Morgunblaðið - 10.08.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. AGÚST 1975
Gr ænlen dingarnir
létust báðir
EINS OG sagt var frá í Morgun-
blaðinu fyrir röskum 3 vikum,
sótti flugvél Flugstöðvarinnar tvo
fársjúka Græniendinga til Ang-
magsalik. Annar var með garna-
flækju, en hinn hafði hlotið alvar-
leg skotsár.
Sá síðarnefndi lézt nokkrum
dögum eftir að hann kom á
Sjúkrahúsið, en hinn lézt um
miðja s.l. viku.
Ludvig Storr ræðismaður sagði
þegar Mbl. ræddi við hann í gær,
að vél frá Flugstöðinni hefði flutt
lík mannanna tveggja til Græn-
lands á föstudaginn, en þar verða
þeir jarðsettir.
Ungir sjálfstæðismenn
þinga í Grindavík
STJÓRN Sambands ungra sjálf-
stæðismanna hefur ákveðið að 23.
þing sambandsins verði haldið I
Grindavfk dagana 12.—14.
september n.k.
Fyrir þingið verða lagðar álits-
gerðir um allmörg mál og að auki
skýrslur stjórnarinnar og nefnda
hennar. Meðal þeirra mála sem
ljóst er að þingið muni fjalla um
eru: menntamál, kjördæmamálið,
jafnréttismál, húsnæðismál og
sjávarútvegsmál, svo nokkuð sé
nefnt. Einnig verður væntanlega
lögð fyrir þingið álitsgerð um
hugsanlegan samdrátt ríkiskerfis-
ins og álitsgerð um einkarekstur
Gengi
;ur illa
að finna
stóru loðnuna
— OKKUR gengur illa að
finna stóru loðnuna, en þar
sem við erum núna NV af
Sporðagrunni lóðar feiknin
öll á stórar loðnutorfur.
Við á Eldborgu og þeir á
Árna Sigurði köstuðum í
morgun, og fengum við
60—70 tonnn og Árni Sig-
urður um 130 tonn, sagði
Gunnar Hermannsson,
skipstjóri á Eldborgu frá
Hafnarfirði þegar Mbl.
ræddi við hann í gær-
morgun.
Gunnar sagði, að enn
væri ekkert verð komið á
loðnuna og ekki væri vitað
hvernig þetta endaði, en
þeim tækist að fá góða og
fallega loðnu myndu þeir
örugglega halda áfram
veiðunum, en annars
hætta.
Hann sagði, að þeir væru
nú á leið til Siglufjarðar til
að landa, en myndu síðan
halda út á ný og þá reyna
að komast lengra norður
eftir en áður, enda hefði
ísröndin færst norður á við
að undanförnu.
og nýiðnað. Þá verður aukaaðild
SJJ.S. að COCDYC borin undir
þingið og rætt almennt um sam-
starf S.U.S. við innlenda og er-
lenda aðila.
Þingið verður sett föstudaginn
12. september kl. 16.00 í félags-
heimilinu FESTI. Þann dag
verður lögð fram og kynnt álykt-
unardrög starfshópa og önnur
þau mál er borist hafa stjórn sam-
bandsins fyrir þingið. Laugar-
dagurinn 13. september verður
aðalstarfsdagur þingsins. Fyrri
hluta dagsins munu nefndir
starfa en kl. 16.30 hefjast al-
mennar umræður. Kl. 19.00 hefst
síðan kvöldverðarboð með for-
manni flokksins. Að því loknu
verður dansleikur f félagsheimil-
inu Festi. Sunnudaginn 14.
september hefst sameiginlegur
fundur kl. 10.30 og er áætlað að
hann standi til kl. 16.00. Nefndar-
álit verða þar tekin til afgreiðslu
og ný stjórn kosin. Kl. 16.00 mun
nýkjörin stjórn og formenn
aðildarfélaga þinga um starfs-
áætlun S.U.S. 1975—1977.
Aðildarfélög S.U.S. velja og
fulltrúa til setu á þinginu og er
við það miðað að félögin sendi 1
fulltrúa fyrir hverja 20 félags-
menn sína. Ungir sjálfstæðis-
menn búsettir utan félagssvæða
F.U.S.-félaga geta orðið fulltrúar
f gegnum kjördæmissamtök
ungra sjálfstæðismanna í viðkom-
andi kjördæmi.
