Morgunblaðið - 10.08.1975, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGtJST 1975
Lærdómsríkt og gagnlegt mót
NORRÆNT knattspyrnumót
fyrir unglinga, 16 ára og yngri var
haldið í Finnlandi dagana 28. júlf
til 3. ágúst s.l. með þátttöku liða
frá öllum Norðurlöndunum, auk
liðs frá Vestur-Þýskalandi. Það
var finnska knattspyrnusam-
bandið, sem sá um framkvæmd
mótsins, sem tókst I alla staði
mjög vel og var Finnum til hins
mesta sóma.
Þetta er í fyrsta skipti, sem slíkt
mót er haldið og í byrjun s.l. viku
fjölluðu forráðamenn knatt-
spyrnusambanda Norðurlanda
um framhald slíkra móta á ráð-
stefnu sem haldin var á Laugar-
vatni. Var mikill áhugi hjá full-
trúum allra landanna á að halda
slikt mót árlega, en endanleg
ákvörðun var ekki tekin að þessu
sinni.
Gott skipulag
Eins og áður er að vikið, var allt
skipulag mótsins, eins og best
varð á kosið. Þátttökuliðum var
búinn staður á tveim íþrótta-
stöðvum í nágrenni Lahti. Islend-
ingar, Norðmenn og Danir dvöldu
í Pahjulahden, en Finnar, Sviar
og Vestur-Þjóðverjar voru þar
skammt frá á stað sem heitir
Vierumáki. Var aðbúnaður hinn
besti i alla staði og ekki skemmdi
það fyrir, að veður var hið besta
allan timann, nema hvað hitinn
var í mesta lagi fyrir Islending-
ana, sem vanir eru kaldara veðri,
sem kunnugt er.
Tveir riðlar
Þátttökuliðunum var skipt i tvo
riðla og léku Islendingar, Finnar
og Svíar I þeim fyrri, en Norð-
menn, Danir og Vestur-
Þjóðverjar í þeim síðari. Lítið var
vitað um styrkleika liðanna fyrir-
fram, því þetta er í fyrsta skipti,
sem slíkt mót er haldið og hafa
þjóðirnar, því ekki leikið lands-
leiki áður fyrir þessa aldurs-
flokka. Vestur-Þjóðverjar og jafn-
vel Svíar voru taldir hvað sigur-
stranglegastir fyrir keppnina, en
oft fer öðruvísi en ætlað er og
ekki hvað síst í knattspyrnu.
Keppnin
Ekki er ástæða til að rekja gang
einstakra leikja hér, þar sem frá
þeim hefur verið sagt í blaðinu
áður. Keppnin var mjög jöfn og
skemmtileg og margir leikjanna
voru þannig, að 1. deildar leik-
menn hefðu mátt vera fullsæmdir
af því að sýna jafn góða knatt-
spyrnu og drengirnir gerðu. Það
skiptust á skin og skúrir hjá
einstökum liðum, eins og gerist og
gengur.
Islendingar léku fyrsta leik
sinn gegn Finnum og töpuðu 1—3
og verður ekki annað sagt en að
ógæfan hafi elt þá leikinn á enda,
því mörkin, sem þeir fengu á sig,
voru ðdýr og litið sem ekkert
heppnaðist hjá þeim við mark
andstæðinganna. Það var Magnús
Jónsson, sem skoraði mark Is-
lendinganna. I siðári hálfleik mis-
notuðu Islendingar vitaspyrnu.
Þennan sama dag Iéku Danir og
Norðmenn í hinum riðlinum og
sigruðu Danir, 5—2.
Sigur yfir Svíum
Næsti leikur var milli Svía og
Finna, sem lauk með jafntefli
1—1 og Vestur-Þýskalands og
Noregs, þar sem hinir fyrrnefndu
sigruðu með 5—1.
