Morgunblaðið - 15.11.1974, Side 36

Morgunblaðið - 15.11.1974, Side 36
 fHorgmtMct&ifr nuGivsincnR 22480 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1974 Ný hverfi hafa byggst mjög í Hafnarfirði síðustu ár. Mynd þessi er af Norðurbænum í Hafnarfirði. Geymslur frystihús- anna yfirleitt fullar Verður að af- skipa örar fyrir loðnufrystingu FRYSTIKLEFAR f frystihúsum landsins munu yfirleitt vera svo til fullir, en nokkuð er það mis- jafnt og fer eftir þvf hvaða teg- undir húsin vinna mest. Heildar- birgðir af frystum fiski eru þó mun meiri nú en á sama tfma f Smjörlíki og gjald- skrár veitinga- og þvottahúsa hækka SKRIFSTOFA verðlagsstjðra auglýsti f gærkvöldi verð á smjör Ifki og er hækkun frá fyrra verði 11%. Kostar nú hvert kg af smjör- líki 238 krónur, en kostaði 214 krónur áður. Þá hefur verðlagsstjóri heimil- að 15% hækkun á gjaldskrá veit- ingahúsa og ennfremur 15% hækkun á gjaldskrá þvottahúsa. fyrra og birgðir f frystihúsum innan Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna eru t.d. um 15 þúsund lestir um þessar mundir. Benedikt Guðmundsson hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna sagði, að þann 1. nóvember s.l. hefðu frystihús S.H. verð með 15 þús. lestir af frystum fiski í geymslum, sem væri nokkru meira en venjulega. Þessa dagana væru þó skip Eimskips að lesta fisk á Bandaríkjamarkað, en ekki væri það mjög mikið magn. Von- ast væri til, að hægt yrði að halda í horfinu á næstunni, þannig að ekkert húsahna lenti í neinum vandræðum. Hann viðurkenndi þó, að loðnu- frystingin gæti sett strik í reikn- inginn, þegar að henni kæmi, þ.e. ef ekki yrði búið að rýma nægi- lega tií f frystigeymslum viðkom- andi frystihúsa. Ólafur Jónsson, hjá Sjávarafurðadeild S.l.S. sagði, að þar reyndu þeir að draga úr afskipunum eins og hægt væri, en fisknum væri komið fyrir í geymslun hjá aðilum vítt og breidd á nánd við New Bedford, þar sem mest öllum fiski Sam- bandsins er skipað á land í Banda- ríkjunum, og væru það sérstak- lega flökin, sem komið væri í geymslu. ívar Baldvinsson hjá frystihúsi KEA á Dalvík, sagði, að þar ættu þeir eftir viku rými, eða fyrir 1000 kassa, en frystigeymslan tek- ur um 15 þús. kassa. Þeir hefðu samt veika von með afskipun í Framhald á bls. 22 Ríkisstjórnin semur ekki á grundvelli samningsdraganna MORGUNBLAÐINU barst í gær fréttatilkynning frá forsætisráðu- neytinu, þar sem tilkynnt er, að rfkisstjórnin hafi á fundi sfnum f gær ekki talið rétt að ganga frá bráðabirgðasamkomulagi við Þjóðverja f landhelgismálinu á grundvelli samningsdraganna, sem birtust f Morgunblaðinu f gær. Fréttatilkynningin er svo- hljóðandi: „Ríkisstjórnin telur ekki rétt að ganga frá bráðabirgðasam- komulagi við Vestur-Þjóðverja samkvæmt þeim samkomulags- drögum, sem fyrir liggja, en mun halda áfram athugunum málsins í Þórscafé-málið: Sagði öðrum frá átökunum í GÆR yfirheyrði rannsóknarlög- reglan nokkur vitni vegna átak- anna við Þórscafé um sfðustu helgi, svo og 18 ára piltinn sem nú situr f gæzluvarðhaldi vegna þessa máls. Við yfirheyrsluna í gær endur- tók pilturinn sinn fyrri framburð, að hann hefði lent í ryskingum við Benedikt heitinn, en kveðst ekki muna hvort hann hafi veitt honum högg eða ekki. Ber hann við ölvun. Hins vegar gaf sig fram vitni í gær, sem sagði, að piltur- inn hefði sagt við sig á staðnum umrædda nótt, þ.e. fyrir utan Þórscafé, að hann hefði slegið Benedikt hejtinn niður. Þannig er málið stöðugt að skýrast og bendir margt til þess, Framhald á bls. 22 samræmi við samþykkt Alþingis frá 15. febrúar 1972.