Morgunblaðið - 10.08.1975, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. AGÚST 1975
+
Maðurinn minn og faðir okkar
ÓLAFUR BJARNASON
skipstjóri
Tungötu 21, Keflavík
andaðist föstudaginn 8 þ.m
Severína Högnadóttir
Elin Ólafsdóttir,
Marteinn Árnason.
Móðir okkar og tengdamóðir
JÓNA Þ. BJARNADÓTTIR
Arnarhrauni 23, HafnarfirSi
lést í Landakotsspítala fimmtudaginn 7. ágúst.
Jarðarförin verður ákveðin síðar.
Böm og tengdabörn.
t
Eiginkona mín og móðir
SIGRÍÐUR VIGFÚSDÓTTIR,
Pólgötu 6, ísafirði,
andaðistá Landspitalanum 7. ágústs.l.
Óskar Halldórsson og dóttir.
+
Útför sonar míns, föður okkar og bróður
BIRGIS EINARS SIGURÐSSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 1 2 ágúst kl 3 e h.
Fyrir mína hönd. dætra og systkina
Petrina Jónsdóttir,
Látraströnd 11, Seltjarnarnesi.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
BALDVINS JÓHANNSSONAR
frá Dalvik
Stefanfa Jónsdóttir,
Örn Baldvinsson,
tengdadætur, barnabörn
og systur.
Tryggvi L. Kristjáns-
son — Minning
Fæddur 9. desember 1907
Dáinn 1. ágúst 1975
Mætur þjóðfélagsþegn, Tryggvi
L. Kristjánsson, verður jarðsung-
inn á morgun frá Fossvogs-
kapellu. Hann varð bráðkvaddur
hinn 1. ágúst.
Mjög ungur að aldri kom
Tryggvi til Reykjavíkur og ólst
upp hjá föðurbróður sinum,
Einari Magnússyni skipstjóra, og
konu hans, Ingibjörgu Gísla-
dóttur, að Vesturgötu 57.
Tryggvi vann við verzlunarstörf
framan af aldri, en lengst af var
hann leigubflstjóri hjá „Hreyfli“
og við störf hjá Bandalagi fsl.
skáta um 10 ára bil.
Tryggvi giftist árið 1932 Unu S.
Jakobsdóttur og eignuðust þau
eina dóttur barna, Vigdísi, sem er
gift Jóni Guðmundssyni fram-
kvæmdarstjóra og eiga þau tvær
dætur. Tryggvi og Una ólu upp
tvö börn, stúlku að nafni Rán og
pilt að nafni Kristján. Þau hjónin
voru mjög samrýmd og fórnuðu
fjölskyldunni allt er þau máttu.
Tryggvi heitinn var félagslynd-
ur maður, greindur, glaðvær og
ljúfur í umgengni. Æsku landsins
unni hann og vann þarft verk sem
skátaforingi. Hann var stakur
reglumaður og vann dagleg störf
sín að kostgæfni. Hann vann vel
að félagsmálum stéttarbræðra
sinna og var framkvæmdastjóri
„Hreyfils" um.árabil. Hann gerð-
ist skáti árið 1925 og þrem árum
síðar var hann orðinn sveitafor-
ingi í skátafélaginu „Væringjar"
og kosinn í stjórn þess árið 1933.
„Væringjar í Vatnaskógi" heitir
grein, sem Tryggvi skrifaði f
drengjablaðið „Úti“ árið 1931 og
segir þar frá allmiklu ferðalagi
skáta um Borgarf jörð og útilegu í
Vatnaskógi, sem Tryggvi skipu-
lagði og stjórnaði ásamt Hans
Jörgensyni skátaforingja á Akra-
nesi. Þátttakendur voru 14 skátar
frá Reykjavfk og 14 frá Akranesi
og ferðin farin f tilefni af því að
fimm ár voru liðin síðan „Vær-
ingjar“ í Reykjavík stuðluðu að
stofnun skátafélags á Akranesi að
beiðni ungs drengs þar, Jóns
Steinssonar. Þessi kynningarferð
átti drjúgan þátt í framvindu
skátastarfs á Akranesi og á næsta
ári, 1976, mun þess eflaust minnzt
að þá eru liðin fimmtíu ár síðan
fyrsta skátafélagið þar var
stofnað.
Aðra grein skrifaði Tryggvi í
„Uti“ um skátaútilegu í Botnsdal,
en við þann fagra dal og ábúend-
ur að Litla- og Stórabotni tók
hann miklu ástfóstri og stjórnaði
þar mörgum útilegum og varðeld-
um skáta. Söngelskur maður, eins
og Tryggvi var, sem auk þess orti
skátasöngva, er enn lifa, átti auð-
velt með að „sjá um fjörið" eins
og nú er sagt. Tryggvi tók saman
rit, ásamt öðrum, sem nefnist
„Skátafélagið Væringjar 25 ára“.
