Morgunblaðið - 05.07.1975, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.07.1975, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JULl 1975 Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen Indriði þakkaði fyrir gott boð. Gekk þá húsfreyja fram og kom aftur að stundu liðinni og færði Indriða kaffibolla, og drekkur Indriði, og fæst húsfreyja mest um það, að hvorki sé staðurinn svo ríkur, að það sé til „bakki“ að bera bolla á fyrir mann auk heldur tvíbökur til að bjóða með. Síóan spyr Indriði húsfreyju, bvort Bárður gamli sé heima. Segir hún, að svo muni vera og muni hann aö venju sitja í skemmu sinni. Kveður hann Rósu og gengur til skemmu og hyggst að hitta þar Bárö Búrfellsás. Skemman var opin, og sat Bárður á þrepskildi og fléttaði linda eður bandspotta einn, er hann hafði bundið í dyrustafskenginn. Indriði heilsar Bárði, og tekur hann kveðju hans og þó heldur seinlega, og finnur Indriði það, að Bárður er ekki í sem beztu skapi. Tekur hann þá til máls og segir: Svona er iðjumennirnir, þeir eru ætíð eitthvað að starfa. Hvað eruð þér að flétta núna, Bárður minn? Það er nú svona þarfaband fyrir mig, Indriði minn; ég held manni veiti ékki af, þó maður ætti það, þó ekki væri til annars en að hengja sig í. En hvað ertu nú að ferðast, Indriði sæll? Ég er nú kominn áfram, sagði Indriði. Ég ætlaði aö tala nokkur orð við þig, Bárður minn. Já, já, settu þig þá hérna inn, ef þú vilt, á meðan; tylltu þér þarna á kistuna, ef þú ert svo lítillátur; ég hef ekki marga stólana að bjóða eins og þessi nýkomna frú, ég hef aldrei átt þá i búskapnum; ellegar ef þú vilt heldur, þá settu þig þarna á fletið mitt, það er ekki lús í því. Þú ert ef til vill ekki eins hræddur við lúsina eins og frúin hérna inni. Margt hefur nú skipzt um, síðan þú komst hér síðast. Slíkt og þvílíkt ástandið — sýnist þér það ekki. Sérðu ekki, að ég er kominn hingað með bólið mitt? Stúfur litli honum i hug, að allt væri nú gott, bara ef hann hefði hjá sér hann bróður sinn, hann Lárens konung, þá gæti hann feng- ið hina konungsdótturina og hinn helm- inginn af ríkinu, því sjálfum fannst honum nóg að hafa annan helminginn. Varla hafði honum dottið þetta í hug, fyrr en hann gekk út og kallaði á Lárens konung. Enginn kom fyrir því. Svo kallaði hann aftur, dálítið hærra, en enginn kom. Þá hrópaði Stúfur litli í þriðja sinn eins hátt og hann gat, og allt í einu stóð bróðir hans hjá honum. „Ég sagði, að þú mættir ekki kalla á mig, nema þú værir I ýtrustu nauðum staddur", sagði hann við Stúf, „og ekki get ég séð hér neina hættu, sem að þér steðjar". Með það gaf hann Stúf litla slíkt högg, að hann kútveltist niður í hvamminn fyrir neðan höllina. „Hvað ertu að slá mig“, kallaði Stúfur. „Fyrst vann ég aðra konungsdótturina og helminginn af ríkinu, og nú er ég búinn að fá hinn heiminginn líka, og er í vand- ræðum með hina konungsdóttirina, og ætlaði að gefa þér hana og hálft ríkið, — finnst þér rétt að láta svona við mig?“ Þegar Lárens konungur heyrði það, bað hann bróður sinn um að fyrirgefa sér, og þeir urðu strax mestu mátar aftur. M0R<3dN-|%\\ kafp/nu \\ r® Pottþétt Siggi: — Aldrei að lítillækka sig á þvi að rífast við náungann. 1 ár skulum við gefa hvort öðru fínar afmælis- gjafir: minkapels — slifsi og svoleiðis... Maigret og guli hundurinn Eftir Georges Simenon Þýðandi Jóhanna Kristjónsdóttir 28 slýröi. Þegar á leiðarenda kom höfðu þeir bæjarstjðrinn og Maigret ekki skipzt á cinu orðí á leiðinni. — Gerið þér svo vel, þessa leið Bæjarstjórinn afhenti þjóni frakkann sinn. — Er frúin farin f rúmið? — Nei, frúin bfður I bökaher- berginu... Þar var hún rcyndar. Þött hún vseri sennilega um fertugt leit hún út fyrir að vera miklu yngri en eiginmaðurinn enda var hann kominn töluvert á sextugsaldur. Hún heilsaði lögregluforingjan- um með þvf að kinka kolli. — Hvaðcr að frétta? Eins og hinn fullkomni heims- borgari kyssti bæjarstjórinn viróulega á hönd konu sinnar