Morgunblaðið - 10.08.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. AGUST 1975
„ÞAÐ væri ekki gott fyrir
Portúgal, ef kommúnistar næðu
völdunum. Almenningur vill
hafa það gott, meiri peninga, fri,
bíla og þess háttar. Það fæst
ekki, ef kommúnistar komast til
valda."
Það er Fernando de Sousa
Correia, fyrsti stýrimaður á
portúgalska togaranum David
Melgueiro, sem þannig kemst að
orði í samtali við fréttamann
Mbl. Togarinn liggur í höfn í
Reykjavík vegna vélarbilunar,
sem hann varð fyrir úti fyrir
Suðausturlandi fyrir rúmri viku
síðan. Björgunarskipið Goðinn
dró togarann þá til hafnar í
Reykjavík, þar sem viðgerð var
hafin. Kom 1 ljós, að stimpill
hafði brotnað, en annar var
fluttur til landsins með flugvél
og er þess að vænta, að skipið
geti haldið héðan á mánudags-
kvöld áleiðistil Nýfundnalands.
Fréttamaður Mbl. hélt um
borð í togarann í gærmorgun og
tók þrjá skipverja tali, spurði þá
um viðhorf þeirra til þróunar
stjórnmála I Portúgal og fleira.
Allir tóku þeir fram að erfitt
væri að ná fréttaútsendingum
frá Portúgal og þess vegna gætu
þeir ekki almennilega fylgzt
með atburðum þar í landi.
Togarinn hélt frá Lissabon í
júlfbyrjun og fór fyrst til veiða í
Barentshafi. Þar eru hlustunar-
skilyrði afar slæm og sagði skip-
stjórinn að heil vika gæti liðið
án þess að skipið heyrði fregnir
frá umheiminum. Hins vegar
væri auðveldara að ná útvarps-
sendingum þegar skipið væri á
Nýfundanlandsmiðum.
„Ég veit ekki nógu vel, hvað
hefur verið að gerast f Portúgal
undanfarnar vikur,“ sagði skip-
stjórinn, Francisco Jorge
Cardinali Ribeiro. „En skips-
höfnin virðist ekki hafa neinar
verulegar áhyggjur af þróun
mála þar, enda eru skip-
verjarnir yfirleitt ekki vel með-
vitandi um það sem hefur verið
að gerast þar. Þannig^, er um
margt fólk í Portúgal: Það veit
ekki mikið um stjórnmál, en það
veit hvað það vill og hvað því
líkar bezt.
Ég var að spvrja kokkinn
I* r
okkar í gær, hvað fasismi væri.
Fasismi? Það er þegar örfáir
menn vilja eiga allt sjálfir, sagði
hann.
Skipverjarnir eru ánægðir
með þá breytingu sem orðið
hefur á lffskjörum í Portúgal
eftir stjórnarbyltinguna í fyrra.
Þeir fá hærra kaup, betri mat,
meira frí og betri aðbúnað nú en
áður. Áður fyrr urðu þeir sjálfir
að leggja sér til sápu, hand-
klæði, rúmfatnað og fleira slíkt,
en nú leggur útgerðin þeim
þetta til. Þess vegna eru þeir
ánægðir með sinn hlut,“ sagði
skipstjórinn.
„En vandamálið er bara
stærra en þetta“, sagði hann.
„Hve lengi getur útgerðin staðið
undir þessum aukna kostnaði, á
meðan aflinn fer minnkandi?
Skipverjarnir eru ánægðir af
því að þeir hafa það betra en
áður, en þeir skilja ekki afleið-
ingarnar fyrir efnahag lands-
ins. Landið var ekki undir það
búið efnahagslega séð að breyta
svo miklu og borga svo miklu
meira en áður I laun. Ég er
hræddur við afleiðingarnar, þvf
að aflinn er ekki nægur til að
standa undir þessu. Við fram-
leiðum ekki eins mikið og við
getum og framleiðslan hefur
ekkert aukizt frá þvf sem áður
var, þótt allur kostnaður hafi
aukizt.
