Morgunblaðið - 18.02.1975, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.02.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975 17 EFTIR leik UMFN og ÍR ræddu ! Njaróvikingarnir um það (til- kynntu reyndar) að þeir myndu kæra úrslit leiksins. Ástæða þess væri sú, að þegar Gunnar Þorvarðarson var að taka vítaskot rétt fyrir leikslok og staðan var jöfn, þá dæmdu dómarar stig af UMFN þegar hann hitti síðara skotinu og kom UMFN yfir i fyrsta skipti í leiknum. Astæðan var sú að IR hafði beðið um leik- hlé. Helgi Hólm, annar dómari leiksins, heyrði merki tímavarðar um það, og ætlaði að stöðva Gunnar i skotinu en varð of seinn. Gunnar hitti úr skotinu sem fyrr sagði, — dómararnir dæmdu stigið af, — létu IR fá leikhléið — og Gunnar endurtaka skotið. Þá hitti hann ekki. — Njarðvíkingarnir ákváðu siðar að falla frá því að kæra þetta atvik, en nú fór málið að snúast nokkuð við. Jón Otti Ölafsson, aðaldómari leiksins, hefur nú kært Hilmar Hafsteinsson þjálfara UMFN fyrir aganefnd K.K.R A SUNNUDAGINN léku IS og Víkingur f úrslitakeppni Islands- mótsins f blaki og fór leikurinn fram f íþróttahúsi Kennarahá- skólans. IS sigraði f leiknum 3—1 en f fjórðu hrinunni mátti vart á milli sjá hvor hefði betur þvf Vfkingur komst í 14—13 og hafði boltann, en IS vann þrjú sfðustu stigin fyrir mikinn klaufaskap Vfkinga. — Vikingar byrjuðu mjög illa og fyrirliða liðsins urðu á mikil mistök sem ef til vill kostuðu sigur I hrinunni, en hann gaf upp ranga sendiröð og fékkst því ekki breytt. IS tók strax forystu, en Víkingar jöfnuðu 3—3. Siðan komst IS í 11—3. Á þessum kafla var sókn Vikings broddlaus en hávörn IS var mjög góð en aftur slæm hjá Vikingum. IS sigraði nokkuð auðveldlega i hrinunni 15—9. Víkingar komu mun ákveðnari til leiks í annarri hrinu og var nú sókn þeirra beittari og hávörnin þéttari og komust þeir i 6—0. tS var með tvo af sínum sterkustu mönnum fyrir utan en er Vík- ingar voru komnir i 11—1 komu þeir inná, en Víkingar héldu enn áfram og er staðan var orðin 13—1 vann IS loks boltann. Mun- urinn var of mikill til að IS gæti unnið hann upp og sigraði Vik- ingur auðveldlega 15—6. Uppspil hjá stúdentum var nokkuð gott en skellarar voru mistækir i þessari hrinu. Hjá Víkingi var uppspil einna skást í þessari hrinu en í heildina var það ekki nógú gott. I þriðju hrinu var alger ein- stefna af hálfu IS. Hávörn Vik- inga var afspyrnu léleg og náði fáum boltum og uppspil ónákvæmt og sóknin ekki beitt. IS sigraði því auðveldlega í hrinunni 15—4 og áttu Helgi Harðarson og Friðrik Guðmundsson mjög góðan leik. I þessari hrinu henti það óhapp Gest Bárðarson að hann fékk högg á höfuðið frá samherja og hafði það sitt að segja um leik Víkinga að missa sinn bezta mann útaf. Staðan var nú 2—1 fyrir IS og þurfti Vikingur að vinna næstu hrinu til að úrslitahrina yrði leik- in. Víkingar léku því upp á sigur og voru nálægt honum. Víkingar tóku forystu 6—4, en ÍS komst siðan yfir 9—7. Víkingar jöfnuðu 9—9. Þessar siðustu mínútur leiksins