Morgunblaðið - 28.06.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.06.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNl 1975 22 milljónir veittar í styrki úr Vísindasjóði Fundur fjármálaráðherra Norðurlanda hófst f hátfðarsal Háskóla tslands kl. 14 f gær, og var þessi mynd tekin af ráðherrunum við það tækifæri. Norðursjórinn: Vonlaus veiðiskapur — segir Páll Guðmundsson UTHLUTUN styrkja Vfsinda- sjóðs er lokið fyrir árið 1975, en þetta er 18. starfsár sjóðsins. Ur sjóðnum voru að þessu sinni veittir 78 styrkir að heiidarfjár- hæð 22,01 millj. króna, en í fyrra voru veittir úr sjóðnum 71 styrkur að heildarfjárhæð 14,36 millj. króna. Raunvísindadeild bárust alls að þessu sinni 85 umsóknir. Veittir voru 49 styrkir að heildarfjárhæð Tvö skip seldu AÐEINS tvö sildveiðiskip seldu afla i Danmörku í gær. Loftur Baldvinsson EA seldi um 78 lestir fyrir 2,5 millj, kr. og var meðal- verðið kr. 32,93. Skarðsvík SH seldi 15,4 lestir fyrir 1 millj. kr. og var meðalverðið kr. 68,68. Gjaldeyrismál ferðaskrifstof- anna til ráðherra GJALDEYRISNEFNDIN hélt langan fund sl. fimmtudag, þar sem gjaldeyrismál ferðaskrif- stofunnar Utsýnar og annarra helztu ferðaskrifstofa hérlendra voru til umræðu. Að því er Ingólfur Þorsteinsson forstöðumaður gjaldeyirsdeildar bankanna tjáði Morgunblaðinu í gær hefur nefndin nú skilað áliti í þessum efnum og jjað verið sent ráðherra til umsagnar og ákvörð- unar. Taldi Ingólfur fullvíst að þetta mál yrði orðið ljóst þegar í næstu viku, enda mættí ekki öllu lengur við rík^mdi aðstæður una. Sem kunnugt er þá kom þetta mál upp vegna sölu ferðaskrif- stofunnar Utsýnar á 4ra vikna ferðum til Spánar á sama tíma og gjaldeyrisúttekt ferðaskrifstofa og farþega þeirra er miðuð við hálfsmánaðar ferðir. Rannsókn gjaldeyrisyfirvalda á gjaldeyris- málum Utsýnar hefur síðan leitt til þess að allar ferðaskrif- stofurnar hafa verið teknar til athugunar. ib MlKlWíNNI'W 'iKKAWi fltWOffNINíjAS EIN506 SKOÍ! 14 milljónir 460 þúsund krónur. I stjórn Raunvísindadeildar eiga sæti þessir menn: Formaður er dr. Guðmundur Pálmason, en varaformaður Eyþór Einársson grasafræðingur. Aðrir stjórnar- menn eru: dr. Guðmundur E. Sig- valdason, forstöðumaður Nprrænu eldfjallastöðvarinnar, Haraldur Asgeirsson verk- 'fræðingur, forstöðumaður Rann- sóknarstofnunar byggingar- iðnaðarins, Þorbjörn Sigurgeirs- son prófessor og Þorgeir Þor- geirsson læknir. Ritari deildar- stjórnar eru Guðmundur Arn- laugsson rektar. Hugvísindadeild bárust aftur á móti 47 umsóknir að þessu sinni. Einn umsækjandi dró umsókn sina til baka á síðustu stundu.Veittir voru 29 styrkir að heildarfjárhæð um 7 milljónir og 550 þúsund krónur. Árið 1974 veitti deildin 28 styrki að heildar- fjárhæð 5 milljónir og 100 þúsund krónur. Stjórn Hugvísindadeildar skipa eftirtaldir menn: Formaður er dr. Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri, Andri Isaksson prófessor, Arnljótur Björnsson prófessor, Ölafur Halldórsson Jiandritafræðingur og Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor. Ritari deildarstjórnar er Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður. Suðurlandaferð fyrir aflakló Siíílufirði —27. júní. HÉR er sannkallað sumarveður f dag og glampandi sólskin. Öðru- vfsi var hér umhorfs f gær- morgun, en þá hafði um nóttina snjóað f fjöll og voru þau grá niður í miðjar hlfðar. í góðviðrinu I dag er togarinn Dagný að landa hér til vinnslu 120 tonna afla. Eigendur togarans — Hlutafélagið Togskip — efndi til eins konar happdrættis um borð i togaranum og vinningurinn var suðurlandaferð fyrir tvo. Einn hásetanna hreppti ferðina. Glaðn- ingur þessi var gefinn i viður- kenningarskyni fyrir dugnað áhafnarinnar. —mj. Síldin sölt- uð um borð NEFND sú, sem sjávarútvegsráð- herra skipaði fyrir nokkru til að gera tillögur um vinnslu- og veiði- aðferð á síldarmiðunum við SA- land f haust, hefur nú lokið störf- um og sent ráðherra tillögur sfn- ar. Morgunblaðið hefur fregnað, að nefndin mæli með þvf, að sfld- in verði söltuð um borð f veiði- skipunum. Gert er ráð fyrir, að flokkunarvélum og hausskurðar- vélum verði komið fyrir um borð og sfldin hausskorin og kúfsöltuð. Rökin fyrir þessum tillögum eru þau, að útkoma skipanna verði miklu betri með þessu móti en ef þau sigldu með aflann til söltunarstöðva f landi. EFTIR hádegi í gær ók bif- reið aftan á bifhjól lög- reglumanns, þar sem hann hafði stöðvar hjólið á mót- um Suðurlandsbrautar og Hallarmúla, og slasaðist lögregluþjónninn nokkuð, t.d. marðist hann mikið. Slysið varð með þeim hætti, að lögreglumaðurinn stöðvaði hjólið til að hleypa konu yfir gangbraut- ina. Næsti bíll á eftir, sem lög- reglumaður ók, ætlaði einnig að stöðva, en um leið og hann steig á hemlana, gaf sig bremsurör og við það rann bíllinn á bifhjólið. Við höggið skauzt hjólið undan lög- EINS og Morgunblaðið skýrði frá f gær eru flest Norðursjávarskip- anna að búa sig undir heimferð og sum eru þegar komin heim. Tvö sfldveiðiskip, Guðmundur RE og Arni Sigurður AK, komu á miðvikudagskvöldið og önnur munu vera væntanleg um helg- ina. Morgunblaðið hafði i gær samband við Pál Guðmundsson skipstjóra á Guðmundi og ræddi lítillega við hann um veiðarnar i Norðursjó í sumar. I viðtalinu við Pál kom fram, að hann telur, og er ekki einn um það, að bráðlega verði vonlaust að gera út skip á íslandi, ef sjóðakerfið verði ekki FORSETI alþjóðasamtaka Skál- klúbba, — AISC, Valdimar Fast, er væntanlegur til Reykjavfkur f dag ásamt eiginkonu sinni, frú Valdimar Fast Elsu Fast. Skálklúbbar eru félagsskapur frammámanna f ferðamálum um allan heim, en f þeim eru samtais um 400 klúbbar með um 24 þúsund félögum. Valdimar Fast er íslenzkurn' ferðamálamönnum að góðu kunn- reglumanninum og rann áfram, en sjálfur féll hann í götuna. stokkað upp og úttekt gerð á út- gerðinni í heild. Páll sagði í upphafi, að þeir hefðu hætt veiðum í Norðursjó fyrir 2 vikum. Þá hefðu þeir farið til Noregs, þar sem ný spil i Guð- mundi voru yfirfarin og um leið var komið fyrir flottrollútbúnaði í skipinu. — Eins og veiðin i Norðursjónum hefur verið í vor og sumar, þá er þetta orðinn von- laus veiðiskapur, sagði Páll. Hann sagði, að margt komi til. Vindar hefðu mikið verið V- og NV-lægir, en hefði slæm áhrif á síldina. Að auki hefðu þjóðverjar enga síld keypt af Dönum i vor og markaðurinn því ekki þolað mikið ur, segir í fréttatilkynningu Skál- klúbbsins hér á landi. Hann hefur lengi rekið umsvifamikla ferða- skrifstofu I Hamborg og átt mikil viðskipti við íslenzkar ferðaskrif- stofur. Hjónin munu hafa stutta viðdvöl. hér á landi að þessu sinni en halda heimleiðis á manudags- morgun. Fast-hjónin verða