Föstudaginn 1. ágúst léku Is-
lendingar við Svía og er skemmst
frá því að segja, að okkar drengir
áttu leikinn frá upphafi til enda
og sigruðu, 3—0. Það var Jón
Einarsson úr Val, sem skoraði öll
mörkin. Þennan sama dag sigruðu
Danir Vestur-Þjóðverja mjög
óvænt með 4—2. Það voru þvi
Danir og Finnar, sem höfðu borið
sigur úr býtum í riðlinum, Islend-
ingar og Vestur-Þjóðverjar höfn-
uðu í öðru sæti, en Norðmenn og
Svíar urðu neðstir.
tJrslitakeppnin
Norðmenn sigruðu Svía I
keppninni um 5. sætið með 1—0,
en Vestur-Þjóðverjar sigruðu Is-
lendinga með 2—1 og hlutu þar
með brosnið. Leikurinn var ágæt-
lega leikinn af okkar piltum og
hefði ekki verið ósanngjarnt, að
honum hefði lokið með jafntefli,
þvi Þjóðverjarnir skoruðu sigur-
markið á lokamínútu leiksins
eftir aukaspyrnu. Jón Orri
Guðmundsson úr Breiðabliki
skoraði mark okkar i byrjun
siðari hálfleiks, en í hálfleik
höfðu Þjóðverjar forystu, 1—0.
Úrslitaleikurinn var svo á milli
Finna og Dana og er skemmst frá
þvi að segja að hann var mjög vel
leikinn af báðum aðilum, en Dan-
ir sigruðu 2—1 og þótti sumum,
að Finnar hefðu verið betri og því
verðskuldað sigur.
Vöktu athygli
Ég get fullyrt, að íslensku
piltarnir vöktu á sér athygli á
mótinu fyrir góða frammistöðu.
Einkum vakti sigurinn yfir Svíum
athygli. Fararstjórar Svíanna
höfðu margs að spyrja að þeim
leik loknum, m.a. um undirbún-
ing, val liðsins. og annað þess
háttar. Þá var sigrinum mjög
fagnað af Finnum, sem þar með
tryggðu sér réttinn til að leika til
úrslita. Erfitt er að gera upp á
milli einstakra leikmanna, þar
sem allir stóðu sig vel. Þó er ekki
að neita því, að nokkrir sköruðu
framúr og má þar sérstaklega
nefna fyrirliðann Sigurð Björg-
vinsson úr Keflavík, Sverri
Einarsson og markvörðinn Rúnar
Sverrisson úr Þrótti. Ömar Torfa-
son KR stóð sig mjög vel og fram-
línuleikmennirnir Jón Einarsson
Val, og Einar Ásbjörn Ólafsson
IBK og Magnús Jónsson KR.
Gagnlegt mót
Mót sem þetta tel ég mjög gagn-
legt og vonast til þess, að fram-
hald verði á þeim. Fyrir okkur
var mótið mjög lærdómsrlkt og
sýndi okkur svart á hvítu, að
þjálfun okkar unglinga I knatt-
spyrnu er ekki sem skyldi. Því er
ekki að neita, að I sumum atriðum
stóðum við hinum liðunum
nokkuð að baki, sérstaklega I sam-
bandi við knattmeðferð o.fl. En
við höfðum eitt fram yfir öll hin
liðin, en það var hin óþrjótandi
barátta og leikgleði, sem liðið
sýndi.
Jón Einarsson, Val, skoraði ÖII
mörkin gegn Svium.
Þátttakendur
Það voru alls 16 leikmenn, sem
tóku þátt í þessari ferð, en þeir
voru: Jón Hróbjartsson KR,
Rúnar Sverrisson Þrótti, Einar
Guðlaugsson UBK, Sigurður
Björgvinsson IBK, Sverrir
Einarsson Þrótti, Rafn Rafnsson
Fram, Magnús Jónsson KR, Jón
Orri Guðmundsson UBK, Jón
Einarsson Val, Þórir Sigfússon
IBK, Pálmi Jónsson FH, Ómar
Torfason KR, Ottó Hreinsson
Þrótti, Tómas Tómasson UBK,
Einar Ásbjörn Ólafsson IBK og
Hákon Gunnarsson UBK.
Þjálfarar voru Guðmundur
Þórðarson og Jón Hermannsson,
en fararstjórar þeir Helgi
Daníelsson og Vilberg Skarphéð-
insson.