Reiknað er með nokkru fjöl-
menni á þinginu og verða sér-
stakar rútuferðir milli Grinda-
vfkur og Reykjavíkur alla þing-
dagana. Fulltrúar utan af landi fá
25% afslátt á öllum leiðum Flug-
félags Islands 11.—15. september
gegn framvísun kjörbréfa. Þing-
fulltrúum verður séð fyrir gist-
ingu í nýjum og fúilkomnum ver-
búðum í Grindavík. Skráning
þingfulltrúa fer fram á skrifstofu
S.U.S. í Reykjavik.
Fólkið streymir í land í
Flatey þegar flóabáturinn
Baldur leggst þar að
bryggju. Myndin var tekin
sl. laugardag.
Verið er að gera við og mála flest gömlu húsin í Flatey,
en þau eru nú orðin mjög vinsæl til sumardvalar.
Flatey vinnsœll
ferða-
mannastaður
FLATEY á Breiðafirði er orðin geysi-
vinsæll sumardvalar- og ferða-
mannastaður. Taka margir flóa-
bátinn Baldur út í eyna og dveljast
þar nokkra klukkutlma meðan hann
fer áfram á Brjánslæk I Barða-
strandasýslu. Þangað fara einnig
margir með bátnum, sem getur tekið
12 bMa. Um verzlunarmannahelgina
var mikill fjöldi farþega með Baldri I
hverri ferð, allt frá fimmtudegi fram
á mánudag. I laugardagsferðinni
voru t.d. 160—170 farþegar og
bflar í lest og á dekki.
Margir tjölduðu I Flatey, en aðrir
dvöldust þar I gömlu húsunum, sem
nú er mikið verið að gera upp til
sumardvalar. Tveir bændur eru I
eynni allt árið en I flestum húsum er
aðeins búið á sumrin. í einu húsinu
er þó rekið veitingahús. Fyrir nokkr-
um árum voru mörg þessara húsa föl
fyrir gott verð, en nú er þarna ekki
lengur gamalt hús að fá.
Þokkalegur afli togaranna
AFLI þeirra togara, sem landa
í Reykjavfk, hefur verið þokka-
legur að undanförnu en gæði afl-
Sjópróf hafin
SJÓPRÓF í kapalmálinu svo-
nefnda hófust hjá bæjarfógeta-
embættinu í Keflavík f gær-
morgun og er það Guðmundur
Kristjánsson fulltrúi sem annast
það. Að sögn Guðmundar voru
tveir af eigendum Þorketils Árna-
sonar kallaðir fyrir fyrst og þvf
næst matsveinn bátsins. Fram-
burður þeirra var sá sami og áður
hefur verið haft eftir þeim í blöð-
um. Eftir helgi verða skipverjar
af hafrannsóknaskipinu Bjarna
Sæmundssyni kallaðir fyrir, en
Bjarni Sæmundsson kom Þorkatli
Árnasyni til aðstoðar, er báturinn
hafði fengið kapal upp með
humarvörpunni úti fyrir suður-
ströndinni fyrir skömmu.
ans hafa verið nokkuð misjöfn.
Ingi L. Magnússon hjá Togaraaf-
greiðslunni sagði Morgunblaðinu
í gær að f s.I. viku hefðu 5 togarar
landað og voru allir með vel yfir
100 lestir.
Karlsefni landaði á föstudaginn
150—160 lestum, Ögri á fimmtu-
Norðlenzkur blær eins og vera ber
Samtal við sr. Áma Pálsson
NC eru nokkrir þeirra
tslendinga, sem fóru til Kanada
til að vera viðstaddir hátfðarhöld-
in f tilefni af 100 ára afmæli
Islendingabyggðar þar, komnir
heím. Er ekki annað að sjá af
frásögnum Þorsteins Matthfas-
sonar fréttaritara Morgunblaðs-
ins á hátfðinni, en að fólkinu hafi
Ifkað ferðin vel og sé mjög ánægt
með þær móttökur, sem það fékk
hjá „löndum“ sfnum vestan hafs.
Þorsteinn var staddur á Winni-
peg-flugvelli þegar fyrsti hópur-
inn fór af stað heim og hitti þar
nokkra að máli, þar á meðal séra
Arna Pálsson á Blönduósi.
„Ég verð að segja að þetta
ferðalag hefur verið f alla staði
mjög ánægjulegt og móttökur
eins og bezt verður á kosið", sagði
Arni.