skiptust liðin á forystu og var leikurinn æsi spennandi, en er staðan var 14—13 fyrir Víking og Vikingar með boltann sáu menn fram á úrslitahrinu. Með fádæma klaufaskap glopruðu Vik- ingar sigrinum úr höndunum á sér og IS átti síðasta orðið og vann hrinuna 16—14. Það sem úrslitum réð i þessum leik var hávörnin sem var mjög góð hjá IS, enda leikmenn liðsins flestir hávaxnir og laumur Vík- inga tókust ekki vel þar sem Stúdentar „dekkuðu“ vel upp. Hávörn Víkinga var léleg og „baggerslag" var oft slæmt á uppspilara og þar af ieiðandi vont uppspil, sem var ónákvæmt og of langt frá netinu. — Beztu leik- FRJALSIÞRÓTTAFOLK lét mik- ið að sér kveða um síðustu helgi, en þá voru háð mörg innanhúss- mót viða í heiminum. Af þeim afrekum sem unnin voru, ber heimsmet Bandaríkjamannsins Dwight Stones í hástökki hæst, en hann bætti eigið met um 1 sm með þvi að stökkva 2,27 metra. A-Þýzka stúlkan Annelie Ehr- hardt tvibætti heimsmetið á 50 yarda grindahlaupi, hljóp fyrst á 6,3 sek. og síðan á 6,2 sek. Var það á móti I Toronto sem hún vann menn IS voru Friðrik Guðmunds- son og Helgi Harðarson, einnig áttu Halldór Torfason og Halldór Jónsson ágætan leik. Hjá Víkingi voru Gestur Bárðarson og Baldvin Kristjánsson beztir, Benedikt, Elias, og Páll léku langt undir getu, en Tómas Tómasson komst þokkalega frá leiknum. Dómarar leiksins, þeir Guðmundur Pálsson og Valdemar Jónasson, dæmdu þokkalega en voru ekki nógu strangir og kom það nokkuð jafnt niður á báðum liðum. Áhorfendur voru með flesta móti og létu vel i sér heyra. þetta afrek, en á sama móti setti Francie Larrieu frá Bandarikj- unum nýtt heimsmet í 1500 metra hlaupi kvenna innanhúss með því að hlaupa á 4:10,4 mín. Eldra metið átti Tonka Petrova frá Búlgaríu og var það 4:11,0 min. A móti sem fram fór í Prag bætti svo Helena Fibingerova frá Tékkóslóvakíu heimsmetið í kúluvarpi kvenna innanhúss með því að varpa 21,13 metra. Sjálf átti hún eldra heimsmetið sem var 20,75 metrar. Heimsmet Jón Otti tjáði Mbl. að ástæðan fyrir þeirri kæru væri sú, að Hilmar hefði eftir leikinn veitzt að sér og haft í frammi við sig niðrandi og svívirðileg ummæli. Þetta er í annað skipti í vetur að Hilmar Hafsteinsson er kærður fyrir aganefnd, i fyrra skipti fékk hann þá refsingu að mega ekki stjórna liði sinu í næsta leik. — Hvað gerir aganefnd nú? gk. Barátta í leik Víkings og IS. Vfkingsleikmaðurinn er Gestur Bárðarson, en IS-Ieikmennirnir: Indriði Arnórsson (nr. 11) og Helgi Harðarson (nr. 9). Jóhannes meðþrennu JÓHANNES Eðvaldsson lék sinn fyrsta leik með danska 1. deildar liðinu Holbæk um helgina. Var þar um að ræða æfingaleik við sænska 1. deildar liðið Halmstad. Leiknum lauk með yfirburðasigri danska liðsins, 4:1, og átti Jó- hannes stærstan hlut þar að máli með afburðagóðum leik slnum. Lék hann stöðu miðherja I leikn- um, og réð vörn sænska liðsins litið við hann. Skoraði Jóhannes þrjú af mörkum Holbæk-liðsins. og átti að auki nokkur önnur góð tækifæri. Dönsk blöð hafa að undanförnu fjallað töluvert