Morgunblaðið - 05.01.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.01.1975, Blaðsíða 1
32 SIÐUR (Ljósm. Mbl. Ól.K. Magnússon). Vetur í bœ Efnahagsástandið setur Ford í vanda: Óttast 8 % at- vinnuleysi í ár Washington, 4. janúar. — Reuter. FORD Bandaríkjaforseti ræðir í dag við helztu efnahagsráðgjafa sina til þess að reyna að finna leið út úr þeim vaxandi samdrætti f efnahags- og atvinnulifi landsins, sem nú hefur fjölgað atvinnu- lausum upp f 6.500.000, en það er hæsta atvinnuleysistala frá byrj- un sfðari heimsstyrjaldarinnar. Nokkrum klukkustundum eftir að þessar atvinnuleysistölur fyrir desember höfðu verið birtar f gær, var tilkynnt að sex af 12 seðlabönkum landsins lækka bankavexti úr 7,75% í 7,25%, og er tilgangurinn að reyna að styrkja stoðir efnahagslífsins. Atvinnuleysi var i desember orðið 7,1%, og Ron Nessen, blaða- fulltrúi Fords, sagði að forsetinn byggist við að talan myndi enn hækka á næstu mánuðum og hugsanlega ná 8%. Stærstan þátt í þessari atvinnuleysistölu eiga bílaiðnaðurinn og byggingaiðnað- urinn. Mikill þrýstingur er nú á Ford forseta um að láta til skarar skríða með hörðum og ákveðnum aðgerðum í efnah"gsii ál inum. Fram 'ia d á bls. 2 Fjöldamorð í Kambódíu Harðir bardagar umhverfis höfuðborgina Pnom Penh, 4. jan. Reuter 52 óbreyttir borgarar f Kam- bodfu, þar af að minnsta kosti tíu börn, voru myrtir í vikunni af skæruliðasveit undir stjórn kommúnista, að því er sjónarvott- ar skýra frá f dag. Gerðist þetta í bænum Ang Snuol, sem skærulið- ar lögðu í rúst eftir að hafa náð honum á sitt vald. Stjórnarher- menn náðu bænum hinsvegar aft- ur í gær og fóru þá umræddir sjónarvottar þangað. Þeir herma, að fólkið hafi sýnilega verið skot- ið eða stungið byssustingjum, áð- ur en kveikt var í húsum þess í útjaðri bæjarins, sem er um 25 km suðvestur af Pnom Penh. Skæruliðar tóku bæinn á mið- vikudag í upphafi yfirstandandi sóknar þeirra í nágrenni borgar- innar en síðustu daga hefur verið barizt i þremur áttum út frá henni. Að sögn herstjórnarinnar í Kambodíu hafa hermenn frá Norður-Vietnam og Viet Cong barizt með skæruliðunum, en þeir hafa ekki tekið þátt í átökunum í Kambodíu nokkra síðustu mán- uði. Að sögn herstjórnarinar var óttazt að skæruliðar skytu flug- skeytum að Pochentong- alþjóðaflugvellinum, sem er um nlu kílómetra vestur af höfuð- borginni, en vitað er, að flugvélar lentu þar í morgun. Fréttamenn, sem fylgjast með átökunumí Kambodíu, segja að svo virðist sem skæruliðar séu að reyna að styrkja vígstöðu sína vestur og norðvestur af Pnom Penh annarsvegar og austur- og suðaustur af henni hinsvegar. Þeir umkringdu herbækistöð i 24 km fjarlægð þaðan rétt eftir að sóknin hófst á nýjársdag og er talið, að þeir hafi flutt talsvert magn vopna og hergagna til átakasvæðisins. I nótt mátti heyra nær stöðugan bardagagný frá austurbakka Mekongfljótsins um þrjá kílómetra frá Pnom Penh, þar sem stjórnarhermenn reyndu með aðstoð þyrluskipa að hrekja skæruliða úr hreiðrum sínum. Líbýa afléttir olíusölu- banni gegn Bandaríkjunum Beirut, 4. jan. AP. BLAÐ 1 Beirut, sem fjallar um efnahagsmál f Mið-Austurlöndum skýrir svo