Morgunblaðið - 18.02.1975, Page 31

Morgunblaðið - 18.02.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1975 31 árum iðkaði Harry knattspyrnu og lék þá með Fram og átti um árabil sæti I stjórn þess félags. Hér að framan hefur verið gerð nokkur grein fyrir störfum Harrys Frederiksen og hefur þá verið stiklað á stóru. Harry var einn af þeim starfsmönnum Sam- bandsins, er lengstan hafði starfs- aldur. Hann mundi tímana tvenna, sendisveinsstarf 1927 á aðalskrifstofu er taldi aðeins 15 starfsmenn, og Sambandið i dag með hátt á annað þúsund starfs- menn og yfir 40 þúsund félags- rhenn kaupfélaganna að bak- hjalli, stóriðnað og fjölbreytta starfsemi: samvinnuhreyfinguna í dag sem eina af stoðum efna- hagslífs þjóðarinnar. Harry Frederiksen mundi timana tvenna, — hann var virkur liðs- maður í hinni miklu uppbyggingu s.l. hálfa öld. Starfssaga og saga Sambands- ins segir þó ekki nema hluta af ævisögu Harry Frederiksen. Það er önnur hlið er snýr að einkalífi og fjölskyldu enda þótt oft tvinn- ist saman starf og einkalíf manna. Harry var gæfumaður i einka- lífi. I Sambandinu kynntist hann fallegri og góðri konu, Margréti, kjördóttur Jóns bónda að Saurbæ i Vatnsdal og siðar þingvarðar Hjartarsonar. Margrét starfaði um árabii á skrifstofu Sambands- ins í Reykjavik og naut þar trausts og virðingar fyrir dugnað í störfum. Þau Margrét og Harry giftu sig 19. april 1945. Var það mikill gæfudagur i lifi þeirra beggja. Harry eignaðist framúrskarandi góða og velgerða konu, perlu að manni og ekki er of sagt að Margrét beri nafn með réttu. Þau Margrét og Harry voru mjög sam- rýnd enda hjónaband þeirra að sama skapi farsælt. Þau eignuð- ust tvö börn, Ólaf og Guðrúnu, sem gift er Halldóri Sigurðssyni, endurskoðunarnema og eiga þau 8 mánaða gamla dóttur, Eddu Hrund. Litla dótturdóttirin var mikið augnayndi af afa sins og nú í sorg fjölskyldunnar er hún stóri sólargeislinn. Það verða margir sem sakna Harrys Frederiksen, bæði hér heima og erlendis. Samstarfs- menn hans í Sambandinu minnast vinar og góðs félaga. I fram- kvæmdastjórn Sambandsins er nú autt sæti. Hópurinn þar hefur undanfarin ár verið sérstaklega samstæður, að mínu mati. Það eru einhver ósýnileg bönd vináttu, sem tengja menn þar saman. Þótt skoðanir geti verið skiptar, þegar mál þarf að brjóta til mergjar eða ráða fram úr stórum vandamál- um, er fyrir hendi sú tilfinning að menn séu I sama báti, menn beri sameiginlea mikla ábyrgð, ábyrgð á framtíð Sambandsins og sam- vinnuhreyfingarinnar. Það er mikilsvert fyrir Sambandið að þessi samábyrgð sé fyrir hendi, þvi hún leggur grundvöll að sterkri framkvæmdastjórn. Þá tel ég, að vissar tilfinningar sem við í framkvæmdastjórn Sambandsins berum gagnvart hver öðrum eigi dýpri rætur í hjörtum okkar en við gerum okkur grein fyrir dags daglega og tengi okkur enn sterk- ari vináttuböndum. Þess vegna verður söknuðurinn meiri, þegar félagi fellur frá. Minningin um Harry Frederiksen er minning um góðan dreng. Hann hafði djúpan skilning á þeim hugsjón- um sem samvinnustefnan byggist á. Hann var gæddur persónuleika, sem bjó yfir sérstakri fágun og prúómennsku, hógværð en glað- værð og hann átti gott með að blanda geði vió fólk, þótt hlé- drægur væri að eðlisfari. Harry var sérlega iðjusamur og skyldu- rækni og samviskusemi vorú föru- nautar hans. Mér eru sérstaklega minnisstæóir