“ Þá var f gær fundur f utanrfkis- málanefnd Alþingis, þar sem fjallað var um samningsdrögin. Þórarinn Þórarinsson, formaður Framhald á bls. 22 1007 ölvaðir ökumennteknir í Rvík á árinu REYKJAVIKURLÖGREGL- AN hefur á þessu ári tekið alls 1007 ökumenn vegna gruns um ölvun við akstur, samkvæmt þeim upplýsingum sem Mbl. fékk f gær hjá Sturlu Þórðar- syni, fulltrúa lögreglustjóra. Aldrei fyrr hefur tala grunaðra farið fram yfir 1000, og til samanburðar má geta þess, að allt árið f fyrra voru teknir um 930 ökumenn vegna gruns um ölvun við akstur. Og enn er eftir einn og hálfur mánuður af árinu, og á talan þvf vafalaust eftir að hækka nokkuð. „Þetta er óhugnanleg aukn- ing,“ sagði Sturla Þórðarson í samtali við Mbl., „ásíóustuár um hefur aukningin verið um 100 ökumenn á ári, en nú ætlar hún upp úr öllu valdi.“ Skiptingin í ár er sú, að innanbæjar hefur Reykjavík- urlögreglan tekið 951 öku- mann, á sama tima í fyrra 802. Utanbæjar hefur hún tekið 56, ásamatíma í fyrra 86. Samtals hefur hún þvi tekið 1007, en á sama tfma i fyrra 888. Varaformaður Alþýðuflokks: Næst samkomulag um Björn Jónsson? FLOKKSÞING Alþýðuflokksins* hefst í kvöld, en ágreiningsmál þau, sem upp eru komin vegna fyrirsjáanlegs kjörs nýrra for- ystumanna flokksins eru óleyst. Eins og Morgunblaðið skýrði frá i fyrradag höfðu Gylfi Þ. Gfslason og Benedikt Gröndal hugsað sér að styðja dr. Kjartan Jóhannsson verkfræðing sem varaformann flokksins. Sfðustu daga hefur hins vegar komið upp sterk hreyfing fyrir þvf, að Eggert G. Þorsteinsson verði kosinn vara- formaður og eru það verkalýðs- sinnar f Alþýðuflokknum, sem Vefarinn mikli kemur út á Norðurlöndunum Halldór Laxness kom heim í gær MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær- kvöldi samband við Halldór Laxness, en hann kom í gær heim til íslands úr ferðalagi um Norðurlönd, Sviss og Þýzka- land. Halldór sagðist m.a. hafa verið að ganga frá handriti á dönsku að Vefaranum mikla frá Kasmír, en skáldið kvað þá bók eiga að koma út í Dan- mörku, Svíþjóð og Norcgi eftir áramót. Hefur Vefarinn ekki fyrr verið þýddur á erlend mál, en um 50 ár eru nú liðin frá þvf skáldið skrifaði þá bók. Sagði Halldór að margir mánuðir hefðu farið f vinnu við þýðing- una með þeim dönsku aðilum, sem vinna bókina, en danska þýðingin verður lögð til grund- vallar norsku og sænsku útgáf- unum. Bókin er á 6. hundrað sfður og er hún komin f prent- smiðju f Danmörku. Þá kvaðst Halldór aðspurður hafa verið að sinna ýmsum við- skiptamálum, sem varla væri- nú talandi um, því alltaf væri eitthvað sínu sinni hvað að koma út af bókum hans erlend- is, en hann sagði að það væri í sjálfu sér lítill vandi að skrifa bók hvað tímann snerti miðað við allan þann tima, sem færi í alls konar viðskiptavafstur. „Maður þakkar stundum fyrir að fá að halda skinninu á nef- inu,“ sagði skáldið um þá bar- áttu. Nefndi hann sem dæmi að í Þýzkalandi hefðu milli 10 og Framhald á bls. 22 Halldór Laxness fyrir þeirri hreyfingu standa. Ágreiningur um varaformanns- kjör hefur ekki verið leystur en hugsanlegt er talið, að samkomu- lag geti tekizt um Björn Jónsson, forseta ASl, sem málamiðlun og að hann verði kjörinn varafor- maður Alþýðuflokksins. Kjör hans mundi fullnægja þeirri kröfu verkalýðssinnaðra Alþýðu- flokksmanna, að framámaður úr verkalýðshreyfingunni verði kjörinn í þetta trúnaðarstarf og það kom einnig i ljós, í kosningu fulltrúa Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur á flokksþingió að Björn Jónsson nýtur meiri stuðn- ings í Alþýðuflokknum en gert var ráð fyrir. Hann var í hópi þeirra, sem flest atkvæði hlutu í þessari kosningu. Helztu stuðn- ingsmenn dr. Kjartans Jóhanns- sonar, Gylfi Þ. Gíslason og Bene- dikt Gröndal, mundu vel geta fallizt á kjör Björns, a.m.k. sá fyrrnefndi. Auk Eggerts G. Þorsteinssonar, Kjartans Jóhannssonar, Björns Jónssonar, Karls Steinars Guðna- sonar og Jóns Ármanns Héðins- sonar hefur Björgvin Guðmunds- son, borgarfulltrúi Alþýðuflokks- ins, einnig verið nefndur í sam- bandi við varaformannskjör og mun hann sækjast eftir starfinu með vaxandi þunga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.