Morgunblaðið - 05.01.1975, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.01.1975, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANUAR 1975 óljoklinu (jamia Bíó SU GÖLDRÓTTA if if Þrátt fyrir að maður hafi séð mörg betri af- sprengi Disney-félagsins, þá er þessi mynd samt sem áður hin ágætasta skemmt- un fyrir unga sem aldna. Fðtboltaleikurinn, þar sem inni teiknimyndina er fléttað lifandi hreyfingum, er svo bráðskemmtilegur, að jafnvel örgustu fýlupokar ættu að veltast um af hlátri. S.V. (SU GÖLDRÓTTA (BEDKNOBS AND BROOM- STICKS) Walt Disney mynd = „Mynd fyrir alla fjölskyld- una“. En það er erfitt að gera svo öllum lfki og þó ýmsir kvikmyndahöfundar hafi stefnt að þessu marki, hafa fæstir náð því. Nema kannski helst Disney, meðan hann var og hét. Að honum látnum stefnir fyrir- tæki hans að sama marki, með misjöfnum árangri. Bedknobs and Broomsticks er þð, þegar best lætur, mynd fyrir alla fjölskyld- una, sérlega í þeim köflum, þar sem teiknimyndum er blandað saman við. Hins vegar er myndin fvið lang- dregin og einn kafli hefði mátt missa sig í heilu lagi. Er það fáránlegur dans- og söngkafli inn f miðri mynd, fullkomlega úr tengslum við það efni, sem verið er að fjalla um. SSP. SÖGULEG BRUÐKAUPS- FERÐ if if if Leikstjðri Elaine May; handrit Neil Simon; aðalhlutverk Charles Grodin, Jeannie Berlin, Sybil Shephard og Eddie Al- bert. Gerð 1972, Bandarfsk frá 20th Century — Fox. Ungur maður giftist, að þvi er virðist f þeim tilgangi einum, að leggja föngulega gyðingsstúlku. Enda er lukkan búin eftir þriðju nóttina. Þá eru þau stödd suður á Florida, f brullaups- reisunni. Og brúðguminn búinn að fá augastað á annarri. Þetta er ærið skemmtileg mynd, sem þrátt fyrir mikið af gyðingabröndurum og bandarfskum húmor, skilur mikla ánægju eftir. Handrit Simons er líka fjörugt og líflegt og leikur þeirra Grodin Berlin og Eddie AI- bert með ágætum. S.V. GILDRAN ★ ★ ★ ★ Þetta er kvik- mynd sem er allra gððra gjalda verð. Hðpur topp- manna f skemmtiiðnaðinum hefur tekið höndum saman um að skapa frábæra afþrey- ingarmynd, og það tekst fullkomlega. Skemmtimynd sem þessa getur hvergi heppnast jafn vel og f HoIIy- wood. Þegar henni tekst upp þá fölna kvikmyndaver og mega öfundast. S.V. GILDRAN (TheSting) ★ ★ ★ ★ Afþreyingarmynd eins og þær gerast bestar f hefðbundnum stfl. Myndin er f fullkomnu samræmi við þann tíðaranda, sem sagan lýsir, bæði að innri gerð og ytri umgjörð. Lfkt og 1936 eru það stjörnurnar, sem draga að sér áhorf- endur, sagan skiptir öllu máli, og áhorfendur bera endalok hetjanna mjög fyrir brjðsti. Arið 1936 hefðu leikararnir getað heitið Clark Gable og Spencer Tracy og ieikstjórinn Frank Capra. Munurinn er bara sá, að í dag heita þeir Paul Newman og Robert Redford — en þeir eru jafnvinsælir og fyrirrennarar þeirra. Leikstjðrinn heitir George Roy Hill og hefur áður sýnt, að hann er vel fær um að meðhöndla þessar tvær stjörnur — f Butch Cassidy and the Sundance Kid. The Sting skartar 7 Ocarsverð- launum, þ.