Morgunblaðið - 05.01.1975, Blaðsíða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1975
— Loðna
Framhald af bls. 32
„Fleiri bátar? Jú, ég veit, að
Pétur Jónsson, Eldborgin og ein-
hverjir fleiri bátar eru að gera sig
klára og miða við að fara af stað
næstu daga. Það er nú spjallfund-
ur í Reykjavík í dag, laugardag,
hjá loðnuskipstjórum. Það á víst
að útskýra verölagsmálin þar og
rabba um stöðuna, en menn eru
hræddir við loðnuverðið, en þó
hefur frétzt að toppverð sé nú á
lýsi.“
— Frækilegt
Framhald af bls. 32
búið og kom að Aldershot að nýju
á sjötta tímanum. Var nú aðeins
farið að lægja og komust varð-
skipsmenn á gúmmíbátnum út i
togarann, enda hafði timinn verið
notaður til að þurrka upp mótor-
inn. Veðrið var heldur farið að
lægja, og gekk vel að flytja skip-
verjann um borð I varðskipið.
Hélt það sfðan inn til hafnar á
Isafirði. Veður hafði nú versnað
til stórra muna og varð að sigla
inn eftir tækjum og mælingum,
og gekk það aðdáunarlega vel hjá
varðskipsmönnum eins og annað I
þessari sögulegu ferð.“
Mbl. ræddi stuttlega við Ulf
Gunnarsson lækni í gærmorgun.
Hann sagði, að skipverjinn, sem
um ræðir, væri vélstjóri skipsins,
fullorðinn maður, og þjáðist hann
af gallblöðrubólgu. A sjúkrahús-
inu liggja nú 3 brezkir togarasjó-
menn vegna veikinda og meiðsla.
— Kröfurnar
Framhald af bls. 32
og aðra kaupliði. Sagði Jón að það
hefði nánast verið hið eina, sem
sjómenn hefðu fengið, en það
hefðu þeir fengið án þess að fara í
samninga, þvi að i samningunum
er ákvæði um það, að hækki kaup
almennt hækki kaup sjómanna
sjálfkrafa. I samningunum í fyrra
kvað Jón engan þrýsting hafa ver-
ið af hálfu sjómanna.
Þá ræddi Morgunblaðið við
Kristján Ragnarsson, formann
Landssambands íslenzkra útvegs-
manna, og spurði hann um kröfur
sjómanna. Hann sagði að öll
launamál væru nú í óvissu
og kjarasamningar allra laun-
þega væru lausir. Hann sagð-
ist ekki geta imyndað sér, að
kjarasamningar sjómanna í
þessu sambandi yrðu með
öðrum hætti en annarra. Sjó-
menn hefðu fengið 11% hækkun
á fiskverði inn 1. október og þvi
kvað hann ekki hafa verið um það
að ræða að nokkuð hafi verið af
þeim tekið. Hins vegar kvað
Kristján viðræður nú fara fram
um fiskverðið og hækkun á því
kæmi að fullu til hækkunar á
launum hjá sjómönnum. „Teljum
við að það sé hin eina og eðlilega
leið til launahækkana,“ sagði
Kristján og bætti við: „Sfðan
munu þeir fá og hafa fengið jafn-
mikla hækkun á lágmarkskaupi
(kauptryggingu) eins og þeii;
lægst launuðu hafa fengið um
mörg undanfarin ár og það frekar
meira en minna.“
— Bókmenntir
Framhald af bls. 17
— hann er þar ekki til(Leturbr.
mtn. G.G.H.)
Af skemmtilegum og klmilegum
frásögnum I bókinni læt ég hér að
lokum einnar getið ekki aðeins
sakir dr. Kristins heldur engu stður
vegna frú Elsu, þýzkrar eiginkonu
hans, sem ég hygg, að sé að svo
litlu getið f bókinni sem raun ber
vitni — einmitt sakir þess, að um
þau hjónin eigi það vissulega við,
sem t biblfunni stendur „útþrykki-
lega", að maður og kona skuli
vera eitt.
Þegar þau höfðu komið heim til
islands og holað sér niður f Iftilli
fbúð f Reykjavfk, var það kvöld
nokkurt, að guðað var á glugga
hjá þeim. Sá, er það gerði, reynd-
ist vera hinn f þann tíð allvfðkunni
og nokkuð sérkennilegi Þorsteinn
Bjömsson frá Bæ f Borgarfirði.
