef- ur verið dæmdur i fangelsi i átta mánuði fyrir þjóðfélags- gagnrýni, sem kemur fram í óprentuðu verki, sem hann dreifði meðal vina sinna. Tveir aðrir rithöfundar hafa nýlega fengið að kynnast ungverskum fangelsum, annar þeirra er þekktur rithöfundur, Györgi Konrad. Þvi má ekki gleyma að það eru ekki aðeins rithöfundar í Austur-Evrópu, sem veróa fyrir barðinu á stjórnvöldum. Á Spáni til dæmis munu tökin hafa verið hert á ýmsum rithöf- undum og menntamönnum og prentfrelsi almennt skert. Meðal þeirra, sem handteknir hafa verið, er þekktasti leik- ritahöfundur Spánverja, Al- fonso Sastre. En fréttir frá Spáni eru enn nokkuð óljósar. PEN hefur víða verk að vinna. Ljóst er að þessi merku alþjóðasamtök njóta viðurkenn- ingar, ekki síst fyrir hófsama, en ákveðna stefnu. Á Islandi hefur lengi verið deild úr PEN, svokallað PEN-félag, en af þessu ágæta félagi hafa engar spurnir borist í nokkur ár. Það er kannski virðingarvert að hafa hægt um sig og flana ekki að neinu, en mörgum verður á að spyrja: Hvað líður PEN-fé- laginu? Er ekki ástæóa til aó endurvekja það? Glæsileg myndabók Franz-Karl von Linden, Helfried Weyer: □ ICE- LAND. 224 bls. □ A.B. 1974. Hvað gerir maður hyggist hann skoða landslag á íslandi og — njóta þess. Svgrið er einfalt: hann gengur á fjöll eða — hafi hann ekki tíma né tækifæri til þess — flýgur. íslenskt landslag nýtur sín best úr hæð og f jarlægð. Það gerir berangur landsins annars vegar sem er hrjúfur og kaldur ínálægð, en litaskil hans hins vegar sem hjúpast blárri slikju í fjarlægð- inni, mildast og jafnast. Þetta hafa þeir ágætu menn gert sér ljóst sem tóku myndir 1 hina stór- glæsilegu bók sem Almenna bóka- félagið hefur nú gefið út á ensku og þýsku og valið heitið ísland. Brot bókarinnar er æðistórt þannig að myndirnar njóta sln vel, einkum landslagsmyndirnar. Getið er að bókin sé gefin út í minningu ellefu alda Islands byggðar. Ekki er þó byggð lands- Bðkmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON ins gerð ýtarlega skil i myndum bókarinnar, heldur er landið sjálft þarna efst á baugi, landið eins og það kemur fyrir ósnortið. Margar áhrifamestu og fallegustu myndirnar eru t.d. úr óbyggðum. Ég nefni sem dæmi myndir úr Fossárdal, Glerárdal við Akur- eyri, Eldgjá, Kerlingafjöllum og Námaskarði. Blóma- og fugla- myndir eru þarna einnig listilega vel teknar, einkum hinar siðar- nefndu. Það er sem sagt landið í sumarskrúða sem þeir félagar hafa öðru fremur fest á filmu og farartækið: tveir jafnfljótir eóa flugvél. Man ég varla eftir tiltölu- lega jafnmörgum loftmyndum í sambærilegum bókum. Þegar þeir svo hafa fast land undir fótum standa þeir hátt þannig að lands- lagsmyndirnar gefa víðáttumikla yfirsýn í orðsins fyllstu merking. Aðdrátt nota þeir í hófi úti í nátt- úrunni, en bregða á leik þegar inn í þéttbýli dregur, hvað sem nú kemur þeim til þess, þannig að siglutré verða að samfelldum þéttum skógi og húsaraðir að spilaborgum. Mannlífsmyndir eru ekki margar í bókinni og að mín- um dómi ekki afar merkilegar. Fáeina unglinga hafa þeir fengið til að sitja fyrír og út- koman orðið slétt og felld: svip- brigðalaus ungmennaandlit og lit- | ið fram yfir það. Vandi er að mynda fólk ekki síður en fugla og erfitt að komast að hvoru tveggja þó í tvennum og ólikum skilningi sé. Þeir félagarnir hafa átt fuglaláni að fagna meira en mannaláni mióað við fjölbreytni, kannski vegna þess að þeir eru i eðli sínu rómantiskir ljósmyndar- ar og sækjast eftir fjarlægó og ósnortinni