um komu Jó- hannesar til Holbæk og eru á einu máli um að hann muni styrkja liðið það mikið að það sé liklegasti kandidatinn i dönsku 1. deildar keppninni i sumar. Segja þau furðulegt hvað þessi stóri og þungi leikmaður hafi yfir mikilli tækni og útsjónarsemi að ráða. IS BAR SIGIJRORÐ AF VIKING- UM í SKÍMMTILEGUM LEIK JUoraunliíntiÍLi vLnranini %_____________ Þiálfari IIMFN kærður til aganefndar Þráínn varð meistari í 4 greinum af 5 Þráinn Hafsteinsson STULKNA og drengjameistara- mót Islands innanhúss fór fram í lþróttahúsinu Ásgarði i Garða- hreppi s.l. laugardag. Var það jafnframt fyrsta frjálsíþrótta- mótið sem fram fer f því húsi, og verður ekki annað sagt en að það hafi heppnast með ágætum. All- góð þátttaka var i mótinu og afrek unga fólksins f sumum greinum hin athyglisverðasta. Maður mótsins var tvímæla- laust hinn bráðefnilegi Selfyss- ingur Þráinn Hafsteinsson, en hann sigraði í fjórum af fimm greinum drengja sem keppt var i og hreppti þriðja sætið i fimmtu greininni. Þarna er óvenjulega mikið efni á ferðinni, og er ekki að efa að Þráinn mun ná langt er tímar líða. Litlu munaði t.d. að hann setti nýtt Skarphéðinsmet í hástökki í keppni þessari, er hann reyndi við 1,82 metrá, én hann félldi naumlega í tilraunum sín- um. Tveir gestir voru í hástökks- keppninni, UMSK-mennirnir Karl Wést Fredriksen og Haf- steinn Jóhannesson. Virtist Karl ekki finna sig í keppninni, og stökk aðeins 1.82 metra, en Haf- steinn vann hins vegar ágæt afrek með þvi að stökkva 1,92 metra. Helztu úrslit i mótinu, urðu sem hér segir: DRENGIR: Hástökk metr. Þráinn Hafsteinsson, HSK 1,75 Ólafur Óskarsson, A 1,70 Guðmundur R. Guðmundsson, FH 1,70 Stefán Halldórsson, IR 1,70 Sigurður Sigurðsson, A 1,60 Ágúst Agústsson, IR 1,60 Langstökk án atrennu: metr. Helgi Jónsson, FH 2,94 Þorvaldur Þórsson, UMSS 2,93 Þráinn Hafsteinsson, HSK 2,84 Stefán Gislason, HSS 2,77 Guðmundur R. Guðmundsson, FH 2,70 Einar P. Guðmundsson, FH 2,65 Þrístökk án atrennu: metr. Þráinn Hafsteinsson, HSK 8.78 Helgi Jónsson, FH 8,69 Þorvaldur Þórsson, UMSS 8,66 Guðmundur R. Guðmundsson, FH 8,31 Stefán Gislason, HSS 8,18 Gunnar Þ. Sigurðsson, FH 8,08 Hástökk án atrennu: metr. Þráinn Hafsteinsson, HSK 1,40 Guðmundur R. Guðmundsson, FH 1,40 Ólafur Óskarsson, A 1,25 Gunnar Þ. Sigurðsson, FH 1,25 Ágúst Ágústsson, ÍR 1,25 Stefán Halldórsson, IR 1,25 Kúluvarp: Þráinn Hafsteinsson, HSK 14,8Ö Ásgeir Þ. Eiriksson, IR 13,91 Óskar Reykdal, HSK 12,10 Vésteinn Hafsteinsson, HSK 11,96 Sigurður P. Sigmundsson, FH9,98 Stefán Halldórsson, ÍR 9,90 STÚLKUR: Langstökk án atrennu: Margrét Grétarsdóttir, Á 2,42 Oddný Arnadóttir, UNÞ 2,39 Ásta B. Gunnlaugsdóttir, ÍR 2,33 Anna Haraldsdóttir, FH 2,21 Hildur Harðardóttir, FH 2,21 Lára Halldórsdóttir, FH 2,19 Hástökk: Þórdís Gisladóttir, IR 1,50 Björk Eiriksdóttir, ÍR 1,50 Lára Halldórsdóttir, h'H 1,45 Hildur Harðardóttir, í'H 1,45 Anna Haraldsdóttir, FH 1,45 Ásta B. Gunnlaugsdóttir, ÍR 1,35

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.