Morgunblaðið - 05.07.1975, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1975
EH3EI
Múrarameistari
getur tekið að sér verk úti á landi. Uppl. í
síma 71 195.
Skrifstofustúlka
óskast nú þegar. Vélritunarkunnátta og
einhver bókhaldsþekking æskileg. Tilboð
sendist blaðinu fyrir n.k. miðvikudags-
kvöld merkt: „E — 2945".
Tækniteiknarar
Hafnamálastofnun ríkisins vill ráða tækni-
teiknara frá 1. sept. Umsóknir með upp-
lýsingum séu skriflegar.
Hafnarmálastofnun ríkisins
Laus staða
Staða skattrannsóknastjóra skv. 3 mgr.
42. gr. laga nr. 68/1971 er laus til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. september
1975. Fjármálaráðuneytið,
3. júlí 19 75.
Viðskiptafræðingur
eða endurskoðandi
Óskað er eftir að ráða mann til að annast
eftirtalin störf sem yfirmaður:
Bókhald, launaútreikningur, fjármál og
skrifstofuumsjón. Umsóknir sendist afgr.
Mbl. fyrir 10. júlí n.k. merkt: „Viðskipta-
fræðingur — 3314". með þær verður
farið sem trúnaðarmál, og þeim öllum
svarað fyrir 25. júlí.
Laus staða
Staða forstöðumanns Heilbrigðiseftirlits
ríkisins er laus til umsóknar. Staðan veit-
ist frá 1. október næstkomandi. Umsækj-
endur skulu vera læknar eða dýralæknar
með sérmenntun í heilbrigðisfræði, menn
með háskólapróf í heilbrigðisfræði eða
aðra háskólamenntun, er fullnægir kröf-
um um sérþekkingu í heilbrigðiseftirliti að
mati ráðherra.
Umsóknir sendist heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu fyrir 15. ágúst
1 975.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
2. júlí 1975
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
;a'a
si P
Túnþökur
Úrvals túnþökur til sölu.
Heimkeyrðar.
Guðjón, Selholti,
sími 66385.
Litil loftpressa
með kút óskast.
Simi 421 1 3 og 44090.
ísvél óskast
Mjólkurísvél óskast til kaups.
Tilboðum skal skilað til
Morgunblaðsins merkt ísvél.
— 2697.
Verzlið ódýrt
Sumarpeysur kr. 1000.- Sið-
buxur frá 1000.- Denim
jakkar 1000.- Sumarkjólar
frá 2900,- Sumarkápur
5100.-
Verðlistinn,
Laugarnesvegi 82.
húsn
geði
Til leigu
4ra herb. ibúð á 1. hæð i
Goðheimum. Tilboð sendist
Mbl. fyrir 10 þ.m. merkt:
íbúð — 3316.
Grindavík
Til sölu eldra einbýlishús í
góðu standi. 4 svefnher-
bergi, samliggjandi stofur,
stór bilskúr fylgir. Laust
strax.
Fasteignasala Vilhjálms og
Guðfinns,
Vatnsnesvegi 20,
Keflavik,
simar 1 263 og 2890.
Ung reglusöm stúlka
óskar eftir 1 —2ja herb. ibúð
fyrir 1. ágúst sem næst
Landsspitalanum. Upplýsing-
ar í sima 71011.
Sandgerði
Til sölu sérhæð með kjallara i
1 2 ára tvibýlishúsi. Er laus til
íbúðar strax. Ýmis skipti
koma til greina. Uppl. i s:
50508.
bílar
á
Okkur vantar bíla
skrá
Opið á laugardögum.
Bilasaljnn Kópavogi, Nýbýla-
vegi 4, sími 43600.
I Fiat 127
Til sölu Fiat árg. 1 974. Mjög
litið ekinn.
Uppl. i sima 84432 í dag
laugardag.
Vörubíll
Til sölu Mercedes Benz.
1513 árgerð 1973, með eða
án 216 tonns krana. Skipti á
3ja öxla bíl, koma til greina.
Upplýsingar í síma 93-1 671.
Mini '74
Austin Mini '74 til sölu.
Skipti möguleg. Uppl. i sima
44203.
itv"103
Handsetjari óskast
,Tilboð sendíst afgr. Mbl.
merkt: „Handsetjari —
6965 ",
Ié'a9
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 20.30. Hjálp-
ræðissamkoma. Allir vel-
1 komnir.
Basar, kökubasar,
blómasala
i Árbæjarskóla í dag kl. 2.
