Morgunblaðið - 18.02.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1975
Fárviðrið um helgina:
„Þakið af hús-
inu kom svíf-
andi til okkar”
„Allt I einu heyrðum við eins
og hvell frá ofsa sprengingu og f
sömu andrá sáum við þakið á 130
fermetra húsi koma svffandi f átt
til okkar, en húsið var f 80 metra
fjarlægð. Við komumst f skot við
húsið en þakið skall niður á hlað-
inu þar sem við höfðum staðið
fáum sekúndum áður. „Við héld-
um satt að segja að þetta væri
okkar sfðasta." Það er Gissur
Tryggvason sýsluskrifari í
Stykkishólmi, sem sagði svo frá, f
samtali við Mbl. f gær en hann
ásamt félaga sfnum var hætt kom-
inn f rokhvellnum s.I. laugardags-
kvöld.
Rokið var mest á vestanverðu
landinu og í samtali við Markús
Einarsson veðurfræðing kom
þessi hvellur mjög skyndilega er
vindurinn rauk upp með suð-
austanátt og rigningu. Vfðast
komst vindhraðinn f 11 vindstig.
Mest tjón á landi varð f Stykkis-
hólmi. Tveir húsbyggjendur, Giss-
ur Tryggvason og Sigurþór
Guðmundsson, fóru um kl. 22 á
laugardagskvöld til þess að huga
að húsum sínum, sem var nær
lokið við að smíða. Hús Sigurþórs
er timburhús, en hús Gissurar
steypt. „Við komum þarna kl.
22.30,“ sagði Gissur, „og lokuðum
gluggum og gættum að öðru laus-
Framhald á bls. 39
Fauk útaf veginum
Patreksfirði 17. feb.
SL. LAUGARDAGSKVÖLD var
sunnan hvassviðri og Bjarni
bóndi Sigurbjörnsson í Hænuvík
var á leið heim til sín frá Patreks-
firði fyrir Patreksfjörðinn og var
kominn í Hafnarmúlann beint á
móti þorpinu. Þar er vegurinn
mjög hættulegur, 200 metra þver-
hnýpi beint niður í fjöru. Bjarni
Friðrik og Guð-
mundur á sterkt
mót í Danmörku?
STÓRMEISTURUNUM Frið-
rik Ölafssyni og Guðmundi
Sigurjónssyni hefur verið
boóið að taka þátt í afar sterku
skákmóti, sem haldið verður í
Kaupmannahöfn í október n.k.
Mót þetta kalla Danir „stór-
meistaramót“ og er stefnt að
því, að þar verði með sem allra
flestir stórmeistarar. Danska
skáksambandið stendur fyrir
mótinu. Hvorki Friðrik né
Guðmundur hafa gefið ákveðið
svar, en þeir hafa báðir mikinn
hug á því að fara saman á þetta
mót.
Sjö sóttu um
sex prestaköll
— Enginn um sex
HINN 15. febrúar s.l. rann út
umsóknarfrestur um 12
prestaköll sem auglýst höfðu
verið laus til umsóknar. Sjö
prestar sóttu um sex af presta-
köllunum en enginn um-
sækjandi var um sex presta-
köll. Þá var einnig auglýst
laust starf aðstoðaræskulýðs-
fulltrúa, og var einn um-
sækjandi um það.
Um Keflavíkurprestakall
var einn umsækjandi, Ölafur
Oddur Jónsson cand. theol.
Framhald á bls. 39
bóndi og annar, sem var á eftir
honum í öðrum bíl, voru komnir
langleiðina fyrir Múlann þegar
vindhnútur kom á bílinn hjá
Bjarna og skipti engum togum, að
bíllinn tókst á loft og útaf vegin-
um.
Maðurinn sem var á eftir hon-
unvvarð ekki var við þetta og hélt
áfram, en mætti stuttu síðar öðr-
um bíl, sem var að koma á móti,
og hafði tal af bílstjóranum en sá
hafði ekki orðið var við Bjarna.
Sneru þeir því við og fóru að
athuga þetta, og sáu þeir þá um-
merki á veginum um að eitthvað
hafði borið við og bíll Bjarna
hafði farið þrjár veltur niður af
veginum og stöðvazt í urð. Bjarna
hafði tekizt að komast út úr bíln-
um sjálfur og er hann ekki mikið
meiddur, en þó nokkuð marinn á
baki, og er talið algert kraftaverk
að hann skyldi hafa lifað þetta af
á þessum stórhættulega stað.
— Páll.
