Morgunblaðið - 10.08.1975, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1975
* Víí tiqixw. vííf;
60 U-Pa e-fti f tti-
C(MpÖM«Q6nc-
valdð
Heill og sæll, Ragnar.
Það var skemmtilegt að koma
að býli ykkar, sem ber hið fagra
nafn Hrafnabjörg, fjórbýli með
ábúendum, auk þín, þeim
Guðmundi Björnssyni, Rúnari
Guðmundssyni, Jóni Friðriks-
syni og Ara Jónassyni bróður
þínum. Ekki vildir þú gera
mikið úr stærð búsins, sem er
350 fjár og 6 kýr, minntist á að
þið væruð fimm í heimili og
allir sinntu búskapnum.
„Maðui; lifir“, sagðir þú
þegar ég spurði þig hvernig
gengi, og bættir síðan við að
auk bústofns hefðir þú svolitlar
tekjur if vörubíl.
Þegar ég veik mér að þér til
að rabba við þig um búskapinn
í Jökulsárhlíðinni, sagðist þú
litið hafa að segja, en þannig er
það svo oft, þar sem við blaða-
menn förum um, heimamenn
og gangandi telja sig ekki hafa
neitt sérstakt að segja sem for-
vitnilegt sé, en undantekninga-
Ari Jónasson við slátt með
gamla laginu, þar sem annað
hentar ekki.
laust leggur hver með sér atvik
og vangaveltur, sem flestir
landsmenn hafa ánægju af að
kynnast. Því ætla ég hér að rita
niður sjónarmið þitt eins og þú
tjáðir mér það og sleppi ég þar
spurningum minum.
,,Ég er fæddur hér, og hér hef
ég alltaf búið, alltaf átt heima.
Við höfum reynt að gera ýmis-
legt hér fyrir jörðina jöfnum
höndum, en siðustu árin hefur
ekki verið mikil nýrækt. I þeim
efnum hefur verið kyrrstaða,
því að þegar hætt var að tvíslá
eftir kalárin, kom helmingi
minna út að sjálfsögðu og túnin
eru ekkert of stór I dag. Við
Sveitastemmning við Hrafnahjörg.
þurfum að fjölga kúm hér, en
erfiðleikarnir í þvi sambandi
lúta að þvi hve erfitt er að
koma mjólkinni í burtu á
vetrum. Vegasambandið er svo
lélegt. Þessi vegur til Egils-
staða er meira og minna á kafi
allan veturinn, strax og snjóar
er hann orðinn ófær. Það kling-
ir I eyrum okkar að við eigum
ekkert að vera að framleiða
mjólk hér, því að það sé svo
erfitt að ryðja veginn. Við
eigum víst að lifa eftir tilskip-
unum stjórnvalda. Innan sveit-
ar er vegurinn að verða nokkuð
góður, en til Egilsstaða þarf að
endurgera hann og ekki er
þetta nú nema 30 km leið. Þá
þarf að endurbyggja Laxár-
brúna og Jökulsárbrúna, en
þessi vegur gæti séð fyrir þörf-
um tveggja hreppa.
A Hrafnabjörgum eru 20
manns i heimili, alls 16 kýr og
nokkur hundruð sauðfjár. Það
er nauðsynlegt að hafa blandað-
an búskap hér, skinandi af-
réttarlönd, en andskoti veðra-
samt, og hér höfum við orðið
fyrir fjársköðum svo til árlega.
Veginn yfir Smjörvatnsheiði
þyrfti að endurnýja, það mætti
gera hann jeppafæran á 3—4
dögum með jarðýtu, það er leið
sem margir myndu kanna,
gamla þjóðleiðin frá Vopnafirði
til Héraðs“.
Það var slæmt að heyra hvað
heyskapur hefur gengið illa hjá
ykkur eins og reyndar víðast
hvar á landinu á þessu sumri
búnir að slá. 10 hektara af 50
hektara túnum og aðeins búnir
að hirða af 3 hekturum, þið
Guðmundur. Þetta er reyndar
ekki óeðlilegt úr því að gras-
spretta byrjaði ekki fyrr en
eftir 20. júni.
