Morgunblaðið - 05.01.1975, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.01.1975, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANUAR 1975 aacBOK 1 dag er sunnudagurinn 5. desember, 5. dagur ársins 1975. Árdegisflóð 1 Reykjavík er kl. 12.06, síðdegisflóð kl. 00.46. Sólarupprás er 1 Reykjavlk kl. 11.14, sólarlag kl. 15.52. A Akureyri er sólarupprás kl. 11.25, sólarlag kl. 15.10. (Heimild: Islandsalmanakið). Lát eigi fót hins hrokafulla koma yfir mig, né hönd óguðlegra hrekja mig burt. (36.12). 16. nóvember gaf séra Jón M. Guðjónsson saman í hjónaband i Akraneskirkju Pálinu Alfreðs- dóttur og Jón Svavarsson. Heimili þeirra verður að Garðabraut 45, Akranesi. (Ljósmyndast. Gunnars Ingimarss.). 16. nóvember gaf séra Jón Þor- varðsson saman I hjónaband í Háteigskirkju Sigrúnu Kjartans- dóttur og Þorbjörn Jónsson. Heimili þeirra verður að Espi- gerði 12, Reykjavík. (Ljósmyndast. Gunnars Ingimars- s.). 16. nóvember gaf séra Ólafur Skúlason saman í hjónaband í Bústaðakirkju Sigrúnu Guðjóns- dóttur og Ásmund Kristinsson. Heimili þeirra verður að Efsta- landi 20, Reykjavík. (Ljósmyndast. Gunnars Ingi- marss.). 16. nóvember gaf Auður Þor- bergsdóttir borgardómari saman í hjónaband Sigrúnu Agnesi Njáls- dóttur og Ingólf Má Magnússon. Heimili þeirra verður að Hraun- tungu 59, Kópavogi. (Ljósmynda- st. Gunnars Ingimarss.) 1KROSSGÁTA Blöð og tímarit Lárétt: 1. lán 6. púka 8. jaðar 10. kvenmannsnafn 12. samfokin fönn 14. hjara 15. samhljóðar 16. ending 17. ráðleggingunni. Lóðrétt: 2. 2 eins 3. reyndi 4. mannsnafn 5. lokaður 7. larfa 9. fatnað 11. gat 13. tímabilið. Lausn á sfðustu krossgátu Lárétt: 1. raska 6. aka 8. ós 10. ár 11. strangi 12. IÓ 13. NM 14. áar 16. narraði Lóðrétt: 2. AA 3. skrafar 4. ká 5. bósinn 7. grimm 9. stór 10. agn 14. ár 15. rá. Fréttabréf um heilbrigðismál, 4. tbl. 22..árg. er komið út. Þar er sagt frá ársfundi sambands krabbameinsfélaga á Norðurlönd- um, sem haldinn var í júní s.l. Þá er í ritinu grein um hjartasjúk- dóma, sóttkveikjur og viðtal við lækni við Radíumspitalann i Ósló um ónæmisviðbrögð líkamans og líkur til að magna þau gegn krabbameini. Þá er grein um sögulega baráttu læknisfræðinn- ar, grein um björgun úr bílslysúm og loks grein um notkun íss til deyfingar og kælingar. FRÉTTIR A gamlársdag voru gefin sarrjan í hjónaband hjá borgardómara Kolbrún Högnadóttir, Móabarði 4, Hafnarfirði, og Garðar Glsla- son, Skaftahlíð 29, Reykjavík. Heimili þeirra verður að Móa- barði 4, Hafnarfirði. Félag austfirzkra kvenna held- ur fund mánudaginn 6. janúar að Hallveigarstöðum, og hefst hann kl. 20.30. Fjallað verður um fjár- öflun vegna snjóflóðanna á Norð- firði. Eyþór Einarsson sýnir lit- skuggamyndir. I.O.G.T. stúkan Framtfðin held- ur fund í Templarahöllinni mánu- daginn 6. janúar kl. 20.30. Vígsla embættismanna og nýrra félaga. Allir eru velkomnir í stúkuna. Æðsti templar verður til viðtals sama dag í Templarahöllinni kl. 5—7, sími 13355. SJAIST með Fótaaðgerðir Fótaaðgerðir aldraðra í Laugar- nessókn er hvern föstudag kl. 9—12 í kjallara kirkjunnar. Upp- lýsingar I síma 34544 og í sfma 34516 á föstudögum kl. 9—12. Samstarfsnefnd söfnunarinnar vegna snjóflóðanna á Neskaupstað kemur sam- an til fundar daglega. Nefndin skipuleggur í aðalatriðum þær fjársafnanir, sem fram fara víða um land, hefur eftirlit með fjárreiðum og endurskoðun og vinnur að undirbúningi fjárveitinga í samráði við nefnd heimamanna á Norðfirði, en sú nefnd hóf störf 22. desember og úthlutaði þegar fyrir jólin um 650 þús. krónum. Endurskoðunarskrifstofa Björns Steffensen og Ara Thorlacius sér um endur- skoðun vegna söfnunarinnar. Myndin hér að ofan var tekin á fundi samstarfsnefndar söfnunarinnar í skrifstofu Rauða krossins í gær. Talið frá vinstri: Hilmar Sigurðsson og Eggert Ásgeirsson frá Rauða krossinum og Rúnar Björnsson og ívar Hannesson frá Norðfirðingafélaginu. — Á myndina vantar Ingva Karl Jóhannesson frá Hjálparstofnun kirkjunnar. Fólk getur greitt inn á gíróreikning Rauða krossins 90003, á giróreikning Norðfirðingafélagsins 90004 og á gíróreikning Hjálparstofnunar kirkjunnar 20003. Auk þess veita dagblöðin viðtöku f járframlögum. ___II . ... að eiga fullt í fangi með að hringja ekki í hann 100 sinnum á dag I BHIDBE HÉR fer á eftir spil frá leik milli Portúgal og Austurríkis í Evrópu- móti fyrir nokkrum árum Noróur. S. K-9-8 H. 6-3 T. 7-Ö-5-4-3-2 L. 6-5 Vestur. S. D-10-6-5-4-2 H. Á-G-9-8 T. A L. D-2 Austur S. A-G-7 H. D-5-4-2 T. K. L. Á-G-10-4-3 Suður S. 3 H. K-10-7 T. D-G-10-9-8 L. K-9-8-7 Viö annað borðið sátu spilararn- ar frá Portúgal A—V og hjá þeim varð lokasögnin 4 hjörtu. Sagn- hafi fékk 10 slagi og vann spilið. Við hitt borðið sátu austurrisku spilararnir A—V og þeir náðu ágætri slemmu á einfaldan hátt: Vestur 1 s 2 s 6 s Austur 21 4 s P Slemma þessi býður upp á mikla möguleika. Eigi norður spaða kóng, þá getur sagnhafi gef- ið einn slag á lauf og losnar síðan við hjörtun heima I laufin f borði. Komi I ljós að suður eigi spaða kóng, þá vinnur sagnhafi slemm- una, ef kóngarnir í hjarta og laufi liggja rétt. Sagnhafi vann spilið og Austurriki fékk 13 stig fyrir spilið, en leiknum lauk með yfir- burðasigri Portúgals, 20 stig gegn mínus 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.