þrír mannkostir Harrys: Að vera ætið tilbúinn að hlýða kalli, þegar óskað var eftir að hann tæki að sér ákveðin störf eða leysti ákveðin verkefni; hve verkefni voru fljótt af hendi leyst; og hve pössunarsamur hann var í starfi. Þessir mannkostir, sem hér hafa verið nefndir og aðrir ónefndir liggja að baki þeirrar giftu, sém Harry átti til að bera i störfum. Hann gegndi mjög erfiðu og umfangsmiklu starfi innan Sambandsins en bar gæfu til þess að leysa það farsællega af hendi. Slíkan dóm hlýtur Harry Frederiksen að fá þegar hann er allur. Ég vil að lokum flytja Harry þakkir frá Sambandinu og sam- vinnuhreyfingunni fyrir hálfrar aldar starfið. Ég þakka honum persónulega vináttu og góð kynni um nær 30 ára skeið. Megi blessun guðs fylgja hon- um í nýjum heimi, þar sem lffsins ljós lýsir á eilífðarbraut. Við hjónin sendum Margréti konu Harrys, börnunum, tengda- syni og litlu dótturdótturinni og öðrum ættingjum, okkar innileg- ustu samúðarkveójur. Guð gefi ykkur styrk i sorg. Erlendur Einarsson Kveðja frá félögum f fram- kvæmdastjórn Sambands fsl. samvinnufélaga Vinur okkar og samherji, Harry O. Frederiksen, er hniginn að velli, mitt i önn dagsins. Miðvikudaginn 29. janúar sat hann með okkur fund i fram- kvæmdastjórninni, glaður og reif- ur. Þegar við hittumst næst, réttri viku síðar, var sæti hans autt. Hins vegar á blaðið, þar sem hann hafði sjálfur ritað fundargerð sið- asta fundar.var nú færð til bókar hinsta kveðja okkar til látins fé- laga og vinar. Engum okkar duldist, að hér var flett blaði i tvíþættri merk- ingu þeirra orða. Um leió og Harry Frederiksen skrifaði nafn sitt undir siðustu fundargerðina, sem hann færði i letur sem ritari framkvæmdastjórnar Sambands- ins, var á enda runninn starfsfer- ill, sem var ekki aðeins óvenju langur, heldur og gæddur óvenju- legri farsæld. Hann gekk ungur í þjónustu Sambandsins og vann því síðan til hinsta dags af fágætri trúmennsku. Merku framlagi hans i þágu islenskra samvinnufé- laga og islensks atvinnulífs munu gerð skil á öðrum vettvangi. Handan við fátæklegan búning þessara kveðjuorða leynast hugs- anir og tilfinningar sem slungnar eru mörgum þáttum. Hinn gild- asti þeirra er tengdur endurminn- ingum um persónuleg samskipti okkar við Harry Frederiksen. Hvar sem spor hans lágu, gat ekki hjá þvi farið, að ljúfmennska hans og fáguð framkoma gæddu umhverfið hió næsta honum sér- stakri hlýju. Þegar hann nú er horfinn af sjónarsviðinu, erum við allir að fátækari. Hafi hann að leióarlokum heila þökk okkar allra fyrir langa og farsæla sam- fylgd. Eiginkonu hans, börnum og öðr- um ættingjum vottum við dýpstu samúð. A þessum sorgarinnar degi biðjum við þau að minnast þess, að „minningin lifir, þótt maðurinn deyi, björt eins og sól á sumarvegi." Agnar Tryggvason Guðjón B. Ólafsson Hjalti Pálsson Hjörtur Hjartar Jón Þór Jóhannsson Sigurður Markússon. Fréttin um hið skyndilega fráfall Harry Frederiksen fram- kvæmdastjóra, kom sem reiðar- slag yfir samstarfsmenn hans i Vinnumálasambandi samvinnu- félaganna. Harry Frederiksen sat í stjórn Vinnumálasambandsins frá upp- hafi, eða frá árinu 1951. Var hann varaformaður fyrstu árin, en tók við formennsku af Vilhjálmi Þór, fyrrverandi forstjóra S.I.S., árið 1955. Starfaði hann sem stjórnar- formaður, utan 2 ár vegna starfa hans erlendis, allt til ársins 1972 að hann sagði af sér formennsku. Hafði hann þá starfað í stórninni í 21 ár og þar af 15 ár sem formað- ur. Síðustu árin og allt til dauða- dags sat hann í stjórn Vinnumála- sambandsins sem varaformaður fyrir sérstaka beiðni meðstjórnar- manna sinna, sem óskuðu eftir þvf að samtökin fengju enn um sinn að njóta mikillar reynslu hans á vinnumálasviðinu. 