Ég hef miklar áhyggjur af
þróun efnahagsmálanna í Portú-
gal. Utflutningur okkar hefur
minnkað og ferðamanna-
straumurinn er orðinn nánast
enginn. Við höfum tekið mið í
stjórnmálum okkar af Austur-
Evrópuríkjunum, en við fáum
því miður enga ferðamenn
þaðan. Ferðamenn frá Banda-
rfkjunum, Bretlandi og öðrum
löndum þora ekki til Portúgal
vegna ótryggs ástands þar.“
Áhyggjur skipstjórans af
þróun ferðamála í Portúgal eru
skiljanlegar þegar haft er í
huga, að hann hefur fjárfest
hluta af sparifé sínu í hótel-
rekstri — og nú standa hótelin í
Portúgal nánast auð.
Hann nefnir einnig ótta sinn
við aukið atvinnuleysi í Portú-
gal. „Þegar við fórum frá Portú-
Francisco Ribeiro skipstjðri.
Virgilio loftskeytamaður.
hræddur við stöðuna um ára-
mótin, þegar við komum heim
úr þessari veiðiferð. Þó get ég
huggað mig við það, að þegar
loksins kemur að mér að svelta,
þá verður helmingur Portúgala
fallinn á undan mér. Ég er milli-
stéttarmaður og held þetta leng-
ur út.“
Loftskeytamaðurinn Virgilio
sér um að reyna að ná útvarps-
sendingum fyrir skipið. „Við
heyrum stundum í BBC,“ segir
hann, „en það er erfitt að skilja
þá stundum. Við náum líka
stundum í útvarpið í Lissabon."
Hann er spurður, hvort mikill
munur sé á fréttaflutningi þess-
ara stöðva og hvorri stöðinni
hann trúi frekar:
„Það er stundum dálítill mun-
ur. Ég tel portúgalska útvarpið
betra og flytja réttari fréttir."
Hann er þá spurður, hvort hann
teldi portúgalska útvarpið vera
frjálst til að flytja þær fréttir
sem því sýntist um stjórnmálin
þar í landi: „Já, þeir segja það
sem þeir vilja. Stundum tala
þeir illa um stjórnina, stundum
vel.“
Virgilio telur skipshöfnina
ekki háfa neinar umtalsverðar
áhyggjur af þróun mála í Portú-
í Reykjavík. Þá báðum við um
að pósturinn yrði sendur hingað
frá Nýfundnalandi, en ég veit
bara ekki hvort hann verður
kominn áður en við förum af
stað til Nýfundnalands," segir
hann.
Hann hefur þó sínar skoðanir
á stjórnmálum í Portúgal:
Það eru aðeins um 15% lands-
manna, sem fylgja kommúnist-
unum, en meirihluti Portúgala
eru bara tækifærissinnar.
Skoðanir þeirra fara eftir því
hver kemst til valda. Þegar
fasisminn rfkti í landinu var
margt fólk ákafir fasistar til að
græða á þvf. Ef kommúnistar
komast til valda, þá gengur
margt fólk f Kommúnistaflokk-
inn til að geta grætt á því. Ég
vona bara að kommúnistar náí
ekki völdum. Það yrði ekki það
bezta, sem gæti hent Portúgal.“
Hann er spurður um viðhorf
skipshafnarinnar til þessara
mála.
„Ég held, að meirihlutinn sé
ekki hlynntur kommúnistum, en
sumir gætu verið það, “ segir
hann.
Það kemur fram í umræðun-
um, að sumir, þeirra á meðal
skipstjórinn, telja, að ekki komi
„Meirihluti Portúgala
er bara tækifærissinnar,,
Rœtt við skipverja á portúgalska togaranum David Melgueiro
gal. „Við vonum bara það til borgarastyrjaldar, jafnvel
bezta," borgarstyrjöld? „Nei, þótt kommúnistar nái völdum.
Portúgalar vilja ekki stríð.“ Portúgalar muni frekar- sætta
gal voru um 300 þús. manns
atvinnulausir og mér skilst, að
fram til áramóta komi um 500
þús. manns bara frá Angóla til
Portúgal. Ég veit ekki hvar
þetta fólk á að fá vinnu. Ég býst
við,“ segir hann, „að um áramót
verði um ein milljón atvinnu-
lausra í Portúgal. Og það er
mikið, miðað við, að íbúafjöld-
inn er rúmar nfu milljónir.