og hélt utan um hana meðan hann sagði hátfðlegaog sefandi. — Þú getur veriðvalveg róleg ... Tollvörður hefur verið særður en mjög lftillega .. Og ég vona að þessi óþolandi martröð taki enda eftir það samtal sem við ætlum nú að eiga saman, lögregluforing- inn og ég ... Þar brakaði f silkisloppnum þegar hún gekk út. Bókaherberg- ið var stórt og rúmgott með viðar- þiljum og f loftinu voru bitar eins og á brezku herrasctri. Fagurlega innbundnar bækur þöktu hillurnar; þarna bar allt vott um fágaðan smekk og fólki hlaut ósjálfrátt að lfða þar vel. Eldur snarkaði f arninum. Alit var þetta ákaflega ólfkt plast- gullssniðinu f húsi læknisins. Bæjarstjórinn tók fram einn af vindlakössunum og bauð Maigret. — Þökk fyrir, en ég er að hugsa um að hatda mér við pfpuna mfna, ef yður væri sama... — Fáið yður sæti, lögreglufor- ingi ... Má ég bjóða yður vfskf Hann ýtti á bjölluhnapp og kveikti sér f víndlinum sfnum. Þjónn kom inn með drykkjar- föng. Þar var engu iíkara en Maigret liði hálfilla f þessu virðu- lega umhverfi. Andlit hans var svipbrigðalaust, kannski fvíð þyngra en venjulega. Gestgjafi hans beið unz þjónn- inh var farinn út. — Þér verðið að skilja lögregluforingi að þessi glæpa- verk mega ekki halda áfram ... nú hafið þér verið hér f fimm daga ... og á þeim fimm dögum Maígret tök snjáða minnisbók- ina upp úr vasa sfnum. — Leyfist mér, grcip hann fram f fyrir bæjarstjóranum. — Þér talið um glæpaverk ... Ég verð að vekja athygli yðar á þvf að öll eru fórnardýrin lifandí með einni undantekningu ... eítt dauðsfall ... Le Pommeret ... Ilvað toilþjóninum viðkemur verðið þér að viðurkenna að hafi cinhver ætlað sér að drcpa hann. hefði hann ekki skotið f fótinn. Þér þekkiö þann stað sem viðkoniandi hefur verið á þegar hann hleypti af byss- unni... sá sem skaut sást ekki. Hann hefur getað gefið sér góðan tfma til undirbúnings ... nema við eigum að ganga út frá þvf sem gefnu að hann hafi aldrei haldið á byssu áður... Bæjarstjórinn leit hissa á hann, greip giasió sitt og sagði: — Þér eigið sem sagt við...? — Að það hafi verið ætlunin að skjóta hann f fótinn, að minnsta kosti held ég ég mér við það unz annað verður sannað ... — Var þá einnig ætlunin að hitfa Mostaguen í fótinn. Kaldhæðnin ieyndi sér ckki f röddinni. Nasavængir hans titr- uðu. Ifann lagði sig fram um að vera kurteis og gæta stiilingar af þvf að hann var á heimili sfnu. En það var ónotalegur undirtónn f rödd hans. Maigret var einna Ifkastur und- irmanni sem gefur skýrslu ábyrg- um yfirmanni þegar hann sagði: — Ef þér viljið getum við farið f gegnum minnisbókina mfna lið fyrir liö... Ég byrja þá föstudag- inn 7. nóvemher... KÚLU ER SKOTIO GEGNUM BRÉFALUGU A AUÐU HUSI AÐ HERRA MOSTAGUEN. Ég bið yður vinsamlegast að hafa það hugfast að ELNGINN gat vitað að herra Mostaguen m.vndi á þessu ákveðna andartaki leita skjóls við innganginn f húsið tii að kveikja sér f vindli... ögn minni na'ðingur og glæpurinn hefði sem sagt ekki verið fram- inn! Engu að síður var vopnaður maður fyrir innan dyrnar... ann- aðhvort vitfirrtur maður ellegar eínhver sem var að bfða eftir ákveðnum aðila... Athugið nú hvenær þetta gerist! Klukkan ell- efu um kvöldið... Allur bairinn er komin f ró, nema að undan- skildum fámennum höpi á Cafe del’Amiral... Eg dreg engar ályktanir af þesNu. Við skulum fhuga þá sem hugsaniega gætu verið sekir um verknaðinn. Er þá þegar hægt að undanskilja Le Pommeret og Jean Servieres og eínnig Emmu, vegna þess að vitað er að þau voru inni f veitingahúsinu. Eftir er Michoux sem hafði far- ið stundarf jórðungi áður og flæk- ingurinn með stóru fæturna. Plús einn sem viö köllum herra X, af þvf að við vitum ekki meira að svo stöddu. Sammála? Leyfið mér f þvf sambandi að bæta við, að herra Mostaguen er ekki dáinn og búizt við að hann verði kominn á fætur aftur innan hálfs mánaðar. Þá skulum við vfkja að atburði númer tvö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.