Morgunblaðið - 05.07.1975, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.07.1975, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JULl 1975 — Skyndiverkfall t Framhald af bls. 24 í launum miðað við aðra iðnaðar- menn á landinu og því til sönnun- ar höfum við fréttabréf kjara- rannsóknarnefndar. Frá 12. maí hafa Flugleiðir greitt þessa 11% hækkun, en við túlkum samning- ana þannig að við eigum að auki að fá 8,6% hækkun og 8400 kr. láglaunabætur eins og kemur skýrt fram í samningum ASI og vinnuveitenda og 4,3% hækkun 1. okt. n.k. Við lítum beinlínis á okk- ar samninga um 11% kauphækk- j un sem lagfæringu ofan á samninga ASI, en okkur hefur ekki verið greidd nein launa- hækkun miðað við þá samninga. Við létum Flugleiðir vita með f eins og hálfs sólarhrings fyrir- vara að aðgerða væri að vænta af okkar hálfu ef þessi mál yrðu ekki ieiðrétt. Við viljum ekki leggja þetta mál í Kjaradóm því þetta hefur verið bein túlkun okk- ar í samningagerðinni." Morgunblaðinu barst i gær- kvöldi eftirfarandi fréttatil- kynning frá Flugleiðum: Flugvirkjar á Reykjavikur- og Keflavíkurflugvelli lögðu niður vinnu fyrirvaralaust kl. 16.00 i dag og hurfu af vinnustað sínum. Með þessari fyrirvaralausu ólög- mætu vinnustöðvun er ljóst, að allt eðlilegt innanlands- og utan- landsflug stöðvast eða truflast stóriega, þar eð flugvirkjar hafa á hendi daglegt tæknilegt eftirlit með flugvélakosti félaganna. Séð er fram á mikla röskun á flugsamgöngum þegar í kvöld og munu mörg hundruð farþegar lokast inni á Keflavíkurflugvelli og óvíst um hvort og hvenær unnt f verði að koma farþegum þeim, i sem hér stranda, fyrir i gistihús- um. Fimm millilandaflugvélar áttu t að lenda á Keflavíkurflugvelli síð- degis og i kvöld og fjórar þeirra að halda áfram til útlanda eftir skamma viðdvöl hér, þéttsetnar , farþegum, þar af tvær DC-8 til N-Y., Boeing vél, sem var að koma frá Grænlandi, — til Kaupmanna- hafnar og önnur til Palma i Majorka með 123 Islendinga. Sýnt er, að allt utan- og innanlandsflug stöðvast í kvöld og á morgun. Vinnustöðvun þessi er afleiðing vinnudeilu milli flugvirkja og | Flugleiða, sem staðið hefur s.l. 2 vikur. Deilt er um túlkun á samningi fiugvirkja í Ijósi rammasamnings A.S.Í. frá 13. júní s.I. Gengið var frá kjara- samningi flugvirkja 12. mai s.l. og hann undirritaður og samþykkt- ur. Samkvæmt þeim samningi hækka laun flugvirkja um 21.2% á timabilinu janúar-júní 1975. Auk þess skyldu þeir verða að- njótandi verðandi ramma- samnings A.S.I. skv. sérstakri reikningsreglu. Eins og að fram- an greinir náðist ekki samkomu- lag um túlkun þessa ákvæðis, og óskuðu fulltrúar flugfélaganna því eftir, að málinu yrði vísað samkvæmt gerðardómsákvæði i gildandi samningum til gerðar- dóms, en flugvirkjar höfnuðu þeim tilmælum. Flugvirkjar höfnuðu ennfrem- ur ósk um að málinu yrði vísað sameiginlega til Félagsdóms. I gær barst flugfélögunum bréf frá Flugvirkjafélagi Islands, þar sem krafizt er kr. 8.400.00 grunn- kaupshækkunar á mánuði fyrir hvern einstakling, sem flugfélög- in telja að falizt hafi i 11% hækk- un, sem veitt var frá 1. jan. s.l. Enn fremur er krafizt 8.6% grunnkaupshækkunar einnig frá 13. júní og það grunnkaup hækki um 4.3% frá 1. okt. 1975. I niður- lagi bréfs flugvirkja segir: „Ef þessi hækkun verður ekki greidd næstkomandi föstudag eða loforð fengið um að hún verði greidd tveim vikum sfðar, mun félagið gera viðeigandi ráðstafan- ir.