Morgunblaðið - 05.01.1975, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.01.1975, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1975 Utgefandí hf. Árvakur, Reykjavfk. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjómarfulltrúi Þorbjörn GuSmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni GarSar Kristinsson. Ritstjóm og afgreiBsla ASalstræti 6, sfmi 10 100. Auglýsingar ASalstræti 6, sfmi 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. é ménuSi innanlands. f lausasölu 35,00 kr. eintakiS. „Alþýðubandalagið ekki stjómarhæft” Alþýðuflokkurinn hef- ur tvisvar sinnum á tæpum fjörtíu árum klofn- að á þann veg, að vinstri armur hans hefur gengið til samvinnu við kommún- ista. I fyrra skiptið gerðist þetta er Héðinn Valdimars- son gekk til liðs við kommúnista og stofnaði með þeim Sameiningar- flokk alþýðu — Sólsíalista- flokkinn, og í síðara skiptið er Hannibal Valdimarsson stofnaði með kommúnist- um Alþýðubandalagið. Nú sýnist ný orrahríð fram- undan milli kommúnista og Alþýðuflokksins. Forystumenn Alþýðu- bandalagsins hafa tæpi- tungulaust haldið því fram, að Alþýðuflokkurinn sé að deyja og að Alþýðubanda- lagið hyggist fylla rúm hans í íslenzkum stjórn- málum án þess að breyta í nokkru grundvallarstefnu sinni. Hinn nýi formaður Alþýðuflokksins Benedikt Gröndal hefur tekið þess-; ari einvígisáskorun og er ómyrkur í máli. I áramóta- grein sinni f Alþýðublað- inu segir hann af þessu til- efni: „Sýnt hefur verið fram á, að flestir forustu- menn Alþýðubandalagsins eru marx-leninistar (en' það kalla kommúnistar er- lendis sig nú oft) og mál- gagn þeirra villist ekki af þeirri línu. Þessi flokkur ræðst nú opinskátt á Alþýðuflokkinn og fer þvf ekki milli mála, að Alþýðu- flokkurinn er það virki, sem valdaskrið marx- leninismans á íslandi nú strandar á.“ í svari við áramótaspurn- ingum Morgunblaðsins tal- ar Benedikt Gröndal enn skýrar er hann segir: „Það reyndust ekki „kerfis- skipti“, þegar vinstri stjórnin tók við 1971 frek- ar en stjórn Hermanns Jónassonar 1956—1958. Ástæðan var í bæði skiptin sú, að marx-leninistarnir, sem stjórna Alþýðubanda- iaginu, eru ekki stjórnar- hæfir, þeir hafa ekki lært eða vilja ekki læra formúlu íslenzkra samteypu- stjórna.“ Formaður Alþýðuflokks- ins talar þarna af nokkurxi reynslu. Flokkur hans átti aðild að ríkisstjórn með kommúnistum 1956—1958 og nú í sumar tók Alþýðu- flokkurinn þátt í tilraun- um til myndunar nýrrar vinstri stjórnar ásamt Al- þýðubandalaginu. Bene- dikt Gröndal var talinn hafa jákvæða afstöðu til slíkrar stjórnarmyndunar en niðurstaða hans eftir þær viðræður og fyrri vinstri stjórn er sú, að Al- þýðubandalagið sé ekki „stjórnarhæft“. Þetta eru stór orð en af- dráttarlaus. Þau eru væntanlega merki þess, að Alþýðuflokkurinn hyggist ekki daðra við kommúnista í stjórnarandstöðunni heldur snúa bökum saman með öðrum lýðræðis- flokkum. Enda mun ekki af veita, svo ískyggilegar sem horfurnar eru um þessar mundir í þjóðmálum okkar. Þungar horfur Iþeim umræðum sem nú fara fram um þungar horfur í efnahagsmálum okkar Islendinga, er nauð- synlegt að menn skilji sam- hengið milli þeirra og efna- hagsþróunarinnar í iðn- aðarríkjum Vesturlanda. Því er nú haldið fram af ábyrgum aðilum, að vaxtarskeiði því, sem