Morgunblaðið - 28.06.1975, Qupperneq 24
Fékkst þú þér
TROPICANA
■ í morgun ?
HLAÐNAR
4fELLE8ENSlORKU
VRAFHLÖniJR •
LAUGARDAGUR 28. JUNÍ 1975
Togararnir úr höfn um og upp úr helgi:
Samningamir kosta um
7 milliónir króna á skip
Raunveruleg
kauphœkkun sjó-
manna um 20%
KJARASAMNINGAR þeir sem
undirritaðir voru í gærmorgun
milli undir- og yfirmanna á stóru
togurunum annarsvegar og
útgerðarmanna hinsvegar, munu
kosta hvert skip um það bil 7
millj. kr. á ári eða samtals um 154
millj. kr. fyrir stóru togarana
sem eru 22 talsins. Um og eftir
helgina má búast við að fyrstu
togararnir leggi úr höfn, eftir að
hafa verið bundnir við bryggju í
meir en tvo og hálfan mánuð.
Þeir fá ís eftir þeirri röð, sem
þeir komu til hafnar, en annars
er gert ráð fyrir þvi að fyrstu
togararnir, sem leggja úr höfn,
muni aðeins taka fs til nokkurra
daga og jafnvel koma inn á ný um
næstu helgi til þess að frystihúsin
og fiskverkunarstöðvarnar geti
tekið til starfa sem fyrst.
Yfirmenn ^ skuttogurunum
samþykktu nýju kjarasamn-
ingana með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða í gær, en alls-
herjaratkvæðagreiðslu undir-
manna lýkur um hádegi í dag, og
atkvæði verða talin síðdegis.Þá
Kom til blóðugra
átaka milli feðga
FEÐGAR liggja nú mikið slasaðir
f sjúkrahúsi eftir að til hat-
rammra slagsmála kom á milli
þeirra aðfaranótt fimmtudagsins.
Mennirnir tveir höfðu setið að
sumbli á heimili föðurins og sam-
býliskonu hans í Hafnarfirði.
Þegar kom fram á morgun skarst
í odda milli feðganna og fór svo
að til blóðugra slagsmála kom
milli þeirra. Annar þeirra mun
hafa vopnazt hnífi en hinn barðist
á móti með hnúum og hnefum og
lyktaði þessum átökum með því
að báðir lágu í valnum.
Feðgafnir voru báðir fluttir í
sjúkrahús og reyndist annar
mannanna vera með höfuðkúpu-
brot en hinn með innvortis
blæðingac Hvorugur er þó talinn
vera í lífshættu lengur.
„ÞÁ
ER
ÞESSU
LOKIÐ.“ Jón Sigurðsson
formaður Sjómannasam-
bands íslands og Valdi-
mar Indriðason for-
maður Félags íslenzkra
botnvörpuskipaeigenda
takast í hendur eftir
undirritun nýju togara-
samninganna í gær-
morgun
Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.
mun stjórn F.Í.B. halda fund um
kjarasamningana fyrir hádegi í
dag.
Raunveruleg kauphækkun
togarasjómanna mun vera tæp-
lega 20%, — 50—60% ef ein-
göngu er miðað við fastakaup
þeirra — en fastar launagreiðslur
útgerðarinnar eru nú um 30% af
heildarlaunagreiðslum og afla-
hlutur um 20%. í nýgerðum
samningi eru engar stórvægilegar
breytingar frá fyrri samningnum
árið 1973. Krafa útgerðarmanna
um fækkun í áhöfn náði ekki
Framhald á bls. 13.
Kópavogsþjófnaðurinn:
Aðeins eftir að
finna 77þús. kr. j
NU eiga aðeins um 77 þúsund
krónur eftir að koma f leitirn-
ar af peningafjárhæðinni sem
stolið var af bæjarskrif-
stofunni f Kópavogi á dögun-
um. Samkvæmt útreikningum
bæjarskrifstofunnar nam fjár-
hæðin samtals 1.356.500 krón-
um en að sögn Ásmundar Guð-
mundssonar rannsóknalög-
reglumanns hafa 1.279.500
krónur fundizt f fórum
piltanna þriggja sem lög-
reglan handtók vegna þessa
þjófnaðarmáls.
