Morgunblaðið - 22.03.1975, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.03.1975, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1975 31 IÞROTTAFRETTIBIU0RGUMBLAÐ8IN8 Tveir sigrar LANDSLEIKIRNIR við Dani um helgina verða 16. og 17. lands- leikir þjóðanna í handknattleik. Fyrsti leikurinn fór fram árið 1 950. en þá má segja að íslenzk- ur handknattleikur hafi verið á bernskuskeiði og úrslitin þvt eftir þvt. Danirnir sigruðu með 14 marka mun: 20:6. Síðan hefur svo heldur betur dregið saman og flestir leikir liðanna verið mjög jafnir og tvísýnir. Fyrsti sigurinn yfir Dönum vannst t mjög eftirminnilegum leik sem fram fór i Laugardals- höllinni 7.4. 1968 og aftur unnu Íslendingar t Höllinni 4.3. 1971. Einu sinni hefur orðið jafntefli, I leik sem fram fór ! Randers i Danmörku 1973. Alla hina leik- ina hafa Danir unnið, og óneitan- lega væri það töluver^ uppreisn fyrir íslenzkan handknattleik ef sigur fengist í báðum leikjunum að þessu sinni. Úrslit í leikjum íslands og Dan- merkur til þessa hafa orðið sem hér segir: 1950: Danmörk — Island 20:6 1959: Danmörk — Ísland23:16 1961: Danmörk — island24:13 1961: Danmörk — Ísland14:13 1966: Danmörk — island17:12 1966: ísland — Danmörk20:23 1968: Ísland — Danmörk14:17 1968: island — Danmörk15:10 1969: Danmörk — Ísland17:13 1970: Danmörk — Ísland19:13 1971: island — Danmörk15:12 1971: ísland — Danmörk15:16 1973: Danmörk — Ísland18:18 1974: Danmörk — Ísland19:17 1975: Danmörk — Ísland17:15 Landsliðin LIÐ íslands og Danmerkur, sem leika í Laugardalshöllinni á sunnudagskvöld, verða þannig skipuð: Tala landsleikja leik- manna i sviga: ÍSLAND: Ólafur Benediktsson, Val (38) Sigurgeir Sigurðsson, Vikingi (6) Ólafur H. Jónsson, Val (80) Einar Magnusson, Vtkingi (61) Stefán Halldórsson, Vikingi (1 2) Pétur Jóhannesson, Fram (14) Viðar Simonarson, FH (78) Ólafur Einarsson, FH (7) Bjarni Jónsson, Val (37) Páll Björgvinsson, Vtkingi (5) Hörður Sigmarsson, Haukum (16) Stefán Gunnarsson, Val (26) DANMÖRK: Flemming Lauritzen, Helsingör (63) Kay Jörgensen, Stjernen (109) Johnny Piechnik, HG (4) Anders Dahl-Nielsen, Fredericia (35) Thomas Pazyj, Saga (2) Bent Christensen, HG (5) Lars Bock, FIF (25) Erik Bue Pedersen, Skovbakken (4) Karsten Sörensen, Arhus KFUM (18) Sören Andersen, Fredericia (6) Palle Jensen, Holte (6) Ole Eliasen, AGF (1 8) Svend Ove Schink, Skovbakken (5) Ole Minnet, FIF (0) DÓMARAR: Krister Broman Axel Wester frá Svtþjóð. Enn til miðar — Það er enn til nokkuð af miðum á báða leikina, sögðu tals- menn HSÍ, er Mbl. hafði sam- band við þá og spurðist fyrir um hvort uppselt væri á landsleikina við Dani. — Það er fremur litið til á leikinn á sunnudagskvöldið, en hins vegar meira t leikinn á mánudaginn. Miðar á landsleikina voru seldir t forsölu úr tjaldi við Útvegsbank- ann á miðvikudag og fimmtudag, og var þá mikil sala. Forsölunni verður haldið áfram í dag, t Laugardalshöllinni, frá kl. 15.00—17.00. Búast má við að algjörlega verði uppselt á báða leikina og er fólki, sem ætlar að sjá