Morgunblaðið - 05.07.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.07.1975, Blaðsíða 1
149. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 5. JUlI 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Israel: Míkil reiði vegna hermdarverksins Jerúsalem, Damaskus 4. júlí Reuter — AP ISRAELSKA utanríkisráöuneytið gaf f kvöld út harðorða yfirlýs- ingu vegna sprengjutilræðis ara- bfskra hermdarverkamanna f Jerúsalem í morgun, þar sem 14 manns biðu bana og 78 særðust, og sakar þar Sameinuðu þjóðirn- ar um að hvetja arabfska hermdarverkamenn til dáða. Seg- ir ráðuneytið, að arabfsku til- ræðismennirnir „hafi verið tekn- ir upp á arma hinna ýmsu stofn- ana Sameinuðu þjóðanna, sem eins og menn muna, höfðu í upp- hafi mannúðarstefnu að megin- markmiði sfnu“ Er skfrskotað til ályktana S.Þ. þar sem stuðningi er lýst við kröfu Palestfnumanna um frjálsa Palestínu. Palestfnu- skæruliðar lýstu sig í dag ábyrga fyrir sprengingunni f Jerúsalem. Er þetta eitt blóðugasta hermdarverkið sem framið hefur verið í Jerúsalem, að sögn lögregl- unnar. Skömmu eftir sprenging- una voru 300 Arabar í nágrenn- inu teknir til yfirheyrslu. Spreng- ingin varð um kl. 10 i morgun er mikil umferð er um Zíonstorg i Gyðingahverfi borgarinnar. Hafði sprengjunni verið komið fyrir í ísskáp á gangstéttinni. Mikil reiði greip um sig í Jerúsalem eftir sprenginguna, og 50 mótmælend- ur kröfðust þess að „Arabar yrðu drepnir“ og að hermdarverkinu yrði svarað með „auga fyrir auga og tönn fyrir tönn“. Shimon Per- es, varnarmálaráðherra, kallaði verknaðinn „ódæðisverk." Bauð Sómalíufor- seti USA aðstöðu? Lissabon 4. júli AP — Reuter. # FRANSISCO da Costa Gomes, forseti Portúgals, sagði f óvenju- legu ávarpi til þjóðarinnar ) kvöld, að herstjórn landsins væri sameinuð þrátt fyrir „gróusögur“ gagnbyltingarafla sem væri „ætlað að skapa andrúmsloft spennu og örvæntingar.“ Hann ítrekaði tvfvegis að hann talaði sem yfirmaður hersins, og hvatti þjóðina til að „vinna meira og framleiða meira en f gær“ þar eð landið ætti við efnahagskreppu að stríða. # Costa Gomes minntist ekki á harðorða yfirlýsingu biskupa kaþólsku kirkiunnar í landinu. Washington 4. júlí — Reuter. MOHAMMED Siad Barre, forseti Sómalfu, hefur boðið Bandarfkja- stjórn aðstöðu til eldsneytistöku og viðhalds fyrir bandarísk her- skip f landi sínu ef Bandaríkja- menn komi þangað sem vinir, að því er Washington Post hefur f dag eftir forsetanum. Segir blaðið að Barre hafi rætt þetta við Ford forseta í fyrra I Washington. 1 viðtali segir Barre að hann myndi aldrei leyfa erlendar herstöðvar f Sómalfu og vfsar jafnframt á bug fullyrðingu James Schlesinger, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, um að Sovétrfkin séu að byggja eldflaugastöð í hafnar- borginni Berbera. Hvorki Hvita húsið né utan- ríkisráðuneytið í Washington tjáðu sig í dag um fréttina um þetta tilboð Sómaliuforseta. Segir Washington Post að með því að skýra frá þvi hafi Barre forseti viljað tjá löngun sína til að vega á móti áhrifum Sovétmanna i land- inu. Hann viðurkenni að hann fái Allsherjarverkfall á mánudag í Argentínu? aðstoð frá Sovétrikjunum, en hún sé aðeins notuð til að vinna gegn hungri og fátækt íbúanna. „Þýðir þetta að við séum í vasa Sovét- manna? Nei,“ segir forsetinn í viðtalinu við Washington Post. AP-símamynd HERMDARVERK — Sjúkraliðar og óbreyttir borgarar breiða yfir eitt af fórnarlömbum sprengingarinnar í Jerúsalem í gærmorgun, sem Palestinuskæruliðar stóðu að og olli dauða a.m.k. 14 manns. Portúgalska kirkjan ögrar ríkisstjórninni þar sem herstjórnin er af hörku gagnrýnd fyrir þá ákvörðun að afhenda ekki útvarpsstöð kirkj- unnar, sem vinstri sinnað starfs- fólk hafði yfirtekið, aftur f hend- ur henni, heldur nefnd á vegum rfkisins með hugsanlega þjóðnýt- ingu fyrir augum. Neita biskuparnir berum orðum að láta stöðina af hendi. Þessi árás hinnar valdamiklu kirkju lands- ins er mesta ögrun við portúgölsku valdhafanatil þessa. Ávarpi forsetans var bæði út- varpað og sjónvarpað, en í sjón- varpinu var aðeins birt ljósmynd af honum á meðan hann talaði. Áður hafði verið tilkynnt að sjón- varpað yrði beint og yrðu bæði Vasco Goncalves forsætisráðherra og Otelo Saraiva de Carvalho, hershöfðingi, yfirmaður hinnar róttæku öryggislögreglu — COPCON með í útsendingunni. Forsetinn sagði að Portúgalar „töluðu of mikið en