Morgunblaðið - 05.07.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JULl 1975
3
Tillaga um „takmarkað
hundahald” í Reykjavik felld
A BORGARSTJÓRNARFUNDl
s.l. fimmtudag var borin fram til-
laga um að settar yrðu strangar
reglur um takmarkað hundahald
í Reykjavík, og yrði miðað við að
lagður yrði hár „hundaskattur"
og ströng viðurlög, ef reglur væru
brotnar. Tillagan var felld með 11
atkvæðum gcgn 4.
I greinargerð með tillögunni
segir flutningsmaður, Guðmund-
ur G. Þórarinsson, m.a., að
reynsla af banni því sem gilt hafi
um hundahald í Reykjavík um
langt árabil, sé sú, að ókleift hafi
orðið að framfylgja því og hunda-
hald hafi aukizt verulega á síð-
ustu árum. Sé nú svo komið, að
tala hunda í Reykjavik sé talin
um 2000, þótt enginn viti hana
með vissu. Þetta ástand sé óvið-
unandi, m.a. vegna þess að ekki
séu tök á að fylgjast með því að
heilbrigðisráðstöfunum sé fylgt.
Flutningsmaður taldi 15 þús.
króna hundaskatt á ári geta kom-
ið til greina. Þá taldi hann, að
setja yrði sérákvæði vegna hunda-
halds i fjölbýlishúsum og bann
gegn því að hundar kæmu inn á
staði, þar sem farið væri með mat-
vöru. 1 umræðum um málið taldi
flutningsmaður að yrði hundum
útrýmt í Reykjavík gæti af því
sprottið félagslegt vandamál.
í umræðum um tillöguna tóku
margir borgarfulltrúar til máls.
Davið Oddsson benti á, að ef
ætlunin væri að leggja á háan
hundaskatt þyrfti til þess laga-
Söngdagskrá á
sýningu Eyfells:
Sýningunni
lýkur á
morgun
Yfirlitssýning Eyjólfs J.
Eyfells, sem opin hefur verið
þessa viku að Kjarvalsstöðum,
lýkur kl. 10 annað kvöld.
Sýningin hefur verið mjög vel
sótt og vakið verðskuldaða hrifn-
ingu.
Auk almennra gesta bauð lista-
maðurinn vistfólki á ,,Grund“ og
„Hrafnistu" á sýninguna. For-
stjóri SVR sýndi þá vinsemd að
gera það kleyft með þvi að annast
flutning gestanna.
Þá hafa séð sýninguna gestir
Reykjavíkurborgar á lækna- og
búfræðingaráðstefnu, sem haldn-
ar hafa verið í borginni þessa
viku.
1 dag kl. 5 verður flutt á sýning-
unni stutt söngprógram á vegum
þjóðdansafélagsins.
Sýningin verður ekki fram-
lengd.
breytingu, þar sem núgildandi lög
kvæðu á um 300 króna skatt af
hundum.
Markús Örn Antonsosn vísaði
til ákvörðunar borgarstjórnar um
bann við hundahaldi fyrir nokkr-
um árum, en þá var aðeins einn
borgarfulltrúi fylgjandi því, að
leyft yrði að hafa hunda í borg-
inni. Hann taídi ótímabært að
taka þetta mál upp nú, þar sem
ýtarleg skoðun hefði farið fram á
þvi fyrir fáum árum. Hins vegar
taldi borgarfulltrúinn einsýnt, að
nauðsynlegt væri að framfylgja
reglum um bann við hundahaldi,
og sæi hann enga ástæðu til að
hvika i þessu máli. Markús benti
ennfremur á, að flutningsmaður
gerði ráð fyrir því i greinargerð-
inni, að sérákvæði giltu um
hundahald í fjölbýlishúsum.
Sagði hann, að hér væri um að
ræða röksemdarfærslu, sem fengi
ekki staðizt, þar sem tilgangurinn
með því að leyfa hundahald væri
m.a. sá að draga úr einmanaleika,
eins og fram kæmi i greinargerð-
inni, en augljóst væri að þeir, sem
i einbýlishúsum byggju, þjáðust
manna sízt af einmanakennd,
enda myndi tillagan augljóslega
stuðla að mismunun borgaranna.