1 starfi sínu sem formaður Vinnumálasambands Samvinnu- félaganna ávann Harry Frederik- sen sér sérstakt traust og virðingu hvort sem var meðal félaga Vinnumálasambandsins eða hinna ýmsu forystumanna verka- lýðsfélaganna. I langvinnum og erfiðum samningsgerðum á vinnumarkaðinum vann hann mikið og óeigingjarnt starf fyrir samtök sín og ófáar eru þær vöku- næturnar, sem hann þannig bætti við annars sinn langa vinnudag, sem framkvæmdastjóri Iðnaðar- deildar S.I.S. Stendur Vinnumála- sambandið i þakkarskuld við hann fyrir trausta forystu og vel unnin störf. Við, sem störfuðum með Harry Frederiksen i Vinnumálasam- bandinu, minnumst hans fyrst og fremst sem góðs drengs, sem mannbætandi er að hafa átt sam- leið með. Við kveðjum hann hinstu kveðju með virðingu og þökk og sendum eiginkonu hans og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Stjórn og framkvæmdastjóri Vinnumálasambands samvinnufélaganna. Kveðja frá Knattspyrnufélag- inu Fram. Harry O. Frederiksen var einn þeirra, sem tóku þátt í að endur- reisa Fram seinast á þriðja ára- tugnum. Þá hafði félagið verið í mikilli lægt um nokkurt skeið. Svo öflugt var þetta átak, að það var likt og nýir vindar blésu á brott deyfð og drunga. Og nú voru segl þanin til djarflegrar sigling- ar. Með öllu er óvíst, að Fram væri við lýði í dag, ef átak þessara manna hefði ekki komið til á réttu augnabliki. Þess vegna standa Framarar i mikilli þakkar- skuld við Harry O. Frederiksen og þá mætu menn, sem reistu félagið við og héldu merki þess hátt á loft á næstu árum. Harry O. Frederiksen var ekki aðeins virkur i félagsstörfum heldur einn af beztu kappliðs- mönnum Fram á þessu tímabili. Hann lék með meistaraflokki og jafnfram gengdi hann störfum i stjórn Fram, ýmist sem ritari eða gjaldkeri, unz hann réðst til starfa erlendis fyrir Samband is- lenzkra samvinnufélaga 1937. Þá rofnaði samband hans við félagið, þótt hann fylgdist ætið með því úr fjarlægð. Það var svo fyrir aðeins þremur árum, að Harry kom til starfa aftur hjá Fram. Og aftur tók hann þátt í endurreisnarstarfi. Full- trúaráð félagsins var endurvakið, og vart var hægt að hugsa sér ágætari mann en Harry til að veita þvi forystu. Var hann kjör- inn formaður fulltrúaráðsins og gegndi þvi starfi til dauðadags. Fyrir störf sin að iþróttamálum hlaut hann margvíslegan heiður, m.a. var hann sæmdur gullmerki ISI. Nú er skarð fyrir skildi. Af sjónarsviðinu er horfinn góður og gegn félagi, sem mikið traust var borið til. Nýlega hafði hann boðað stjórn félagsins á sinn fund til að ræða fjáröflunarleiðir vegna þeirra byggingaframkvæmda, sem félagið stendur i um þessar mundir. 