leikina. eindregið ráðlagt að notfæra sér forsöluna t dag. Skfðalyftan á Isafirði grafin úr fönn. r Isfírðingar undirbúa skíðalandsmótíð ÍSLANDSMÓTIÐ á skfðum verð- ur haldið á Isafirði nú um pásk- ana og er búist við miklum f jölda skfðamanna um páskavikuna. Nægur snjór er nú á Seljalands- dal og jafnan mikill fjöldi manna á skfðum. Skfðakennsla hefur verið fastur liður f stundaskrá skólanna á lsafirði í vetur, og þá sérstaklega vegna þess að fþrótta- húsið var ónothæft um nokkurt skeið. Tvær lyftur eru á skíðasvæðinu og geta þær samanlagt flutt um 600 manns á klukkustund upp í skíðabrekkurnar. Svo mikill snjór hefur verið að oft hefur þurft að moka frá lyftunum og eru nægir sjálfboðaliðar til þess að taka sér skólflu í hönd þar sem þetta léttir af miklu erfiði að komast með lyftu upp á fjallsbrún, en enda- stöð lyftunnar er í um það bil 700 metra hæð. Allmiklar endurbæt- ur hafa verið framkvæmdar á skíðaskálanum og er aðstaða til veitinga þar allgóð og mun jafn- Júdómeist- aramótið framt vera i undirbúningi að selja gistingu í skálanum. ísfirzkir skíðamenn hafa æft af miklu kappi í vetur, enda hafa þeir allsterku liði á að skipa. Austurrískur skíðaþjálfari hefur verið á Isafirði eftir áramótin og er æft á hverjum degi. Göngu- menn hafa lika búið sig af kappi undir keppni, en þeirra æfingaað- staða er i Tungudal, inn af botni Skutulsfjarðar. Allt á fullu í körfuknattleiknum MIKIÐ verður um að vera hjá körfuknattleiksmönnum um helgina, enda fer nú mótum vetr- arins senn að Ijúka. Tveir leikir verða leiknir f 1. deild, undanúr- slitin í Bikarkeppni K.K.l. fara fram — keppt verður til úrslita I yngri flokkum og einnig í 3. deild. Þá átti að fara fram einn leikur f Bikarkeppni kvenna, KR og UMFS áttu að leika, en UMFS gaf leikinn. KR og Þór leika þvf til úrslita þar. Leikirnir í 1. deild eru á Sel- tjarnarnesi kl. 16 í dag, fyrri leikurinn er millí UMFN og IS og gæti orðið jafn, og síðari leikur- inn er milli HSK og Armanns. HSK fær þarna sitt síðasta tæki- færi í 1. deildinni. Ef þeir sigra fá þeir aukaleik gegn Snæfelli að öllum líkindum, en ef þeir tapa eru þeir endanlega fallnir í 2. deild. — Bikarleikirnir eru í Laugardalshöllinni á morgun og hefjast kl. 14. Fyrst leika KR b og Ármann, síðan KR og ÍS. Ármann ætti að sigra i sinum leik, en hinn leikurinn gæti orðið hörkuspenn- andi. Urslitakeppnin i 4. fl„ 3. fl. og 3. deild hefst kl. 14 í dag í Breið- holtsskóla. Henni verður síðan framhaldið i KR-heimilinu á morgun kl. 13, og lýkur á Sel- tjarnarnesi með leik i 3. deild kl. 18 á morgun. Þá verða afhent verðlaun fyrir 4. fl„ 3. fl„ 2. fl. og 3. deild. gfc. Landsflokkaglíman Sigurður Kr. Jóhannsson leggur andstæðing sinn á Islandsmeist- aramótinu 1974. JUDOMEISTARAMÓT íslands verður haldið á sunnudaginn, 23. marz í iþróttasal Kennaraháskóla íslands við Stakkahlíð. Keppnin hefst kl. 16.30 í karlaflokkum, en skipt er i fimm þyngdarflokka. Þegar er þeirri keppni er lokið hefst keppni í kvennaflokkum, en þeir verða tveir. Búast má