Knattspyrnudeild Fytkis.
Sunnudaginn 5. júlí
verður gengið um Sauðadals-
hnúka og Blákoll suðaustan
Vifilfells. Verð 500 krónur.
Brottför kl. 13. frá Umferðar-
miðstöðinni.
Miðvikudagur 9. júlí.
kl. 8.
Ferð í Þórsmörk
Ferðafélag fslands Öldugötu
3, símar 19533 — 1 1798.
KFUM Reykjavík
Samkoma annað kvöld kl.
20.30 i húsi félagsins við
Antmannsstig. Ræðumenn:
Bjarni Guðleifsson, tilrauna-
stjóri og Ingólfur Georgsson,
verkfræðingur. Allir velkomn-
ÚTIVISTARFERÐIR
laugardaginn 5.7. kl.
13
Katlagil — Seljadalur. Verð
500 kr. Fararstj. Einar Þ.
Guðjohnsen.
Sunnudaginn 6.7. kl.
13
Trölladyngja — Græna-
dyngja. Verð 500 kr. Farar-
stj. Einar Þ. Guðjohnsen
Noregsferð 25. — 28.
júli.
Fjögurra daga ferð til
Tromsö. Beint flug báðar
leiðir. Gist á hóteli
m/morgunmat. Bátsferð.
Gönguferðir um fjöll og dali.
Verð 33.000. kr.
Útivist,
Lækjargötu 6,
Simi 14606.
Jón og Janus
út í kuldann
LANDSLIÐSNEFND KSÍ hefur
nú ákveðið að það verði þeir Jón
Gunnlaugsson, IA, og Janus Guð-
laugsson, FH, sem fari út úr 18
manna landsliðshópnum sem til-
kýnntur var í fyrradag. Astæðan
fyrir því að það eru þeir Jón og
Janus, sem fara út í kuldann en
ekki einhverjir aðrir, er sú að
sögn Tony Knapp landsliðsþjálf-
ara, að í landsliðinu er nóg af
miðvörðum og þó svo að þeir séu
báðir mjög góðir leikmenn þá tel
ur landsliðsnefndin frekar þörf á
leikmönnum, sem leika aðrar
stöður.
sögð mjög andvíg þessari ráð-
stöfun.
Hávær orðrómur hefur verið í
Buenos Aires um að her landsins
og fleiri hefðu byltingu í bígerð,
en innanríkisráðherrann, Alberto
Rocamora, bar þetta til baka í
kvöld. Ljóst þykir þó, að herinn sé
í síauknum mæli farinn að láta
ástandið til sín taka. Herma
heimildir m.a. að herinn vilji að
Lopez Rega, félagsmálaráðherra
og helzti ráðgjafi forsetans, verði
rekinn úr stjórninni, svo og fleiri
hægri menn.
— Dómur
— Argentína
Framhald af bls. 1
höfuðborginni f dag og biðu tveir
menn bana og sjö særðust.
Argentínskir þingmenn voru
einnig f kvöld að reyna að finna
lausn á deilu stjórnarinnar og
verkalýðssambandsins, sem i 30
ár hefur verið helzti bakhjarl
Peronistahreyfingarinnar. Tveir
þingfundir voru haldnir og full-
trúadeildin ræddi neyðaraðgerðir
f efnahagsmálum til að mæta
gífurlegum skuldum og óðaverð-
bólgu. Öldungadeildin kom saman
óformlega til að ákveða hvenær
hún mun kjósa sér forseta, sem
yrði fyrstur i röð arftaka frú
Peron, ef hún segði af sér. Hún er
— Portúgal
Framhald af bls. 1
á stjórninni, og er staða
Goncalves m.a. talin fara versn-
andi. I ávarpi sinu i kvöld sagði
Costa Gomes m.a.: „Ég neita þvi
ekki að um ólíkar skoðanir er að
ræða innan hersins, því þar eru
frjálsir menn, sem eru hluti af
þjóð, sem er að leita að sjálfri
sér.“ En hann kvað herinn ein-
huga f að haida friði og ró f land-
inu.
Leiðrétting
I FRÉTT í Morgunblaðinu 2. júlí
s.l. um brautskráða nemendur frá
Tónlistarskólanum f Reykjavík
féll niður nafn eins þeirra 12
nemenda sem útskrifuðust í vor.
Var það nafn Bjarna Þórs
Jónatanssonar, sem brautskráðist
sem píanóleikari. Eru viðkomandi
beðnir velvirðingar á þessu.
