Morgunblaðið - 15.08.1975, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. AGOST 1975
Sjötugur:
Gunnar Bjömsson
y er slun ar f ulltr úi
Kannastu ekki við hann Gunnar
Björnsson? Hann er þriðji maður
frá kónKÍ. Á þennan hátt heyrði
ég Gunnars fyrst getið. Ummælin
stöfuðu af því að hann gegndi
ritarastörfum hjá Jóni Svein-
björnssyni í konungsritaraskrif-
stofunni í Amalíuhorgarhöll allar
götur frá 1931—44.
Ungur fór hann utan. 1 Kaup-
mannahöfn hafa lífsþræðir hans
legið. Þaðan hefur hann ekki átt
afturkvæmt. Hann er sjötugur í
dag og ævikvöld hans sem
embættismanns í utanrfkisþjón-
ustunni hefst við næstu áramót.
Gunnar fæddist 15. ágúst 1905 á
Skefilsstöðum á Skaga og voru
foreldrar hans Björn Ölafsson
bóndi og kona hans Guðrún
Björnsdóttir. Hann fór mennta-
veginn og lauk stúdentsprófi frá
menntaskólanum á Akureyri árið
1929. Svo sigldi hann og hóf nám í
Kaupmannahöfn. Þá voru tímar
námsstyrkja og námslána eins og
við þekkjum þá í dag ekki runnir
upp og því erfitt fyrir ungan
bóndason að brjóta sér braut.
Hann varð því að vinna og nema
samtímis. Þegar þvf lauk og hann
orðinn eand. polit. frá Kaup-
mannahafnarháskóla gifti hann
sig fljótlega. Gegndi hann eftir
það framkvæmdastjórastarfi hjá
prentsmiðju, sem kona hans átti
eignaraðild að, þar til hann varð
ræðismaður íslands í Kaup-
mannahöfn árið 1952. Hefur hann
starfað í sendiráðinu frá þeim
tíma og sem verslunarfulltrúi frá
1964.
í þær fimm aldir, sem Kaup-
mannahöfn var höfuðborg Ís-
lands, lágu allar götur þangað.
Þetta hefur loðað við landann
furðu lengi. Mér fannst stundum
þau ár, sem ég var í sendiráðinu,
að ef íslenskur ferðamaður kom
ekki til Hafnar á útleið, þá treysti
hann sér ekki heim öðruvísi en að
koma þar við í bakaleiðinni.
Hvernig sem þessu annars er
farið, er hitt staðreynd að ótrú-
lega mikill fjöldi íslendinga hefur
komið til Kaupmannahafnar
ýmissa erinda, nú, eða þá ekki
annarra erinda en að heimsækja
staðinn. Þar eru einnig margir
þeirra við nám, allskonar störf
eða þá búsettir. Ekki fer hjá þvf
að á slíkum stað komi fjölmargt
upp og margan vandann þurfi að
leysa.
1 nokkra áratugi hefur Gunnar
verið boðinn og búinn til þess að
leysa hvers þess manns vanda,
sem að garði hefur borið. Ekki
held ég að á nokkurn sé hallað
þótt því sé haldið hér fram að
enginn Islendingur á erlendri
grund hafi leyst jafn mörg vanda-
mál fyrir jafnmarga „að heiman“
og hann. t því efni á hann engan
sinn líka. Kemur þar margt til
annað en löng útivist og störf við
sendiráðið. Honum er eðlilegra en
mörgum manninum að láía engan
synjandi frá sér fara. Mér liggur
við að segja að hann geti það ekki.
Greiðasemi í hvaða formi sem er
kemur fram hjá honum í hinum
ótrúlegustu myndum. Það er e.t.v.
útúrdúr, og mætti segja það lítt
koma þessu máli við, en er þó
engu að síður grein af sama
meiði: Engan hef ég séð greiða
reikninga með meiri ánægju en
hann. Sama var hvaða rukkari
kom í sendiráðið, það var eins og
hver reikningur hefði einhvern
fagnaðarboðskap að flytja.
Alúð, samviskusemi og skyldu-
rækni hafa alla tíð einkennt störf
Gunnars Björnssonar, enda er
hann maður einlægur og ólatur.