Hann beiddist gistingar og hlaut
að legurúmi sófa I stofu þeirra
hjóna. Honum gazt svo vel að
gistingu, viðurgerningi og atlæti á
heimilinu, að hann settist þar að
óumtalað — og dvaldi þar sumar-
langt. Eitt sinn kvartaði hann sár-
lega við dr. Kristin undan „vonzku
heimsins og grimmd mannanna"
„Það átti að fara að setja mig f
erfiðisvinnu," sagði hann hneyksl-
aður. Þegardr. Kristinn innti hann
frekar eftir þessari óhæfu, kom f
Ijós, að kona, sem hann hafði
búið hjá. hafði viljað láta hann
vökva fyrir sig blóm. Þegar svo
það var ráðið, að dr. Kristinn og
frú Elsa flyttust til Akureyrar,
sagði Þorsteinn við húsföður sinn:
„Þú gerir mér skrambans óleik
með þvf að vera að flytja þetta
norður, Kristinn.".... Út af dvöl
Þorsteins, sem þrátt fyrir allt var
Kristni oft til skemmtunar, en
kannski sfður frú Elsu, segir hann
einungis þetta: „Ég dáðist oft að
þvf, hvað Elsa var þolinmóð og
umburðarlynd gagnvart Þorsteini.
Vera hans á heimilinu olli óneitan-
lega svolitlum óþægingum."
Þá vil ég geta þess, að ég las
með velþóknun og færði þeim
hjónum til „inntekta", hvert
dálæti þau höfðu á köttum sfnum,
enda skfn friðsældarleg ánægja út
úr hæstvirtum ambassadornum,
þar sem hann er myndaður með
angórakött á öxlinni.
Dr. Kristinn segir á einum stað f
bókinni: „Það er löng leið frá
Rauðasandi til Rússfá," — og ég
get ekki stillt mig um að segja, að
mörgu, sem gerzt hefur fróðlegt
og skemmtilegt á þeirri löngu leið,
hefði hinn hófsami og virðulegi
sögumaður fengizt til við að bæta,
ef Gylfi Gröndal hefði verið nægi-
lega þolgóður og laumulega ýtinn
án þess að fórna nokkru af sinni
tilhlýðilegu hæversku.
Hestaeigendur
sem eru með hesta í hagagöngu hjá félaginu
hafi samband við skrifstofuna eigi síðar en 6.
eða 7. janúar milli kl. 14 og 1 7. Sími 301 78.
■Hestamannafélagið Fákur.
Hressingarleikfimi
fyrir konur.
Kennsla hefst aftur mánudaginn 6. jan. 1 975 í
leikfimisal Laugarnesskólans.
Get bætt við nokkrum konum í byrjendaflokk.
Upplýsingar í síma 33209.
Ástbjörg Gunnarsdóttir íþróttakennari.
Matreiðsla — Sýnikennsla
Fjögra kvölda námskeiðin (1x4 vik.) hefjast
aftur í janúar. Brátt síðustu möguleikar að vera
með.
Kjöt-, fisk-, grill- og smáréttir — fondue.
Sya Þorláksson,
Eikjuvogi 25,
S.34101.
ÚTSALA ÚTSALA
- VERZLUNIN HÆTTIR -
A morgun hefst útsala á herra- og drengjafatnaði,
kjólum og kjólefnum.
Mikill afsláttur, allt á að seljast.
Herradeild
KJÖRGARÐUR
Kjóladeild
Bingó verður í Skiphóli
í kvöld kl. 21.
Fjöldi glæsilegra vinninga.
Framhaldsaðalvinningur Mallorkaferð.
Knattspyrnudeild F.H.
Til leigu
Til leigu er skrifstofuhúsnæði við Lækjargötu.
Þeir, sem kunna að hafa áhuga, leggi inn nafn
sitt og símanúmer hjá blaðinu fyrir 20. jan.
n.k., merkt 3112.
Byrjendanámskeið
eru að hefjast
Skráning á þriðjud. kl. 20:30 —
21:30 og föstud. kl. 19 — 20. að
Brautarholti 18, sími 16288.
Gufubað á staðnum.
Júdófélag Reykjavikur.
Sjónvarpseigendur
athugið
Hefi opnað viðgerðaverkstæði á Fífuhvammsvegi 41, Kópavogi, undir
nafninu Sjónvarpsviðgerðir Guðmundar, geri við þau B & 0 tæki, sem
Viðtækjavinnustofan hf. seldi og einnig flestar aðrar tegundir sjón-
varpstækja og ýmis önnur tæki.
Verkstæðið er i kjallara hússins og er opið frá kl. 8 á morgnanna til kl.
2 á daginn og einnig eftir samkomulagi.
Þeir, sem vilja notfæra sér þjónustu mina, geymi auglýsinguna.
Sjónvarpsviðgerðir Guðmundar,
Fífuhvammsvegi 41, Kópavogi, sími 42244.
Félag
járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 8. jan. 19 75 kl.
8.30 e.h. í Lindarbæ, niðri.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Samningamál
3. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
Notið frístundirnar
Vélritunar-og
hraðritunarskólinn
Vélritun — blindskrift, uppsetning og
frágangur verzlunarbréfa, samninga o.fl.
Úrvals rafmagnsritvélar.
Dag- og kvöldtimar. Upplýsingar og inn-
ritun í síma 21 768.
Hildigunnur Eggertsdóttir — Stórholti 27 — sími
21768.
Gullverðlaunahafi — The Business
Educators' Association of Cariada.