Fulltrúaráð-
ið í Kópavogi
STJÓRN fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna f Kópavogi hefur að
nýju opnað skrifstofu að Borgar-
holtsbraut 6, uppi. Þar verður
alltaf einn úr stjórn fulltrúaráðs-
ins til viðtals. Stjórnin hvetur
fólk til þess að notfæra sér þessa
þjónustu, en sími skrifstofunnar
er 40708. _____
Stjórnmálafræðsla
Heimdallar
STJÓRNMALAFRÆÐSLA Heim-
dallar heldur áfram f kvöld,
þriðjudag. Fjallað verður um
utanríkis- og öryggismál. Leið-
beinandi verður Baldur Guð-
laugsson, cand. jur. Þátttakendur
eru beðnir að mæta stundvfslega í
Miðbæ við Háaleitisbraut kl.
20.30. Nýir þátttakendur eru vel-
komnir. Upplýsingar eru gefnar f
sfma 17102.
Hér á myndinni sést bandarfski þingmaðurinn AI Quie ásamt nokkrum forystumönnum í fslenzkum
stjórnmálum og er óþarft að telja upp nöfn þeirra, en við hlið biskupsins standa forsætisráðherra tslands
og Lars Korvald, fyrrum forsætisráðherra Noregs. Myndin er tekin f hádegisverðarboðinu að hótel Sögu á
sunnudag.
Náinn samstarfsmaður Fords,
Quie þingmaður, hélt fyrirlestur hér
A sunnudag var haldinn
hádegisverðarfundur á vegum
félagsskapar sem nefnist Christ-
ian Responsibility in Public
Affairs og var framkvæmdastjóri
samtakanna Wallace E. Haines
viðstaddur. Félagsskapur þessi er
heldur óformlegur, en nær eink-
um til þingmanna f ýmsum lönd-
um, sem vinna vilja f kristilegum
anda. Vmsir þingmenn frá
Norðurlöndum voru viðstaddir
hádegisverðarfundinn á sunnu-
dag, auk nokkurra annarra gesta,
þ. á m. biskups tslands, hr. Sigur-
björns Einarssonar, sem flutti
bæn, en Gylfi Þ. Gfslason bauð
gestina velkomna. Hann sagði við
Mbl. að hann hefði tekið þátt í
félagsskap þessum fyrir orð Hart-
lings, en þeir eru báðir, eins og
kunnugt er, „drengir sr. Frið-
riks“, eins og sagt er.
Aðalræðumaðurinn í hádegis-
verðarboðinu var bandariski
þingmaðurinn A1 Quie, sem er
repúblikani og situr í Fulltrúa-
deildinni, þar sem hann er einn af
leiðtogum flokks síns og náinn
samstarfsmaður Fords Banda-
ríkjaforseta. Quie þingmaður
lagði áherzlu á fordæmi Krists og
kenningar í ræðu sinni, og þá
einkum náungakærleikann í sam-
skiptum fólks, ekki sfzt stjórn-
málamanna. Kærleiksboðskapur
Krists ætti að ná til starfs þeirra
ekki síður en annarra, og vísa
þeim veginn. Ræða þingmannsins
var mjög persónuleg og nefndi
hann dæmi úr stjórnmálabaráttu
sinni um þau áhrif sem kærleiks-
boðskapur Krists gæti haft til
góðs.
Einu sinni í viku koma hópar
bandarfskra þingmanna saman til
morgunbænar og sagði ræðumað-
ur að þetta ætti við báðar deildir
bandaríska þingsins 30—40 þing-
menn eru f hverjum hóp. En Quie
lagði áherzlu á að kærleiksboð-
skap Krists væri ekki hægt að
læra í neinum stofnunum, hann
yrði að vera eðlilegur þáttur f lífi
hvers einstaklings.
Þess má að lokum geta að Lars
Korvald fyrrverandi forsætisráð-
herra Noregs, þakkaði banda-
rfska þingmanninum komuna til
Islands og sagði að hann hefði
ekki farið erindisleysu, þótt dvöl-
in yrði stutt á íslandi. Þingmaður-
inn var aðeins sólarhring hér á
landi og kom í þeim tilgangi ein-
um að flytja ræðu sína f hádegis-
verðarboðinu.
Bílainnflytjendur:
Gott ef tekst að s
bíla sem
— Ég held að það sé ekki
spurning um það hvort bflainn-
flutningurinn minnki, heldur um
hvort hann stöðvast alveg og þess
vegna held ég að óhætt sé að
breyta fjárlögum rfkisins f sam-
ræmi við það, sagði einn bflainn-
flytjandinn, sem við ræddum við
f gær, eftir að tilkynnt hafði verið
til eru í
um hækkun á innflutningsgjaldi
bifreiða. — Morgunblaðinu barst
í gær eftirfarandi fréttatilkynn-
ing frá f jármálaráðuneytinu:
„Fjármálaráðuneytið hefur
gefið út nýja reglugerð um inn-
flutningsgjald af bifreiðum og
bifhjólum. Samkvæmt henni
hækkar innflutningsgjald af bif-
elja þá
landinu
reiðum og bifhjólum úr 35% f
50% af tollverði.