stað- ið hafi í iðnaðarríkjunum frá stríðslokum sé lokið og tímabil stöðnunar og sam- dráttar hafi tekið við. Því valdi annars vegar hin gíf- urlega verðbólga á Vestur- löndum, eða sá hluti hennar, sem stafar af öðr- um ástæðum en olíukrepp- unni og hins vegar hækkun olíuverðs. Talið er, að á þessu ári muni þjóðarfram- leiðslan í nær öllum iðn- aðarríkjunum minnka eða vaxa mjög lítið. Afleiðing þessa verði sífellt auknir erfiðleikar i efnahagsmál- um þeirra. Gífurlegur halli er á viðskiptum þeirra við útlönd vegna hækkunar olíuverðs og jafnvel þótt Arabaríkin hafi fjárfest umframfé sínu vegna olíu- gróðans á Vesturlöndum í þeim mæli á síðasta ári að jafni hinn óhagstæða við- skiptajöfnuð er ekki hægt að búast við því á þessu ári. Þessi þróun veldur þvl, að í helztu markaðs- og við- skiptalöndum okkar er nú mikil verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og svartsýni um framtíðarhorfur grípur um sig. Við íslendingar komumst ekki hjá því að verða fyrir áhrifum þess- arar þróunar. Innfluttar vörur okkar verða sífellt dýrari á sama tíma og verð- lag á útflutningsvörum okkar fer lækkandi. Jafn- framt verðfalli gætir vax- andi sölutregðu á afurðum okkar erlendis. Til viðböt- ar þessum stórfelldu vandamálum, sem heims- ástandið skapar okkur, eru svo heimatilbúin vandræði okkar sjálfra, endalaus kröfugerð um kjarabætur, sem enginn grundvöllur er fyrir, stöðug tilhneiging til þess að lifa um efni fram, neitun stjórnmálamanna og forystumanna í félags- málum á að horfast í augu við staðreyndir og viður- kenna að við lifum á erfið- um tímum, sem krefjast allt annars hugsunarhátt- ar, annarrar afstöðu til lífs- ins en við höfum haft um langt skeið. Enginn skyldi ganga þess dulinn, að í hönd fer erfitt ár og að tal um kjarabætur og kaup- hækkanir við þessar að- stæður er fánýtt hjal, sem enginn grundvöllur er fyr- ir. j Reykjavíkurbréf *»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Laugardagur 4. Ekki deilt um staðreyndir að þessu sinni Við áramót horfa menn jafnan björtum augum fram á veginn með von um batnandi hag og betri tíð. En að þessu sinni blasir við okkur dekkri mynd en oftast áð- ur. Að vfsu er fæstum gefið að skyggnast um í sölum framtíðar, en þær staðreyndir eru ljósar nú i byrjun árs, er færa okkur sanninn um, að við mikla efna- hagserfiðleika er að etja. Minnkandi þjóðartekjur og versn- andi viðskiptakjör hafa þegar valdið þungum búsifjum og gjald- eyrisvarasjóður þjóðarinnar er á þrotum. Að vísu var flestum ljóst fyrir réttu ári, að erfiðleikar væru framundan, og sakir þess að landið bjó við óstarfhæfa ríkis- stjórn þar til í lok ágúst varð árið 1974 ár mestu ringulreiðar í ís- lensku efnahagslífi sem um get- ur. Frá því að núverandi ríkis- stjórn var mynduð hefur þrot- laust verið unnið að því að treysta stoðir atvinnulífsins, tryggja stöðu hinna lægst launuðu í þjóð- félaginu og hafa hemil á óðaverð- bólgunni. Enn er ekki ljóst, hvort með áframhaldandi aðgerðum verður unnt að ná árangri á þessu nýbyrjaða ári, en margt bendir til þess að svo megi verða, ef lands- menn allir taka höndum saman og sýna vilja í verki við lausn vanda- málanna. Efnahagserfiðleikarnir hrjá þjóðina í heild; þeir verða því ekki leystir með innbyrðis flokkadráttum og