frá í dag, að Lfbýa hafi hávaðalaust hætt við bann sitt gegn olfusölu til Bandarfkjanna þar sem olfusala landsins erlend- is hafi stórminnkað. Þar að auki segir blaðið, að Líbýa sem og Alsfr og Irak, hafi lækkað olfu- verð lftilfega vegna samkeppni við olfuframleiðslurfkin við ' Persaflóa. Blaðið segir, að ekki hafi verið skýrt opinberlega frá ákvörðun stjórnar Líbýu en alþjóðlegu olfu- félögunum, sem skipta við Lfbýu hafi verið tilkynnt, að þau séu frjáls að þvf að hefja aftur olfu- flutninga tii Bandarfkjanna og „skyldra staða“, eins og komizt er að orði. Líbýa hélt áfram olíusölubanni sínu gegn Bandarikjunum eftir að flest Arabaríkin höfðu aflétt slíku banni í marz sl. Hafði þetta í för með sér mikinn samdrátt framleiðslu og var hún I nóvem- ber sl. komin niður í 960.000 tunn- ur á dag, samanborðið við 1.88 milljón tunna á dag á fyrra árs- helmingi 1974 og 2.1 milljón tunna á dag árið 1973. Sem fyrr segir hafa Libýa, Alsir og trak lækkað olíuverð — um 30—50 cent á tunnu. Er það gert til að mæta lækkun farmgjalda frá olíuframleiðsluríkjunum við Persaflóa. OPEC-ríkin ákváðu í desember, að olíuverð skyldi vera 10.12 dollarar pr. tunnu. Breznev með bronkítis? Kairo, London, 4. jan. REUTER — NTB. ENN eru menn að velta fyrir sér orsök þess, að Leonid Brezhnev, leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins, aflýsti eða frestaði fyrirhugaðri ferð sinni til Egyptalands. Viku- blaðið Akhbar El-Yom f Kairo skýrir svo frá í dag, að ástæð- an hafi verið veikindi Brezhnevs, hann hafi fengið lungnakvef meðan hann var í heimsók f Paris f sl. mánuði og sé undir læknishendi í sjúkra- húsi fyrir utan Moskvu. Fréttamenn f London eru hins vegar enn þeirrar skoðunar, að hin raunverulega ástæða fyrir frestun ferðarinnar hafi verið ágreiningur milli sovézkra og egypzkra ráðamanna. Umrætt vikublað í Kairo seg ir, að læknar Brezhnev hafi ráðlagt honum að takast ekki á hendur erfitt ferðalag fyrr en hann hefði náð sér að fullu. Hann hafi þá verið þeirrar skoðunar, að frestun ferðar- innar yrði misskilin í Kairo og farið þess á leit, að hraðboð yrði sent til Sadats, Egypta- landsforseta, þar sem hann væri beðinn að senda utanrík- is- og hermálaráðherra sína til Sovétrikjanna svo hægt væri að skýra fyrir þeim hvernig á stæði. Blaðið segir, að ráðherrarnir hafi rætt við Brezhnev sjúkrahúsinu en orðið að klæð- ast hvitum sloppum áður en Framhald á bls. 2 Flugslys í Rúmeníu Belgrad og Vínarborg, 4. jan. Reuter FREGNIR, sem borizt hafa frá Rúmenfu f dag, herma, að sl. sunnudag hafi farizt þar flugvél f innanlandsflugi og með henni 33 farþegar svo og áhöfnin, en ekki er tilgreint hversu fjölmenn hún hafi verið. Vélin var á leið til Búkarest frá Oradea, í norðvesturhluta landsins, þegar hún rakst á fjall í námunda við tindinn Preajba í Lotrufjöllum í miðhluta landsins. Það var hin opinbera fréttastofa Rúmeníu sem frá slysinu skýrði en engin skýring var á því gefin, hversvegna svo seint er frá þvi sagt. Hinsvegar er oft alls ekkert sagt frá slysum i Rúmeníu, þar sem fjölmiðlar allir eru i höndum stjórnvalda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.