Úrslit einstakra leikja: A riðill: Finnland — ísland 3—1
Finnland — Svíþjóð 1—1
Island — Sviþjóð 3—0
Finnland 2 110 4—2 3 stig
Island 21014—3 2 stig
Svíþjóð 2 0 11 1—4 1 stig
B riðill:
Danmörk — Noregur 5—2
V-Þýskal. — Noregur 5—1
Danmörk — V-Þýskal. 4—2
Danmörk 2 2 0 0 9—4 4 stig
V-Þýskal. 21017—3 2 stig
Noregur 2 0 0 2 3—10 0 stig
Úrslitakeppnin
sætið:
1—2 Danmörk — Finnland 2—1
3—4 V-Þýskaland — Island 2—1
5—6 Noregur — Sviþjóð 1—0
Unglingalandsiiðið. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Þórðarson, þjálfari, Jón Hróbjartsson, Sigurður
Björgvinsson, Ottó Hreinsson, Jón Orri Guðmundsson, Omar Torfason, Rúnar Sverrisson og Jón
Hermannsson, þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Jón Einarsson, Einar Ásbjörn Olafsson, Rafn Rafnsson,
Einar Guðlaugsson, Þórir Sigfússon, Pálmi Jónsson, Tómas Tómasson, Hákon Gunnarsson og Sverrir
Einarsson.
Halda Framarar
sér á toppnum?
Til þess þarf sigur yfir KR í kvöld
SÍÐASTI leikur 11. umferðar 1.
deildar keppni Islandsmótsins í
knattspyrnu fer fram á Laugar-
dalsvellinum f kvöld og eigast þar
við lið KR og Fram. Er þarna um
mjög mikilvægan leik að ræða
fyrir bæði liðin sem eru f baráttu,
Fram á toppnum I deildinni og
KR-ingar á botninum, og ef
marka má úrslit leikja þessara
liða fyrr í sumar má búast við
mjög tvfsýnni baráttu. Þegar
liðin mættust f fyrri umferð Is-
landsmótsins sigruðu Framarar
með tveimur mörkum gegn engu,
cn KR-ingar sneru dæminu
algjörlega við cr liðin mættust f
bikarkeppni KSl og sigruðu 2—0.
Þá fer fram í kvöld kl. 20.00 á
Selfossi leikur í 2. deild milli
heimamanna og Þróttar. Þarna er
einnig um mjög mikilvægan leik
að ræða, þar sem bæði þessi lið
eru í baráttunni um sigur I
deildinni. Staða Selfyssinga er
reyndar orðin nokkuð erfið, en
Þróttarar ógna hins vegar Breiða-
bliki, sem hefur forystu í deild-
inni, og sigur Þróttara I leiknum f
kvöld, þýðir nánast að um
hreinan úrslitaleik verður að
ræða er UBK og Þróttur mætast á
Kópavdgsvellinum 22. ágúst.
Bikarkeppni FRÍ
BIKARKEPPNI Frjálsfþróttasambands lslands heldur áfram á
Laugardalsvellinnm kl. 14.00 f dag, en sem kunnugt er þá er þarna
um að ræða eitt helzta frjálsfþróttamót sem haldið er hérlendis
árlega. Bæði er þátttaka meiri en f flestum öðrum frjálsfþróttamót-
um, og eins er baráttan harðari. Eins og fram hefur komið áður má
búast við mjög harðri keppni um títilinn Bikarmeistari FRl 1975,
og eins má ætla að baráttan á botninum verði hörð, en það lið sem
fæst stig hlýtur fellur í 2. deild og keppir þar að ári.
Valsmenn fagna, en FH vann
VALSMENN fagna marki sfnu í leiknum við FH f fyrrakvöld. Hermann Gunnarsson og Hörður
Hiimarsson hlaupa fagnandi f átt til Alberts Guðmundssonar sem átti allan heiðurinn af markinu, sem
Hermann skoraði. Þeir eru hins vegar óhressir á myndinni FH-ingarnir Leifur Helgason, Úmar Karlsson
og Jón Hinriksson, þeir áttu þó eftir að hressast er leið á leikinn og f lokin stóðu þeir uppi sem
sigurvegarar. (Ljósm. Friðþjófur). , : ;