Hann er af gamla skólanum og
gerir fyrr kröfur til sjálfs sfn en
annarra. Með slíkum mönnum er
jafnan gott að vinna, og naut ég
þess þau þrjú ár, sem ég starfaði
með honum við sendiráðið. Þótt
hann hafi ekki búið á íslandi í
hálfa öld verður þess sjaldan vart
að hann skorti þekkingu á
mönnum og málefnum hér heima.
Störf hans og hin margþættu sam-
skipti hans við fólk hafa séð fyrir
því. Auk þess hefur hann alla tíð
lesið íslensk blöð og bækur, og á
myndarlegt safn íslenskra heim-
ildarrita.
í rúm þrjátíu ár hefur frú
Margrethe verið lífsförunautur
Gunnars Björnssonar. Þeim hefur
ekki orðið barna auðið, en frúin
átti einn son frá fyrra hjóna-
bandi. Þau eiga einstaklega fal-
legt heimili við Tagesmindevej 1 í
Gentofte, en það bæjarfélag er
norðan Kaupmannahafnarborgar.
Þar hefur margur maðurinn
gengið í garð og átt ánægju-
stundir, þvf gestrisni þeirra hjóna
er viðbrugðið. Gréta, eins og hún
er jafnan kölluð, tekur öllum
opnum örmum og veit varla hvað
hún á fyrir gesti sína að gera.
Góðir vinir sleppa oft ekki fyrr en
búið er að hlaða á þá allskonar
gjöfum.
Eins og að líkum lætur hefur
slíkur öðlingsmaður, sem Gunnar
er, eignast mikinn fjölda vina og
kunningja um ævina. Margir
þeirra eiga þess kost að heim-
sækja hann á þessum merkisdegi
og þakka honum fyrir allt gamalt
og gott. Við, sem heima sitjum,
verðum að láta okkur nægja að
hugsa hlýlega til hans og senda
honum kveðju á öldum ljós-
vakans. Lifðu heill.
Páll Asg. Tryggvason.
Attræður í gær:
Ólafur Ólafsson kristni-
boði — Afmœliskveðja
Tveir nýir í stjórn Sumargjafar
Nú við þessi merku tímamót f
lífi Ólafs Ólafssonar kristniboða,
þegar átta tugir liggja að baki, vil
ég senda honum, eiginkonu og
börnum, mínar innilegustu ham-
ingjuóskir með afmælið og þakka
honum allt gamalt og gott.
Þakkir mínar eru fyrst og
fremst fyrir framlag þitt í akri
kristninnar, bæði hér heima og í
framandi löndum, þar sem þú
Ölafur, hefir öllum íslendíngum
fremur lagt lóð á vogarskálarnar
til ómetanlegrar blessunar fyrir
viðkomandi menn, sem morgun
eilffðarinnar einn mun geta opin-
berað.
Ég var ekki kominn úr frum-
bernsku, þegar lesið var fyrir mér
um starf þitt úr Bjarma. Minnis-
stæð er mér mynd af þér og fjöl-
skyldu klædd kínverskum fötum.
Starfandi 14 ár að kristniboðs-
málum í Kína. Það var þjóðernis-
leg kennd, sem hreif barnshjarta
mitt, að þú, íslendíngurinn,
skyldir vera þar og starfa þar sem
útvörður islenskrar kristni.
Síðar eftir að þú komst heim,
minnist ég þess,að viðburður þótti
er þú heimsóttir mína fæðingar-
byggð. Vitanlega fór ég með
móður minní til að hlusta á þig.
Fólkið talaði um ræður þínar.
Sumir fengu sting í hjartað, sem
vöktu þá til iðrunar og aftur-
hvarfs. Þannig varstu verkfæri
Drottins til að uppvekja suma
beztu meðlimi Hvítasunnuhreyf-
ingarinnar á íslandi til lifandi
trúar, auk allra hinna, sem eng-
inn veit tölu á nema Guð, innan
kirkju og utan. Til að færa máli
mínu stað víl ég geta skólasystur
þinnar frá Hvítárbakka, merkis-
konunnar Guðríöar Þórodds-
dóttur, og eiginkonu minnar,
Sigurlínu Jóhannsdóttur, sem
vannst fyrir Krist vegna heim-
sóknar þinnar aó kvennaskól-
anum á Löngumýri i Skagafirði
fyrir mörgum árum.