„Ég hef að vísu aldrei komið til
Kanada fyrr, hef bara haft
nokkra vitneskju um Vestur-
Islendinga. En að þeir væru í
raun og veru svona miklir Islend-
ingar hafði mér ekki dottið I hug.
Við erum þess vegna afskaplega
undrandi yfir því að fólk skuli
tala íslenzku á jafnágætan hátt og
það hefur gert hér. Fólk, sem fætt
er hér fyrir vestan“.
Aðspurður um hátíðarhöldin
sjálf f Gimli sagði Árni að þau
hefðu verið mjög ánægjuleg. „Það
er ekki hægt að segja annað en að
þau hafi tekizt afbragðsvel. Þarna
var mikill mannfjöldi og ég held
að það hafi notið þess að vera á
staðnum og taka þátt í þessum
mikla fagnaði.“
Sem sæmi um hve þjóðlegir
Vestur-Islendingar voru, sagði
Arni að það fyrsta sem húsbónd-
inn, sem þau gistu hjá, gerði
kvöldið, sem þau komu, hafi verið
að gefa sér og konu sinni harð-
fisk, sem hann hafði sjálfur
verkað.
„Ég held að þessi ferð okkar til
Vesturheims eigi áreiðanlega eft-
ir að efla tengsl Islendinga austan
hafs og vestan. Og ég vil einnig
láta það koma fram að allir, sem
fóru vestur, eru reiðubúnir til að
taka á móti Vestur-íslendingum
þegar þeir koma heim til Islands.
Þá vil ég að það komi fram að
þáttur Norðlendinga var mjög
stór á heimili Stephans G.
Stephanssonar, þegar við tókum
okkur saman og sungum „Skín
við sólu Skagafjörður“. Að vfsu
sungu allir, en það var norð-
lenzkur blær yfir því eins og vera
ber“, sagði séra Arni að lokum.
Karl prins
fór í gær
KARL Bretaprins hélt heim til
Englands í gærmorgun með
áætlunarvél Flugleiða frá
Keflavfkurflugvellí, eftir sex
daga dvöl á tslandi.
I fyrrakvöld sat hann veizlu
forsætisráðherra í Ráðherra-
bústaðnum og gisti í bústaðn-
um um nóttina. — Ekki voru
prinsinum færðar gjafir frá
íslenzkum stjórnvöldum, þar
sem ekki var um opinbera
heimsókn að ræða, en hins
vegar færði prinsinn Geir
Hallgrímssyni forsætisráð-
herra og fleiri aðilum lax að
gjöf.
Nimrod-flugvél frá brezka
flughernum hélt frá Skotlandi
árla í gærmorgun og sveimaði
um hríð hér við land, þar til
Flugleiðavélin var komin á
loft, en þá fylgdi Nimrod-vélin
henni eftir allt til Glasgow.
Mun það venja hjá Bretum að
senda slíkar fylgdarvélar,
þegar einhverjir úr brezku
konungsfjölskyldunni fara f
flugferð.
daginn 208 lestum, Þormóður
goði á þriðjudaginn og á mánu-
daginn landaði Snorri Sturluson
260 lestum. Afli Ögra samanstóð
af þorski og ufsa, en hinir
togararnir voru með mikið af
karfa. ______ ________
Kvikmyndir Ósvalds
sýndar út mánuðinn
VILHJÁLMUR Knudsen kvik-
myndagerðarmaður hefur nú f
mánuð sýnt myndirnar „Eldur f
Heimaey" og „Þjóðhátíð á Þing-
völlum“ f vinnustofu föður sfns,
Ósvalds heitins Knudsen, f Hellu-
sundi 6A, við góða aðsókn, kl. 9 á
hverju kvöldi.
Sérstakar sýningar eru fyrir er-
lenda ferðamenn kl. 3 á daginn.
Eru þá sýndar með ensku tali
kvikmyndirnar „Eldur í
Heimaey", „Sveitin milli sanda“
og „Heyrið vella á heiðum hveri“.
Sýningum átti að ljúka 9. ágúst,
en Vilhjálmur hefur ákveðið að
halda sýningum áfram út þennan
mánuð.
Orgeltónleik-
ar í Skálholti
Alla næstu viku verða orgeltón-
leikar f Skálholtskirkju bæði f
hádeginu og svo síðdegis Það er
Guðmundur Gilsson, sem mun
leika á orgelið sígild verk frá 17.
og 18. öld.