Morgunblaðið - 22.03.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.03.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBI.AÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1975 ðinnfiíiötS ib nnuð öi eb njsiis mö [ J 8 Íeldhúsdagsumræðum^^AlþingrsrflmmtudagskvöI^TöTuðu 6 fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna. Til þess að kynna lesendum Morgunblaðsins sjónarmið stjórnarandstöðunnar í þessum um- ræðum hefur Morgunblaðið valið til birtingar ræður tveggja úr þeirra hópi, þeirra Gylfa Þ. Gíslasonar og Magnúsar Torfa Ólafssonar. Fara ræður þeirra hér á eftir. Gíslason: Stefnan í efnahagsmál- um er sama kákið og áður Líklega hafa hugsandi menn á Is- landi aldrei fyrr verið jafnuggandi um ástand og horfur i islenzkum efnahags- og stjórnmálum og nú undanfarnar vikur. Ekki er nema rúmt misseri, siðan kosningar voru háðar og niðurstaða þeirra ieiddi til myndunar nýs þingmeirihluta og nýrrar ríkisstjórnar. Niðurstaða kosninganna sýndi, að vaxandi hluti kjósenda var langþreyttur á ráðleysi og sundulyndi fyrrverandi rikis- stjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn varð sigurvegari kosninganna. Ekki sizt kjósendur hans munu hafa búizt við þvi, að i kjólfar kosningasigursins sigldi stefnufastara stjórnarfar, nýjar og heilbrigðari ráðstafanir i efna- hagsmálum, aukin aðgæzla og hóf- semi. Þeir, sem þannig hafa hugsað, hljóta að hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum. Þeir hafa þurft að verða vottar þess, að bókstaflega ekkert hafi breytzt. Ráðleysið og sundur- lyndið situr enn i hásæti i stjórnar- ráðinu. Stefnan i efnahagsmálum er sama kákið og áður. Engin heildar- stefna var mótuð við myndun rikis- stjórnarinnar. Ekkert hefur bólað á átaki til sparnaðar og hagsýni. Bráðabirgðaráðstafanir voru að visu gerðar i haust. Gengi krónunnar var lækkað nýlega, en allir hafa vitað, að hvorugt var fullnægjandi heildar- lausn á þeim vanda, sem við er að etja. Nú eru enn boðaðar ráðstafanir. Og enn eru þær sama markinu brenndar. Ollum er Ijóst, að þær eru ófullnægjandi. Þær skapa ekkert traust á framtíð heilbrigðs atvinnu- lifs á íslandi, hvorki hjá launþegum né atvinnurekendum. Landið hefur ekki trausta og samhenta rikisstjórn, þótt stór þingmeirihluti sé talinn að baki henni. Rikisstjórn þarf að vera annað og meira en hópur ráðherra. sem segjast hafa stuðning svo og svo margra þingmanna. Rikisstjórn þarf að vera fær um að gera það. sem gera þarf og er skynsamlegt og réttlátt að gera. Og ekki er nóg, að stuðningsmenn á Alþingi séu sagðir ákveðinn fjöldi þingmanna, ef svo og svo margír þeirra segja hverjum. sem hafa vill, að þeir séu hundóánægðir með ráðleysið. sundurlyndið og sukkið. Þingmönnum, sem eru i stjórnar- andstöðu. er oft legið á hálsi fyrir það, að þeir láti við það sitja að gagnrýna, en bendi ekki sjálfir á það, hvað þeir vilji láta gera til þess að leysa vandann, sem við er að glima. Auðvitað er mér Ijóst. að sérhver ábyrgur stjórnarandstöðuþingmaður þarf að hafa ákveðnar hugmyndir um, hvernig við vandamálinu skuli snúizt. Enginn viti borinn maður ber á móti þvi, að íslendingum sé nú vandi á höndum, ef koma á i veg fyrir allsherjarringulreið i islenzku efnahagslifi, ef þjóðin á ekki að sókkva í hyldjúpt skuldafen erlendis og eiga á hættu atvinnuleysi innan- lands og glata trausti sinu erlendis. Þess vegna ætla ég i þessum orðum minum að setja fram nokkrar hug- myndir. sem ég tel. að gætu leyst þann vanda. sem nú er við að etja, þannig að full atvinna sé tryggð, en hagur láglaunafólks bættur, eins og allir viðurkenna i orði, að nauðsyn- legt sé. Auðvitað er slikt ekki hægt, nema einhverjir beri byrðar í bráð, nema útgjöld einhverra minnki sem þvi svarar, sem láglaunafólkið fær. Þeir, sem það eiga að gera. eru fyrst og fremst rikissjóður og hinir tekju- háu i þjóðfélaginu. Það, sem nú þarf að gera, þarf að gera þannig og vera gert i þeim anda, að það stuðli að þvi, að samningar takist sem allra fyrst milli launþegasamtaka og vinnuveitenda. Ég skal nú rekja þær ráðstafanir, sem ég tel nauðsynlegar þegar i stað: 1. Rikisstjórn og Seðlabanki lýsi þvi yfir, að gengi krónunnar verði ekki lækkað frekar í fyrirsjáanlegri framtið. 