Albert Guðmundsson kvaðst
fylgjandi þvi, að leyft yrði að hafa
hunda í borginni. Gildandi reglur
um bann væru út í hött þar sem
þýðingarlaust væri að setja regl-
ur, sem fólkið vildi ekki. Hann
fagnaði því, að hann og hundarnir
hefðu nú fengið liðsstyrk i
borgarstjórn, eins og hann komst
að orði.
Þorbjörn Broddason vitnaði i
skýrslu um hundahald í borginni,
sem fram kom nýlega, og taldi að
þar væri sýnt fram á ófögnuð
þann, sem leiddi af hundahaldi í
þéttbýli. Kvað hann ósannað, að
KRISTJAN Fjeldsted í Ferjukoti
kom að máli við Mbl. vegna frétt-
ar blaðsins I gær og sagði það
rangt, að hann hafi kært Hannes
Ólafsson á Hvítárvöllum fyrir ó-'
löglega netaveiði f ánni. Sagðist
Kristján ekki hafa kært nokkurn
mann, en hins vegar hefði Davíð
bróðir Hannesar kært Hannes.
Aðspurður, hvort hann sjálfur
hefði sætt kæru — svaraði Krist-
ján: „Mér cr ekki kunnugt um
það, nema þá Hannes hafi kært
mig.“
Um umrætt atvik, föstudaginn
ókleift væri að framfylgja hunda-
banni, þar sem engin tilraun
hefði verið til þess gerð.
Elín Pálmadóttir taldi ástæðu
til að vantreysta þvi, að þeir, sem
ekki hlíttu gildandi reglum um
hundabann, myndu fremur hlíta
öðrum reglum, og benti á, að þrátt
fyrir það, að hundum hefði fjölg-
að svo í borginni sem raun væri á,
þá væru þó margfalt fleiri borgar-
búar, sem virtu settar reglur en
þeir, sem brytu þær.
Adda Bára Sigfúsdóttir sagðist
ekki vilja hundum svo illt að vera
í þéttbýli, einmitt vegna þess, að
hún væri vinveitt hundum. Hún
sagði, að sóðaskapur af hundum
hlyti að verða í hlutfalli við fjölda
þeirra.
Páll Gíslason kvaðst vilja fara
málamiðlunarleið i þessu máli.
Virtist sér að gildandi reglur
væru óframkvæmanlegar, enda
þyrfti að gæta þess, að hægt væri
að athafna sig i þjóðfélaginu án
óþarfa banna.
Við atkvæðagreiðslu um tillögu
Guðmundar G. Þórarinssonar um
takmarkað hundahald í Reykja-
vík fór fram nafnakall. 11 borgar-
fulltrúar greiddu atkvæði sitt
gegn tillögunni: Birgir tsl.
Gunnarsson, Olafur B. Thors,
Davíð Oddsson, Elin Pálmadóttir,
Markús Örn Antonsson, Ragnar
Júlíusson, Þorbjörn Broddason,
Adda Bára Sigfúsdóttir, Guð-
munda Helgadóttir^ Björgvin
Guðmundsson og Alfreð
Þorsteinsson.
Með tillögunni greiddu atkvæði
4 borgarfulltrúar: Sveinn Björns-
son, Albert Guðmundsson, Páll
Gíslason og Guðmundur G. Þór-
arinsson.
27. júní, sagði Kristján, að allir
hefðu verið sammála um að áin
hafi verið köld og flóðið komið
fyrr en ráð hafði verið fyrir gert.
Sér hafi verið ómögulegt að ná
inn netunum fyrr en á timabilinu
24 til 01 og klukkan 21,30 sagðist
hann hafa tilkynnt veiðieftirlits-
manninum það. Oheimilt er sam-
kvæmt landslögum að láta net í
ám liggja eftir klukkan 22 á föstu-
dagskvöldum til klukkan 10 á
þriðjudagsmorgnum. Sagði
Kristján að Hannes hafi rifið upp
netin í umrætt skipti.
