Morgunblaðið - 28.06.1975, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.06.1975, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNl 1975 Laxveiði Veiðileyfi í Laxá og Bæjará Reykhólasveit til sölu. Upplýsingar í síma 35260 og 8301 8. Sundnámskeið Sundnámskeið fyrir börn 6 ára og eldri, verða haldin í sundlaugum Breiðagerðis- og Árbæjar- skóla 1. — 25. júlí n.k. Innritun í anddyri Breiðagerðisskóla og Sundlaugar Árbæjarskóla 28. júní kl. 10—12 og 14—16. Námskeiðsgjald kr. 1 000,00 greiðist við innrit- un. Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur. Bátur til sölu Vélbáturinn Muggur ÍS 22, 12 tonn, planka- byggður frá Bátalóni, með 125 ha Caterpillar- vél er til sölu og afhendingar strax. Viðskiptaþjónusta G uðmundar Ásgeirssonar, sími 97 — 71 77 IMeskaupsstað. Tilkynning frá Bifreiðaeftirliti ríkisins í Reykjavík, Keflavik og Hafnarfirði. Vegna sumarleyfa starfsfólks verður að draga jnjög úr starfsemi stofnunarinnar á tímabilinu frá 7. júlí til 1. ágúst, að báðum dögum meðtöldum. Engin aðalskoðun verður auglýst á nefndu tímabili, en tekið verður á móti nauðsynlegum umskráningum, eigendaskiptum og nýskráninqum. ......... J Bifreiðaeftirlit rikisms GEÐVERND — happdr. '75 Ósóttur vinningur: Nr. 38674, DAF — SL-66, „Variomatic". 1. vínningur (nr. 41456) hefur verið afhentur rétthafa vinningsmiða. Geðverndarfélag íslands Hafnarstræti 5 Minningarsjóður Vigdísar Ketilsdóttur og Æ * Olafs Asbjarnasonar Ákveðið hefur verið að sjóðurinn veiti styrk tveimur læknum til framhalds- náms næsta skólaár. Umsóknir, ásamt upplýsingum um hvaða sér- grein væri að ræða og aðrar, sem að umsókninni lúta, sendist formanni sjóðsins Ásbirni Ólafssyni, Borgar- túni 33, fyrir lok júlímánaðar 1 975. Vörubíll óskast. 8 — 9 tonna Man eða Scania Vabis, helzt með krana. óskast keyptur. Uppl. í síma 96-41 250. Innilegustu þakkir færum við öllum þeim nær og fjær sem sýndu okkur sóma og vinsemd með heimsóknum, kveðjum og gjöfum í tilefni 40 ára starfs reglu okkar i Stykkishólmi að líknar og mannúðarmálum. Þá þökkum við vinsemd og alúð Stykkishólmsbúa á liðnum árum Óskum landi og þjóð farsældar og blessunar guðs í komandi framtíð. Stykkishó/mi 25. júní / 9 75. St. fransiskussystur. Ö/lum vinum og frændfó/ki sem sýndu mér vinarhug á 80 ára afmæ/i mínu þann 1 7. júní s.l., sendi ég minar bestu þakkir. E/ísa Gudjónsdóttir Öldugötu 32. Auglýsing um námsstyrk frá Indlandi Indversk stjórnvöld hafa boðið fram dvalarstyrki ætlaða ungum þjóð- félagsfræðingum, háskólakennurum, blaðamönnum, lögfræðingum og fl. sem vilja kynna sér stjórnarfar á Indlandi af eigin raun. Ferðakostnað þarf styrkþegi að greiða sjálfur. Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru fyrir hendi í mennta- málaráðuneytinu. Umsóknum óskast skilað til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík fyrir 7. júlí n.k. Menntamálaráðuneytið 23. júní 1975. Keflvíkingar — Suðurnesja- menn Höfum á lager hinar viðurkenndu Vitretex úti- og innimálningu, ásamt Hempels þakmálningu. Aðstoðum við litaval. Afgreiðsla af lager Hæðargötu 9, Ytri-Njarðvík, föstudag og laugardag kl. 2 — 6. Ólafur og Þór h. f. sími 2471. Viðlagasjóður auglýsir. Samkvæmt 2. mgr. 8. gr. reglugerðar um Norðfjarðardeild Viðlagasjóðs ber þeim, sem telja sig hafa orðið fyrir bótaskyldu tjóni af völdum snjóflóðanna í Neskaupstað í desember sl., að tilkynna kröfu sína til skrifstofu Viðlaga- sjóðs eigi síðar en 1. júlí 1975. Reglur um hvernig bótum er hagað úr sjónum fyrir tjón, sem orðið hefur á Neskaupstað vegna snjóflóðanna, liggja frammi á skrifstofu sjóðsins í Neskaupstað og