“ Á fundi aðila i dag lögðu flugfélögin fram sáttaboð, sem flugvirkjar höfnuðu og tilkynntu þeir forstjórum flugfélagsins í lok fundarins, að vinnustöðvun hæfist kl. 16.00 í dag — það er fyrirvaralaust. I framhaldi af því var Flug- virkjafélaginu sent eftirfarandi skeyti: „Vegna bréfs yðar dags. 3. 7. 1975 svo og munnlegrar til- kynningar til forstjóra Flugleiða að loknum fundi i dag þess efnis, að þér munið að öllu óbreyttu hefja aðgerðir gegn flugfélögun- um kl. 16:00 í dag lýsa félögin hér með fullri ábyrgð á hendur við- komandi flugvirkjum og Flug- virkjafélagi Islands ef til truflana eða ólögmætrar vinnustöðvunar kemur af yðar hálfu og áskilja sér allan rétt til þess að leita úrskurð- ar þar til bærra dómstóla i þessu efni. Jafnframt tilkynnist yður að vér höfum ákveðið að vísa ágreiningi þeim sem risið hefir um túlkun samnings dags. 12. 5. 1975 til Félagsdóms." Tekið skal fram, að þetta er í annað skiptið, sem flugvirkjar efna til ólögmætrar vinnustöðv- unar á Reykjavíkur- og Kefla- víkurflugvelli að undanförnu. Fyrra skiptið var s.l. laugardag er millilandaflugvélar Flugleiða töfðust i allt að tvær klst. vegna „fundahalda" flugvirkja í einu flugskýla Keflavikurflugvallar. — Starfið Framhald af bls. 2 Um framtíðarstarf sam- takanna sagði hann m.a.: „Samtökin hafa hingað til einbeitt Ser að umræðum um sameiginleg áhugaefni vísinda- mannanna með frjálsri og óskuldbindandi samvinnu. Nú teljum við, að þau verði að ganga lengra og taka að auki upp skuldbindandi samvinnu við framkvæmd rannsókna, þannig að ákveðinn hópur fengi fjárveitingu og yrði að framkvæma verkið.“ Að lokum sagði Ottar Jamt um Samtök norrænna búvísandamanna: „Þetta eru mjög stór samtök og mikil vinna sem unnin er innan þeirra, en þó fá þau ekki stórar fyrirsagnir í blöðunum. Hér er unnið gagnlegt og upp- byggjandi starf við rannsóknir á hagnýtingu hráefna land- búnaðarins til að búa til mat, meiri mat og betri mat. Okkar starf beinist að rásinni frá jörðu á borðið." Þess má geta, að Sveinn Hallgrímsson ráðunautur hefur verið formaður samtakanna undanfarin fjögur ár. — Glistrup Framhald af bls. 1 króna hlutafé. Það var í vörzlu hjá Glistrup. Tilgangurinn var sá, að hlutafélagið veitti skjól- stæðingnum skattafrádrátt með tilvísun til vaxta af skuld- um hans við félagið. Það féllst hins vegar danska skattstofan ekki á og skjólstæðingurinn óskaði eftir að draga sig út úr samvinnunni. Málið hófst þeg- ar Glistrup krafðist þess að hlutafjárupphæðin, — 300.000 d. kr. — væri greidd sér að fullu. Bæði Iandsréttur og hæstiréttur hafa nú tekið af- stöðu gegn þeirri kröfu. Vin- sældir Glistrups að undan- förnu hafa farið vaxandi á sama tíma og hann hefur stað- ið í málaferlum. — Minning Páll Framhald af bls. 23 um. Einnig tók hann oft þátt í