Svo sem kom frá í frétt
Morgunblaðsins í gær voru
tveir piltanna úr Reykjavík og
einn úr Kópavogi, og eru þeir á
aldrinum 18—19 ára. Hafa
þeir lítið komið^ við sögu af-
brotamála fram til þessa nema
hvað lögreglan hefur þurft að
hafa lítilsháttar afskipti af ein-
um þeirra. Piltarnir hafa nú
verið úrskurðaðir í allt að 14
daga gæzluvarðhald meðan á
fullnaðar rannsókn máls þessa
stendur, en m.a eiga piltarnir
eftir að gera betri grein fyrir
því, hvað orðið hefur af
peningunum sem enn eru
ófundnir. Piltarnir þrír hafa
allir játað hlutdeild sína í
þjófnaðinum og hefur komið
fram við yfirheyrslur að tveir
piltanna stóðu vörð utan við'
húsið meðan hinn þriðji brauzt
inn í húsið og komst í skjala-
skápinn, þar sem peningarnir
voru geymdir.
Valdimar Indriðason:
Mikilvægt að koma
skipunum út nú þegar
Fgrstu samningar gfirmanna frá
1969 segir Ingólfur Ingólfsson
STRAX og samningar undir-
manna og yfirmanna á togurum
höfðu verið undirritaðir, ræddi
Morgunblaðið við -Valdimar H.
Indriðason formann Félags fs-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda
og þá Ingólf Ingólfsson formann
Vélstjórafélags Islands og Ingólf
Blaðafulltrúi
btskups:
Prestastefnan var-
aði við áhrifum spíritismans
1 FRÉTTATILKVNNINGU, sem
Mbl. barst I gær frá blaðafulltrúa
biskups, segir, að ályktun Presta-
stefnunnar um dultrúarhreyf-
ingar beri að skilja á þann veg, að
þar sé varað við áhrifum
spfritismans innan fslenzku
kirkjunnar.
I upphafi fréttatilkynningar-
innar er getið ál.vktana Presta-
stefnunnar um þetta efni, en
sfðan segir:
„Um greinargerð sr. Úlfars
Guðmundssonar með fyrri tillög-
unni segir svo í fundargerðabók
Prestastefnu:
„Fram kom tillaga frá sr. Úlfari
Guðmundssyni, Ólafsfirði, þar
sem hann varar við dultrúar-
hreyfingum ýmsum. Framsögu-
maður lýsti áhyggjum sfnum'
vegna vaxandi áróðurs ýmissa
dultrúarhreyfinga, ekki sízt
spíritisma, og benti á nauðsyn
þess, að kirkjan haldi vöku sinni í
þessum málum. Flutningsmaður
taldi eðlilegt, að prestar geri
grein fyrir afstöðu sinni til
þessara mála heima hjá sfnum
söfnuði og gefi fólki rétta leið-
sögn. Að lokum beindi flutnings-
maður þeim tilmælum til Presta-
stefnu, að tillagan yrði rædd á
málefnalegan hátt og af víðsýni
ogfullum skilningi."
Vegna misskilnings, sem fram
hefur komið í dagblöðum, er óhjá-
kvæmilegt að benda á, að f ofan-
greindri greinargerð sr. Úlfars er
spfritisminn sérstaklega gerður
að umtalsefni. Með tilliti til
íslenzkra aðstæðna og þess hlut-
verks, sem spíritisminn hefur
gegnt innan íslenzku kirkjunnar,
er þvi rétt að undirstrika, að hér
er sérstaklega varað við áhrifum
þeirrar stefnu.
