Morgunblaðið - 22.03.1975, Side 20

Morgunblaðið - 22.03.1975, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1975 Frá Skákþingi Islands Skák eftir JÓN lÞ. ÞÓR Sextugasta og þriðja skák- þing íslands hófst í Skák- heimilinu við Grensásveg í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag. Guðbjartur Guð- mundsson, stjórnarmaður í Skáksambandi íslands, flutti stutt setningarávarp en að því loknu hófst keppni í landsliðsflokki. Um skákir 1. umferðarinn- ar þarf ekki að hafa mörg orð. Tveimur þeirra lauk með jafntefli eftir um það bil þrjá- tíu leikja baráttu. Þær skákir voru í jafnvægi allan tímann. Þar áttu hlut að máli Ásgeir P. ÁSbjörnsson og Júlíus Friðjónsson annars vegar, en undirritaður og Bragi Hall- dórsson hins vegar. Tvær skákir, þeirra Jónasar Þor- valdssonar og Hauks Angan- týssonar og Margeirs Péturs- sonar og Ómars Jónssonar fóru í bið. Fyrrnefnda skákin var í jafnvægi lengst af og virðist jafnteflisleg, en í hinni síðarnefndu hefur Margeir peði meira. í tveimur skákum fengust hrein úrslit og nú skulum við líta á þær. Hvitt: Björn Þorsteinsson Svart: Frank Herlufsen Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6, 6. Bc4 — e6, 7. Be3 — Be7, 8. De2 — a6, 9. o-o-o — Dc7, 10. Bb3 — o-o, 11. g4 — Rxd4, 12. Hxd4 — b5, 13. g5 — Rd7, 14. Hg1 — Bb7, 15. Hg3 — Hfe8, 16. f4 — Rc5, 17. f5 — Bf8, 18. Dh5 — g6, 19. Db4 — exf5, 20. exf5 — Rxb3 + , 21. axb3 — He5, 22. Hf4 — Hae8, 23. Bd4 — Bg7, 24. f6 — Hel +, 25. Kd2 — Bf8, 26. Be3 — Hhl, 27. Dxh7 +!! — Kxh7, 28. Hh4+ — Kg8, 29. Hh3 — Bg7, 30. Hh7 og svartur gaf. Hvítt: Helgi Ólafsson Svart Gunnar Finnlaugsson Enskur leikur 1. c4 — e5, 2. Rc3 — Rf6, 3. Rf3 — Rc6, 4. g3 — d5, 5. cxd5 — Rxd5, 6. d3 — f6, 7. Bg2 — Be6, 8. 0-0 — Bc5, 9. Bd2 — Dd7, 10. Db1 — a5, 11. Hc1 — Bb6, 12. Ra4 — 0-0, 13. a3 — Kh8, 14. b4 — axb4, 1 5. axb4 — Bg4, 16. b5 — Rd4, 17. Rxb6 — Rxb6, 18. Rxd4 — Hxa1, 19. Dxa1 — exd4, 20. Bxb7 — Bxe2, 21. Da3 — Hd8, 22. He1 — Bg4, 23. He7 — Dxb5, 24. Hxg7!! — Be2, 25. Hxh7 +! — Kxh7, 26. De7 + — Kg6, 27. Be4+ — f5, 28. De6 + — Kh7, 29. Bxf5+ og svartur gafst upp. M0RGUHBLA9IB fyrir 50 árum Sunnudagabíla nefndi Gunnlaugur Claessen mál, sem hann fjekk tekið til umræðu utan dagskrár á bæjarstjórnarfundin- um í gærkvöldi. Vakti hann máls á því, að erfitt væri fyrir margar efnaminni fjölskyldur að komast á sumrin út úr bænum á grasigróna bletti, þó þær hefðu fulla þörf á því og löngun. Þeim, sem nokkrar tekjur hefðu, væri auðvelt að fá sjer bifreið til þessara hluta. Kvaðst hann oft hafa tekið eftir því, að efnalítil hjón væru að reyna að komast með börn sín fótgangandi eitthvað burt, en kæmust vitanlega stutt. . . Vildi hann því benda á að bæjarstjórnin hlutaðist til um það við bifreiðastöðvarnar, hvort þær gætu ekki látið í tje ódýrar ferðir, t.d. inn að Elliðaám eða eitthvað annað, sem kostuðu ekki meira en svo sem 50 aura fyrir fullorðna og minna fyrir börn. Bar hann fram tillögu um þetta og var hún samþykkt. Símað er frá Lissabon að uppreisn hafi verið gerð þar að undirlagi nokkurra herforingja, og var tilgangurinn sá að koma á hereinræði, eins og á Spáni. Uppreisnin var bæld niður samstundis. Stúlka er roskin kona getur fengið vist nú þegar eða 14. maí hjá borgarstjórafrú