2. Rikisstjórnin skuldbindi sig til þess að auka þá fjárhæð, sem gild- andi fjárlög ætla til lækkunar tekju- skatts á þessu ári og nemur 700 millj. kr., í 2.000 millj. kr. Þessi lækkun verði að hluta með 100% hækkun afsláttafjárhæða frá útsvari til sveitarfélaga, sem staðið hafa óbreyttar frá árinu 1972. j þessu fælist nálægt 700 millj. kr. aukning á f ramlagi rikissjóðs til skatta lækkunar. Rikisstjórnin semji siðan í samráði við stjórnir Alþýðu- sambands Islands og Bandalags starfsmanna rikis og bæja töggjóf um breytingar á skattalóggjóf og tryggingalóggjóf, sem sameini þætti úr þessari lóggjöf i allsherjar tekju- jöfnunarkerfi, sem tryggi, að hvorki sé greiddur tekjuskattur né útsvar af tekjum, sem teljast mega almennar launatekjur miðað við fjölskyldu- stærð. 3. Lágmarkstekjutrygging verði hækkuð um 1 5%, i 295 þús. kr. fyrir einstakling og 560 þús. kr. fyrir hjón. Ellilaun verði hækkuð i 184 þús. kr. fyrir einstakling og 350 þús. kr. fyrir hjón. 4. Fjárveitinganefnd verði falið að lækka fjárlög yfirstandandi árs um 3.500 millj. kr. 5. Öllum rikisstofnunum, að bönk- um meðtöldum, verði fyrirskipað að lækka rekstrargjöld sin um 5%. 6. Sveitarfélögum verði gert skylt með lagasetningu að lækka rekstrar- gjöld sin um 5%. Jafnframt verði þeim heimilað að velja milli þess, hvort þau kjósi að bæta tekjumissi vegna lækkunar útsvara með hækk- un aðstóðugjalda eða fasteigna- gjalds. 7. Löggjöf verði sett um skyldu- sparnað þeirra. sem hafa skatt- skyldar tekjur umfram visst mark og talist geta háar tekjur. þannig. að þeim sé skylt að kaupa spariskirteini fyrir 7% af tekjum sinum umfram visst mark, og endurgreiðist þau 1. janúar 1978, með 4% vöxtum frá 1. janúar 1976 og verðtryggingu. Tekj- ur þær, sem skyldusparnaðarákvæði nái til. skulu vera hinar sömu og gert er ráð fyrir í frumvarpi ríkisstjórnar- innar. Geti skattgreiðandi sýnt fram á, að tekjur hans séu mun minni á þessu ári en í fyrra, skal sparnaðar- skyldunni létt af honum samkvæmt sérstökum reglum. 8. Nái aðilar vinnumarkaðsins ekki samkomulagi um hækkun lág- launabóta frá þvi sem nú er, skal ríkissjóði heimilað að lána atvinnu- rekendum fjárhæð, sem geri þeim kleift að hækka láglaunabætur um 5.900 kr. á mánuði, eins og laun- þegasamtökin hafa farið fram á. Launagreiðendur, sem slík lán fá. skulu endurgreiða þau með árlegum afborgunum fyrir 1. janúar 1 978. 9. Á þessu ári skulu ekki leyfðar hærri fyrningar á atvinnutækjum en svarar til raunverulegrar verðmætis- Magnús Torfi Ólafsson: Verk ríkisstjórnar- innar eru fum og fálm VIÐ erum i vanda staddir, Islending- ar. Vandamálin, ýmist heimatilbúin eða aðvifandi utan úr heimi, hrann- ast að eins og óveðurský. og vera má að sortinn eigi enn eftir að dökkna. Litil huggun er að þvi, að allt um- hverfis okkur eiga þjóðir við svipaðar þrengingar að búa. og eru reyndar sumar hverjar öllu verr á vegi stadd- ar, þar sem yfir hef ur dunið sannköll- uð kreppa með tilheyrandi atvinnu- leysi, meira en þekkst hefur um daga þeirrar kynslóðar sem nú er á miðj- um aldri. Unrirrót okkar, vanda er alþjóðleg hagsveifla á óvenju hraðri og' harkalegri niðurleið, en hrapið hefur bitnað harðar á okkur en ella vegna þess að ekki var brugðið við i tæka tíð þegar sýnt var að hverju fór. Nú er svo komið að skortur rikir á islenskum heimilum sem ekki hafa annað fyrir sig að leggja en dag- vinnutekjur fyrirvinnu i lágum launa- flokkum. Tvær