Þú hafðir orð á því að Hlíðin
væri svolítið út úr á nútímavísu
þar sem þetta væri i þessum
landshluta, en þið hafið nú líka
ýmislegt sem margur þéttbýlis-
maðurinn eltir upp um fjöll og
firnindi. Laxá hjá Fossvöllum
er góður veiðistaður, sagðir þú
mér, og það er ekki amalegt að
hafa veiðiaðstöðuna við bæjar-
dyrnar eins og þið hafið. Svo er
líka vaxandi umferð þennan
stutta tima, sem Hellisheiði er
fær, en mér þótti merkilegt að
heyra þig segja að þú kæmist
betur í snertingu við sumarið
og Hfið þegar þú yrðir var við
umferðina og fólkið. Þú lagðir
líka áherzlu á að það sem ykkur
vantaði helzt væri betri vegir.
„Aðallega okkur til dundurs
á vetrum", sagóir þú, „fylgj-
umst við með sjónvarpi og les-
um bækur. Störfin taka allan
timann á vetrum ekki síður en
á sumrum. Kvenfélag er starf-
andi hér og ungmennafélag
sem hefur verið i nokkrum
Ragnar Jónasson, bóndi
Hrafnabjörgum
Jökulsárhtíð
öldudal, en úr því gæti rætzt á
næstunni. Það breyttist margt
hér í félagslifinu, fannst mér,
þegar Valaskjálf var reist á Eg-
ilsstöðum. Unga fólkið fer héð-
an á skemmtanir þar, en áður
kom fólkið saman hér I sveit-
inni og dansaði þegar tóm gafst
til. Það var lika þannig þegar
ég var ungur að félagar úr ung-
mennafélaginu komu saman og
slógu útengi venjulega hjá ein-
um bónda um miðjan ágúst.
Piltar slógu og stúlkur rökuðu
og síðan var dansað fram eftir
nóttu. Þessar skemmtanir voru
alltaf á sunnudögum og dansað
var við harmonikkuspil. Nú er
þetta niðurlagt, ég held Hka að
ungir menn kunni varla að slá,
en ef til vill kemur þetta aftur í
einhverri nýrri mynd.
Þó er hægt að segja að unga
fólkið hér sé heimakært, en
þessi skólaár eru orðin æði-
mörg og þessi stutti tími heima
á sumrin fer í að afla sér pen-
inga og það er þá oftast utan
heimilisins. Þetta skólakerfi
sem byggt er á slítur sveitalifið
mikið í sundur og skilar ekki
miklu að mínu mati, ekki miðað
við allan þann tíma sem þetta
brölt stendur yfir, og unga fólk-
ið er teymt á milli bása kerfis-
ins, sem enginn skilur orðið
hvaða tilgangi þjónar. Mér
finnst að þegar unga fólkið
kemur út úr skólunum sé það
með ný viðhorf til lffsins, við-
horf sem maður þekkir ekki, og
virðast lika miðast við eitthvert
sjónskakkt kerfi skólanna
fremur en lifið f landinu. Mér
finnst álagið einnig orðið allt of
mikið á margan unglinginn,
þeir ná sér ekki á strik vegna
ofþreytu vegna þessa atgangs
og ég held líka að þetta skóla-
kerfi sem ekki er I takt við lff
fólksins í landinu, kalli á léleg-
ar einkunnir.“
Ég hef orðið var við það á
mörgum ferðum minum vitt og
breytt um landið að þú átt
marga skoðanabræður, enda er
það æðimargt sem við höfum
flutt inn í okkar kerfi ótilreitt
frá öðrum löndum, en þegar
allt kemur til alls hentar það
okkur ekki. Að sjálfsögðu er
skynsamlegt að læra af öðrum
þjóðum það sem kann að henta
okkur til betra lífs, en illt er ef
við göngum fram hjá okkar eig-
in eðli, eigin sérstöðu og gleym-
um að lifa okkar lífi. Þá fer illa
og við verðum verri Islendingar
um Ieið og við verðum meiri
hópsálir í hundaþúfu þeirra
rotnandi þjóða sem setja allt f
kerfi, mannlif i kommóðuskúff-
um. Við eigum þó góða von.
Maður kastar sér ekki af hestí
fyrr en í siðustu lög og enn
tollum við sæmilega á baki, en
aðgæzlu er þörf.
Mv'úífl
^ _ vaotf
Ragnar Jónasson bóndi. Hrafnabjörg I baksýn.
Útsala
hefst á morgun. 20% afsláttur af öllum vörum.
Verslunin Karfan.
HOFSVALLAGÖTU 16.