Reykjavík. Viðlagasjóður. Höfum opnað bílasölu að Nýbýlavegi 4, Kópavogi Höfum til sýnis og sölu þennan glæsilega Mercedes Benz Sport 280 SL Okkur vantar bíla allar tegundir á skrá. Höfum kaupanda að Rússa jeppa með diesel vél. Bílasalinn Kópavogi, Nýbýlavegi 4, sími 43600. Áttræð: Elínborg á Skarði Höfuðbólið Skarð á Skarðs- strönd er elzta óðal á tslandi. Það hefur samkvæmt sögulegum heimildum verið í eigu sömu ætt- ar frá því um 1100 og sennilega allar götur frá landnámstíð. Sé svo talið, er landnámsmaðurinn Geirmundur heljarskinn forfaðir Skarðverja, en sagt er, að hann hafi göfugastur verið allra land- námsmanna á Islandi. I lok 11. aldar býr á Skarði Húnbogi Þor- gilsson, sem sumir telja bróður Ara fróða. Elínborg á Skarði, sem í dag fyllir 8. tug ævi sinnar, er 23. ættliður frá Húnboga Þorgils- syni. Elínborg Ingibjörg Bogadóttir Magnusen fæddist 28. júní 1895. Foreldrar hennar voru Bogi Magnússon á Skarði og kona hans, Kristín Guðrún Borghildur Jónas- dóttir prests á Staðarhrauni, síðar á Skarði, Guðmundssonar. Elín- borg giftist Kristni Indriðasyni 6. september 1913. Bjuggu þau á Skarði frá 1914 allan sinn búskap, þar til Kristinn dó 21. nóvember 1971. Þau eignuðust 3 dætur: Bogu Kristínu, húsfreyju að Skarði II, gifta Eggert Ólafssyni, Guðborgu sem er látin, en var gift Þorsteini Karlssyni f Búðardal á Skarðsströnd, og Ingibjörgu Kristrúnu, húsfreyju á Skarði, gifta Jóni Gunnari Jónssyni. A Skarði býr nú einnig Kristinn Borgar Indriði Jónsson, sonur Ingibjargar og Jóns, ásamt sinni fjölskyldu, svo að hin forna ætt er enn allfjölmenn á þessu óðals- setri. I huga hinna fjölmörgu núlif- andi Skarðs-vina rís hæst myndin af hjónunum Elínborgu og Kristni, sem réðu þar húsum f meira en hálfa öld og gerðu garð inn frægan. Svo sem verða vill skiptust á skin og skúrir í ævi þeirra. En samleið þeirra varð löng og farsæl í hamingjusömu hjónabandi. A heimili þeirra ríkti hressandi blær, glaðværð og gest- risni. Þar var löngum mann- margt. Ungir og gamlir áttu þar öruggt athvarf og skjól. Með Kristni hvarf af sjónarsviðinu breiðfirzkur höfðingi í sjón og raun, glaður og reifur til hinztu stundar. En Elínborg á Skarði hefur aldrei látið sinn hlut eftir liggja. Saga hennar er samofin sögu Skarðs á tuttugustu öld. Vin- ir hennar nær og fjær senda henni hugheilar árnaðaróskir og alúðarþakkir fyrir liðin ár og biðja þess, að ævikvöld hennar megi verða milt og fagurt, eins og þegar bjartast er um Breiðafjörð. Friðjón Þörðarson. — Hvað varð um . . . Framhald af bls.7 nokkuð fjárfest i fasteignum. Meginhluti þeirrar upphæðar sem fór til Englands, var lagður á bankareikninga, en lægri upp- hæðir hafa einnig verið brúkaðar til fasteignakaupa og fest í ríkis- skuldabréfum. Aðrar upphæðir, t.a.m. til ann- arra Evrópuríkja og Japans, eru að iangmestu leyti lán viðkom- andi rikja. Það er nú ljóst, að sem næst 60% af heildarhagnaði olíufram- leiðslurfkjanna árið 1974 hefur verið ráðstafað til banka og ann- arra peningastofnana. Og í flest- um tilfellum eru skilmálarnir 7 daga uppsagnarfrestur, en þó er allstór hlut auðmagnsins lagður inn með lengri uppsagnarfresti — og hærri vöxtum. Ekkert hefur enn verið birt um það, hvernig einstök lönd innan OPEC hafa varið olíuhagnaðin- um. En vitað er, aó Kuwait er best til þess búið að velja auðmagni sinu stað, þar sem mikils hagnað- ar er að vænta, því þetta land hefur lengst allra haft úr miklu að moða. Það er og ljóst, að Saudi Arabía fer varlegast í sakirnar. Venezuela hefur hingað til nær eingöngu varið auðmagni sínu til f járfestinga í Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.