Af tollverði dráttarbifreiða, al-
menningsbifreiða og stærri vöru-
bifreiða skal nú innheimta 25%
innflutningsgjald í stað 20% áð-
ur. Hækkun þessi kemur til fram-
kvæmda frá og með mánudegin-
Framhald á bls. 39
350 millj. krónur til ríkisins
— vegna hœkkunar á tóhaki og áfengi
FRA og með deginum f gær
hækkaði áfengi f verði, sem nem-
ur að meðaltali 17—25% og tóbak ;
hækkaði um 15% að jafnaði.
Þessar hækkanir stafa að mestu
vegna gengislækkunarinnar f s.I. i
viku, en ennfremur verður álagn-
ingin hækkuð, þannig að þessar
hækkanir munu gefa 350 millj.
kr. til rfkissjóðs á ársgrundvelli.
Þorsteinn Ólafsson, deildarstjóri
í fjármálaráðuneytinu, sagði þeg-
ar við höfðum samband við hann,
að ef þessar vörutegundir hefðu
ekki verið hækkaðar hefðu tekjnr
rfkisins af þeim að sjálfsögðu
minnkað vegna gengislækkunar-
innar og um leið hefði verið talið
nauðsynlegt að afla fjár til rfkis-
sjóðs með þvf að hækka álagn-
ingu á þeim.
Ragnar Jónsson, skrifstofu-
stjóri hjá Áfengis- og tóbaksverzl-
un rikisins, sagði þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann í gær, að
létt vfn hefðu flest hækkað um
17%, en sterk vín um 20%, nema
koníak, líkjörar og kampavín, sem
hækka um 25%.
Rauðvínsflaska, t.d. St.
Emillion, kostaði nú 1260 kr„
Geiswalle kostaði 1090 kr. Wiskey
að meðaltali 2600 kr. flaskan.
Pólskt vodka kostaði nú 2350 kr„
rússneskt 2460 kr. og íslenzkt
Tindavodka 2100 kr. Þá kostaði
ísl. brennivfn 1670 kr. og ákavfti
1730 kr.
Þá sagði Ragnar, að allir vindl-
ingar kostuðu nú orðið 146 kr.
pakkinn og hvað vindla snerti,
þá kostaði 10 stykkja pakki af
London Docks 220 kr. og Agió 150
kr.
Verkefni fyrir 1 til 2 milljarða
ef stálskipin verða smíðuð hér
EINS og Morgunblaðið skýrði frá
á sunnudaginn, hefur skipasmfða-
stöðinni Stálvfk verið boðið að
gera smfðatilboð f 8 flutningaskip
fyrir norsk útgerðarfyrirtæki.
Umboðsaðili hér á landi fyrir
norska útgerðarfyrirtækið er
Frendo-umboðið og sagði fram-
kvæmdastjóri þess, Hreggviður
Jónsson, að hér væri um að ræða
verkefni fyrir 1—2 milljarða fsl.
kr.
Hreggviður sagði, að Frendo-
umboðið hefði s.l. föstudag fengið
staðfesta heimild frá útgerðar-
manninum Fredrik Oddfjell f
Noregi til að bjóða út hér á landi
smíði 8 flutningaskipa, 540 dst.
Tildrög þessa máls væri, að
Frendo-umboðið hefði lagt mikið
kapp á að fá þetta verkefni til
útboðs á tslandi. Þeir hefðu staðið
I þeirri trú og teldu fullvíst, að
íslenzkir skipasmiðir stæðu fylli-
lega jafnfætis öðrum þjóðum
hvað vöruvöndun viðkæmi. Því
vonuðu þeir, að samkeppnishæft
tilboð bærist frá innlendri ski.pa-
smíðastöð og mikil áherzla yrði j
lögð á að samningar tækjust, jafn- J
vel þótt einhver verðmunur yrði
miðað við hagstæðasta boð annars
staðar frá.
Hann sagði ennfremur, að þar
sem tilboðið væri bundið við er-
lendan gjaldeyri gæfi þau auga
leið, að sveiflur á gengi fslenzku
krónunnar hefðu ekki áhrif á
verkið og tryggði skipasmiðjunni
þannig öruggan rekstur. Þetta
væri jafnframt stærsta tilboð,
Framhald á bls. 39
Þannig eiga skipfn að lfta út, sem Stálvfk hefur nú fengið tilboð um að
bjóða f.