Zimsen, Amtmannsstíg 4, sími 13. VIKUNNAR Umsjón: Hanna Guttormsdóttir MÁNUDAdUR Steikt þorskhrogn (sjá uppskrift), kartöflur f jafningi, sítrónusúpa. ÞRIÐJUDAGUR Kjöt meðgrænmeti (sjá uppskrift), eplagrautur. MIÐVIKUDAGUR Soðin ýsa með sftrónusósu, brauðsúpa. FIMMTUDAGUR (skfrdagur) Kótelettur með osti og rjóma (sjá upp- skrift), soðnar gulrætur og soðið blómkál, súkkulaðibúðingur með rjóma. FÖSTUDAGUR (föstudagurinn langi) Djúpsteiktur fiskur, hrátt salat, remúlaðisósa, ferskjubúðingur. LAUGARDAGUR Soðinn blóðmör, gulrófustappa, hrfsmjölssúpa. SUNNUDAGUR (páskadagur) Grænertusúpa, smásteik með sveppum, (sjá uppskrift), soðin hrfsgrjón, fyllt egg (sjá uppskrift), Vaniljufs með íssósu. STEIKT HROGN I hrognum er mikið af B- og C- vítamínum og einnig jarni. Hrogn má matreiða á margvislegan hátt. Núna í marz er rétti tíminn til að borða stór og góð hrogn. Þau vilja stundum vera sprungin og þá er ágætt að vefja þau innan í smjörpappír eða plastþynnu og sjóða þau varlega í saltvatni. Hrogn eru soðin í 10—25 mín., en það fer eftir stærð þeirra. Þegar þau eru soðin eru þau látin kólna, og síðan eru þau skorin í sneiðar og brúnuð í feiti. Skreytið rétt- inn með klipptri steinselju. KJÖT MEÐ GRÆNMETI I kg kjöt II vatn 500 g gulrætur 750g rófur 3 tsk salt 40 g smjörlíki 40 g hveiti 300 g hvitkál Höggvið kjötið í smáa spaðbita. Sjóðið þá í 25 mín. Setjið þá rófurnar í bitum út i og sjóðið í 25 min. Sjóðið gulræturnar og hvitkálið með síðustu 10—20 mín. Jafnið sósuna með mjölbollu. Hellið henni yfir kjötið og grænmetið á fatinu. Klippið steinselju yfir, ef vill. KÓTELETTUR MEÐ OSTI OG RJÓMA 10 lambakótelettur smjör 1V4 tsk salt (4 tsk pipar % tsk paprika 2 dl. rifinn ostur 2 dl rjómi Brúnið kóteletturnar í smjöri án þess að velta þeim upp úr nokkru. Raðið þeim í smurt eldfast mót, stráið kryddi og rifn- um osti yfir. Hellið rjómanum í mótið og bakið réttinn í 20 mín. i 180° heitum ofni. Berið soðnar gulrætur, blómkál og kartöflur með. FERSKJUBtJÐINGUR 1(4 dl ferskjusafi safi ír 1 sítrónu 2 egg 40 g sykur 3 dl rjómi 5—6 blöð matarlím 250 g niðursoónar ferskjur Þeytið egg og sykur. Leggið matarlím- ið í bleyti í kalt vatn, og bræðið það og þynnið með ávaxtasafanum. Blandið því í eggjahræruna. Blandið ávaxtabitunum þar í og seinast rjómanum. Skreytið með ferskjubitum og þeyttum rjóma. SMÁSTEIK MEÐ SVEPPUM 3 laukar 75 g smjörlíki 400 g nauta- eða kindakjöt 250 g ætisveppir 1 tsk salt (4 tsk pipar- (4 tsk paprika 2(4 dl vatn eða soð 1 dl tómatkraftur 1 dl rjómi 25 g hveiti Skerið laukinn í sneiðar. Brúnið hann i potti, og takið það upp. Skerið kjötið í lengjur. Brúnið þaó og takið það upp. Hrein.sið ætisveppina. Skerið hvern svepp í 4 hluta og brúnið. Blandið öllu saman i pottinn. Látið krydd, vatn eða soð og tómatsósu út í. Sjóðið réttinn við vægan hita í um 3A klst., og iátið síðan rjómann saman við. Þykkið soðið litið eitt en sósan á að vera þunn. FYLLT EGG 6 harðsoðín egg 1 lítið glas af súru grænmeti (pickles) Takið skurnið utan af eggjunum, og skerið þau að endilöngu. Losið rauðuna úr eggjunum. Síið grænmetið og hakkið það smátt. Hrærið því saman við eggja- rauðurnar. Látið þetta (með teskeið) þar í, þar sem eggjarauðurnar voru.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.