„Vísa ber einnig til þess, að
athafnasemi sálarrannsókna-
manna hefur aukizt og umræður
um spíritisma verið ofarlega á
baugi hin síðari misseri. í því
sambandi er skylt að geta þess, að
flutningsmaður aðaltillögunnar,
sr. Úlfar Guðmundsson, gat þess
og í greinargerð sinni, að fjöl-
margir einstaklingar í söfnuði
hans beinlinis óskuðu eftir þvf, að
fslenzkir prestar létu í ljósi
Frarnhald á bls. 2.
Stefánsson framkvæmdastjóra
Farmanna- og fiskimannasam-
bands Islands, en þeir voru f for-
sæti samninganefndar yfir-
manna, og fara samtölin við þá
hér á eftir.
Valdimar H. Indirðason sagði,:
„Á þessu stigi get ég lítið sagt um
samningana, ég verð þó að viður-
kenna að við erum orðnir þreyttir
eftir þessa 64 tíma törn, en um
leið hressir yfir þvf að samningar
hafa tekizt. Samningana á eftir að
bera upp á félagsfundi f félagi
okkar og við eigum eftir að fara
nákvæmlega í ge^num þá. Þá á
eftir að koma skipunum af stað,
en við vonum fastlega að þau
komist strax út, enda mikilvægt,
þar sem þau eru mjög mikilvægur
þáttur í atvinnulífi íslendinga.“
Ingólfur Stefánsson sagði:
„Breytingar sem orðið hafa við
þennan samning eru aðallega
fólgnar í fastakaupi. Fastakaupið
hækkar sem svarar láglauna-
bótunum eins og hjá öðrum stétt-
um. Þar að auki um 10%, sem
kemur fyrir þá kauprýrnun sem
sjómenn urðu fyrir í fyrra, þegar
aðrar stéttir fengu kauphækkanir
en þeir ekki. Þá verður smábreyt-
ing á fríi í höfn. Engin önnur
nýmæli eru i samningnum og
aflaverðlaun eru óbreytt.
Samningarnir hafa ekki tekið
langan tíma, eftir að farið var að
ræða við okkur. Það leið langur
tfmi, áður en útgerðarmenn fóru
að ræða við sjómenn. Við héldum
marga fundi með útgerðarmönn-
um á s.l. ári, án þess að nokkuð
kæmi út úr þvi.
Ingólfur Ingólfsson sagði:
(,Það sem ég yil helzt segja, er
að þessi langa deila hefur fyrst og
fremst staðið um kröfu útgerðar-
manna um fækkun í áhöfn, en
ekki kröfu sjómanna um launa-
bætur, en þær snerust fyrst og
fremst um það, sem fengizt hefur
í hinum almennu kjarasamning-
um. Það má segja, að það hafi
ekki verið fyrr en nú sfðustu
dagana, sem skriður komst á mál-
in, og andrúmsloftið lagaðist
fljótt eftir að viðræður hófust
fyrir alvöru.
Það er ekki úr vegi að skýra frá
því, að þetta er f fyrsta skipti sem
við náum að semja við F.I.B. síðan
1969. Arið 1971 var samþykkt
Framhald á bls. 13.
Stórlaxar úr Laxá í Aðaldal
STÓRI laxinn er nú farinn að
gera vart við sig í Laxá f
Aðaldal og fékk Kolbeinn
Jóhannsson endurskoðandi 28
punda lax á Breiðunni i fyrra-
dag og Jóhannes Arnason
sýslumaður 27 punda lax í
Háfholu. Þess má geta að í
fyrrasumar veiddi Kolbeinn 30
punda las á Breiðunni. Góð
veiði hefur verið i neðri hluta
Laxár undanfarið en tregari í
uppánni. Eru nú 180 laxar
komnir af svæði Laxamýra-
félagsins og nokkrir tugir laxa
af öðrum svæðum.