á m. fyrir leik- mynd, sem hún á sannarlega skilið, ef horft er athugulum augum á baksviðið. þar sem ðtrúleg natni hefur verið lögð við smáatriði. SSP. GATSBY HINN MIKLI if if Leikstjðri: Jack Clayton. Framleðandi; David Merrick. Tðnlist: Nelson Riddle; aðalhlut- verk: Robert Redford, Mia Farrow, Bruce Dern, Karen Black, Scott Wilson og Sam Waterstone. Frá Paramount, gerð 1974, bandarísk. GATSBY HINN MIKLI gerist á þriðja áratugnum að auðmannanýlendunni East Egg á Long Island. Einn rík- asti og yngsti meðlimur hennar er Gatsby, dularfull persðna sem býr ríkulegar en flcstir aðrir. Enginn veit hvaðan auðlegð hans kemur, og ýmsar getgátur eru á Iofti. Hitt kemur fljðtlega í ljós, að hann slær um sig í þeim tilgangi einum að endurheimta æskuvinkonu sfna, Daisy. Fyrrum hætti hún við hann sökum fá- tæktar hans, og er nú gift ríkismanni f nágrenninu. Bðk Fitzgeralds er ein af perlum bandarfskra bðk- mennta, og fjallar um hinn amerfska draum, kraft auðs- ins, og það eyðingarvopn sem hann getur snúist f f höndum þeirra sem kunna að beíta valdi hans á réttan Hátt. Þetta kemur þvf miður óljóst fram í myndinni, þar sem meira er lagt uppúr ytri glans en innri átökum. Mia Farrow er misvalin f hlut- verki Daisy, þar hefði Fay Dunaway, t.d. sðmt sér öllu betur. Þá er Redford ðþægi- legur f hlutverki sfnu. Það stafar fyrst og fremst af þvf að hlutverki hans er erfið- lega mðtað. En Sam Water- stone, Scott Wilson og Bruce Dern, standa allir fyrir sínu, enda eru hlutverk þeirra mun hreinlegri. GATSBY HINN MIKLI er ljðmandi falleg á að sjá, hvergi hefur verið til sparað f að gera hana sem besta úr garði og áhorfendur sjá jass- árin frægu Ijðslifandi fyrir sér. En miður hefur tekist til í umskrift meistaraverks Fitzgeralds. Það hefur skolast niður. Snæbjörn Valdimarsson. HÆTTUSTÖRF LÖGREGL- UNNAR if if if Óvenjulega raun- sönn lögreglumynd. Sýnir á viðkvæman hátt hið hættu- sama og vanþakkaða starf lögreglumannsins f stðr- borginni. Þeir Stacy Keach og George C. Scott eru lif- andi f hlutverkum félag- anna og draga upp eftir- minnilega mynd af vináttu. S.V. kvik-H g munck /íoon ] ■ ■ I i SIGUROUR SVERRIR PÁLSSON VALOIMAR JÖRGENSEN SÆBJÖRN VALOIMARSSON (ENTER THE DRAGON) Karate-myndir fara nú eins og eldur f sinu um kvik- myndahús heimsins. Flestar myndir f þessum flokki hafa komið frá Hong Kong og þó kvikmyndagerð þeirra sé ekki á háu stigi, hafa mynd- irnar verið sðttar. Það ætti þvf að vera nokkur trygging á vestrænum myndamarkaði að sýna bandaríska karate- mynd, með meistaranum sjálfum, Bruce Lee. Nú er söguþráðurinn a la James Bond (You Only Live Twice) og umhverfið er af sama toga spunnið, þð að hvorugt sé með sama glæsi- brag. Eitt ber þð að viður- kenna og það er hin frábæra snilli Bruce Lee. Hann er trúlega sá maður, sem hefur náð hvað mestu valdi yfir Ifkama sínum og er ótrúlegt, þegar slíkur maður fellur frá á besta aldri (skráð dauðaorsök: heilablððfall). Ef Lee hefði lifað, hefði hann sennilega orðið næsta súperstjarna kvikmynd- anna, en f það sæti sigldi hann hraðbyri. Upprunalegt nafn Bruce Lee á kínversku var Lee Hsiao-Lung en það útleggst „Iftill dreki“. Þar af er dreg- ið „Dragon" — nafnið á þessa mynd og aðra, sem Lee leikstýrði sjálfur og heitir „Way of the Dragon“. Er það af sumum talin besta myndin, sem hann lék í á sfnum stutta ferli. En þó vinsældir karate-mynda séu miklar þessa stundina og fari jafnvel vaxandi, hafa gæði þeirra ekki verið í sam- ræmi við vinsældirnar, alla vega ekki hingað til. SSP. GÆÐAKALLINN LUPO (Lupo) if if if Lupo er Israelsk gamanmynd, gerð árið 1970. Gæðakallinn Lupo er efna- Iftill en glaðsinna karl, sem á f stöðugum útistöðum við kerfið. Styrkur myndarinn- ar liggur f léttri, almennri ádeilu á nútfmaþjóðfélag, þ.