1 þeim efnum var hann stórhuga. Það kemur nú i hlut annarra að taka við merkinu. En áreiðanlega verður áfram unnið í anda Harrys O. Frederiksen. Um léið og stjórn Knattspyrnu- félagsins Fram þakkar þessum látan forystumanni ómetanlega störf og órofa tryggð við félagið, er fjölskyldu hans vottuð dýpsta samúð. Alfreð Þorsteinsson. Sú harmafregn barst mér sunnudaginn 2. febrúar, að Harry Frederiksen, framkv.stjóri Iðnað- ardeildar Sambands ísl. sam- vinnufélaga, hefði látist þá um morguninn, nýkominn i fri suður í lönd. Harry Frederiksen var fæddur i Reykjavík 15. marz 1913 og því aðeins 61 árs, er hann lést. For- eldrar hans voru hjónin Age M.C. Frederiksen og Margrét Halldórs- dóttir. Hann byrjaði snemma að vinna, seldi blöð í Reykjavík, var smali í sveit, fór á síldveiðar fyrir Norð- urlandi með föður sínum, var sendill o.s.frv. Hann var heldur ekki gamall, þegar hann byrjaði að vinna hjá S.I.S., aðeins 14 ára. Það vantaði þvi ekki mikið á, að hann hefði unnið 50 ár fyrir Sam- vinnuhreyfinguna. A þessum langa starfsaldri var Harry búinn að kynnast mörgum störfum Sam- bandsins, bæði innanlands og ut- an, þannig að fáir munu hafa þekkt starfsemi þess betur. Þegar Iðnaðardeild Sambands- ins var stofnuð, var Harry falið að byggja hana upp og stjórna henni. Var hann framkvæmdastjóri hennar frá upphfi til dánardags. Þær voru orðnar margar ferð- irnar, sem Harry fór milli Reykja- vikur og Akureyrar frá þvi að Iðnaðardeildin var stofnuð, en á Akureyri eru verksmiðjur S.I.S. aðallega staðsettar. Undir stjórn Harrys hafa verksmiðjurnar margfaldast að stærð og afköst- um. Allar hafa þær verið endur- byggðar á timabilinu og flestar frá grunni, og er hver þeirra stærst sinnar tegundar á Islandi. Leiðir okkar Harrys lágu fyrst saman í árslok 1949, er ég réðst til starfa hjá honum i Iðnaðardeild- inni. Alla tið siðan höfugi við haft mikil samskipti og ævinlega góð. Harry Frederiksen var einstak- lega samviskusamur og vandvirk- ur við öll sín störf. Hann var mikill íþróttamaður á yngri árum og unnandi íþróttamála til hinsta dags. Hann var sívinnandi, enda störfum hlaðinn eins og gefur að skilja. Harry kunni þá list að segja frá. Oft, þegar hann kom norður til okkar á Akureyri, var sest niður að loknu dagsverki og spjallað saman. Þá var gaman og fróðlegt að heyra hann segja frá ýmsu, sem á dagana hafði drifið. Væri óskandi, að margt af því væri til prentað, þar sem lýsingar hans voru bæði lifandi og ýtarleg- ar. Harry Frederiksen var kvæntur Margréti Jónsdóttur, Hjartarson- ar frá Saurbæ í Vatnsdal, mikilli ágætiskonu. Voru þau hjónin mjög samhent um að skapa fallegt menningarheimili, þar sem gott var að koma, enda bæði gestrisin og elskuleg. Börn þeirra eru tvö, Ólafur útvarpsvirki og Guðrún, gift Halldóri Sigurðssyni, endur- skoðenda. Nú er Harry genginn fyrir ald- ur fram. Enginn getur um það dæmt, hvað bugar heilsu manna, en sennilegt er, að ofreynsla hafi átt þar mikinn hlut að. Abyrgðarþungi erilsams starfs, samviskusemi og ósérhlífni, sem engin takmörk eru sett, geta bug- að heilsu hvers manns. En þótt ævi Harrys Frederik- sens yrði styttri en maður hefði vænst og óskað, var hann gæfu- maður. Honum hlotnaðist sú gæfa að eiga góða konu og börn og leysa af hendi mikið og vandasamt lífs- starf og unna þvi starfi sinu og ganga að þvi af alúð og dugnaði. Við Norðanmenn kveðjum Harry Frederiksen með miklum söknuði og virðingu. Fjölskylda min og ég vottum frú Margréti og börnunum þeirra okkar innilegustu samúð. Hjörtur Eirlksson. I dag þriðjudaginn 18. febrúar, fer fram frá Dómkirkjunni útför Harry Frederiksen, en það var siðla sunnudagskvöldsins 2. febr. sl., að okkur hjónunum barst sú sorgarfregn að minn kæri frændi og húsbóndi hefði