Morgunblaðið - 28.06.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNl 1975
5
Skýrast linurnar í knattspyrnunni lím helgina?:
Barizt i öllum deildum —
Stórleikur á Skaganum
0 TOPPLEIKUR helgarinnar um helgina verður á Akranesi i dag er Valsmenn
koma í heimsókn og leika gegn ÍA. Bæði þessi lið eru líkleg til stórra afreka í
sumar og sigur i leiknum getur haft mikið að segja um möguleika þeirra
á meistaratitli. Hefst leikurinn á Akranesi klukkan 14.00 í dag og verður
honum lýst af Jóni Ásgeirssyni fréttamanni.
9 í Vestmannaeyjum leika heimamenn gegn ÍBK og sömuleiðis þar er um
mikilvægan feik að ræða. Hvorugt liðið hefur efni á að missa stig I keppninni
um efsta sætið i deildinni og hvorugt liðanna hefur i rauninni tryggt stöðu
sína það vel að liðin geti leyft sér að einblina á toppinn og gleyma baráttunni
á toppnum. Leikurinn i Eyjum hefst klukkan 1 7.00.
0 Á morgun verður svo siðasti leikur 6. umferðarinnar háður. FH og KR leika
á malarvellinum i Kaplakrika og er þar frekar um botnbaráttu að ræða heldur
en að þar mætist tvö lið sem likleg séu til stórafreka. Leikur FH og KR hefst
klukkan 20.00 annað kvöld.
Ólafur H. Jónsson heldur senn til V-
Þýzkalands þar sem hann segir að öll
aðstaða sé ævintýralega góð, en lands-
liðið fær þó væntanlega að njóta krafta
hans áfram.
0 Spá Morgunblaðsins um leiki
helgarinnar er sú að Akurnesingar
nái báðum stigunum i fjörugum leik
þar sem mörk beggja liða komast oft
í hættu. Að Vestmanneyingarnir sigri
í Eyjum og KR-ingar nái eina úti-
sigrinum i umferðinni en það engan
veginn átakalaust.
0 í 2. deild verður bæði um baráttu
á toppi og botni að ræða, en þar eru
línurnar mun skýrari en í 1. deild-
inni. í dag leika botnliðin Reynir og
Víkingur á Árskógsströnd og hefst
leikurinn klukkan 16.00, en Haukar
og Völsungar leika á Kaplakrika kl.
14.00. Á mánudaginn verður svo
stóri siagurinn á milli Breiðabliks og
Þróttar á velli þeirra siðarnefndu og
sigri Blikarnir má svo gott sem bóka
sigur þeirra i 2. deild ár. Hefst leikur-
liðanna kl. 20.00 og á sama tima
leika Selfoss og Ármann á Selfossi.
9 í 3. deild fara þessir leikir fram i
dag og hefjast þeir allir klukkan
16.00.
Melavöllur: Hrönn — Þór
Bolungarvik: Bolvikingar — Skalla-
grimur
Þingeyri: HVÍ — Grundarfjörður
[safjörður: ÍBÍ — Snæfell
Akureyri: KA — KS
Blönduós: USAH — Magni
Fáskrúðsfj: Leiknir— KSH
Neskaupst: Þróttur— Sindri
Eskifjörður: Austri — Höttur
Reyðarfj: Valur— Einherji
SUNNUDAGUR:
Ólafsfj: Leiftur — UMSS
Isafjörður: ÍBÍ — Grundarfj. *
Akureyri: Þór— UMSE
Þingyeri: HVÍ — Skallagrímur
Bolungarvik: Bolungarvík — Snæfell.
Ólafur landsliðsfyrirliöi fer
tilDankerseen 1. ágústnk.
LANDSLIÐSFYRIRLIÐINN í handknattleik, Ólafur H. Jónsson úr Val, hefur
nú ákveðið að flytjast búferlum til V-Þýzkalands og leika næstu þrjú árin með
v-þýzka félaginu Grúnweis Dankerseen. Mun hann fara með islenzka
landsliðinu til Júgóslaviu um miðjan júli og siðan til ítalíu ásamt landsliðs-
mönnunum og eiginkonum þeirra. Frá italíu mun Ólafur svo halda til
V-Þýzkalands þar sem hann mun hefja æfingar með sinu nýja félagi 1.
ágúst.
Ólafur hefur um árabil verið einn
snjallasti handknattleiksmaður lands-
ins og oft verið sú driffjöður sem
vantað hefur þegar á móti hefur
blásið. Þrátt fyrir það að Ólafur sé
aðeins 25 ára gamall þá hefur hann
þegar leikið flesta landsleiki Islendinga
LIÐI Ungmennasambands
Vestur-Skaftfellinga, sem leikið
hefur í þriðju deild, hefur nú
verið meinuð frekari þátttaka í
mótinu. Hafa Skaftfellingarnir
ekki mætt tvívegis til leikja
sinna og þvl ákvað Knatt-
spyrnusambandið að vísa þeim
úr mótinu. Ekki vitum við til að
slíkt hafi áður gerzt I íslenzkri
knattspyrnusögu.
Tildrög þessa máls eru þau
að USVS hefur ekki mætt til
tveggja leikja sinna I 3. deild-
inni á útivelli, en hins vegar
leikið alla heimaleiki sína. í
reglugerð KSÍ um knattspyrnu-
mót segir að liði, sem ekki
mætir til keppni tvo leikdaga I
móti, skuli vlsað úr mótinu.
Samkvæmt þessari reglu var
ákveðið að vísa liði USVS úr.
mótinu.