ynnu of litið“ og hvatti til raunsæis í kaupkröf- um, umburðarlyndis og aga. Ávarp forsetans fylgir í kjölfar þess að byltingarráðið hefur í viku verið hikandi í ákvörðunum sinum og skipt um skoðun hvað eftir annað, m.a. hafði það upp- haflega lofað kirkjunni að hún fengi útvarpsstöðina aftur. Þetta sögðu biskuparnir í dag að væri veikleikamerki og væri verið að láta undan ofbeldi minnihluta- hópa. Þessar fálmandi aðgerðir ráðsins hafa komið af stað orð- rómi um að breytinga sé að vænta Framhald á bls. 14 Buenos Aires, 4. júlí, AP — Reuter. % Isabel Peron, forseti Argen- tfnu, og rikisstjórn hennar voru f kvöld sögð vera að velta þvf fyrir sér að lýsa yfir neyðarástandi f landinu til þess að koma í veg fyrir hugsanlegt allsherjarverk- fall n.k. mánudag og neyða um milljón manns, sem nú á i ólög- legum skæruverkföllum, til að snúa aftur til vinnu, að því er haft var eftir opinberum heimildum. Myndi slfkt neyðarástand, sem er mun vfðtækara en umsáturs- ástand það sem þegar er í land- inu, geta leitt tíl herfhlutunar. Stjórnin mun hins vegar ekki ákveða slfkar aðgerðir fyrr en úr- slit liggja fyrir af fundi fram- kvæmdaráðs argentíska alþýðu- sambandsins, CGT í kvöld, en ar sem Isabel Peron hefur átt við að strfða sfðan hún varð forseti eftir mann sinn, Juan Peron, en hún er sögð standa fast við efna- hagsráðstafanir þær, sem eru or- sök ólgunnar meðal verkalýðsins. Talið var liklegt i kvöld, að leið- togar CGT myndu lýsa yfir þriggja daga allsherjarverkfalli næsta mánudag ef ríkisstjórnin slægi ekki af ákvörðun sinni um að banna alla launahækkanir yfir 50%. Skæruverkföllin kosta rikið 66 milljónir dollara á dag, að því er sérfræðingar telja. Flestar stál-, bíla-, vefnaðar- og efna- verksmiðjur voru lamaðar af völdum verkfallanna og samgöng- ur voru einnig í ólestri. Öflug sprengja sprakk í veitingahúsi í Framhald á bls. 14 I sambandið telur um 3,5 milljónir I | félaga, Þetta eru mestu erfiðleik- ! AP-mynd. Isabel Peron (ilkynnir aðgerðir sfnar gegn launahækkununum. Að baki hennar sést f Lopez Rega, félagsmálaráðherra, og umdeild- asta ráðgjafa forsetans. Indira þjarmar að öfga- flokkum Nýju-Delhi 4. júlí, Reuter—AP TUGIR félaga f fjórum stórum stjórnmála-, trúar- og byltingar- samtökum og 22 flokkum sem starfa f tengslum við þau, voru f dag handteknir um gjörvallt Ind- land, að þvf er fregnir hermdu, f kjölfar banns rfkisstjórnar Indiru Gandhi ástarfsemi þessara samtaka. Eru samtök þessi og flokkar sökuð um neðanjarðar- starfsemi sem stefni að samsæri. Meðal þeirra samtaka, sem bönn- uð hafa verið, eru róttækur hægri flokkur múhameðstrúarmanna, Jamaat Islam, og öfgaarmur þjóðernisflokks Hindiía, Jana Sangh, og af vinstri flokkum má nefna indverska Marx- Lenfnistaflokkinn, Maóistaflokk- inn og ýmsa byltingaflokka f ein- stökum héruðum landsins. Allir þeir flokkar sem bannaðir voru, eru annaðhvort yzt til vinstri eða hægri f indversku þjóðlffi. Einnig skar stjórnin í dag upp herör gegn skattsvikurum og smyglurum, og voru 12 smyglarar handteknir í dag. Indira Gandhi, forsætisráðherra, sagði í dag, að lýðræði væri „afar mikilvægt, en ekki mikilvægara en það að þjóð haldi velli“. I fyrsta blaðaviðtali sínu eftir að neyðarástandi var Iýst yfir, segir Gandhi m.a: „Við erum ekki með lögregluríki hér, né heldur einsflokksriki." Hún kveðst ekki vera ánægð með að hafa þurft að koma á ritskoðun, en ver hana með þvi að segja að „sum blöð hafi varpað allri óhlut- drægni og sjálfstæði fyrir róða og algjörlega gengið í lið með andstöðuöflunum og gert allt til að útbreiða bölsýni og uppgjöf". Glistrup — ég vinn öll hin málin. Glistrup dœmdur Kaupmannahöfn 4. júli. Frá fréttaritara Morgunblaðsins Jörgen Harboe: HÆSTIRÉTTUR Danmerkur hefur kveðið upp dóm yfir Mogens Glistrup lögmanni og leiðtoga næst stærsta flokksins á danska þjóðþinginu, Fram- faraflokksins, f einu af mörg- um svindl- og skattsvikamál- um sem nú eru f gangi gegn honum. Samkvæmt dómnum á Glistrup að greiða 20.000 d. kr. í málskostnað. Glistrup kveðst beygja sig undir dóm hæsta- réttar en segir: „Dómurinn er undantekning. Ég vænti þess að vinna f öðrum málum, sem höfðuð eru á hendur mér.“ Mál þetta var höfðað af ein- um af skjólstæðingum Glistrups, en hann og lögmað- urinn höfðu i sameiningu stofnað hlutafélag með 300.000 Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.