orðið bráð- kvaddur suður á Kanaríeyjum þá fyrr um daginn. Fljótt skiptast veður i lofti og var þetta óvænt harmþrungin fregn, en tveim dögum áður höfð- um við kvaðst á skrifstofunni hans og Harry var svo hress og ánægður yfir þvi að vera nú áð fara í þriggja vikna fri til sólar- landa með konu sinni og syni. Harry Frederiksen var fæddur 15. marz 1913 i Reykjavik, en for- eldrar hans voru Aage C. Frederiksen vélstjóri og Margrét Halldórsdóttir Frederiksen, en Harry var næstelstur af sjö systkinum, sex bræðrum og einni systur. Harry hóf ungur að árum störf hjá Sambandi Isl. samvinnufélaga og helgaði hann samvinnuhreyf- ingunni alla sína starfskrafta um nær 50 ára skeið. Innan sam- vinnuhreyfingarinnar og út á við gegndi hann mörgum ábyrgðar- og trúnaðarstörfum sem ég ætla ekki að rekja hér, þar sem það verður gert ítarlega af öðrum. Þau eru orðin nokkur mörg árin sem ég hefi starfað með Harry í Iðnaðardeild Sambandsins og minnist ég nú þessa ágæta sam- starfs með söknuði og þakklæti. Harry var góður og réttsýnn hús- bóndi, enda virtur af sinu sam- starfsfólki. Hann var ákveðinn i skoðunum og vissi hvernig hann vildi láta vinna og standa að hin- um ýmsu verkefnum fyrir sína deild, jafnframt því sem hann var ætið tilbúinn til að hlusta á tillög- ur og rök sinna samstarfsmanna ef svo bar undir. Þeir urðu oft langir vinnudag- arnir hjá Harry, en starf hans var geysi umfangsmikið og erilsamt. Margar urðu ferðirnar hans til Akureyrar til þess að sinna mál- efnum verksmiðja Sambandsins þar, en á Akureyri er íslenzkur samvinnuiðnaður hvað blómleg- astur. Oft fór Harry til útlanda i viðskiptaerindum og mætti þar sérstaklega nefna margar ferðir hans til Moskvu i sambandi við ullarvörusamninga fyrir Gefjun og Heklu og til Finnlands vegna sölusamninga á skinnum og skinnavöru fyrir Iðunni og Heklu. Fyrir utan dagleg stjórnunarstörf á skrifstofu sinni hér, þá voru undir yfirstjórn hans hér i Reykjavík fyrirtækin Fataverk- smiðjan Gefjun, Verzlunin Gefj- un, Lager Iðnaðardeildar og Jöt- unn hf., og svo Verksmiðjan Hött- ur i Borgarnesi. Margvísleg nefndar- og frundarstörf tóku einnig drjúgan tima í hans dag- lega starfi. Harry var mikið fyrir iþróttir á yngri árum og starfaði mikið fyrir félag sitt Fram og gegndi þar trúnaðarstörfum til æviloka. Er honum gafst tími til frá sínum störfum, þá hafði hann yndi af að geta komist í laxveiði eöa útreiða- túr, en hann og sonur hans áttu saman hina ágætustu gæðinga. Harry átti þvi láni að fagna að vera kvæntur góðri konu, Mar- gréti Jónsdóttur Frederiksen, sem stóð við hlið hans i starfi og sá um hið myndarlega heimili þeirra. Börn þeirra eru tvö: Ölaf- ur sem er útvarpsvirki og Guðrún sem er húsfreyja og kvænt Hall- dóri Sigurðssyni. Dóttir Guðrúnar og Halldórs er Erla Hrund á fyrsta ári og var hún mikill auga- steinn afa sins. Ég hef verið beðinn um fyrir hönd starfsfólks Iðnaðardeildar- innar að skila hinztu kveðjum og láta i ljós þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast og starfa með svo ágætum heiðursmanni sem Harry var. Aó leiðarlokum þakka ég Harry góða samvinnuogvináttu viðmig og mitt fólk, og við hjónin send- um konu hans, börnum og öðru venzlafólki okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja þau á sorgar- stundu. Steinar Magnússon. Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.