á m. á nokkur sjúkdðms- einkenni, sem er að finna f hvaða velferðarþjððfélagi sem er. Lupo var upphaf lega leikhúsverk, þar sem Yuda Barkan fðr með aðalhlut- verk. 1 myndinni fer hann einnig með hlutverk Lupo og er greinilegt að hann lifir sig mjög inn f persönuna, sem hann gerir hér næsta ðgleymanlega. Við árslok 1971 höfðu um 30% tsraela séð myndina, en Lupo er langvinsælasta mynd, sem þar hefur verið gerð. Leik- stjóri er Menahem Golan, Iftt þekktur f Evrðpu vegna lélegrar dreifingar á myndum frá ísrael. Hann hefur nýlokið við mynd, sem er sú dýrasta, sem gerð hefur verið þar f landi til þessa. Er það söngleikur, sem nefnist „Kazablan“, og hefur hlotið viðurkenningu gagnrýnenda, sem hana hafa séð. SSP. Borgarbio Akureyri SÓLSKIN (Sunshine) if Mynd þessi er ný af nál- inni, gerð f Bandarfkjunum 1973. Sagan er byggð á sann- sögulegum heimildum og þeim jafnvel fylgt út f ystu æsar. Hvers vegna þetta efni er fest á kvikmynd er trú- lega að kenna grððavon höf- undanna, sem treysta á að áhorfendur Love Story komi nú aftur með þurra vasa- klúta til að væta. En þar sem sagan gerist f ofurlftið breyttu umhverfi frá Love Story, er það bætt upp með leikurum, sem lfkjast þeim Ali McGraw og Ryan o’Neal f hvfvetna. Gallinn er bara sá, að þð að þessi atburður, sem myndin lýsir, sé nðgu sorglegur f sjálfu sér, tekst höfundum myndarinnar ekki að ná hinum sanna anda stúlkunnar, sem raun- verulega varð fyrir þessu. Ef til vill vegna þess að hún reyndi að njðta lffsins f skugga dauðans, en höfund- arnir gera sér meiri mat úr skugganum. SSP. Njja Bíó - Keflavík ALLT I LAGI... VINUR (Can be Done ... Amigo) ★ Franskur-ftalskur-spænsk- ur vestri f stfl við hrnar þekktu Trinity- myndir. Aðalieikarinn, Bud Spencer, varð fyrst þekktur fyrir leik sinn í Trinity-myndunum ásamt Terence Hill, en stendur nú einn fyrir persðnunni „Amigo“. Hér er fátt að hafa, sem ekkí hefur sést f sifkum myndum áður, nema sú árátta hetjunnar að setja upp gleraugu, áður en hann lemur menn — og kunna alls ekki að skjðta. SSP. Hafnarbíó ★★★★ Trafic Hér er einhverja bestu jólaskemmtunina að hafa f ár. Tati er f toppformi, og gerir ðspart grfn að sam- skiptum okkar og blikkbelj- unnar. Þá fær „kerfið" háðulega útreið, og að venju er Tati hittinn á að bregða upp hversdagslegum hlut- um upp f nýju Ijósi skop- skyns sfns. Og þrátt fyrir rðlega millikafla, þá er alltaf eitthvað broslegt að ske, ef maður nennir að hafa augu og eyru opin. S.V. Frúarleikfimi Melaskóli mánud. 21 — 21.50 21.50 — 22.40 fimmt. 21 — 21.50 21.50 — 22.40 Kennari Kristjana Jónsdóttir. Upplýsingar í síma 83767. Austurbæjarbarnaskóli mánud. 1 9.50 — 20.40 fimmt. 1 9.50 — 20.40 Kennari Kolfinna Sigurvinsdóttir. Málaskóli # DANSKA, ENSKA, ÞÝZKA FRANSKA, SPÆNSKA, ÍTALSKA OG ÍSLENZKA FYRIR ÚTLENDINGA. % KVÖLDNÁMSKEIÐ. # SÍÐDEGISTÍMAR. % INNRITUN DAGLEGA. # KENNSLA HEFST 13.JANÚAR. # SKÓLINN ER TIL HÚSA í MIÐSTRÆTI 7. # SÍÐASTA INNRITUNARVIKA. Halldórs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.