Þar er mikinn fróðleik að finna
um skáta- og æskulýðsstörf f
Reykjavík á árunum 1913 til 1938.
Árabilið 1949 til 1958, þegar
Tryggvi gengdi störfum fram-
kvæmdastjóra hjá Bandalagi ísl.
skáta, var mikill athafnatími í
skátalífi landsins.
Nú er góður maður gengin, sem
fjöldi skátafélaga kveður með
þakklæti fyrir fórnfúst starf og
+
Hjartkær sonur okkar
HALLDÓR ÞÓR EINARSSON,
Hllðarvegi 41,
Kópavogi
er lést af slysförum 2. ágúst, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 12. ágústkl. 1.30
Fyrir hönd systkina og annarra aðstandenda
Valdls Pálsdóttir, Einar Guðmundsson.
I::
H
IJTSALA
Q
afsláttur =
50% — 70%
/UTSALA
&
|s
•••••(•• ••>!
Póstsendum
tmsmrnm
vottar aðstandendum hans inni-
lega samúða.
Jón Oddgeir Jónsson.
Á morgunn, mánudaginn 11.
ágúst verður tengdafaðir minn,
Tryggvi Kristjánsson, lagður til
hinstu hvíldar.
Tryggvi var Vestfirðingur,
fæddur 9. desember 1907 í
Dufansdal við Arnarfjörð. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Una
Svava Jakobsdóttir frá Patreks-
firði, en þau giftust 1932 og höfðu
því verið gift 1 tæp 43 ár, er hann
lézt. Tryggvi og Una eignuðust
eina dóttur, Vigdísi, sem var
einkabarn þeirra. Auk þess ólu
þau upp, frá barnsaldri, eina
stúlku, Rán Einarsdóttur og
dótturson þeirra, Kristján.
Ástríkara uppeldi en . í þeirra
heimahúsum, munu dóttir þeirra
og fósturbörn telja vandfundið.
Vigdls er eiginkona undirritaðs.
Rán er gift Svani Ingvasyni,
húsgagnasmið, er starfar hjá
Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins. Kristján, sem nú er 19
ára, er enn til heimilis hjá ömmu
sinni.
Tryggvi var einstaklega barn-
góður, og öll börn hændust að
honum, enda fengu barnabörnin
að njóta þess, og nú síðustu árin
voru það barnaba.rnabörnin sem
áttu hug hans allan og hann
þeirra.
Tryggvi varð bráðkvaddur
seinni hluta dags, föstudaginn 1.
ágúst síðast liðinn. Andlát hans
kom öllum á óvart, enda hafði
hann gengið að starfi sínu sem
fullfrískur væri, var léttur í lund
og lét á als oddi eins og hans var
ávallt vandi. Þeir sem bezt þekktu
Tryggva fengu þess þó ekki dulið,
að hann gekk ekki alheill til
skógar, enda þótt hann, eftir
mætti, reyndi að láta sem minnst
á því bera.
Á starfsævi sinni gengdi
Tryggvi mörgum ábyrgðarmikl-
um störfum, sem hann sinnti
ávallt af trúmennsku og sam-
vizkusemi, að dómi allra þeirra
sem til hans þekktu. Hann
starfaði m.a. sem leigubifreiðar-
stjóri, sem framkvæmdarstjóri og
gjaldkeri bifreiðastöðvarinnar
Hreyfils og sem framkvæmda-
stjóri Bandalags íslenzkra skáta. í
júní 1969 réðst Tryggvi til starfa
hjá þeirri stofnun Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli, er sér m.a.
um íþróttaiðkanir, tómstunda-
iðju, rekstur kvikmyndahúss og
ferðamál einstaklinga og fjöl-
skyldna þeirra, er hér eru á veg-
um varnarliðsins. Tryggvi starf-
aði þar sem aðalgjaldkeri, og
hafði einnig eftirlit með skrán-
ingu eigna og verðmæta stofn-
unarinnar. Mér er það persónu-
lega vel kunnugt, að Tryggvi naut
fyllsta trausts og virðingar yfir-
manna sinna fyrir sérstaka trú-
mennsku, samvizkusemi, vand-
virkni og ástundun I starfi, enda
mun hans þar lengi verða saknað.
Ég vil I dag, þakka bæði
Tryggva og Unu fyrir þá blessun
sem mér hefur hlotnazt, að fá að
vera samvistum þeirra beggja
aðnjótandi síðast liðin 18 ár. Við
öll, sem nutum samvista við
Tryggva, þökkum honum af ein-
lægum hug fyrir góða viðkynn-
ingu.
Sagt er, að þeir deyi ungir, sem
guðirnir elska, og sannast mál-
tæki þetta með andláti Tryggva,
tengdaföðurs mfns, því manni
sem var yngri I anda, eða hlaðinn
meiri lífsorku og lffsgleði, hef ég
aldrei kynnzt. Guð blessi minn-
ingu hans.
Jón Guðmundsson.