Skipverjarnir hugsa flestir
ekkert um þessa hluti. En örfáir
hugsa þó um þessi mál og ég er
einn þeirra. Eg er alvarlega
Togarinn David Melgueiro við Grandagarð.
Ljósm. Mbl. Br. H.
Hann er spurður, hvort hann
óttist að kommúnistar nái alger- ,
lega yfirhöndinni f Portúgal.
„Eg er ekki mjög pólitískur,
þannig að ég veit ekki hvað ég á
að segja." — En hvað hugsa
aðrir f skipshöfninni? „Ég veit
það ekki. Hverjum er frjálst að
hugsa það sem hann vill. Þeir
tala ekki mikið um pólitfk og
þegar þeir tala um hana, þá er
ekki um deilur að ræða eða
skoðanaskipti, heldur bara talað
hlutlaust um málin.“
Fernando Correia, fyrsti stýri-
maður, segist vart geta sagt
mikið um stjórnmálaþróunina í
Portúgal, þvf að svo litlar fréttir
berist af henni. „Þegar við
fórum á veiðar, þá fórum við
fyrst til Noregs og konurnar
okkar sendu bréfin þangað. En
við fórum frá Noregi áður en
pósturinn kom og ætluðum til
Nýfundnalands og báðum um að
pósturinn yrði sendur þangað.
En svo bilaði vélin og við lentum
sig við kommúnismann en fara
að berjast.
Að lokum eru skipverjar
spurðir um hvernig þeim líki
Islandsheimsóknin og þeir svara
að hér sé ágætt að vera. Þó bera
þeir fram tvö umkvörtunarefni:
Lögreglan sé alltof hörð í að
leita að kvenfólki um borð í
skipinu, brjóti upp hurðir og
gangi harkalega um. Skipverj-
arnir hafi auðvitað gaman af því
að hitta íslenzkar stúlkur, tala
við þær og dansa við þær og
kannski að bjóða þeim í mat.
„En við erum ekki svo slæmir,
að við eigum skilið þessa hörku
af hálfu lögreglunnar," segja
þeir.
Og hitt atriðið: Einn skipverji
týndi veskinu sínu í Þórskaffi,
með 2.300 kr. íslenzkum, 140 kr.
norskum og 60 kanadadollurum,
eða um 15 þús. kr. verðmæti,
auk ökuskírteinis og fleiri
pappíra. Hefur einhver fundið
það?
Allir fara í ferð með ÚTSÝN
London
Ódýrar vikuferðir:
ágúst: 17., 24
og 31
Verð með vikugistingu
og morgunverði frá
kr. 43.000 —
Verðlækkun frá 7. sept.
Verðfra kr. 38.000,-
Sept. 7., 14., 21. oc-
28
Austurríki
Zillertal — Tyrol
1 2 daga bilferð
frá Kaupmannahöfn
3 nætur
i Kaupmannahöfn
Brottför: 14 ágúst
Verðkr. 69.500
Dresden Gullna
Costa ströndin
Prag Del Sol Lignano
Wien TORREMOLINOS Bezta baðströnd ítaliu
Skemmtileg ferð á nýjai slóðir. Þrjár giæsilegar listaborgir, ekið frá Kaupmannahöfn og við- dvöl þar BENALMADENA Laus sæti 5. okt. Verð með 1. flokks gistingu 1 2 vikur Verðfrá kr. 32.500 - Fyrsta flöKvs aðbúnaðu. og fagurt, friðsælt um- hverfi. Einróma álit ta. þeganna frá i tyrra „PARADÍS Á JÖRÐ"
Brottför 21. ágúst. Verð með fyrsta
Fáein sæti laus. gistingu fra Verðfrá kr. 34.300.
Aukaferð til Costa Brava
Vegna gituriegrar eftirspurnar efnir Útsýn til aukaferð-
artil Costa Brava/Lloret de Mar.
Brottför 15. sept. 2 vikur. Sömu góðu gististaðirmr,
sama ótrúlega hagstæða verðið.
PANTIÐ TÍMANLEGA.