heiðursgestir Skálklúbbs Reykja- víkur á 100. fundi klúbbsins, er verður haldinn að Hótel Valhöll í kvöld. Blaðamenn enn á sáttafundi FUNDUR sáttasemjara með samninganefndum blaðamanna og blaðaútgefenda hófst kl. 2 I gærdag og stóð enn yfir þegar Morgunblaðið hafði slðast fregn- ir. Þótt of snemmt væri að segja til um samkomulagshorfur, fylgdi það þó sögunni að viðræð- urnar hefðu fram að þeim tíma verið töluvert vinsamlegri en á slðasta fundi þessara aðila sl. þriðjudag. Þá hélt sáttasemjari einnig stuttan fund með Bakara- sveinafélagi Islands og vinnu- veitendum þeirra I gær og hefur boðað aðila að nýju til fundar eftir helgina. framboð. Ástæðan fyrir því, að Þjóðverjar kaupa nú ekki síld af Dönum er að þeir hafa orðið að draga saman seglin eins og aðrir og þvi ekki borðað eins mikið af síld, sem mikið er notuð í forrétti. Eiga menn ekki von á því, að þetta ástand breytist fyrr en I haust. Aðeins einn gleðilegur hlutur hefði gerzt á veiðunum í vor, það að meira hefði borið á smásíld en undanfarin ár, sem væri góðs viti ef síldin fengi að verða kynþroska. Ennfremur sagði Páll, að verðið á sildinni hefði verið helmingi lægra i dönskum krónum að meðaltali en i fyrra. Einn daginn hefðu fengizt 24—25 danskir aurar fyrir kílóið, en þann næsta ef lítið hefði verið á markaðnum, allt að 2 kr. danskar. Framan af hefði lítið sem ekkert fundizt af síld á hinum hefðbundnu veiði- slóðum og aðalveiðin verið norður undir Víkingabanka, en þar er síldin oft á haustin. Það væri ekki aðeins síldin, s.em hefði breytt um verustað, heldur hefði annar fiskur gert það líka að sögn danskra sjómahna. Allur kostnaður í Danmörku hefðu stór- aukizt að undanförnu og því þyrfti verðið fyrir síldina vera miklu hærra ef eitthvað ætti að hafast út úr þessu. — Prestastefna Framhald af bls. 24 skoðun sína varðandi þetta mál og önnur hliðstæð. Þetta þrennt er því tilefni þess, að tillagan kemur fram. Þess hefur verið getið i dag- blöðum, að tillaga sr. Ulfars hafi upphaflega gengið lengra en sú, sem að lokum var samþykkt. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem ýmsir stuðningsmenn tillög- unnar hafa látið mér i té, töldu þeir ekki rétt að kveða fastar að orði á þessu stigi máls en gert var með hinni endanlegu tillögu. Þar að auki var þeim fyllilega Ijóst að í fyrrnefndri greinargerð sr. Úlfars kæmi það skýrt fram, hver væri þungamiðja þessarar tillögu. Enn fremur töldu þeir rétt að styðja þá viðaukatillögu sr. Bolla Gústafssonar, sem áður er getið, en markmið hennar er það, að prestum gefist rækilega tóm til íhugunar og umræðu, áður en mál þetta verðúr tekið til formlegrar afgreiðslu. Þá er ástæða til að benda á, að engin gagntillaga kom fram; enn fremur, að tillagan var samþykkt af 55 fundarmönnum, 10 sátu hjá, en enginn greiddi atkvæði gegn tillögunni. Þessi varð niðurstaða atkvæða- greiðslunnar, og skal engum getum að því leitt, hvað mönnum bjó í hug, hverjum um sig, er þeir greiddu tillögunni atkvæði, þótt reynt hafi verið að túlka afstöðu manna í þeim efnum í blaðafregn í dag. Reykjavík, 27. júní, blaðafulltrúi biskups á Prestastefnu 1975. Þorvaldur Karl Helgason",- Lögreglumaóur gerir skýrslu á slysstað I gær. Ljósmynd sv. Þorm. Lögregla ók á lögreglu Formaður alþjóðasamtaka Skál-klúbba á íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.