Oflof og skjall er þér fjarri
skapi, Ólafur minn. En mér
finnst þú geta tekið undir orð
Páls Postula við þessi tímamót:
„Ég hefi barist góðu baráttunni,
hefi fullnað skeiðið, hefi varð-
veitt trúna. Og nú er mér geymd-
ur sveigur réttlætisins, sem Drott-
inn mun gefa mér á þeim degi.
Hann hinn réttláti dómari."
Þegar þú nú af áttræðum sjón-
arhóli lítur yfir farinn veg, finnst
mér þú hafa höndlað sigursveig-
inn. Eða er hægt að ganga fram-
hjá ávaxtasömu starfi þínu hér
heima, innan kristilegu félag-
anna, eða stórkostlegum árangri í
Eþíópfu, þar sem drengirnir þín-
ir halda uppi merki menningar og
mannkærleika í nafni Jesú Krists,
læknandi sjúka, kennandi fá-
fróðum, studdir til dáða af góðum
eiginkonum og barnabörnum þín-
um og fjölda kristniboðsvina um
land allt, sem gefa milljónir
króna til styrktar og framgangs
hugsjónum þínum, á hverju ári.
Guð hefir gefið landi okkar
góðar gjafir. Þú ert Guðs gjöf til
íslenskrar kristni og kirkju. Það
er bara náð. En náð Guðs í Jesú
Kristi vil ég þakka. Þess vegna
fyrirgefur þú mér þessa kveðju
mína, sem skrifuð er í einlægni og
virðingu til þín sem þjóns Drott-
ins.
Njóttu vel þessara tímamóta
með þinni elskulegu Herborgu og
börnum ykkar, stóra ættarbog
anum og vinarhringnum. Davfðs-
sálmur 92. 13-16.
Einar J. Gfsfason.
AÐALFUNDUR Barnavinafélagsins
Sumargjafar var haldinn að Hótel Sögu
föstudaginn 20 júni sl
Fram fóru venjuleg aðalfundarstörf.
Formaður félagsins, Bragi Kristjánsson
forstjóri, flutti ftarlega skýrslu stjórnar,
og framkvæmdastjórinn, Þorvarður
Örnólfsson, las og skýrði reikninga
félagsins. Þá voru kjörnir tveir meræ í
stjórn skv lögum félagsins. Úr stjórn-
inni áttu að þessu sinni að ganga sr.
Bernharð Guðmundsson, sem nú er
búsettur í Eþiópiu, og Stefán
Matthíasson læknir, sem starfar nú á
ísafirði I stað þeirra voru kjörnar
Hulda Bjömsdóttir og Guðrún
Guðjónsdóttir forstöðukona
Auk þeirra eiga nú sæti I stjórn
Sumargjafar Bragi Kristjánsson for-
stjóri, formaður, Jón Freyr Þórarinsson
skólastjóri, varaformaður, Þórunn
Einarsdóttir umsjónafóstra, ritari, Helgi
Eliasson fr. fræðslumálastjóri og Svava
Stefánsdóttir félagsráðgjafi
Varastjórn skipa Mar'a Finnsdóttir
fóstra, Ragnheiður Blöndal fóstra og
Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi
Fasteignir í Kópavogi
Höfum kaupendur að öllum stærðum íbúða,
raðhúsa og einbýlishúsa.
Sigurður Helgason hrt.
Þinghólsbraut 53,
sími 42390.
Hafnarfjörður
Fiskverkunarhús —
Iðnaðarhúsnæði
Höfum til sölu í Hafnar-
firði 250 fm. húsnæði.
Lofthæð hússins er um
4,5—6 m. 4 m há inn-
keyrsla. Teikningar á
skrifstofunni.
IBÚDA-
SALAN
Gept Gamla Bíói sími 12180
Kvöld og helgarsímí
20193
Einbýlishús í Hveragerði,
Þorlákshöfn og Selfossi.