Fleiri félög hafa I sumar gerzt
sek um það að mæta ekki til
leikja sinna og missa þau þar
með ýmis réttindi. Til dæmis
geta þau ekki orðið sigur-
vegarar I móti og heimilt er að
í handknattleik, alls 82. Geir Hall-
steinsson og Viðar Simonarson hafa
leikið 80 landsleiki. í leikjum sinum
hefur Ólafur skorað 210 mörk og er
þriðji á töflunni yfir markaskorara i
landsleikjum, fyrir ofan hann eru Geir
Hallsteinsson og Axel Axelsson.
taka heimaleiki þeirra af þeim.
Þá hefur verið mikill misbrestur
á að leikjaskýtslur bærust á
réttum tíma, en heimilt er að
beita dagsektum berist leikja-
skýrslurekki á réttum tíma.
Geir varð fyrstur islenzkra hand-
knattleiksmanna til að fara til keppni
með erlendu liði og lék með þýzka
liðinu Göppingen veturinn
1 973—74 Axel Axelsson fór siðan til
Dankerseen I fyrrahaust og er enn hjá
félaginu. Gunnar Einarsson úr FH fór i
sumartil Göppingen og Einar Magnús-
son, Víkingi, fer innan tíðar til
Hamburgar SV.
Ólafur hefur stundað nám i við-
skiptafræði við Háskóla Islands og á
eitt ár eftir til að Ijúka lokaprófi Hyggst
Ólafur undirbúa sig undir síðustu próf-
in jafnframt því sem hann fær ein-
hverja létta vinnu hjá félaginu og sinnir
æfingum. [ samningi Ólafs við þýzka
félagið segir svo að Ólafur geti sagt
honum upp með tveggja mánaða fyrir-
vara og honum sé frjálst að leika með
íslenzka landsliðinu komi það ekki
niður á leikjum hans með Dankerseen.
Ólafur kom heim í fyrrakvöld frá
Dankerseen og sagði að sér hefði litizt
stórkostlega vel á allar aðstæður ytra.
Félagið hefði yfir glæsilegri íþróttahöll
að ráða og allt væri gert fyrir leikmenn
félagsins. Af Axel Axelssyni hafði hann
þær fréttir að hann á enn við meiðsli
að striða, en var til meðferðar hjá
einum kunnasta iþróttalækni Þýzka-
lands og var vonazt til að hann yrði
orðinn að fullu góður er æfingatíma-
bilið hefst T. ágúst. Sjálft keppnistíma-
bilið hefst 20. september, en fram að
þeim tíma leikur liðið fjölmarga
æfingaleiki
Tilboð óskast í
eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafaví um-
ferðaróhöppum:
Fíat 600 ......................árg. 1972
Ford Bronco ...................árg. 1966
Volvo 144 .....................árg. 1971
Dodge sendiferðabifr...........árg. 1969
Mersedes Benz ...................árg 1956
CitroénAmi8 .....................árg 1971
Citroén g.s..................... árg 1971
Morris Martína ..................árg 1974
Bifreiðarnar verða til sýnis að Smiðshöfða 17,
Reykjavík, mánudaginn 30. júní n.k. frá kl.
12—18.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga,
Tjónadeild fyrir kl. 17 þriðjudaginn 1. júlí
1975.
w
I fyrsta skipti í íslenzkri knattspyrnusögu:
Liði vísað úr
íslandsmótinu
hestamanna að Faxaborg
4.-6. júlí 1975
Dagskrá
Fimmtudagur 3. júlí
Öll sýningarhross verði komin til hestavarða um
kvöldið.
Föstudagur 4. julí
Sýnendur kynbótahrossa mæti sem hér segir:
Kl. 10.00 —13.00 Stóðhestar einstakir.
Stóðhestar með
afkvæmum.
— 14.00—20.00 Hryssur einstakar.
Hryssur með afkvæmum
— 18.00 Umdanrásir kappreiða eftir röð í
skrá.
— 21.00 Dansleikur í Lyngbrekku. —
Hljómsveit Þorsteins Guð-
mundssonar, Selfossi leik
Laugardagur 5. júlí
Kl. 10.00 Spjaldadómar gæðinga, A-flokkur.
— 11.00 Spjaldadómar gæðinga, B-flokkur.
— 12.00 Matarhlé.
— 14.00 Mótið sett: formaður L.H., Albert
Jóhannsson.
14.15 Kynbótahestar sýndir.
15.30 Kynbótahryssur sýndar.
17.00 Undanúrslit í kappreiðum.
21.00 Dansleikur i Logalandi.
Hljómsveit
Þorsteins Guðmundssonar,
Selfossi, leikur.
22.00 Kvöldvaka í Faxaborg.
Sunnudagður 6. júlí
Kl. 10.00 Kynbótahestar sýndir. Verðlaun
afhent.
— 11.00
— 12.00
— 14.00
— 14.15
— 14.30
— 15.30
— 16.30
Hryssur sýndar. Verðlaun afhent.
Matarhlé
Helgistund. Sr. Ólafur Jens
Sigurðsson.
Ávarp formanns Búnaðarfélag
íslands, Ásgeir Bjarnasonar.
Góðhestar sýndir. Verðlaun afhent.
Heildarsýning á afkvæmum
stóðhesta á Vesturlandi.
Urslit kappreiða. Verðlaun afhent.
Mótsslit.
YFIR 90 HROSS í HLAUPUM. FLESTIR BEZTU
HLAUPAHESTAR LANDSINS.
SÝNING 90 KYNBÓTAHROSSA OG 35 GÆÐINGA.
VERIÐ VELKOMIN í FAXABORG.
FRAMKVÆMDANEFNDIN