Morgunblaðið - 15.08.1975, Page 7

Morgunblaðið - 15.08.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. AGUST 1975 7 r 1875 íslendingar telja sig gjarnan sagnaþjóð, sem geymi í minni atburði horfinna tíma, í listrænni frásögn, Ijóði, myndum og tónum. Þetta er eflaust rétt en þó sakar Iítt að rifja upp fáeina atburði. sem áttu sér stað fyrir einni öld, suma merka, aðra minniháttar. 0 — Fyrsta löggjafarþing ísleodinga (og hið 15. i roðinni frá þvi Alþingí var endurreist) kom saman fyrir 100 árum, 1875. Þá var alþingi og skipt í tvær þingdeildir hið fyrsta sinni. Jón Sigurðsson var kjörinn bæði forseti sam- einaðs þings og neðri deildar. Forseti efri deildar var kjörinn Pétur biskup Pétursson. 0 —iÞetta ár voru land inu i fyrsta sinn sett fjár- lög, er giltu fyrir næstu tvö árin (1876 og 1877). Áætlaðar tekjur ríkisins þessi tvö ár vóru 580.000,- krónur og út- gjöld 452.000,- krónur. 9 — Þetta ár fóru fimm Íslendingar. ásamt brezk- um ferðalangi, norður yfir þveran Vatnajökul. Var þetta í fyrsta sinn, svo vitað sé, sem slíkt ferða- lag var farið. 0 — Þetta ár fór fram fyrsta borgarlega hjóna- vígslan á landinu (í Vest- mannaeyjum) og fyrsta prjónavélin var flutt til landsins (að Ási í Hegranesi). Þá eru og likur til að sláttuvél hafi verið reynd hér, hið fyrsta sinni. af Torfa Bjarnasyni, jarðyrkjumanni og var sú talin „vinna á við 7 menn". ^ — Þetta ár var mynda- stytta Thorvaldsens afhjúpuð i Reykjavík og þá var stofnaður vísir að „Sjómannafélagi i Reykjavík". 0 — Hjálmar Jónsson, skáld frá Bólu, Pétur Havstein, amtmaður, og Jón Guðmundsson, rit- stjóri, létust á þessu ári, allir hinir mætustu menn, sem skildu eftir sig spor i þjóðarsögunni. 0 — Stórkostleg eldgos urðu i Dyngjufjöllum og á Mývatnsöræfum (aðal- gigur i suðurhorni Öskju), hundruð jarða stór- skemmdust af ösku og tugir býla lögðust í eyði. Eldinum laust upp 3. jan- úar, gosstöðvum fjölgaði siðar og jarðeldarnir stóðu mánuðum saman. 0 — Þetta ár fórust þrjú hákarlaskip fyrir norðan: Hreggviður frá Siglufirði og með þvi 11 menn, Draupnir frá Siglu- firði og með þvi 11 menn. Skip þessi átti Snorri Pálsson, verzlunarstjóri i Siglufirði. Enn fórust 3 menn af Skildi, eign sama úthalds. Þá fórst Hafrenn- ingur frá Hellu á Árskógs- strönd með 10 mönnum. Þannig var árið 1875, séð i nokkrum svipmynd- um, markað gleði og sorg, en fyrst og fremst reisn og framtaki. sem boðaði nýja tíma, bæði þeirra er þreyðu þorrann og góuna hérlendis, og hinna, er um þessar mundir námu nýtt land vestan hafs. Verður nú vikið að smá- smugulegra efni. Frétt (kvenna) ársins Fréttastjóri Þjóðviljans og einn af eigendum ---------------------------( Hótel Hofs (að sögn Tímans) fjallaði í fyrradag um skipstjóra á portú- gölskum togara, sem hingað kom nýverið sök- um bilunar. Þar er þess að vonum getið að skip- stjórinn „sé meðeigandi í hóteli". Síðan er ástandið á íslandi (þar sem ríkir vont lýðræði) borið