stórfelldar gengis- lækkanir á ársþriðjungi samfara al- mennum verðhækkunum af völdum þeirra og völdum hækkaðra neyslu- skatta að auki, hafa ásamt stökk- breytingum þjónustutaxta uppá við, skert kjör flestra en valdið lágtekju hópum þjóðfélagsins óbærilegum búsifjum. Á siðasta hausti tók við stjórnar- taumum ný rikisstjórn sem styðst við flokka sem telja i sinum röðum tvo þriðju hluta Alþingis, og riflega þó. Hvort sem kjósendur veittu stjórnarflokkunum brautargengi i kosningunum i fyrra eða ekki, munu þeir hafa ætlast til verulegra tilþrifa af nýju ríkisstjórninni. Kemur þar bæði til fádæma þingstyrkur stjórn- arinnar og málf lutningur forustu- flokks hennar á siðasta kjórtimabili. og þó sér i lagi i kosningabaráttunni siðastliðið sumar. Óþarfi ætti að vera að rifja upp steigurlæti sjálfstæðisflokksforust- unnar frá þvi á útmánuðum í fyrra vetur, þegar þingmeirihluti fráfar- andi stjórnar brast, allt fram yfir stjórnarmyndunina, þegar settu marki var náð og rikisstjórn undir forsæti formanns Sjálfstæðisflokks- ins tók við völdum. Enginn sem á annað borð lætur sig stjórnmál nokkru varða getur verið svo gleym- inn, að honum séu liðnar úr minni yfirlýsingar málsvara Sjálfstæðis- flokksins um að frumskilyrði til allra úrræða og lausnar aðsteðjandi vandamála væri að stærsti flokkur þjóðarinnar gripi um stjórnartaum- ana sinni styrku hendi. Skyldi ekki hér vera að finna skýr- ínguna á því, sem menn hafa furðað sig á, að formaður Framsóknar flokksins skyldi láta sér lynda að mynda stjórn en láta siðan stjórnar- forustuna eftir foringja samstarfs- flokksins? Sjálfstæðisflokkurinn hafði stært sig af þvi i kosningabar áttunni að eiga ráð undir rifi hverju, flokkurinn varð sigursæll i kosning- unum, svo hvað var eðlilegra en að hann fengi forustuna í nýrri ríkis- stjórn sem hann stóðað? Nú hefur hinnar styrku handar Sjálfstæðisflokksins notið við um nokkurt skeið, úrræði hans hafa fengið að sýna sig, og synd væri að segja að Framsóknarmenn, hinn stjórnarflokkurinn, hafi þvælst fyrir eða verið stirðir i taumi það sem af er. Þvert á móti hefur Framsókn látið kaffæra sig i hverri leirkeldunni af annarri, allt frá gengislækkanahring- ekjunni til afsetningar útvarpsráðs. En sé framsóknarhryssan farin að kleprast eftir slarksama reið, verður forustuhæfileikum og úrræðum Sjálfstæðisf lokksins helst líkt við skininn hrosshaus á berangri, nötur- legar menjar um agn sem slyngur veiðimaður bar niður fyrir fórnardýr sitt. Bjargráðin frá i haust, sem þá var mest gumað af í Morgunblaðinu, lita ekki bjórgulega út núorðið. Gengis- lækkun með tilheyrandi hliðar- ráðstöfunum reyndist að fjór- um mánuðum liðnum haldlaust fálm. Um áramót hafði verulega sigið á ógæfuhliðina, gjaldeyr isvarasjóðurinn upp urinn og út- gerð sögð á heljarþröm. Ný úrræði voru óhjákvæmileg, og enn var farið í fornu gólfin. skellt á nýrri gengis- lækkun, enn stærri en hinni fyrri, og fylgiráðstafanirnar sáu loks, að hluta, dagsins Ijós áðan, réttum sex klukkutimum áður en þessar umræð- ur hófust. Þá kom á borð alþingis- manna halarófufrumvarp sem heitir hvorki meira né minna en „Frum- varp til laga um ráðstafanir i efna- hagsmálum og fjármálum til þess að stuðla að jafnvægi i þjóðarbúskapn- um og treysta undirstöðu atvinnu og lifskjara." Fyrirsögn lýkur. Það er tómahljóð í þessu orðskrúði. Annað meginverkefni Alþingis allt til jóla var að fjalla um hliðarráðstaf- anir sem fylgdu fyrri gengislækkun rikisstjórnarinnar. Hitt var að af- greiða fjárlög. Þótt sjálfsagt sé að viðurkenna, að fjármálaráðherra sem kemur til starfa siðla árs á ekki hægt um vik, sætir fádæmum hve óhónduglega hefur tekist til í þetta skipti. Fjárlögin sem afgreidd voru fyrir þrem mánuðum, hafa reynst slikt hrófatildur að þau eru nú hrunin undan eigin þunga. Veigamestu