Morgunblaðið - 10.08.1975, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1975
35
— TIKAL
Framhald af bls. 21
stjörnunum eins og prestarnir
forðum daga — eða hlusta á
aldursforsetann okkar segja frá
öllu, sem hann vissi um þennan
stað. En það var ekki til set-
unnar boðið.
Þegar niður var komið
settumst við stundarkorn á
fórnarstalla á tórginu og skoð-
uðum mauralest, sem fór fram
hjá með þungaflutninga,
stærðar lauf, er sýnilega átti að
fara i meiriháttar mannvirki,
sem þeir höfðu í smíðum uppi
við gildan trjábol. Svona höfðu
þessi miklu mannvirki Maya-
Indíánanna einmitt orðið til.
Maurar og menn — var nokkur
munur?
Tfminn leið fljótt og þvi
miður gátum við ekki haft
þarna nema fimm klukku-
stunda viðdvöl. Boð kom frá
flugmanninum um að veðurspá
væri versnandi og hann þyrði
ekki annað en fara. Hvort ein-
hver vildi verða um kyrrt yfir
nótt í von um að aftur yrði
flogið á morgun? Það vildi eng-
inn, eftir reynsluna af felli-
bylnum, gat það þýtt upp í viku-
dvöl eða meira.
Ferðin til Guatemala gekk að
óskum, en þegar við komum í
flughöfnina, beið okkar þar for-
stöðumaður ferðaskrifstof-
unnar í hótelinu, faðmaði
okkur hvert af öðru eins og
hann hefði heimt okkur úr
helju og sagðist ekki hafa verið
mönnum sinnandi allan daginn,
eftir að hann frétti með hvaða
vél við hefðum farið. „Það veit
sá sem allt veit,“ sagði hann,
„að ég hefði frekar orðið eftir i
Tikal en að fara aftur upp i
þetta skrifli."
Það var þreyttur hópur en
ánægður, sem rölti inn á
Camino Real gistihúsið þetta
kvöld. En eftir gott bað og ríf-
legan kvöldverð var þreytan
horfin og hópurinn hittist aftur
á barnum. Menn klingdu I
glösum kampakátir — ferða-
sagan var sögð þeim, sem eftir
höfðu setið, með viðeigandi
kryddi — og fagnaðinum lauk
með þvi, að aldursforsetinn
okkar frá Ohio mælti fyrir
minni hinna mörgu kynslóða
Maya-Indíána sem lagt hefðu
svo drjúgan skerf til menning-
ararfs mannkynsins. Síðan
tvístraðist hópurinn, en í kyrr-
um myrkviði Petensýslu biðu
rústir Mayaborgarinnar eftir
nýjum degi og nýjum flokki
ferðamanna.
Fataskápar
Hafið þér kynnt yður fataskápana frá
Stíl-Húsgögnum?
Ef svo er ekki en yður vantar rúmgóðan fata-
skáp, þá höfum við skápinn sem passar, þeir
passa hvar sem er og eru fyrir hvern sem er.
Léttir í flutningi og
auðveldir í uppsetningu
Sendum um allt land. Komið, hringið eða
skrifið eftir nánari upplýsingum.
Stíl-Húsgögn
Auðbrekku 63, Kópavogi,
sími 44600.
Kvenskór nýkomnir
Litir
svart
og
rauðbrúnt
Verð
kr. 6.300—
Póstsendum
SKOSEL,
Bakvið Hótet Esju
-r-...... simi 35300
Til solu
70 Cortina 1 600 sjálfsk. 370 þús.
'73 Cortina 1 300 L 760 þús.
'74 Bronco 8 cyl hálfsp. 1 250 þús.
'66 Bronco Pick up 450 þús.
'72 Bronco 8 cyl 850 þús.
'74 Escort nýr (ókeyrður) þýskur 800 þús.
'74 Escort enskur 650 þús.
'73 Escort, 1300 560 þús.
'74 Mercury Comet 1 400 þús.
'72 Mercury Comet 875 þús.
'68 Mercury Cougar 625 þús.
'72 Ford Pinto 4 cyl 800 þús.
'70 Ford Mustang 6 cyl 650 þús.
'68 Ford Mustang 8 cyl beinsk. 475 þús.
'66 Ford Mustang 8 cyl sjálfsk. 400 þús.
'7 1 Ford Taunus 1 7M 450 þús.
'72 Toyota Mark II 1 900 850 þús.
'70 Toyota Mark II 1 900 600 þús.
' 7 1 Toyota Crown 700 þús.
'74 Mazda 929
'72CitroenGS 630 þús.
'73 Chevrolet Blazer ek30þ. 1450þús.
'73 Chevrolet Vega 3ja dyra sjálfsk. 990 þús.
'71 Chevrolet Monte Carlo 1050þús.
'69 Chevrolet Nova 650 þús.
'70 Buick Skylark 700 þús.
'70 Pontiac Firebird Esprit 950 þús.
'72DodgeDart 925 þús.
'70 Bens 220 Bensín 1250þús.
'72 Range Rover 1425 þús.
'72 Fiat 1 800 850 þús.
'72 VW 1300 320 þús.
Athugið að margvísleg skipti eru möguleg.
Höfum opið á laugardögum.
Gas — kæliskápar i— — —
B ] Electrolux |
irumarkaðurinn hf.
Árm Mat úla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-11 2 /örudeild S 86 111, VefnaSarv.d. S 86 113
Til sölu er
garðyrkjustöð
og
söluskáli
með tilheyrandi vélum og
áhöldum, svo og íbúðarhús
Pauls V. Michelsen í
Hveragerði, í einu lagi, en til
greina kemur þó að selja
hverja eign sérstaklega.
Þeir sem áhuga hafa eru vinsamlegast
beðnir að senda tilboð í þessar eignir fyrir
30. ágúst n.k. í pósthólf 187, í Reykjavík.