Til sölu nýtt fullgert, stórt og glæsilegt einbýlis-
hús í Hveragerði. 1 200 fm. lóð.
Nýtt 130 fm. einbýlishús í Þorlákshöfn. Verð 6
millj. Laust fljótlega. Ennfremur nú fullgerð
einbýlishús á Selfossi. Hagstætt verð og kjör ef
samið er strax.
m
FASTEIGNIR S.F.
Austurvegi 22, Selfossi
sími 1 884 eftir hádegi.
Sigurður Sveinsson lögfræðingur
heimasimi 1 682.
-avsaa*
I Í UiAVtfaU
FLÓKAGÖTU1
SÍMI24647
Einbýlishús
VIÐ Nesveg nýstandsett. Húsið
er dagstofa, svefnherbergi, eld-
hús og baðherbergi. í kjallara í
íbúðarherbergi og geymslurými.
Stór vinnuskúr. Rúmgóð lóð.
Laust fljótlega.
Einbýlishús
í Vesturbænum i Kópavogi
4ra—5 herb. í góðu standi. Bíl-
skúrsréttur. Falleg ræktuð lóð.
Sérhæð
í Laugarneshverfi 4ra herb. Stór
bilskúr með 3ja fasa raflögn.
Við Skipasund
3ja herb. ibúð. Laus strax.
Helgi Ólafsson
löggiltur fasteignasali
kvöldsimi 211 55.
í skiptum
2ja herb. ibúð við Karfavog i
mjög góðu standi. í skiptum fyrir
3ja—4ra herb. ibúð helst i
Heimahverfi.
Langabrekka
3ja herb. jarðhæð um 80 ferm.
ásamt bílskúr i skiptum fyrir 3ja
herb. i Reykjavik
Vesturberg
3ja herb. ibúð að mestu fullfrá-
gengin i lyftuhúsi. Útb. 3-—3,5
millj
Vesturberg jarðhæð
4ra herb. ibúð i toppstandi. Útb.
4 millj.
Skólagerði
130 ferm. sérhæð i tvibýlishúsi.
Útb. 4,5 millj.
Keflavík
1 30 ferm. sérhæð ásamt bílskúr.
íbúðin er á 2. hæð i tvibýlishúsí.
Útb. um 4 millj.
Garðahreppur
Raðhús um 250 ferm. ásamt
bilskúr. Húsið selst tilbúið undir
tréverk.
Engjasel
Raðhús i smíðum til sölu eða í
skiptum fyrir 2ja—3ja herb.
ibúð
Óskast keypt
Einbýlishús á Flötunum eða i
Kópavogi verð um 11,5—12,5
millj.
Bræðratunga
raðhús um 112 fm. Bílskúrs-
réttur. Útb. 5,5 til 6 millj.
Unufell
raðhús i skiptum fyrir 3ja til 4ra
herb. ibúð i Reykjavik. Húsið er í
smiðum.
Freyjugata
2ja herb. risibúð 60—70 'fm.
Útb. 1,5 millj.
Sörlaskjól
3ja herb. kjallaraibúð um 90 fm.
Útb. 2,5 millj.
Hraunbær
Mjög góð 2ja herb. ibúð á 2.
hæð. Suðursvalir.
Ásendi
4ra herb. sérhæð um 1 1 5 fm.
Útb. 4,5 millj.
Kópavogur
Einbýlishús, raðhús og sérhæðir
í austur og vesturbænum.
Kópavogur
Raðhús í smíðum. Afhendist
tilbúið undir tréverk í október
n.k.
Borgarholtsbraut
3ja herb. ibúð. Bilskúrsréttur.
(Allt sér).
Nýbýlavegur
3ja herb. íbúð á 1. hæð ásamt
einu herbergi i kjallara. (Bílskúr).
Verslun
Verslunar og skrifstofuhúsnæði i
Miðborginni, Einnig i úthverfum
borgarinnar. Upplýsingar á skrif-
stofunni.
Hafnarfjörður
Iðnaðarhúsnæði um 1 80 fm á 1.
hæð. Lofthæð um 4m. Selst fok-
helt eða lengra komið. Upplýs-
ingar á skrifstofunni.
KyöJdsími 42618.