kafl- ar nýja frumvarpsins með langa nafnið er að rifa niður nýsett fjárlög endanna i milli og reisa grind að öðrum fjárlögum gerólikum hinum fyrri. Boðaður er niðurskurður fjárlaga- útgjalda sem nemur hálfum fjórða milljarði króna, og er Ijóst að hann mun nær einvörðungu bitna á fyrir- huguðum framkvæmdum. Búnir eru til nýir tekjustofnar, og ber þar hæst ferðaskatt, tvö þúsund og fimm hundruð krónur á nef hvert, þeirra sem bregða sér út fyrir landsteinana. Tekjuáætlun gildandi fjárlaga er ger- breytt. Ljóst var frá öndverðu að hún var ekki raunhæf, en siðan hafa ýmsar breytingar bæst við þá skekkju. Veigamestar eru þær, sem drög eru lögð að í frumvarpinu með langa nafnið, og fjalla um margskon- ar breytingar á skattheimtu. Markmiðið með þeim breytingum er sagt vera að greiða fyrir lausn kjaradeilunnar sem nú er háð, og er Framhald á bls. 19. rýrnunar á árinu, að mati rikisskatta- nefndar. 10. Gerðar verði ráðstafanir til einföldunar og sparnaðar i rikiskerf- inu, t.d. með sameiningu Útvegs- banka og Búnaðarbanka og afnámi lagaákvæða um pólitiska fram- kvæmdastjóra við Framkvæmda- stofnun rikisins. Jafnframt verði lög- um breytt þannig, að kjaradómur ákveði laun, dvalar- og ferðakostnað alþingismanna i stað þingfararkaups- nefndar. Spurningin, sem eðlilegt er að vakni i sambandi við slíkar tillögur sem þessar, er annars vegar sú, hvort þær séu liklegar til þess að stuðla að lausn þeirra vinnudeilna, sem nú standa yfir, og hins vegar, hvort samræmi sé milli þeirra tekna, sem þær gera ráð fyrir að afla, og þeirra gjalda, sem þær munu leiða til. Varðandi fyrra atriðið er þetta að segja: Ágreiningur milli launþega og at- vinnurekenda er nú fyrst og fremst um þrjú atriði: Upphæð skattalækkunarinnar, upphæð láglaunabótanna og hvort greiða skuli þær á dagvinnu einungis eða einnig á eftir- og næturvinnu. Samninganefnd launþega hefur óskað þess, að ríkissjóður og sveitar- félög leggi fram 2.000 millj. kr. til skattalækkunar, og hún hefur látið i Ijós, að hún mundi sætta sig við, að láglaunabætur hækkuðu um 5.900 kr. og verði greiddar á allt kaup, ef samningar tækjust án þess, að til verkfalla kæmi. Allar þessar óskir eru eðlilegar, og er þess vegna í þeim hugmyndum. sem ég hefi lýst, miðað við, að þær verði samþykktar. Rikissjóði er ætlað að leggja fram um 700 millj. kr. umfram það, sem fjárlög gera nú ráð fyrir. til skattalækkunarinnar. Atvinnurekendur verða að sam- þykkja sömu hækkun á eftir- og næturvinnu og dagvinnu, enda semst örugglega aldrei að öðrum kosti. Sjálfsagt er að viðurkenna, að staða atvinnuveganna er nú eflaust erfið. Ekki má ætla þeim að greiða svo mikla hækkun kaupgjalds. að til stöðvunar atvinnurekstrar og at- vinnuleysis komi. Á hinn bóginn er vitað að fjölmörg fyrirtæki geta auð- veldlega greitt þá hækkun láglauna- bóta, sem launþegasamtökin fara fram á. En ýmsum kann að reynast það erfitt í bráð. Þess vegna er gert ráð fyrir því, að farið verði inn á þá braut. að veita þeim, sem þannig stendur á fyrir, timabundið lán. Hins vegar er engin ástæða til annars en að ætla. að framleiðni islenzkra at- vinnuvega aukist i þeim mæli á næstu árum. að þeir geti endurgreitt slik lán, auk áframhaldandi hækkunar kaups i kjölfar bættra framleiðsluhátta og aukinnar fram- leiðni. Þá er komið að hinni spurningunni: Standast gjöld og tekur á? Heildarlækkun rikisútgjaldanna næmi 3.500 millj. kr. Rikisstjórnin sjálf telur slika lækkun rikisútgjalda framkvæmanlega i tillögum sínum, svo að ekki ætti að vera hægt að segja, að hér sé um óraunhæfar áætlanir að ræða. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, ættu tekjur af skyldusparnaði þeim, sem um er rætt, að geta numið um 350 millj. kr. Þá hefur ríkið til ráðstöfunar i Framhald á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.