Morgunblaðið - 22.03.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1975
3
Myndirnar, sem birtast
hér á síðunni, tók Ólafur
K. Magnússon, ljós-
myndari Morgunblaðsins,
er verið var að bjarga skip-
verjum D.P. Finn í gær.
Á myndinni hér til
vinstri sést er gúmmf-
björgunarbátinn rekur
upp í fjöruna. Björgunar-
sveitarmenn hörfa undan
brotinu, sem kemur. Ör-
skömmu seinna náðu þeir
að kasta línu út í bátinn og
voru fljótir að draga hann
á þurrt. Skipverjar togar-
ans höfðu reyndar verið
margvaraðir við aó nota
gúmmíbátana, en þeir
sinntu því engu.
Neðsta myndin til
vinstri sýnir fyrsta mann-
inn, þar sem hann er kom-
inn í björgunarstólinn og
er hann að fara út yfir
brún hvalbaksins.
Á mið myndinni sést
D.P. Finn á strandstað.
Fremst sést mastur og
toggálgi brezka togarans
Grimsby Town, sem
strandaði á þessum stað ár-
ið 1946.
Myndin hér undir sýnir
einn skipverja togarans á
leið til lands í björgunar-
stólnum.
Strand
D. P. Finn