bræðravígum, heldur með sameiginlegu átaki. Umræður um íslensk efnahags- mál hafa ákaflega oft einkennst af þrætum um staðreyndir. Ein- hverju sinni var haldinn fundur í- stéttarfélagi hér í borginni og loft var allt lævi blandið eins og verða vill, þegar stjórnmál eiga í hlut. í hita umræðnanna stóð einn fund- armanna upp og taldi flokki sín- um m.a. til ágætis, að hann væri sá eini, sem þyrði að vera á móti staðreyndum! Þó að hér hafi ver- ið um vafasamt hrós að ræða, er það svo eigi að síður, að stjórn- málaumræður snúast eins oft um staðreyndir máls eins og ágrein- ing um markmið og leiðir. Hófsemi í efna- hags- og kjara- málum Um þessi áramót hefur þó skotið nokkuð skökku við í þess- um efnum. 1 áramótagreinum og ávörpum forystumanna stjórn- málaflokkanna kemur glöggt fram, að menn virðast vera nokkuð á einu máli um, hvert sé hið raunveruiega ástand I efna- hagsmálum þjóðarinnar. Og það sem meira er: Forystumennirnir sýnast jafnvel vera sammála um, að á tímum minnkandi þjóðar- tekna sé ekki unnt að tala um bætt lífskjör. Að vfsu nær þetta ekki til talsmanna Alþýðubanda- lagsins, enda var ekki við því að búast. Geir Hallgrímsson forsætisráð- herra sagði m.a. í áramótagrein sinni hér 1 Morgunblaðinu: „I stað þess að vaxa, minnka þjóðar- tekjur tvö ár í röð. Jafnframt er halli á greiðslujöfnuði landsins miklu meiri en staðist getur lengur. Erlendar lántökur hafa að undanförnu verið langt um fram það, sem góðu hófi gegnir og and- virði þeirra hefur að nokkru leyti verið varið til að standa undir halla á rekstri opinberra þjónustufyrirtækja en ekki til ný- framkvæmda. Brýn nauðsyn er því á að menn geri sér ljósa þörfina fyrir stefnubreytingu, að lífskjör geta um sinn ekki haldið áfram að batna frá því sem verið hefur á undanförnum árum, að opinber þjónusta getur ekki haldið áfram að aukast og strang- lega verður að vanda val þeirra framkvæmda, sem unnt er að ráð- ast í.“ í áramótaávarpi sfnu til þjóðar- innar í útvarpi og sjónvarpi sagði forsætisráðherra: „Við verðum að fylgja hófsamri stefnu í efnahags- og kjaramálum. Halda aftur af útgjöldum og útlánum af opin- berri hálfu, þó með vakandi auga á atvinnuástandi. Engar for- sendur eru að svo stöddu fyrir almennri hækkun kaupmáttar tekna almennings. Allar aðgerðir i efnahagsmálum þurfa að miðast við að leita jafnvægis í þjóðarbú- skapnum inn á við og út á við. Atvinnuöryggi og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar á að sitja í fyrirrúmi." Landsmenn fá ekki allir kjarabætur Benedikt Gröndal, nýkjörinn formaður Alþýðuflokksins, segir m.a. á þessa leið hér í Morgun- blaðinu á gamlársdag: „Lands- menn geta ekki allir fengið kjara- bætur, nema þjóðartekjur aukist. Enda þótt skjótt geti skipast veður f lofti í fslenskum efnahags- málum, hef ég því miður ekki trú á slíkri hækkun þjóðartekna á næsta ári. Hins vegar geta ein- stakar stéttir eða aðilar fengið kjarabætur, þótt allir fái ekki, og þá á kostnað annarra. Mér kæmi ekki á óvart, þótt gera þyrfti á komandi ári nýjar ráðstafanir til að bæta kjör láglaunafólks, ekki síst þess, sem mest á undir al- mannatryggingum, og verður þá að finna ráð til að mæta því. Einn- ig er vert að hafa í huga, að kjara-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.