við mjög harðri keppni, því júdómenn hafa æft mjög vel í vetur vegna væntan- legs Norðurlandameistaramóts, sem verður háð hér i næsta mán- uði. islandsmótið á sunnudaginn mun gefa nokkra hugmynd um hverjir muni verða valdir í lands- lið okkar til að keppa í þvi móti. Landsflokkaglfman verður háð f Iþróttahúsi Kennaraskólans laugardaginn 22. þ.m. Hefst hún kl. 15.00. Keppt verður í þremur þyngdarflokkum fullorðinna og í aldursflokkum unglinga, drengja og sveina. Landsflokkaglfman er Islandsmeistaramót, þar sem sig- urvegari í hverjum flokki telst Islandsmeistari það árið. Til leiks eru skráðir 33 keppendur frá Reykjavíkurfélög- unum Ármanni, KR og Vikverja, og einnig frá UMSK, HSK og UÍA. I þyngsta flokknum eru 7 keppendur og má búast við að þar standi oaráttan milli Jóns Unn- dórssonar, Guðmundar Ölafs- sonar og Péturs Ingvasonar. i milliþyngdarflokknum er Pétur Sigurðsson einna sigurstrangleg- astur, en hann er aldursforseti Leikið í Njarðvík KL. 10.30 á sunnudagsmorguninn mun fara fram körfuknattleiks- íeikur i Iþróttahúsinu í Njarðvík milli íslenzka unglingalandsliðs- ins og sænska unglingaliðsins Akelbro sem kemur hingað við á ieið sinni til Bandaríkjanna. þeirra sem keppa i landsflokka- glimunni nú, 50 ára aó aldri. I léttþyngdarflokknum má búast við harðri baráttu milli allra keppendanna fjögurra, en Guðmundur Freyr Halldórsson er þó liklegasti sigurvegarinn. 1 ung- lingaflokki eru flestir keppendur 9 talsins, 4 keppa í drengjaflokki og 3 i sveinaflokki. Má búast við mjög jafnri baráttu í öllum þessum aldursflokkum. Skíðamót á Ólafsfirði Ölafsfirói, 21. marz — UNGLINGAMEISTARAMÖT ls- lands í norrænum skíðagreinum verður haldið á Olafsfirði dagana 27. til 30. marz. Fimmtudaginn 27. marz verður keppt í göngu, laugardaginn 29. marz verður keppt f stökki og sunnudaginn 30. marz verður keppt i boðgöngu og mótinu slitið með verðlaunaaf- hendingu og hófi í Tjarnarborg i boði bæjarstjórnar. (Fréttatilkynning frá mótsstjórn.) Formenn- irnir spá Hvernig fara landsleikirnir við Dani? Þessari spurningu velta margir fyrir sér, og sýn- ist sitt hverjum. Mbl. fékk for- menn þriggja sérsambanda til þess að láta i ljós sitt álit á úrslitum leikjanna: Einar BoIIason; formaður Körfuknattleikssambandsins: íslendingar vinna báða leikina. Þann fyrri 18:15 og þann seinni 20:19. Örn Eiðsson, formaður Frj álsíþróttasamb andsins: Fyrri leikurinn verður jafm tefli, sennilega 15:15, en Dan- irnir vinna svo leikinn á mánu dagskvöld 18:16. Ingimar Jónsson, formaður Blaksambandsins: Þetta verða mjög jafnir leik ir og snúast kringum jafntefli Ég hef ekki trú á að meira en einu marki muni i leikslok og á heldur ekki von á því að mikið verði skorað af mörkum. 17 mörk á lið er það mesta sem ég held að verði. Ellert B. Schram, formaóur KSI: íslendingar vinna fyrri leik inn með 7 marka mun, en seinni leiknum verða Danirnir búnir að læra dálítið á okkur þannig að þaó verður ekki nema 3 marka sigur i honum 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.