taflmótum, eftir að taflfélög tóku að starfa í Arnessýslu. Hann náði oft mjög góðum árangri á slíkum mótum. Sama var að segja i bridgekeppni. Þar náði hann oft góðum árangri. Vorið 1918 kvæntist Páll eftir- lifandi konu sinni, Vilborgu Þórarinsdóttur Örfjörð, og reistu þau bú í Svarfhóli í Laugardæla- hverfi. Þar bjuggu þau í eitt ár. En þá auglýsti Stefán Eiríksson bóndi á Litlu-Reykjum eftir sam- býlismanni á hluta á jörð sinni. Yfir tuttugu menn sóttu um jarð- næðið. Stefáni var mikill vandi á höndum að velja úr. Hann valdi Pál og Vilborgu, ungu hjónin i Svarfhóli. Val hans reyndist honum hollt og farsælt. Sambúðin á Litlu-Reykjum varð hin bezta og traustur og hollur trúnaður tókst á milli fjölskyldnanna, sem rofn- aði aldrei. Oft hefur mér dottið í hug að varla hefði Páll getað fengið betri jörð til búskapar eða eftir þeim hugmyndum og ætlunum, er hann hugði til búskapar miðaðar við þær aðstæður er þá voru fyrir hendi. Hann var afburða hey- skaparmaður, svo fáir komust til jafns við hann. En Litlu-Reykir voru afburða heyskaparjörð, sér- staklega eftir að áveitan kom. Mér er í minni atvik frá fyrstu sumrunum, er gras varð mest til nytja á Sorta, eftir tilkomu áveitunnar. Morgun einn fór Páll árla út í Sortalægð og hóf þar slátt af miklu kappi. Hann valdi sér loðinn og kjörinn stað til teigs og sló af kappi til kvölds. Margir er sáu, undruðust afköst hans. En þeir urðu samt enn þá meira undrandi, þegar hey var hirt af teignum, þvi það var hvorki meira né minna en 36 hestar. Saga þessi minnir á afrek Orms Stórólf- sonar, er hann sló forðum á Hvols- velli, en sá var munurinn, að Páll bóndi sló ekki þúfurnar með, eins og bóndasonurinn á Hvoli forðum. Páll Arnason var ágætur smiður, jafnt á tré og járn. Hann er mestur og beztur skeifna- smiður, sem ég hef þekkt. Hann var svo fljótur að smíða skeifur, að varla festi auga á. Oft var það er nágrannar hans komu með hesta til þess að láta hann járna, að hann byrjaði að smiða skeif- urnar. Hann var líka mikill og góður járningamaður, fljótur og öruggur. Páll var mikill og góður fjall- maður, bæði til vor- og haust- ferða. Hann var á stundum fjall- kóngur í forföllum Magnúsar bróður síns. Hann var mikill og taustur ferðamaður, og var á stundum fenginn til erfiðra ferða um Iangan veg. Þegar Flóa- og Skeiðamenn seldu vatnsréttindi sín i afréttin- um, notuðu þeir féð til þess að girða á milli hans og heimalands Gnúpverja. Var það mikið mann- virki og vandasamt til fram- kvæmda. Páll á Litlu-Reykjum vár fenginn til að annast verkið, hafa þar yerkstjórn og velja girðingunni stæði á erfiðum stöð- um, svo sem i giljum, undir ásum og hæðum, þar sem hætta var af snjóflóðum og svo fram- vegis.Hann gekk til þessa verks af miklu kappi, hyggindum og for- sjá, og tókst að leysa það sérstak- lega vel af hendi. Hann sá einnig lengi um viðhald girðingarinnar og eftirlit hennar vor hvert. Páll á Reykjum var mjög kunnugur um hin víðáttumiklu afréttarlönd Flóamanna, en þau eru elztu sameignarlöndin, sem til eru í landinu, og eiga mikla og merkilega sögu, fráskilda brögð- um og yfirgangi kirkjunnar