saman við gullöldina f Portúgal (þar sem sólris kommún- ismans roðar tilveru fólks) í sérstökum kafla, sem ber yfirskriftina: „Lög- regluríki líka hér?" Þar er m.a. tekið undir þau orð hins erlenda skipstjóra að íslenzk lögregla sé óþol- andi hörð í horn að taka í kvennaleit um borð f skip- um erlendra. Þeir séu öðru og betra vanir, portúgölsku sjómennirnir, f sínu heimalandi! Þau eru eilftið brosleg samanburðardæmin, sem Þjóðviljinn tfnir til, til að fegra blótvöll bolsévism- ans. Og ísienzka lögreglan undirstrikar gamalt mál- tæki í reynslu Þjóðviljans: „Gott er að hafa barn til blóra". — En rétt er að taka vilja þeirra Þjóðvilja- manna fyrir verkið. Og raunar eru þeir byltingar- tilburðir, sem bólar á hjá fréttastjóranum, mann- legir og „sjarmerandi" á sinn hátt, að árétta rétt suðrænna sjómanna til frjálslegrar umgengni við „fósturlandsins freyjur" á þessu kvennaári Samein- uðu Þjóðanna. VEL STILLT VÉL EYÐIR MINNA BENSÍNI BÍLASTILLINGAR Björn B. Steffensen Hamarshöfða 3 — Sími 84955. SEYÐISFJÖRÐUR HVERAGERÐI INNRI NJARÐVÍK GRINDAVÍK TEIGAHVERFI, Mosfellssveit Umboðsmenn óskast til að sjá um dreifingu og innheimtu Mbl. uppl. hjá umboðsmönnum og á afgr. í síma 10100. Komnir aftur VOLVOSALURINN Fólksbílar til sölu Volvo 142 De Luxe 1973 2ja dyra, ekinn 42.000 km. litur: rauð- ur. Verðkr. 1.280.000,— Volvo 142 Grand Luxe 1973 2ja dyra, ekinn 31.000 km litur: Blágrænn. Verð kr. 1.400.000.— Volvo 144 De Luxe 1973 4ra dyra, ekinn 46.000 km litur: rauð- ur. Verðkr. 1.320.000,— Volvo 142 De Luxe 1972 2ja dyra, ekinn 67.000 km litur: gulur. Verð kr. 1.060.000 — Volvo 142 Evropa 1972 2ja dyra, ekinn 76.000 km litur. gulur. Verð kr. 930.000 — Volvo 142 De Luxe 1972 2ja dyra, ekinn 32.000 km litur: ljós- blár. Verð kr. 1.050.000.— Volvo 144 De Luxe 1972 4ra dyra, ekinn 72.000 km litur: ljós- gulur. Verð kr. 1.100.000 — Volvo 144 De Luxe 1972 4ra dyra, ekinn 74.000 km litur: ljós- blár. Verð kr. 1.060.000.— Volvo 144 Evropa1971 4ra dyra, ekinn 128.000 km. Verð kr. 790.000,— Volvo 145 station 1973 5 dyra, ekinn 51.000 km. Litur: gulur. Verðkr. 1.440.000,— Volvo 145 station 1971 5 dyra, ekinn 44.000 km. Verð kr. 1.030.000.— Volvo 144 De Luxe 1973 4ra dyra, ekinn 36.000 km. Vill skipta á Volvo árg. 1974 eða 1975. Milligjöf. Staðgreiðsla. Volvo Amazon 1965 4ra dyra ekinn 90.000 km. Verð kr. 285.000,— Cortina 1600 1974 4ra dyra, ekinn 32.000 km litur: gulur. Verð kr. 930.000 — óskum eftir Volvobílum í sölusal okk- ar. Mikil eftirspurn. VELTIH HF SUDURLANDSBRAUT 1« 41 J520D Til sölu CITROEN DS PALLAS Árg. 1974. Mjög glæsilegur bíll. G/obush.f., Upplýsingar hjá sölumanni. Sími 81555 Vorum að taka upp okkar vinsælu sumarskó. GEísiP H BANKASTRÆTI 9 — SÍMl 1-18-11 tjfTSMA UTSALA Síðastl dagur útsölunnar er í dag Ennþá er hægt að gera góð kaup 50% — 70% afsláttur OPIÐ TIL10 í KVÖLD J // (Lokað á laugardögum) ‘W.v-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.