Framhald af bls. 24
viðurlögum, sem hegningarlög
mæla fyrir um. Við þetta mat
verður að gæta ýmissa sjónar-
miða, svo sem að opinberri um-
ræðu séu ekki settar óþarfa skorð-
ur, upplýsingar og gagnrýni-
skyldu fjölmiðla séu ekki sett of
þröng mörk, eðli umræðunnar og
hverjar tjáningarvenjur gilda
um slíkar umræður. Þá verður að
gæta þess að umræðan sé
málefnaleg og standist almennar
velsæmiskröfur. Ailt frá því er
alþingi samþykkti að Island gerð-
ist aðili að Norðuratlantshafs-
samningnum 30. mars 1949 og
gerður var á grundvalli hans
varnarsamningur við Bandaríkin
1951, eins og segir í upphafi þess
samnings, hefur þessi varnar-
samningur verið eitt aðal átaka-
mál islenskra stjórnmála,
umræðan oft verið óvægin og á
stundum fremur háð á til-
finninga- en málefnagrundvelli.“
I áliti dómsins er fjallað um
undirskriftasafnanir og mátt
þeirra í baráttu fyrir framgangi
hinna ýmsu mála og álítur dómur-
inn að framkvæmd þeirra sé oft
til þess fallin að valda persónuleg-
um óþægindum og árekstrum
manna á meðal. „Þótt annað sé
ekki fram komið,“ segir í áliti
dómsins, „en stefnendur hafi
reynt að vanda framkvæmd
undirskriftasöfnunar sinnar,
gefur það auga leið, að eftirlit
þeirra með söfnuninni gat aldrei
verið fullkomið.“
„Einnig segir 1 áliti dómsins:
„Ummæli þau sem stefnt er út
af beinast að stefndum sem að-
standendum Varins lands og
þannig að athöfnum þeirra, sem
telja verður til stjórnmálastarf-
semi. Öþægindi þau, sem þeir
hafa talið sig hafa orðið fyrir, eru
þess eðlis, að erfitt er að ákveða
hvort þau eru tilkomin vegna
skrifa stefnda, eða almennt vegna
stjórnmálastarfsemi þeirra. Af
þessum ástæðum og annars með
hliðsjón af þvl sem segir í al-
mennura athugasemdum hér á
undan, þykir stefnendum
ekki „ vera dæmdar bætur í máli
þessu.“
Fréttabréf
frá Bíldudal
ÞANN 20. aprfl sfðastliðinn af-
hentu Lionsmenn á Bfldudal
læknum og héraðshjúkrunarkonu
örbylgjutæki að gjöf til nota f
læknastofu héraðsins á Bíldudal.
Tæki þetta er að sögn lækna af
fullkomnustu gerð.
Rækjuveiði er hóíst hér 1. okt.
lauk 30. apríl með hléi um ára-
mótin. Veiðin var frekar treg, alls
bárust á land 526.9 lestir.
Aflahæstu bátarnir voru m/b
Helgi Magnússon með 59.3 lestir,
Vísir 55.7 lestir og Jódfs 50.3 lest-
>r.
Einn bátur stundaði línuveiðar
frá áramótum það er m/b Andri,
afli hans var 434.9 lestir í 76 sjó-
ferðum.
Hér er nýlokið hinni árlegu
hreinsun þorpsins og fram-
kvæmdu hreinsunina konur úr
kvenfélaginu Framsókn, eins og á
liðnu ári. Þykir þetta mikið fram-
tak hjá konunum og einnig er
hreinsun betur af hendi leyst en
áður. Mun þetta framtak kvenn-
anna alveg einstakt.
Laugardag og sunnudag 7. — 8.
þ.m. var haldið hér þing Sam-
bands vestfirzkra kvenna. A
laugardagskvöldið var þingfull-
trúum boðið á kirkjutónleika í
Patreksfjarðarkirkju hjá kirkju-
kórnum þar og nutu fulltrúarnir
þess með mikilli ánægju. Kl. 10.30
á sunnudag hlýddu fulltrúar á
messu í Bfldudalskirkju, þar sem
sóknarprestur staðarins þjónaði
fyrir altari fyrir prédikun, en
gestur fundarins, séra Auður Eir
Vilhjálmsdóttir, prédikaði og
þjónaði fyrir altari. Eftir hádegi
var svo fundi framhaldið og slitið
síðdegis.
Bfldudal 23/6 1975
Páll
Verium
gggróóur
verndumi
landt®/