og höfðingja landsins til að ná slík- um löndum undir sig. Hann var um langt skeið eftirleitarmaður á Flóamannaafrétti og komst oft í hann krappan. Hann sagði stund- um frá svaðilförum sínum i eftir- leitum á efri árum, og kunni vel að færa í stílinn, enda ríkur af hugmyndaflugi og orðgnótt. Páll var mikill hestamaður og átti oft góða og fallega hesta, bæði til heimabrúkunar og til reiðar. Reiðhestar hans voru sérstaklega góðir, enda var hann mikill og góður tamningamaður. Hann var mikið fyrir veiðimennsku í ám og vötnum, og stundaði mjög veiði, meðal annars í Hvítá fyrir austan Skotaberg við Austurkotseyju. Hann kunni þá list, er ég dáðist mjög að í æsku, en hún var, að hann greip silung eftir vild í læk, hyl eða straumi með berri hendinni. Hann gerði þetta af mikilli leikni og öryggi, svo eng- inn festi sjónir á. Frá því ég man fyst eftir mér, er Páll á Reykjum mér minnis- stæðastur af öllum vandalausum. Ilann var daglegur gestur á heimili foreldra minna. Hann var alltaf jafnkátur, skemmtilegur og glaðsinna, alltaf búinn og boðinn til að gera hverjum að vilja, vera öllum til ánægju og yndisauka. Hann mótaði mig á líkan hátt og foreldrar mínir og nánustu vandamenn. Ég á honum mikla skuld að gjalda. En atvikin eiga sin hrif sín föstu grip í huga og vitund. Fyrir nokkrum árum var ég um langan tima í fjarlægu Iandi. Eitt sinn var ég staddur í borg, þar sem ég hafði eiginlega fátt við að una, en varð samt sem áður að dveljast þar í nokkra daga. Morgun einn var mér gengið um stræti til að leita mér að lestrarefni. Ég kom ekki auga á neitt merkilegt fyrst í stað, nema helzt það sem ég hafði ekki efni á að kaupa. En allt í einu sá ég í bókabúðarglugga kápumynd er kom mér kunnuglega fyrir sjónir. Hún var af manni öldnum, sól- brenndum og haustlegum sitjandi á þóftu í bát, hallandi sér aftur á bak, eins og hann vildi sofa. Eg kannaðist strax við manninn, en kom honum ekki fyrir mig. Ég fór inn i búðina og keypti blaðið. Þegar ég hafði það í hönd- unum og skoðaði það betur, þekkti ég manninn. Þarna var greinilega mynd af vini mínum Páli á Reykjum. Ég fletti og sá, hvað stóð um skýringu myndar- innar. Þar var sagt, að hún væri af portúgölskum sjómanni. Ég varð auðvitað undrandi, en í und- irvitund minni kom annað til vitnis. Var ekki hér á ferðinni hinn mikli og forni skyldleiki með fólkinu á ströndum Atlantshafs- ins, heillandi, góðlegur og taust- vekjandi, jafnt á ströndum fjall- skagans mikla milli Miðjarðar- hafs og Atlantshafs.og bóndans, sjómannsins og fjallmannsins i Flóanum? En ef til vill var toginn spunninn af fleiri þáttum? En það er líkt, þegar litið er til baka í bók minninga hugans, ber þar í mistri skínandi perlur, minningar um góðan samferða- mann, Pál vin minn á Reykjum, sem nú er ekki lengur i tölu lif- enda. En í heimi minninganna situr hann í öndvegi vina og kunningja, sem horfnir eru. Per- sónuleiki hans og mannkostir gleymast mér aldrei. Ég veit, ef ég á eftir að vakna á akri eilífðar- innar, kysi ég engan fremur til félaga en hann. Jón Gfslason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.