Morgunblaðið - 10.08.1975, Blaðsíða 48
Fallegri myndir Fallegri myndir
Ast þór W ÍiOfifíltWÍÍ>fe&0 | Ástþór |
myndiðjan myndiðjan
SUNNUDAGUR 10. ÁGUST 1975
Tollfrelsi aukið
hjá ferðafólki
og farmönnum
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur gefið út nýja reglugerð
varðandi tollfrjálsan innflutning
ferðamanna og farmánna og að
sögn Þorsteins Geirssonar,
deildarstjóra í fjármálaráðuneyt-
inu, er þetta m.a. gert vegna mik-
illa breytinga á gengi á undan-
förnum mánuðum.
Þorsteinn sagði, að breytingin
næði til ferðamanna, farmanna og
flugliða. Nú mættu þeir ferða- og
farmenn, sem væru I meir en 40
daga í burtu, hafa með sér toll-
frjálsan varning fyrir kr. 14 þús.,
en áður var þessi upphæð 8 þús.
krónur. Þeir ferða- og farmenn,
sem eru lengur en 20 daga að
heiman, mega hafa með sér toll-
frjálsar vörur fyrir 9 þús. kr., en
áður var upphæðin 5 þús. krónur.
Þeir sem eru skemur en 20 daga í
burtu mega koma með tollfrjálsan
varning fyrir 3000 krónur, en
áðurvar upphæðin 1500 krónur.
Að sögn Þorsteins er 40 daga
ákvæðið nýmæli.
Ljósmynd Brynjólfur.
Loftleiðir misstu af
320 millj. kr. samningi
Vínveitingahúsin:
100%-200% hækk-
un aðgangseyris
Væntanlegt
pílagrímaflug
úr sögunni
„ÞEIR væntanlegu farþegaflutn-
ingar Flugleiða með 10 þús. pfla-
grfma frá Jakarta til Mecca f
haust eru nú úr sögunni," sagði
Jóhannes Einarsson fram-
kvæmdastjóri flugrekstrardeild-
ar Flugleiða f samtali við Morg-
unblaðið f gær, en hann var þá
nýkominn frá Indónesfu úr samn-
ingaviðræðum um þessi mál. Búið
var að gera samning um þessa
flutninga milli Loftleiða og
Mandalaflugfélagsins í Indó-
nesíu, en þegar til kom var Ieyfi
indónesfska ráðuneytisins háð
því að félagið sem tæki þessa
flutninga að sér væri starfandi á
flugleiðum til og frá Indónesíu.
„Hér var um að ræða 80 ferðir
alls fram og til baka milli Jakarta
og Jeddah sem er næsti flugvöllur
við Mecca,“ sagði Jóhannes, „og
samningurinn var frágenginn,
vantaði aðeins ráðuneytisleyfi,
sem fékkst ekki.“
Aðspurður svaraði Jóhannes
því að hér hefði verið um að ræða
samninga upp á 320 millj. kr., en
þar fyrir utan hefðu leigutakar
greitt lendingargjöld og elds-
neyti.
„VIÐ erum nú að kanna tugi til-
boða f vikurinn hér,“ sagði Sig-
urður Jónsson, bæjarfulltrúi f
Vestmannaeyjum, í samtali við
Morgunblaðið f gær. „Það hefur
komið upp úr kafinu,“ hélt hann
áfram, „að bæjarlögfræðingurinn
lá með tvær fullar möppur af
bréfum frá fjölda erlendra fyrir-
tækja og fyrrverandi bæjarstjóri
með eina möppu, án þess að
nokkuð væri að gert, en hér er um
að ræða fjölda forvitnilegra til-
„Það er ástæða til,“ sagði Jó-
hannes, „fyrir Flugleiðir að leita
að slikum verkefnum á þeim árs-
tíðum sem minnst er að gera hjá
félaginu á árstímabundnum
leiðum þar sem mismunurinn er
svo mikill á milli anna sumars og
vetrar.“
boða bæði hvað snertir sölu vik-
urs beint eða byggingu verk-
smiðju f Eyjum til að fullvinna
vikurinn."
Aðspurður svaraði Sigurður því
til að ítarleg könnun fjármála-
stöðu bæjarins og skuldbinding-
úm miðað við 30. júní s.l. er nýr
bæjarstjórnarmeirihluti tók við,
væri í fullum gangi og væri
reiknað með að sú könnun yrði
lögð fyrir bæjarstjórn f septem-
ber. Þá kvað Sigurður byrjað að
An samþykkis verðlagsstjóra
AÐGANGSEYRIR að vín-
veitingastöðum í Reykja-
vík er nú frá 100 kr. og upp
í 300 kr. eftir stöðum, en
100 kr. er þó lögmætur að-
Fluttur á sjúkra-
hús með sprung-
inn hryggjarlið
UM KL. 7.30 f gærmorguu varð
umferðarslys á Reykjanesbraut
og var einn maður fluttur í
sjúkrahús með sprunginn
hryggjarlið. Grunur leikur á að
Bakkus hafi átt þátt f þessu slysi.
Slysið átti sér stað með þeim
hætti, að tveir bílar voru á leið
suður Reykjanesbraut til Kefla-
víkur. Bílstjóri aftari bílsins
ákvað skyndilega að fara fram úr
þeim fremri, með þeim afleiðing-
um að bílarnir skullu saman og
ultu út af veginum. Bílstjóri bíls-
ins, sem var á hægri kanti, var
fluttur á Borgarspítalann með
sprunginn hryggjarlið, en bíl-
stjóri bílsins, sem ætlaði framúr
slapp ómeiddur. Hann er grun-
aður um ölvun. Báðir bflarnir eru
mikið skemmdir.
ræða við Viðlagasjóð um uppgjör
sjóðsins og Vestmannaeyjakaup-
staðar og sagði Sigurður að allir
gerðu sér nú orðið ljóst að matið
sem sjóðurinn hefði látið gera
stæðist engan veginn, en þar var
mat reiknað aftur á bak með full-
uni fyrningum til þess tíma er
viðkomandi mannvirki voru gerð.
Byrjað er á sund- og fþróttahöll
og er reiknað með að henni verði
lokið samkvæmt áætlun næsta
Framhald á bls. 47.
gangseyrir, því samkvæmt
upplýsingum verðlags-
stjóra, Georgs Ólafssonar,
hefur embætti hans ekki
samþykkt neina hækkun á
aðgangseyri eins og skylt
er. Ekki er samræmi I þess-
um hækkunum hjá veit-
ingahúsunum. Til dæmis
er Hótel Borg ennþá með
100 kr. aðgangseyri, Klúbb-
urinn og Hótel Saga með
200 kr. og nýjasti skemmti-
staðurinn, Sesar er með
300 kr. aðgangseyri.
Verðlagsstjóri tjáði
Morgunblaðinu að þeir
væru nú að kanna þetta
mál.
286
hvalir
komnir
áland
HVALVEIÐIN gengur
enn mjög vel, og í gær-
morgun voru komnir 286
hvalir á land, en
skömmu fyrir hádegi
kom Hvalur 8 með 3 fal-
lega hvali.
Á sama tíma í fyrra
höfðu veiðst 260 hvalir,
þrátt fyrir að þá hófst
vertíðin 14 dögum fyrr
en nú. Veiðin í sumar er
einhver sú jafnasta og
bezta, sem um getur frá
því að stöðin I Hvalfirði
tók til starfa. Allar af-
urðir eru seldar til
Japans, og gengur vel að
selja þær.
Kanna tugi tilboða í Eyjavikurinn
Fjármálakönnun bæjarins aðljúka