Bróðirinn kærði
— ekki Kristján
Sigöldusamkomulagið borið
undir starfemenn á mánudag
SAMKOMULAG hefur tekizt í
deilu starfsmanna við Sigöjdu og
júgóslavneska verktakafyrirtæk-
isins Energoprojeckt, sem byggt
er á rammasamningi ASl og
vinnuveitenda. Samkomulagið,
sem undirritað hefur verið með
fyrirvara, verður borið undir at-
kvæði á fundi starfsmanna næst-
komandi mánudag.
<
Samkvæmt upplýsingum Sig-
urðar Óskarssonar, framkvæmda-
stjóra fulltrúaráðs verkalýðsfé-
laganna i Rangárvallasýslu, feng-
ust fram í þessum samningum
leiðréttingar á ýmsum sérmálum
er varða aðstöðu og aðbúnað
starfsmanna. Viðurkenning
fékkst'á erfiðum og óþrifalegum
störfum. Samningarnir eru all-
flóknir, þar sem mörg og ólík
störf eru unnin við Sigöldu.
Formaður samninganefndar
starfsmannanna var Jón Snorri
Þorleifsson og sagöi Sigurður að
hann hefði unnið mikið og gott
starf i sambandi við þessa samn-
ingagerð. Þá var og Snorri Jóns-
son, framkvgemdastjóri ASl með
samninganefndinni siðustu samn-
inganóttina, en i upphafi samn-
ingsgerðarinnar var Björn Jóns-
son með samningamönnum. í
samningsgerðina komu nú inn
tveir aðilar, sem voru ekki þar
áður. Eru það Landssamband
vörubifreiðastjóra og Vörubif-
reiðastjórafélagið Fylkir.
Sigurður Óskarsson sagði að all-
an samningstímann hafi verið
starfandi með samninganefndar-
mönnum baknefnd trúnaðar-
manna, sem aftur hafi verið í svo
til stöðugu sambandi við starfs-
fólkið. Með þessu fyrirkomulagi
hafi verið tryggt að fólkið gæti
fylgzt mjög vel með framvindu
mála. Þá sagði Sigurður að mikil-
vægt hafi verið að fá viðurkennd
ýmis ákvæði svo sem eins og á-
hættu og tryggingar. Trygginga-
upphæðir hækkuðu t.d. allar um
50%. Pétur Pétursson var ráð-
gjafi júgóslavneska verktaka-
fyrirtækisins í samningsgerðinni
og túlkur þeirra var Hilmar Foss.
Jafnframt nutu þeir stuðnings
VSI.
Þau voru ekki öll stór sem mættu til vinnu við hreinsun ösku úr
Herjólfsdal, en f umsjá ömmu er öllu óhætt, hún leit (il þeirra litlu
við og við á milli þess sem hún mokaði sjálf eins og aðrir.
Mikil þátttaka
í hreinsun
Herjólfsdals
ÞESSAR svipmyndir tók Sigur-
geir f Eyjum af fólki við hreins-,
un f Herjólfsdal en Herjólfs-1
dalur er aðalhátfðarsvæðfEyja-
skeggja. Mikil aska er f dalnum
eftir eldgosið og undanfarna
fimmtudaga og laugardaga
hafa hundruð Vestmanna-
eyinga unnið í sjálfboðavinnu
við hreinsun á dalnum.
1 heila öld hefur Þjóðhátfð
Vestmannaeyja verið haldin f
Herjólfsdal eða þar til gosið
varð f Eyjum, en sfðan hefur
þjóðhátíðin verið haldin á
Breiðabakka við Stórhöfða.
Hreinsun dalsins nú miðar m.a.
að þvf að þjóðhátfðin verði aft-
ur haldin á sfnum gamla, góða
stað.
Mokað og mokað og Þórarinn Magnússon kennari lætur ekki sinn
hlut eftir liggja þótt hann hafi ekki nema annan handlegginn, og
engínn sá honum bregða eftir mokstur daglangt.