viðáttu, eða þannig kynna þeir sig að minnsta kosti i þessari bók. Svo er textinn, níu kaflar um landið, sögu, þjóðlif og náttúru, ritaðir af jafnmörgum höfundum. Hann er að vonum nokkuð misjafn og misvel skrif- aður en veitir að öllu samanlögðu ágætt yfirlit um efnið. Vitanlega er bókin ætluð útlendingum, og því er vert að spyrja hvaða hug- mynd hún muni gefa um land og þjóð þeim sem aldrei hefur hing- að komið og veit ef til vill lítið um landið fyrir. Þar sem myndirnar eru sem heild nokkuð einhliða — sýna landið aðeins að sumarlagi og gefa litla hugmynd um svip þess á öðrum árstimum — má fræðast um það af textanum að ísland sé ekki aðeins sumarsins og himinblámans bjarmaland. að Islendingar hafi raunar þurít nokkuð fyrir lífinu að hafa i þessu unaðsfagra landslagi og að margt sé enn ógert hér að lokinni ellefu hundruð ára búsetu í land- inu. I bókarlok ritar Weyer „athugasemdir ljósmyndara" og veitir þar ýmsar faglegar upplýs- ingar um ljósmyndun sina hér, og er sú lesning harla fróðleg fyrir þá sem taka myndir úti í náttúr- unni. Annars má segja um bók þessa og litadýrð hennar eins og landið, að fátækleg umsögn hlýtur að gefa heldur kléna hugmynd um hana: hún er fyrir augað, tilfinn- inguna, það sem ekki verður með orðum sagt. Vonandi á hún eftir að berast viða, verða mörgum augnayndi, og minna umheiminn á að hér i norðri er þó land þar sem mannlíf hefur verið að þróast og vaxa, þó hægt gangi, i ellefu aldir. Ólöf Jónsdóttir: Málverkasýning í Diisseldorf Undirrituð átti þess kost að sjá alþjóðlegu myndlistarsýn- inguna Internationaler Markt fúr aktuelle Kunst í Dusseldorf í Þýzkalandi 19. — 24. október ásamt Ölmu Hansen list- fræóingi. Samtökin, sem stóðu fyrir listsýningu þessari, voru stofn- uð 1971, en síðan hefur hún verið haldin árlega. Er það orðin föst hefð, og mun svo verða framvegis. Sýningarnar njóta alþjóðlegrar viðurkenn- ingar, og eru listamenn víðs vegar að úr heiminum þátttak- endur eins og sjá má á því, að 40% af sýnendum koma frá öðrum þjóðum. Um þrettán þjóðir sýndu þarna að þessu sinni. Hvaðanæva koma listunn- endur til að skoða og kaupa listaverk ungra listamanna. Er því mjög mikilvægt tækifæri að sýna á slíkum vettvangi. Því miður var ekki nema ein mynd þarna eftir Islending, Erró (Guðmund Guðmunds- son), sem er i miklu áliti erlendis, og er gott til þess að vita. Sýningin var haldin i húsa- kynnum Alþjóðlegu vörusýn- inganna í Dússeldorf. Hún tók yfir 8000 fermetra. Dyrnar opnuðust inn i þessa stóru og mörgu sali, og við aug- um blasti mikilfenglegur heim- ur málaralistarinnar. Við Alma skoðuðum sýninguna klukku- timum saman. Þarna var heilt safn listaverka — allt frá heill- andi fegurð niður i argasta ljótleika. Margt er minnisstætt, og deildum við Alma oft harólega um, hvað væri hægt að kalla list og hvað ekki, en okkur kom saman um, að takmörkin væru svo óljós, að naumast væri unnt að sjá þau rétt. Það er nefnilega eins og slík mörk máist út, og kannski eru þau ekki til. En það er stórkostlegt aó sjá, hvað hinn mannlegi heili getur fram- kallaö. Þarna blöstu við átta fallegar landlagsmyndir frá Islaridi, sem Islandsvinurinn Alfred Schmidt hefur málað síðastliðið sumar, og eru þær allar frá Suðurnesjum. Að lokum vil ég óska þess, að sem flestum listamönnum auðnist að fá tækifæri að taka þátt i slikum alþjóðasýningum. 7. nóvember 1974 Ólöf Jónsdóttir. Alfred Schmidt og Podszus frá E.P. Gelerie, Dtisseldorf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.